Síða 1 af 1
Hljóðvandamál með jack tengi.
Sent: Lau 26. Feb 2011 11:09
af BjarkiB
Sælir/ar vaktarar,
Á Sennheiser Hd 515 heyrnatól, en ég lennti í því að beygla breytistykkið frá 6,35 mm tenginu í 3,5mm tengið (mynd að neðan). Svo ég hljóp í tölvutek og keypti mér nýtt,
http://www.tolvutek.is/product_info.php ... s_id=24981. En það virðast vera eitthverjar truflanir með hljóð þegar ég set það á. Svo ég er að spá hvort þetta gæti verið millistykkið eða stóra jack tengið á heyrnatólinu?
btw. Sé enga beyglun á jack tenginu.
kv.Bjarki
Re: Hljóðvandamál með jack tengi.
Sent: Lau 26. Feb 2011 11:25
af lukkuláki
Þessi millitengi eru mjög misjöfn að gæðum það má eiginlega segja að verð og gæði haldist í hendur þetta ódýra er í sumum tilfellum ónýt rusl.
Ég hef lent í að kaupa svona millistykki sem var ekki að virka nema það snéri rétt þá náði stóri jack sambandi ég gafst upp á því og fékk mér eitthvað í heimilistækjum sem var pínu dýrara en það virkar líka 100% Svo getur verið að snúran hafi skaddast eða audio pluggið í tækinu? sérstaklega ef þú gekkst af stað með headphonin á eyranu og tengið í græjunni.
Ef þú kemst í tæki þar sem þú getur tengt stóra jack beint í tækið þá geturðu tékkað snúruna.
Re: Hljóðvandamál með jack tengi.
Sent: Lau 26. Feb 2011 11:36
af BjarkiB
lukkuláki skrifaði:Þessi millitengi eru mjög misjöfn að gæðum það má eiginlega segja að verð og gæði haldist í hendur þetta ódýra er í sumum tilfellum ónýt rusl.
Ég hef lent í að kaupa svona millistykki sem var ekki að virka nema það snéri rétt þá náði stóri jack sambandi ég gafst upp á því og fékk mér eitthvað í heimilistækjum sem var pínu dýrara en það virkar líka 100% Svo getur verið að snúran hafi skaddast eða audio pluggið í tækinu? sérstaklega ef þú gekkst af stað með headphonin á eyranu og tengið í græjunni.
Ef þú kemst í tæki þar sem þú getur tengt stóra jack beint í tækið þá geturðu tékkað snúruna.
Takk fyrir þetta, alltaf gaman að fá almennileg svör.
Annars þá prufaði ég heyrnatólin á heimabíóinu, og þar var ekkert athyglisvert við hljóðið. Þá hlýtur þetta að vera millistykkið bara, eitthverjar hugmyndir hvar ég keypt nýtt og almennilegt á viðráðanlegu verði?
Re: Hljóðvandamál með jack tengi.
Sent: Lau 26. Feb 2011 11:46
af tdog
Prófaðu Pfaff. Reyndu að næla þér í millistykki frá Sennheizer, gullhúðað. Þau hafa aldrei klikkað hjá mér.
Re: Hljóðvandamál með jack tengi.
Sent: Lau 26. Feb 2011 11:47
af lukkuláki
Þakka þér ef þú vilt eðal þá
http://www.hljomsyn.com/Annars bara Pfaff, Heimilistæki eða Sjónvarpsmiðstöðin sem er nánast það sama enda sömu eigendur þú getur örugglega fengið að prófa tektu bara headphones með þér
Re: Hljóðvandamál með jack tengi.
Sent: Lau 26. Feb 2011 12:50
af dori
Það getur reyndar líka verið að þú hafir farið eitthvað illa með mini-jack konuna sem breytistykkið var í. Geturðu prufað einhver önnur heyrnartól/hátalara bara til að vera viss um að það sé í lagi. Eða að nota heyrnartólin og breytistykkið með einhverju öðru tæki en þú hefur alltaf verið að gera.
Getur vel verið að þú sért búinn að því en ég hef lært af reynslunni að maður lítur oft yfir það augljósa.
Re: Hljóðvandamál með jack tengi.
Sent: Fim 03. Mar 2011 14:59
af BjarkiB
Þakka svörin, fór niður í heimilistæki og fékk að prufa eitt svona stykki sem virkaði. Kostaði um 200 kr minni en þetta sem ég fékk hjá tölvutek.