Síða 1 af 1
Að slökkva á internetinu?
Sent: Sun 30. Jan 2011 21:28
af GuðjónR
Hvað gerist ef bandaríkjamenn ákveða að slökkva á intenetinu?
Verða þeir einir netlausir...eða taka þeir allan heiminn með sér?
skoða
Re: Að slökkva á internetinu?
Sent: Sun 30. Jan 2011 21:32
af Páll
Síða fannst ekki
Síðan sem þú baðst um fannst ekki. Vinsamlegast athugaðu hvort rétt vefslóð hafi verið slegin inn.
Ef þú telur að um bilun sé að ræða, vinsamlegast hafðu samband við netdeild,
netdeild@mbl.is.
Til baka á forsíðu mbl.is
Re: Að slökkva á internetinu?
Sent: Sun 30. Jan 2011 21:34
af gtr
Re: Að slökkva á internetinu?
Sent: Sun 30. Jan 2011 21:52
af dori
Það fer eftir því hver útfærslan á lögunum verður. Ef það er eins og egyptar gerðu (skipa ISPum að slökkva á nettengingum neytenda) þá yrðu þeir einir netlausir. Minni síður hýstar í Bandaríkjunum færu eflaust niður en stærri gagnaver sem hafa alvöru tengingar við umheiminn myndu örugglega haldast uppi fyrir restina af heiminum.
Allavega munum við alltaf komast áfram í það sem er hýst annarsstaðar en í Bandaríkjunum.
Re: Að slökkva á internetinu?
Sent: Sun 30. Jan 2011 22:01
af GuðjónR
Re: Að slökkva á internetinu?
Sent: Sun 30. Jan 2011 22:03
af AntiTrust
Internetið var hannað með það í hug að það væri þannig byggt upp að það myndi geta lifað af kjarnorkustyrjöld. Internetið er allt of stórt, allt of viðamikið til þess að eitt land geti stoppað það.
Re: Að slökkva á internetinu?
Sent: Sun 30. Jan 2011 22:06
af intenz
AntiTrust skrifaði:Internetið var hannað með það í hug að það væri þannig byggt upp að það myndi geta lifað af kjarnorkustyrjöld. Internetið er allt of stórt, allt of viðamikið til þess að eitt land geti stoppað það.
RIPE?
Re: Að slökkva á internetinu?
Sent: Sun 30. Jan 2011 22:08
af Revenant
Ef þú tekur úr root-DNS þjónana þá hættir netið að virka eftir <48 tíma.
Re: Að slökkva á internetinu?
Sent: Sun 30. Jan 2011 22:12
af dori
Revenant skrifaði:Ef þú tekur úr root-DNS þjónana þá hættir netið að virka eftir <48 tíma.
pff... nei. Þá hættir DNS að virka. Karlmenn nota bara IPv6 tölur. Svo er internetið miklu stærra og flóknara og þarf meira effort til að stoppa það. Auk þess væri það að halda öllum 13 rótarþjónunum niðri í svona langan tíma nær óhugsandi.
Re: Að slökkva á internetinu?
Sent: Sun 30. Jan 2011 22:22
af Optimus
Ég held að eftir svona kannski 100-200 ár, þegar bandaríkjamenn eru hættir að ganga á frelsi þegna sinna með svona svívirðilegum hætti eins og þeir eru sífellt í auknum mæli að gera, að þá verði talað um BNA á fyrri hluta 21. aldarinnar sem "Bandaríki fasismans" eða kannski "Bandaríki frelsisskerðingarinnar", svona eins og talað er um Þýskaland á fyrri hluta 20. aldar sem Þýskaland nasismans.
Linnulaus hræðsluáróður stjórnvalda Bandaríkjanna hræðir mig miklu meira en hryðjuverkamennirnir sem þeir benda á sem vonda kallinn. Alríkisstjórnin er að gera nákvæmlega það sama og harðræðisríki hafa gert í gegnum aldirnar; skapa ímyndaða ógn (það er líklegra að bandaríkjamaður verði fyrir eldingu en að hann deyji í hryðjuverkaárás) til þess að hræða fólkið, svo það mótmæli ekki þegar frelsi þeirra er svívirt "í nafni frelsis og öryggis".
Benjamin Franklin skrifaði:Any society that would give up a little liberty to gain a little security will deserve neither and lose both.
Re: Að slökkva á internetinu?
Sent: Sun 30. Jan 2011 22:22
af AntiTrust
Revenant skrifaði:Ef þú tekur úr root-DNS þjónana þá hættir netið að virka eftir <48 tíma.
Þarna ertu að tala um Worldwide aðgerð, þrátt fyrir að DNS þjónarnir hafi upphaflega allir verið í USA. Það eru 206 root DNS þjónar út um allan heim, svo eitt land er ekki þesslegt að drepa netið.
Re: Að slökkva á internetinu?
Sent: Mán 31. Jan 2011 00:22
af appel
Bandaríkjamenn gætu slökkt á Internetinu, þeir ráða yfir ICANN. En ef þeir gerðu það myndi eflaust einhver alþjóðleg stofnun stofnuð til að halda utan um rótarskráningar án aðildar BNA, enda greinilega ekki treystandi til að stjórna þessu, og þá myndum við enda með einhverskonar tvö internet. (Ég hef reyndar mikla trú á að slíkt gæti gerst í framtíðinni)
Hitt er svo ef þeir myndu fyrirskipa lokun innanlands, þ.e. segja ISP-unum að hætta að þjónusta, þá hefði það mjög mikil áhrif á allt internetið, en myndi ekki slökkva á hjá öðrum. Allt myndi virka hér innanlands, og samband við Evrópu og beyond. Netið er mjög resilient gagnvart kjarnorkuárásum, en það var kannski ekki nægilega vel hannað gagnvart valdagráðugum fasistastjórnmálamönnum, stjórn netsins ekki nægilega distributed.
Re: Að slökkva á internetinu?
Sent: Mán 31. Jan 2011 00:51
af SteiniP
Er ég heimskur eða væri ekki gáfulegra að slökkva á networkinu sem verið er að ráðast á í staðinn fyrir að taka allt landið úr sambandi?
Myndi líklega bara valda meiri skaða en þessir svokölluðu cyber-terroristar gætu valdið.
Mér finnst þetta allavega ógeðslega fyndið, minnir mig á þennan south park þátt
http://www.southparkstudios.com/full-ep ... er-logging
Re: Að slökkva á internetinu?
Sent: Mán 31. Jan 2011 00:55
af JohnnyX
SteiniP skrifaði:Er ég heimskur eða væri ekki gáfulegra að slökkva á networkinu sem verið er að ráðast á í staðinn fyrir að taka allt landið úr sambandi?
Myndi líklega bara valda meiri skaða en þessir svokölluðu cyber-terroristar gætu valdið.
Mér finnst þetta allavega ógeðslega fyndið, minnir mig á þennan south park þátt
http://www.southparkstudios.com/full-ep ... er-logging
haha, fáránlega góður þáttur!
Re: Að slökkva á internetinu?
Sent: Mán 31. Jan 2011 00:56
af MatroX
SteiniP skrifaði:Er ég heimskur eða væri ekki gáfulegra að slökkva á networkinu sem verið er að ráðast á í staðinn fyrir að taka allt landið úr sambandi?
Myndi líklega bara valda meiri skaða en þessir svokölluðu cyber-terroristar gætu valdið.
Mér finnst þetta allavega ógeðslega fyndið, minnir mig á þennan south park þátt
http://www.southparkstudios.com/full-ep ... er-logging
hehe þetta minnti mig líka á þennan þátt.
en annars væri það örruglega mun gáfaðra að slökkva bara á networkinu heldur enn að slökkva á netinu.
en p.s gæti eitthver lifað á netsins?
Re: Að slökkva á internetinu?
Sent: Mán 31. Jan 2011 01:06
af ManiO
MatroX skrifaði:SteiniP skrifaði:Er ég heimskur eða væri ekki gáfulegra að slökkva á networkinu sem verið er að ráðast á í staðinn fyrir að taka allt landið úr sambandi?
Myndi líklega bara valda meiri skaða en þessir svokölluðu cyber-terroristar gætu valdið.
Mér finnst þetta allavega ógeðslega fyndið, minnir mig á þennan south park þátt
http://www.southparkstudios.com/full-ep ... er-logging
hehe þetta minnti mig líka á þennan þátt.
en annars væri það örruglega mun gáfaðra að slökkva bara á networkinu heldur enn að slökkva á netinu.
en p.s gæti eitthver lifað á netsins?
Tjah, ef Egyptaland er einhverskonar mælikvarði þá geta ríkisstjórnir ekki lifað án þess
Re: Að slökkva á internetinu?
Sent: Mán 31. Jan 2011 01:07
af MatroX
ManiO skrifaði:Tjah, ef Egyptaland er einhverskonar mælikvarði þá geta ríkisstjórnir ekki lifað án þess
hehe