Síða 1 af 1

Lag Íslands fyrir euruvosion.

Sent: Mán 14. Feb 2011 21:05
af hauksinick
Hvernig finnst ykkur lag íslendinga í ár?
Hérna má svo heyra lagið.

Re: Lag Íslands fyrir euruvosion.

Sent: Mán 14. Feb 2011 21:08
af BjarkiB
Ekkert séstakt, mörg önnur lög sem ég hefði kosið framyfir.

Re: Lag Íslands fyrir euruvosion.

Sent: Mán 14. Feb 2011 21:12
af Dormaster
komið með svo mikla leið af eurovision, drep leiðinleg leiðinleg lög.

Re: Lag Íslands fyrir euruvosion.

Sent: Mán 14. Feb 2011 21:13
af hauksinick
Dormaster skrifaði:komið með svo mikla leið af eurovision, drep leiðinleg leiðinleg lög.

Þú,ert 14 ára?

Re: Lag Íslands fyrir euruvosion.

Sent: Mán 14. Feb 2011 21:15
af GullMoli
Ég er nokkuð viss um að þetta lag hefði ekki unnið ef hann hefði ekki látið lífið.

Re: Lag Íslands fyrir euruvosion.

Sent: Mán 14. Feb 2011 21:16
af Dormaster
hauksinick skrifaði:
Dormaster skrifaði:komið með svo mikla leið af eurovision, drep leiðinleg leiðinleg lög.

Þú,ert 14 ára?

þótt eg sé 14,8 eða 74 ára þá hef ég mínar skoðanir.

Re: Lag Íslands fyrir euruvosion.

Sent: Mán 14. Feb 2011 21:16
af hauksinick
GullMoli skrifaði:Ég er nokkuð viss um að þetta lag hefði ekki unnið ef hann hefði ekki látið lífið.

Hugsanlega.En mér finnst þetta lag fínt,þó að hitt lagið með matta matt var líka fínt.

Re: Lag Íslands fyrir euruvosion.

Sent: Mán 14. Feb 2011 21:30
af rapport
Það er líklega mestur talent í þessu lagi án þess að það sé blásið upp í eitthvað svakalegt show...

Finnst þetta fínt lag og mér finnst gott að hafa kosið þessa félaga sem eru að þessu til að heiðra félaga og vin sem er fallinn frá.

Þessi Eurovision verður kannski eins og Ólympíuleikarnir, ekki spurning um að vinna... bara vera með...

Sá tilgangur í ár toppar það margfalt að reyna senda útblásið show út sem er svo skotið niður í 16.sæti af austantjaldslöndunum.

Held að þetta lag muni líklega ganga betur í margann Evrópubúann heldur en eitthvað af hinum lögunum.

Ég er virkilega ánægður með þessi úrslit. :beer

Re: Lag Íslands fyrir euruvosion.

Sent: Mán 14. Feb 2011 22:36
af braudrist
Hvað haldiði að við séum að borga margar milljónir fyrir þetta Eurovision drasl? Væri ekki bara betra að sleppa þessu og nota peningana í eitthvað annað. Einnig finnst mér þetta lag vera algjört sorp og ég spái að það lendi í eitt af neðstu sætunum.

Re: Lag Íslands fyrir euruvosion.

Sent: Mán 14. Feb 2011 22:42
af gissur1
braudrist skrifaði:Hvað haldiði að við séum að borga margar milljónir fyrir þetta Eurovision drasl? Væri ekki bara betra að sleppa þessu og nota peningana í eitthvað annað. Einnig finnst mér þetta lag vera algjört sorp og ég spái að það lendi í eitt af neðstu sætunum.


Segir dúddinn með 980x og gtx580 í sli...

Re: Lag Íslands fyrir euruvosion.

Sent: Mán 14. Feb 2011 22:49
af Frantic
braudrist skrifaði:Hvað haldiði að við séum að borga margar milljónir fyrir þetta Eurovision drasl? Væri ekki bara betra að sleppa þessu og nota peningana í eitthvað annað. Einnig finnst mér þetta lag vera algjört sorp og ég spái að það lendi í eitt af neðstu sætunum.


Milljónir? Ég held að það sé frekar talið í milljörðum ef ekki meira í gegnum árin.

Re: Lag Íslands fyrir euruvosion.

Sent: Mán 14. Feb 2011 22:51
af axelarnar
Dormaster skrifaði:komið með svo mikla leið af eurovision, drep leiðinleg leiðinleg lög.


Svo satt.

Re: Lag Íslands fyrir euruvosion.

Sent: Mán 14. Feb 2011 23:02
af rapport
JoiKulp skrifaði:
braudrist skrifaði:Hvað haldiði að við séum að borga margar milljónir fyrir þetta Eurovision drasl? Væri ekki bara betra að sleppa þessu og nota peningana í eitthvað annað. Einnig finnst mér þetta lag vera algjört sorp og ég spái að það lendi í eitt af neðstu sætunum.


Milljónir? Ég held að það sé frekar talið í milljörðum ef ekki meira í gegnum árin.


Einn milljarður er ekkert voðalega mikill peningur...

Það eru um 4500 starfsmenn á LSH.

Ef meðallaun eru 300þ. þá er hver launagreiðsla um 1,35 milljarðar...

Hve mörgum Eurovision þyrfti að sleppa til að eiga fyrir einum svoleiðis tékka?

Re: Lag Íslands fyrir euruvosion.

Sent: Mán 14. Mar 2011 21:52
af rapport
http://dagskra.ruv.is/sjonvarpid/4545056/2011/03/14/1

Lagið á ensku = helvíti flott....

Hvað finnst ykkur?

Re: Lag Íslands fyrir euruvosion.

Sent: Mán 14. Mar 2011 22:08
af skrifbord
Hef heyrt öll lögin og við munum enda í svona um 40 sæti. Þetta lag og lagið sem fékk 0 stig 1989 eru verstu lög sem við höfum sent.

Líklegir sigurvegarar í ár eru norðmenn eða svíar. Bestu lögin eru þar

ef þið viljið hlusta og sjá vidó laganna má fara hér :



http://jarnar.blog.is/blog/jarnar/month/2011/3/


(sorry er eurovision fan og verið lengi)

Re: Lag Íslands fyrir euruvosion.

Sent: Mán 14. Mar 2011 22:22
af rapport
Sænska lagið ... já, er stuðlag...

En ég held að við verðum samt ekki í 40.sæti...

Re: Lag Íslands fyrir euruvosion.

Sent: Mán 14. Mar 2011 22:57
af Frost
Æji er löngu hættur að fylgjast með þessu. Hins vegar er þetta hið ágætasta lag.

Re: Lag Íslands fyrir euruvosion.

Sent: Mán 14. Mar 2011 23:05
af Halli13
Eitt versta lag sem við höfum sent í langan tíma.

En það er eurovision ekki euruvosion ;)

Re: Lag Íslands fyrir euruvosion.

Sent: Mán 14. Mar 2011 23:12
af Kobbmeister
lol vissi ekki að þetta væri búið :sleezyjoe

Re: Lag Íslands fyrir euruvosion.

Sent: Mán 14. Mar 2011 23:30
af skrifbord
kobbmeister

þetta er ekki búið rétt að byrja. keppnirnar eru 12 14 og 16 mai nk

Re: Lag Íslands fyrir euruvosion.

Sent: Mán 14. Mar 2011 23:43
af HelgzeN
Magni var með betra lag.

Enn það á aldrei neitt lag eftir að toppa Gleðibankann.

Re: Lag Íslands fyrir euruvosion.

Sent: Mán 14. Mar 2011 23:48
af Kobbmeister
skrifbord skrifaði:kobbmeister

þetta er ekki búið rétt að byrja. keppnirnar eru 12 14 og 16 mai nk

Ég var nú að meina þetta hérna á íslandi :P

Re: Lag Íslands fyrir euruvosion.

Sent: Þri 15. Mar 2011 08:34
af ManiO
Hef ekki heyrt lagið, og í raun ekki nein önnur lög nema smá bút úr Eyjafjallajökli þegar að 4 ára sonur minn byrjaði að syngja það. Hef misst allan "áhuga" á þessu. En það verður gott djamm býst ég við þegar að keppnin hefst.

Re: Lag Íslands fyrir euruvosion.

Sent: Þri 15. Mar 2011 09:06
af Benzmann
hef enga skoðun á Eurovision, bara fullt af partýum til að detta niður dauður í, í kringum þennan tíma ársins :P