Síða 1 af 2

Forrit/síða til að læra ensku

Sent: Mán 28. Feb 2011 23:17
af íslendingur
Var að pæla hvort einhver geti bent mér á góða síðu/forrit eða bók til að læra ensku. Á erfitt með að lesa enska texta á netinu og horfa á bíómyndir og þá sérstaklega að skilja talaða ensku. Get skilið bíómyndir smá ef það er enskur texti, en ekki nógu mikið ef einhver veit um einhvað sniðugt sem hefur t.d virkað fyrir þig má hann endilega pósta því hérna :shock: Er búin að reyna fara eftir þessu http://is.wikibooks.org/wiki/Enska/L%C3 ... /Inngangur en það er virkar bara smá partur af þessu.

Re: Forrit/síða til að læra ensku

Sent: Mán 28. Feb 2011 23:24
af dori
Hvað ertu gamall/gömul?

Maður lærir á því að "æfa sig". Í þessu tilfelli myndi það vera að hlusta mikið á ensku og lesa mikið af ensku. Ef þú notar vafrann til að lesa þá mæli ég með að nota Chrome og Google Dictionary viðbótina sem gerir manni kleift að fá þýðingu á orði í texta með því að tvísmella á það. Algjör snilld.

Re: Forrit/síða til að læra ensku

Sent: Mán 28. Feb 2011 23:26
af Glazier
Finnst ég nú hafa lært lang mest á því að horfa á enskar bíómyndir með enskum texta (ekki íslenskum).

Re: Forrit/síða til að læra ensku

Sent: Mán 28. Feb 2011 23:41
af íslendingur
Ég er 22 ára er einmitt mikið búin að vera horfa á myndir með enskum texta en hef ekki lært nógu mikið af því, en þetta er snilldar forrit vissi ekki af þessu

Re: Forrit/síða til að læra ensku

Sent: Þri 01. Mar 2011 01:10
af dori
Ok. Ég myndi segja að það að horfa bara á nógu mikið af kvikmyndum/þáttum á ensku og að vera duglegur að reyna að lesa texta á ensku. Þú ert væntanlega búinn með allt þetta enskudót í grunnskóla/framhaldsskóla svo að þú þarft ekki þessi grunnatriði. Enska er 90%+ orðaforðinn...

Re: Forrit/síða til að læra ensku

Sent: Þri 01. Mar 2011 01:16
af rapport
http://www.youtube.com/watch?v=VSGqnzK7xYg

Ég lærði ensku með hjálp þessa forrits á sínum tíma, mæli með því þó að það sé orðið svolítið gamaldags.

Re: Forrit/síða til að læra ensku

Sent: Þri 01. Mar 2011 01:18
af coldcut
Horfa á fréttir, kvikmyndir og þætti með ensku tali (texti gæti hjálpað) og lesa erlendar fréttasíður t.d.

Án þess að blása í minn eigin lúður þá get ég sagt að ég hef frá því ég var lítill alltaf verið góður í ensku bæði í töluðu máli og lesskilningi. Enskuna lærði ég 99% á því að horfa á Cartoon Network, SkySports, SkyNews. EuroSport og fleiri stöðvar á gamla kapalkerfinu og síðan með því að lesa alvöru bækur á ensku þegar Cartoon Network fór að verða leiðinleg :D

Re: Forrit/síða til að læra ensku

Sent: Þri 01. Mar 2011 01:44
af JohnnyX
coldcut skrifaði:Horfa á fréttir, kvikmyndir og þætti með ensku tali (texti gæti hjálpað) og lesa erlendar fréttasíður t.d.

Án þess að blása í minn eigin lúður þá get ég sagt að ég hef frá því ég var lítill alltaf verið góður í ensku bæði í töluðu máli og lesskilningi. Enskuna lærði ég 99% á því að horfa á Cartoon Network, SkySports, SkyNews. EuroSport og fleiri stöðvar á gamla kapalkerfinu og síðan með því að lesa alvöru bækur á ensku þegar Cartoon Network fór að verða leiðinleg :D


Cartoon Network verður ekki leiðinlegt! Annars byrjaði ég líka að læra ensku þar og hefur það svo sannarlega skilað sér! Hver segir að sjónvarp sé ekki hollt fyrir mann :lol:

Re: Forrit/síða til að læra ensku

Sent: Þri 01. Mar 2011 01:54
af Klaufi
coldcut skrifaði:Horfa á fréttir, kvikmyndir og þætti með ensku tali (texti gæti hjálpað) og lesa erlendar fréttasíður t.d.

Án þess að blása í minn eigin lúður þá get ég sagt að ég hef frá því ég var lítill alltaf verið góður í ensku bæði í töluðu máli og lesskilningi. Enskuna lærði ég 99% á því að horfa á Cartoon Network, SkySports, SkyNews. EuroSport og fleiri stöðvar á gamla kapalkerfinu og síðan með því að lesa alvöru bækur á ensku þegar Cartoon Network fór að verða leiðinleg :D


x2

Ég var farinn að tala ensku upp úr svefni 7 ára (ekki mín heimild :lol:)

Ég þakka Scooby Doo, Ducktales og öllu öðru sem kom úr viðarsjónvarpinu fyrir! :beer

Re: Forrit/síða til að læra ensku

Sent: Þri 01. Mar 2011 02:17
af gardar
JohnnyX skrifaði:Cartoon Network verður ekki leiðinlegt! Annars byrjaði ég líka að læra ensku þar og hefur það svo sannarlega skilað sér! Hver segir að sjónvarp sé ekki hollt fyrir mann :lol:


Nýja cartoon network er alveg ömurleg.... Cartoon network boomerang er virkilega fín, með klassísku teiknimyndunum sem maður kannast við :happy

Og svo er Adult Swim (sem er jú í eigu cartoon network manna) náttúrulega æðisleg líka

Re: Forrit/síða til að læra ensku

Sent: Þri 01. Mar 2011 02:44
af coldcut
JohnnyX skrifaði:Cartoon Network verður ekki leiðinlegt! Annars byrjaði ég líka að læra ensku þar og hefur það svo sannarlega skilað sér! Hver segir að sjónvarp sé ekki hollt fyrir mann :lol:


Cartoon Network síðustu ár er orðin leiðinleg! Gamla góða var snilld...Roadrunner, Tom&Jerry, Dexter's Laboratory o.s.frv.

Re: Forrit/síða til að læra ensku

Sent: Þri 01. Mar 2011 08:28
af ViktorS
Ég hef lært ensku bara í skóla/tölvu/sjónvarpi. Samt á ég félaga sem er jafn gamall mér, kann ensku betur en ég en neitar einfaldlega að gera enskuverkefni í skóla en lærir enskuna sína á miklu sjónvarps og þáttaglápi.

Re: Forrit/síða til að læra ensku

Sent: Þri 01. Mar 2011 09:27
af dori
ViktorS skrifaði:Ég hef lært ensku bara í skóla/tölvu/sjónvarpi. Samt á ég félaga sem er jafn gamall mér, kann ensku betur en ég en neitar einfaldlega að gera enskuverkefni í skóla en lærir enskuna sína á miklu sjónvarps og þáttaglápi.

Það er alltaf hætta á því að verða lélegur í öðrum þáttum ensku (t.d. málfræði, stafsetningu etc.) ef þú neitar að vinna verkefni og horfir bara á sjónvarp...

Re: Forrit/síða til að læra ensku

Sent: Þri 01. Mar 2011 10:05
af Hauksi
BBC er með ágætis enskukennslu! Hlustar og lest textann...
http://www.bbc.co.uk/worldservice/learningenglish/

Good luck :)

Re: Forrit/síða til að læra ensku

Sent: Þri 01. Mar 2011 12:28
af capteinninn
Ég er frekar góður í ensku og rek ég það til mikils áhorfs á sjónvarp.

Hinsvegar er ég ömurlegur í þýsku og hef reynt að nota sömu aðferð á það án árángurs.
Var líka lélegur í dönsku en um leið og ég fór til Danmerkur náði ég að hækka einkunnina mína um rúmlega 2 og þegar ég fór aftur hækkaði hún um 2 í viðbót. Fór úr 4 í 8.

Held að vandamálið mitt sé að ég þurfi að upplifa tungumálið í raunnotkun til þess að ég læri það. Mæli þá með að kíkja til London yfir helgi eða eitthvað og þvinga sig til að redda sér á enskunni allt sem þú ferð, gætir lært eitthvað á því.
Geri mér líka alveg grein fyrir að það eru ódýrari leiðir til að læra tungumál en þessi

Re: Forrit/síða til að læra ensku

Sent: Þri 01. Mar 2011 12:33
af fannar82
Ætli það sé ekki eitthvað svona http://www.rosettastone.co.uk/learn-english-american - sem þú ert að leita þér að?


ég ætla að prófa þetta með spænsku :)

Re: Forrit/síða til að læra ensku

Sent: Þri 01. Mar 2011 12:41
af coldcut
fannar82 skrifaði:Ætli það sé ekki eitthvað svona http://www.rosettastone.co.uk/learn-english-american - sem þú ert að leita þér að?


ég ætla að prófa þetta með spænsku :)


Sjitt hvað þetta er dýrt...ferð til Lundúna kostar ekkert mikið meira :D
En aldrei mundi ég læra "american-english", miklu fallegra og skemmtilegra mál talað á Bretlandseyjum en nokkurn tímann í BNA.

Re: Forrit/síða til að læra ensku

Sent: Þri 01. Mar 2011 12:47
af Frost
Ég lærði mína ensku mest þegar ég var í 3.-5. bekk. Spilandi Crash bandicoot og alla þessa gömlu góðu með frænda mínum sem var 1 ári eldri en ég og var snillingur í ensku. Ef ég skildi ekki eitthvað þá spurði ég hann og hægt og rólega var ég kominn á gott ról :megasmile

Re: Forrit/síða til að læra ensku

Sent: Þri 01. Mar 2011 12:52
af fannar82
coldcut skrifaði:
fannar82 skrifaði:Ætli það sé ekki eitthvað svona http://www.rosettastone.co.uk/learn-english-american - sem þú ert að leita þér að?


ég ætla að prófa þetta með spænsku :)


Sjitt hvað þetta er dýrt...ferð til Lundúna kostar ekkert mikið meira :D
En aldrei mundi ég læra "american-english", miklu fallegra og skemmtilegra mál talað á Bretlandseyjum en nokkurn tímann í BNA.




já þetta er helvítans dýrt en ætla að skella mér á "grátt" svæði og benda mönnum á to***nt og kaupa svo bara pakkann ef að þú heldur að þetta eigi eftir að hjálpa þér að læra tungumálið.

Re: Forrit/síða til að læra ensku

Sent: Þri 01. Mar 2011 14:23
af einarhr
fannar82 skrifaði:Ætli það sé ekki eitthvað svona http://www.rosettastone.co.uk/learn-english-american - sem þú ert að leita þér að?


ég ætla að prófa þetta með spænsku :)


Rosetta Stone er mjög gott forrit, hef lært smá í Spænsku með því. Mæli klárlega með því.


Bætt við!

Sjálfur lærði ég Ensku í skóla, byrjaði að ég held 12 ára í barnaskóla og tók stúdent 20 ára í Menntaskóla og er það grunnurinn að allri minni enskukunnáttu. Bíómyndir og Sjónvarp hjálpa til en ég mæli með að þú byrja á því að fara á td. bókasafn og spurja um einfaldar enskubækur því þú sért að reyna að læra ensku. Svo má fara í erfiðari bækur með tímanum.

Svo getur þú farið All In og flutt til td Bretlands og reynt að finna þér vinnu og komast betur inn í málið.

Sjálfur lærði ég td Sænsku með því að fá mér vinnu á Bar í norður Svíþjóð og samdi ég við eigandan að enginn mætti tala við mig ensku nema um algjört neyðartilvik væri að ræða. Það hjálpaði mér mjög mikið í Sænskunni. Einnig að lesa dagblöð, skoða textavarpið og hafa Sænskan texta á öllu sem ég horfði á.

Re: Forrit/síða til að læra ensku

Sent: Þri 01. Mar 2011 14:40
af Daníel
svo er líka gott að lesa síður sem fjalla um áhugamálið þitt á ensku, og ef þú ert byrjandi, að downloada t.d. andrés blöðum á ensku

Re: Forrit/síða til að læra ensku

Sent: Þri 01. Mar 2011 18:12
af íslendingur
Takk fyrir allar ábendingarnar, já ég vildi að ég hefði horft á cartoon network meira þegar ég var lítill. Og já ég er búin með alla ensku áfanga í grunsskóla plús ensku 102,202 og 222, veit ekki hvernig í fjandanum mér tókst að ná í gegnum þá.

Re: Forrit/síða til að læra ensku

Sent: Mið 02. Mar 2011 14:40
af Jim
Horfðu á fullt af enskum/amerískum bíomyndum eða þáttum með enskum texta og skoðaðu mikið af vefsíðum á ensku. Þetta sýjast smátt og smátt inn. Ég lærði reyndar ensku á sínum tíma með því að horfa MIKIÐ á Cartoon Network og Simpsons og hef alltaf verið nokkuð góður í ensku.

Re: Forrit/síða til að læra ensku

Sent: Mið 02. Mar 2011 15:23
af íslendingur
Er að pæla í að byrja á þessu http://tungumal.is/?flokkur=1 hefur enhver reynslu af þessu? Þetta er dýrt en gæti verið þess virði ef þetta virkar.

Re: Forrit/síða til að læra ensku

Sent: Fös 04. Mar 2011 14:21
af íslendingur
Enginn sem hefur prófað þetta? :shock: