Síða 1 af 1
"Enga vírusa" auglýsingin hjá apple BÖNNUÐ
Sent: Fim 17. Feb 2011 17:22
af Nothing
http://mbl.is/frettir/innlent/2011/02/17/bannad_ad_auglysa_enga_virusa/Tekið af MBL.is skrifaði:Áfrýjunarnefnd neytendamála hefur staðfest ákvörðun Neytendastofu um að fyrirtæki hefði brotið gegn lögum með því að fullyrða að „engir vírusar" væru í fartölvum sem fyrirtækið seldi.
Um er að ræða fyrirtækið Skakkaturninn ehf. sem auglýsti Apple fartölvur með þessum hætti.
Hefur áfrýjunarnefnd neytendamála staðfest, að fyrirtækinu sé bannað að auglýsa með þessum hætti.
Re: "Enga vírusa" auglýsingin hjá apple BÖNNUÐ
Sent: Fim 17. Feb 2011 17:27
af blitz
Re: "Enga vírusa" auglýsingin hjá apple BÖNNUÐ
Sent: Fim 17. Feb 2011 17:58
af Nothing
Þetta er ekki repost.
Það er til annað þráður en þar er umræða um að það ætti að banna þetta ekki að það væri búið að banna þessa auglýsingar.
Re: "Enga vírusa" auglýsingin hjá apple BÖNNUÐ
Sent: Fim 17. Feb 2011 17:59
af AntiTrust
Nothing skrifaði:Þetta er ekki repost.
Það er til annað þráður en þar er umræða um að það ætti að banna þetta ekki að það væri búið að banna þessa auglýsingar.
Lestu síðustu 2 bls af þeim þráð.
Re: "Enga vírusa" auglýsingin hjá apple BÖNNUÐ
Sent: Fim 17. Feb 2011 18:14
af pattzi
stendur nú í tölvupósti sem ég fékk áðan er á póstlista og búin að vera í nokkur ár meira segja þegar þetta hét humac fæ ennþá póst samt en stendur engir vírusarr haha
Re: "Enga vírusa" auglýsingin hjá apple BÖNNUÐ
Sent: Fim 17. Feb 2011 18:41
af Frantic
Þessi náungi hjá apple er greinilega alveg mega sár yfir þessu.
Hann lætur eins og lítið barn.
Re: "Enga vírusa" auglýsingin hjá apple BÖNNUÐ
Sent: Fim 17. Feb 2011 21:20
af Starman
Tekið af
http://neytendastofa.is/lisalib/getfile.aspx?itemid=25665. Kærandi svaraði með bréfi, dags. 2. nóvember 2010. Þar er tekið fram að allar tölvur sem afhentar
séu frá kæranda beri enga vírusa, en þar sé um að ræða u.þ.b. 5.000 til 7.000 tölvur á ári. Aldrei
hafi komið upp sú staða að ein einasta vél hafi verið afhent viðskiptavini með vírus. Það sé það
sem kærandi sé að vísa í
Hvað í and*#$% , hvers konar rökleysa og bull er þetta ?
Er maðurinn að segja að allar PC vélar sé afhentar hlaðnar af vírusum ?
Þessi maður svarar líklega öllum rökræðum með orðunum "Nei þú !"
Re: "Enga vírusa" auglýsingin hjá apple BÖNNUÐ
Sent: Fim 17. Feb 2011 21:46
af biturk
ég ætla að hvetja einhverja fyndna tölvuverslun til að gera grín af þessu og setja auglýusingu í sjónvarpið sem svipar til þessara og segja að vírus fylgi öllum keiptum tölvum
Re: "Enga vírusa" auglýsingin hjá apple BÖNNUÐ
Sent: Fim 17. Feb 2011 21:55
af braudrist
„Aldrei hafi komið upp sú staða að ein einasta vél hafi verið afhent viðskiptavini með vírus."
lmao, hvaða fyrirtæki mundi afhenda viðskiptavinum tölvu með vírus? Frá hvaða plánetu er þessi gaur