Síða 1 af 1

Besta Myndavélin

Sent: Mán 28. Feb 2011 19:33
af gullis
Sælir,

Þar sem ég á enga myndavél þá var að hugsa um að fara og versla mér eina slíka fljotlega,,, Langaði að ath hérna fyrst hvað myndavélafræðingar mæla með.

Budgetið er MAX 20,000kr.

Hef verið að skoða eitthvað á elko en ég veit ekkert almennilega hvar er hægt að gera góð kaup á myndavélinum í dag.

mbk Gulli.

Re: Besta Myndavélin

Sent: Mán 28. Feb 2011 19:42
af SolidFeather
Held að það þær séu allar jafn mikið drasl fyrir 20.000 kall.

Re: Besta Myndavélin

Sent: Mán 28. Feb 2011 19:48
af biturk
gullis skrifaði:Sælir,

Þar sem ég á enga myndavél þá var að hugsa um að fara og versla mér eina slíka fljotlega,,, Langaði að ath hérna fyrst hvað myndavélafræðingar mæla með.

Budgetið er MAX 20,000kr.

Hef verið að skoða eitthvað á elko en ég veit ekkert almennilega hvar er hægt að gera góð kaup á myndavélinum í dag.

mbk Gulli.


keiptu þér þá bara síma með almennilegri myndavál, það eru álíka góðar vélar í þeim og þessum pínulitu myndavélum, ég er allavega heil sáttur við c903 símann minn, geðveikar myndar úr honum :beer

Re: Besta Myndavélin

Sent: Mán 28. Feb 2011 19:52
af capteinninn
Myndi skoða http://www.dpreview.com

Er að fara til Suður Ameríku og ætla að kaupa Canon S95 áður en ég fer út, kostar 50k í BNA

Re: Besta Myndavélin

Sent: Mán 28. Feb 2011 20:03
af rapport
Einhverja Sony vél úr Elko...

>Finnst þær e-h meira robust en aðrar (hef annars ekkert fyrir mér í þessu nema að ég keypti svoleiðs sjálfur á sínum tíma á þessum forsendum og það var OK)

Re: Besta Myndavélin

Sent: Mán 28. Feb 2011 20:49
af Frussi
Persónulega myndi ég ekki tíma að eyða 20.000kr í myndavél, ekki þess virði. Hef verið að nota Canon EOS 350D, 400D og 500D minnir mig og ég get ekki notað svona litlar vélar lengur. Frekar spara stíft og fá sér eitthvað almennilegt ;)

Svo er líka gaman að vera með filmuvélar. Það þarf að vísu að læra aðeins á þær, en maður getur náð alveg frábærum myndum með góðri tækni, auk þess að getað fengið ákveðna effecta með réttri notkun.

Re: Besta Myndavélin

Sent: Mán 28. Feb 2011 20:57
af gullis
Það er bara ekki í boði að safna núna fyrir vél,,, Ég mun kaupa mér einn daginn SLR vél það er á hreinu ;) En eins og staðan er í dag þá vantar mér vél þar sem mín var að deyja,, 5ára gömul canon 3,1mp digital vél :lol: búinn að uppfylla mínar kröfur í öll þessi ár, ég á von á mínu þriðja barni núna í enda mars og það er bara ekki í boði að vera EKKI með myndavél á svæðinu þegar það kemur í heiminn ;) Þess vegna ætla ég að kaupa mér einhverja svona litla digital vél eins og ég átti nema ég vill bara vera viss um að kaupa það allra besta fyrir þennan 20,000 kall :!:
Ég þekki ekkert inná tegundir og fídusa og þess vegna póstaði ég hér inn um von um að fá góð ráð :happy

mbk Gulli

Re: Besta Myndavélin

Sent: Mán 28. Feb 2011 21:04
af halli7
Hérna er eitthver svona í kringum 20 þús
http://www.elko.is/elko/product_detail/ ... oryid=1747

Re: Besta Myndavélin

Sent: Mán 28. Feb 2011 21:11
af gullis
halli7 skrifaði:Hérna er eitthver svona í kringum 20 þús
http://www.elko.is/elko/product_detail/ ... oryid=1747


Tæki samt þessa frammyfir þessa sony vél úr elko... http://sm.is/index.php?sida=vara&vara=EXZ800

Ég er alveg búinn að skoða fullt af síðum :happy Það sem ég er að óska eftir er álit/ráð með tegundir ;)

Re: Besta Myndavélin

Sent: Mán 28. Feb 2011 22:45
af FriðrikH
Skoðaðu að panta þér frá http://www.adorama.com eða http://www.bhphotovideo.com/
Það er enginn tollur á stafrænum myndavélum, bara vaskur. Ég hef pantað mér myndavélar að utan og sparað helling á því. Þessi 2 fyrirtæki sem ég linkaði á eru 100%, hef fengið frá báðum, mjög vel pakkað inn og allt í orden. Ef þú finnur eitthvað hér sem þér líst á, þá mundi ég allavega tékka hvað það mundi kosta að utan áður en þú kaupir. Þ.e.a.s. ef konan þín á ekki að eiga á næstu dögum.

Re: Besta Myndavélin

Sent: Fim 03. Mar 2011 00:15
af gullis
Fékk mér vél í dag... Casio ex z 350 varð fyrir valinu,,, Er einstaklega ánægður með hana ;) Þakka þeim sem sendu inn uppástungur.

Re: Besta Myndavélin

Sent: Fim 03. Mar 2011 09:30
af fannar82
En að kíkja á http://www.ljosmyndakeppni.is og athuga hvort að einhver sé að selja notaða SLR?