Síða 1 af 1

Bein tilvitnun á Wikipediu

Sent: Mið 09. Feb 2011 23:27
af zdndz
Þarf að fá nákvæmar upplýsingar hvernig skal gera beina tilvitnun á wikipediu, þar sem beina tilvitnunin er af vefsíðu, tilvitnunin er löng og fellur ekki inn í neinn texta, sem sagt ekki svona:

.............................
.............................
"......................
.....................
....................."
................................
.................................
.................................

heldur er öll síðan tilvitnunin nema kannski rétt byrjunin, er að tala um eitthvað svona

.........................
.........................
"..........................
.........................
........................
............................
.............................
.............................
............................
................................
............................
..............................
.................................
...............................
..............................
.............................."

Þannig
-Hvernig á að setja textann allan upp?
-Hvernig á að gera tilvitnunina/Heimildina

Er að hugsa um íslensku wikipediu

Öll hjálp vel þegin. :)

EDIT: er að gera síðu Á wikipediu og ég þarf að gera þessa beinu tilvitnun Á wikipediu, og er þess tilvitnun af annarri vefsíðu

Re: Bein tilvitnun á Wikipediu

Sent: Mið 09. Feb 2011 23:37
af Daz
Þú getur ekki vitnað í wikipediu fyrir neins konar ritgerð/verkefni, sem ég geri ráð fyrir að þetta snúist um. Leitaðu að frumheimildinni sem wikipedia vísar í.

Re: Bein tilvitnun á Wikipediu

Sent: Mið 09. Feb 2011 23:42
af zdndz
Daz skrifaði:Þú getur ekki vitnað í wikipediu fyrir neins konar ritgerð/verkefni, sem ég geri ráð fyrir að þetta snúist um. Leitaðu að frumheimildinni sem wikipedia vísar í.

Þetta kom kannski ekki nógu skýrt út hjá mér, en ég er að gera síðu Á íslensku wikipediu, og á síðunni á wikipediu þá er ég að gera beinatilvitnun af annarri vefsíðu

Re: Bein tilvitnun á Wikipediu

Sent: Mið 09. Feb 2011 23:57
af Daz
Ah ok, skús mí.

Finndu aðra wiki síðu sem er með svona tilvísun og hermdu eftir henni?

Re: Bein tilvitnun á Wikipediu

Sent: Mið 09. Feb 2011 23:57
af Gúrú
Hérna er Wiki grein sem að ég gerði til að styðja við bakið á því að G-town sé Grímsbær en ekki Grafarholt.

http://en.wikipedia.org/wiki/Gr%C3%ADmsb%C3%A6r

Ertu að tala um eitthvað sem að er þarna og ég get hjálpað þér með? Skil ekkert í OP.

NVM: Segðu okkur bara hver síðan er og hvaða upplýsingar þetta er og ég skal hjálpa þér, annars skrifarðu basically textann bara eins og að upplýsingarnar koma fram í honum og addar 'cite' á síðuna með textanum, þú lætur ekki textann í sinni upphaflegu heild í sources.

<ref>[http://www.Slóð vefsíðunnar.com Lýsing á því hvað kemur fram á henni] Accessed Dagsetning (Sótt Dagsetning fyrir íslensku Wiki)</ref>

Re: Bein tilvitnun á Wikipediu

Sent: Fim 10. Feb 2011 01:29
af pattzi
http://www.wikipedia.is/

þetta er einhvað mjög skrýtin síða

finnst mér tvær auglýsingar íslenskar þarna

Re: Bein tilvitnun á Wikipediu

Sent: Fim 10. Feb 2011 08:22
af Daz
pattzi skrifaði:http://www.wikipedia.is/

þetta er einhvað mjög skrýtin síða

finnst mér tvær auglýsingar íslenskar þarna

Enda ætti venjulegt fólk að nota http://is.wikipedia.org

Re: Bein tilvitnun á Wikipediu

Sent: Fim 10. Feb 2011 16:52
af zdndz
Gúrú skrifaði:Hérna er Wiki grein sem að ég gerði til að styðja við bakið á því að G-town sé Grímsbær en ekki Grafarholt.

http://en.wikipedia.org/wiki/Gr%C3%ADmsb%C3%A6r

Ertu að tala um eitthvað sem að er þarna og ég get hjálpað þér með? Skil ekkert í OP.

NVM: Segðu okkur bara hver síðan er og hvaða upplýsingar þetta er og ég skal hjálpa þér, annars skrifarðu basically textann bara eins og að upplýsingarnar koma fram í honum og addar 'cite' á síðuna með textanum, þú lætur ekki textann í sinni upphaflegu heild í sources.

<ref>[http://www.Slóð vefsíðunnar.com Lýsing á því hvað kemur fram á henni] Accessed Dagsetning (Sótt Dagsetning fyrir íslensku Wiki)</ref>

Ókei á síðunni þinni er listi yfir fyrirtæki. Þarf ekkert að vitna í heimildina þar eða er nóg að skrifa bara heimildina neðst. Þegar ég er að tala um að vitna í heimildina er ég að tala um hvort það þurfi nokkuð að segja e-ð: Á ja.is sést að eftirfarandi fyrirtæki eru í Grímsbæ: "....."

En ég er að fara gera margar síður þ.a. ég get ekki bennt á einn texta en ætla setja upp lítið sýnidæmi. Ath. að ég veit að svona texti myndi ekki koma á wikipediu en ég er að athuga hvernig ég á að setja þetta fram.
Ég ætla að skrifa um bókina Þrusuflugflokkurinn og ætla ég að byrja á því að skrifa örlítið hvaða höfundur er og svo framveigis en síðan langar mér að setja útdrátt úr sögunni sem ég "fann á síðunni hugi.is" (bara tekið sem dæmi).
Útdrátturinn er á þessari síðu -> http://mmmm.byethost7.com/daemi.html
og byrjun um höfundinn og þannig er svona:

Bókin Þrusuflugaflokkur kom út árið 1990 og er eftir höfundinn Jarl Márasen. Bókin er talin vera mesta verk Jarls og vakti hún geysivinsældir víða um heim. Bókin er samtals 500 og hálf bls. að lengd og gerist aðallega í Færeyjum. Bókin er þekkt fyrir að vera drungaleg og hættuleg í senn.

Núna langar mér að koma með þennan útdrátt, á síðunni http://mmmm.byethost7.com/daemi.html. Ég þarf að taka fram síðuna í Heimildum neðst en þarf ég að segja eitthvað: eins og stendur á http://mmmm.byethost7.com/daemi.html: "ÚTDRÁTTURINN".

Er þetta skiljanlegt hjá mér?

Re: Bein tilvitnun á Wikipediu

Sent: Fim 10. Feb 2011 17:11
af dori
Mér finnst eins og á Wikipedia séu ekki notaðar beinar tilvísanir nema í orð fólks, þú umritar bara létt og bendir á heimildina. Vil taka fram að þetta er bara það sem mér hefur sýnst á að nota Wikipedia, hef ekki kynnt mér þær reglur sem farið er eftir eða gert neinar rannsóknir á þessu efni.

Annars geturðu reynt að fara eftir þeim reglum sem enska Wikipedia notar: http://en.wikipedia.org/wiki/Wikipedia: ... Quotations

Re: Bein tilvitnun á Wikipediu

Sent: Fim 10. Feb 2011 17:17
af zdndz
dori skrifaði:Mér finnst eins og á Wikipedia séu ekki notaðar beinar tilvísanir nema í orð fólks, þú umritar bara létt og bendir á heimildina. Vil taka fram að þetta er bara það sem mér hefur sýnst á að nota Wikipedia, hef ekki kynnt mér þær reglur sem farið er eftir eða gert neinar rannsóknir á þessu efni.

Annars geturðu reynt að fara eftir þeim reglum sem enska Wikipedia notar: http://en.wikipedia.org/wiki/Wikipedia: ... Quotations

Held að það sé rétt hjá þér að wikipedia hefur ekki verið að notast við beinar tilvísanir, en ég er líka að pæla í reglum um þetta almennt, ef við ímyndum okkar að ég væri með þetta á heimasíðunni minni en ekki wikipediu

Re: Bein tilvitnun á Wikipediu

Sent: Fim 10. Feb 2011 17:54
af dori
zdndz skrifaði:

Það eru nú engar almennar reglur um þetta. Það eru auðvitað venjur sem er yfirleitt farið eftir en svo er það ef þú ert að gera ritgerð/grein fyrir einhvern þá ferðu eftir þeim reglum sem sá aðili setur fram (aðilinn getur verið tímarit/skóli eða vefsíða eins og Wikipedia). Ef þú ert virkilega áhugasamur um hvernig er gott að vitna í vefsíður þá var smá kafli um það í bók sem er notuð við íslenskukennslu í framhaldsskólum og heitir "Hagnýt skrif". Fín bók sem ég á einhversstaðar en nenni ekki að leita að, þar er líka farið yfir almennar venjur á þessu sviði. Þú ættir að finna hana á næsta bókasafni.

Re: Bein tilvitnun á Wikipediu

Sent: Fim 10. Feb 2011 18:25
af Gúrú
Það má ekki nota spjallborð sem heimild í Wikipedia.

Þú mátt skrifa úrdrátt söguþráðs eins og þér hentar og setur bókina sjálfa og einkennisnúmer hennar bara sem source, getur auðveldlega séð hvernig það er gert með því að leita að bókum á Wiki.

Re: Bein tilvitnun á Wikipediu

Sent: Fös 11. Feb 2011 00:03
af zdndz
Þakk ykkur fyrir svörin, mun kanna þetta frekar :)