beatmaster skrifaði:Ég vil benda á að það er ekkert að lögunum sem slíkum og var hæstiréttur að setja útá framkvæmd kosninganna (númeraða kjörseðla, kjörkassa og kjörklefa) og úrskurðaði kostninguna ógilda á þeim atriðum.
Mjög satt, ég skil ekki allar þessar bendingar og vitleysu í kringum þetta (stjórnarandstaðan að tala um "pólitíska ábyrgð", hvað í fjandanum er það???). Hins vegar var það náttúrulega ekki landskjörstjórn sem hannar þessar kosningar. Hún framkvæmir þær bara (eftir leiðbeiningum frá stjórnsýslunni? ég veit samt að nefndin á að vera sjálfstæð) og með kosningar eftir þessum lögum með þetta marga frambjóðendur (sem lögin buðu uppá) þá held ég að það hafi verið rosalega erfitt að gera þetta.
En það er ekki hægt að segja annað en að þetta sé algjört klúður. Svo þetta sem (sumir) stuðningsmenn stjórnarinnar tala endalaust um "hæstiréttur vill ekki breyta stjórnarskránni" (og benda til Þýskalands í því samhengi sem er náttúrulega aldrei með sömu lög og við þannig að sá samanburður er kjánalegur) skil ég barasta ekki. Þetta stjórnlagaþing átti aldrei að gera neitt nema tillögur að breytingum á stjórnarskránni. Síðan hefði það þurft að fara í gegnum sama ferli og allar breytingar á stjórnarskrá þurfa hvort eð er að fara í gegnum. Þannig að t.d. það að breyta lögum um eignarhald á auðlindum er ekkert sem er bara hægt að gera með stjórnlagaþingi. Það eina sem það hefði gert að láta stjórnlagaþingið koma með tillöguna er að búa til sýndar-sátt um breytingartillöguna (fólk kaus þessa stjórnlagaþingmenn svo þeir og þeirra stefnumál í stjórnarskrárbreytingum hlýtur að vera vilji þegnanna).
En pæling, ég hef ekki nennt að kynna mér þetta, var ekki eitt af því sem var kært hversu lágt hlutfall atkvæða þeir sem komust inn voru með? Eða var það bara eitt af því sem var mikið gagnrýnt? Ég rugla svona hlutum saman.
EDIT: Hvað er svo málið með að allt sé gert af pólitíkusum hérna? Við kjósum þingmenn til að sjá um lagasetningu og þeir sem eru vinsælastir mynda stjórn landsins þannig að þeir hafa 2/3 valdsins en svo velja þessir með 2/3 af valdinu þá sem hafa síðasta 1/3. Er þessi "þrískipting" allsstaðar annarsstaðar eða erum við í sérflokki?