Síða 1 af 1

Nýr skjár

Sent: Fim 27. Jan 2011 10:49
af bulldog
Var að panta mér nýjann tölvuskjá til að tengja við i7 riggið mitt :megasmile

Hvernig líst ykkur á þennan skjá ???

http://tolvutaekni.is/product_info.php?cPath=26&products_id=1828

Re: Nýr skjár

Sent: Fim 27. Jan 2011 11:06
af Plushy
Flottur skjár... en finnst hann frekar dýr miðað við t.d. BenQ skjái.

Re: Nýr skjár

Sent: Fim 27. Jan 2011 11:12
af gardar
Plushy skrifaði:Flottur skjár... en finnst hann frekar dýr miðað við t.d. BenQ skjái.



Þú berð þessi merki ekkert saman

Re: Nýr skjár

Sent: Fim 27. Jan 2011 11:19
af bulldog
hann er náttúrlega með LED baklýsingu þannig að hann er dýrari en venjulegir lcd skjáir. Ertu með hugmynd að skjá með LED sem er ódýrari ?

Re: Nýr skjár

Sent: Fim 27. Jan 2011 11:25
af Plushy
gardar skrifaði:
Plushy skrifaði:Flottur skjár... en finnst hann frekar dýr miðað við t.d. BenQ skjái.



Þú berð þessi merki ekkert saman


Vissi að þetta comment myndi koma.

Ef ég man rétt las ég hér í öðrum þræði að BenQ stendur á bakvið partana í mörgum skjáum, m.a. samsung (ekki quote'a mig)

@Bulldog http://www.tolvutek.is/product_info.php ... s_id=23758

Síðan finnst mér eins og fólk líki ekki við BenQ því það hann er mjög vinsæll. Flestum finnst þeir vera samt mjög góðir skjáir.

Re: Nýr skjár

Sent: Fim 27. Jan 2011 11:32
af bulldog
Mér líkar alveg við Benq skjáina. Ég er líka að horfa á að Tölvutækni veita 2 ára ábyrgð gagnvart dauðum pixlum og mér finnst allavega þegar ég er að kaupa tölvuhluti þá er ég líka að kaupa aðgang að ábyrgð/þjónustu ef eitthvað skyldi koma upp á. Til dæmis eru Elko með ömurlega þjónustu þótt að þeir geti verið með fín verð. Tölvutækni, Kísildalur & Buy.is eru með mjög góða þjónustu öll. Þannig að maður er frekar tilbúinn að borga einhverja auka þúsundkalla fyrir það að vera með örugga og góða þjónustu ef eitthvað skyldi koma upp á.

Re: Nýr skjár

Sent: Fim 27. Jan 2011 11:45
af Plushy
Það má vel vera. Það er nú samt ekkert að ábyrgðinni hjá Tölvutek, eða ég hef amk. ekki fengið slæma þjónustu.

Auk þess býður Tölvutek upp á 100% pixla ábyrgð líka.

er ekkert að reyna að verja einn eða neinn ! bara koma með nokkrar staðreyndir. Elska líka buy.is og tölvutækni :)

Re: Nýr skjár

Sent: Fim 27. Jan 2011 11:48
af bulldog
ég fæ mér svo líklega nýtt skjákort í mars-apríl fer með 80 þús í það og svo fer ég að safna fyrir 120 gb mushkin callisto disk og síðan fer maður að verða góður \:D/

Re: Nýr skjár

Sent: Fim 27. Jan 2011 11:49
af Plushy
bulldog skrifaði:ég fæ mér svo líklega nýtt skjákort í mars-apríl fer með 80 þús í það og svo fer ég að safna fyrir 120 gb mushkin callisto disk og síðan fer maður að verða góður \:D/


Flottur ! :)

sama plan og hjá mér, auk þess að fá mér annan skjá

Re: Nýr skjár

Sent: Fim 27. Jan 2011 11:52
af bulldog
ég er búinn að vera að nota 32" full hd sharp sjónvarpið sem skjá en verð bara með skjá núna svo að maður geti spilað leikina almennilega. Skjárinn sem ég pantaði er með 2 ms svartíma \:D/

Re: Nýr skjár

Sent: Fim 27. Jan 2011 12:15
af Biggzi
100% Pixlaábyrgð á skjám er nýjung á íslandi sem Tölvutek býður upp á.

Hún virkar þannig að ef viðskiptavinur kaupir nýjan skjá hjá Tölvutek, fer með hann heim og finnur gallaðan pixel í honum má hann skila honum strax og fá nýjan skjá.

Athugið að ábyrgðin nær aðeins yfir nýjan skjá sem reynist innihalda gallaða pixla strax í upphafi, því er mikilvægt að skoða skjáinn vel eftir að heim er komið ef ske kynni að hann innihéldi gallaðan pixel. Gott er að prófa mismunandi bakgrunnsliti þegar skjárinn er skoðaður.


Síðast þegar ég vissi gildi bara "100% pixlaábyrgðin" fyrstu 1-2 vikurnar hjá Tölvutek á meðan (að ég best veit) er pixlaábyrgð út allan ábyrgðartímann hjá öðrum fyrirtæknum, amk. hjá Tölvutækni sem bjóða 2-3 ára ábyrgð á Skjáum og 100% pixlaábyrgð út allan ábyrgðartímann, 1 pixlari dauður/fastur = nýr skjár.

Ekki þó vitna í mig með þetta, hringið frekar í fyrirtækin og fáið þetta staðfest..

Re: Nýr skjár

Sent: Fim 27. Jan 2011 12:19
af coldcut
fjandinn...af hverju getur þessi skjár ekki líka verið með dvi tengi!? :mad

Re: Nýr skjár

Sent: Fim 27. Jan 2011 12:21
af bulldog
hdmi rokkar \:D/ dvi er tengi gærdagsins :evillaugh

Re: Nýr skjár

Sent: Fim 27. Jan 2011 12:27
af coldcut
bulldog skrifaði:hdmi rokkar \:D/ dvi er tengi gærdagsins :evillaugh


á skjákortinu sem ég var að kaupa eru 1 HDMI, 1 DVI og 1VGA.
Sjónvarpið verður tengt í HDMI þannig að skjárinn þarf að fara í DVI eða VGA og ég mun frekar nota DVI heldur en VGA!

Re: Nýr skjár

Sent: Fim 27. Jan 2011 12:33
af bulldog
gæti þetta hjálpað þér http://www.computer.is/vorur/7064/

Re: Nýr skjár

Sent: Fim 27. Jan 2011 12:34
af gardar
bulldog skrifaði:hdmi rokkar \:D/ dvi er tengi gærdagsins :evillaugh



Afhverju í ósköponum þarftu hdmi tengi í tölvuskjá? Gefur skjárinn þinn frá sér eitthvað hljóð?

Re: Nýr skjár

Sent: Fim 27. Jan 2011 12:35
af bulldog
af því að hdmi gefur skýrari mynd og betri gæði :megasmile

Re: Nýr skjár

Sent: Fim 27. Jan 2011 12:35
af gardar
bulldog skrifaði:af því að hdmi gefur skýrari mynd og betri gæði :megasmile



Nei nú ertu farinn að tala með endaþarmsopinu ](*,)

Re: Nýr skjár

Sent: Fim 27. Jan 2011 12:39
af bulldog

Re: Nýr skjár

Sent: Fim 27. Jan 2011 12:51
af ÓmarSmith
Einhvernveginn á ég erfitt með að trúa því að HDMI skili þér betri myndgæðum en Digital DVI tengi ;)

Hef amk ekki séð mun á því heima ennþá þannig að ..


Getur eflaust fundið e-ð absúrt test sem sýnir þér e-n mun, en í daglegri notkun trúi ég tæpast að munurinn skipti neinu.

Re: Nýr skjár

Sent: Fim 27. Jan 2011 14:15
af 69snaer
Það er nákvæmlega engin munur á myndgæðum nema kannski að þú ert kominn út í Hdmi 1.4. Það á að vera einhver munur hins vegar á hljóðgæðum, en ekkert samt sem maður tekur eftir.

Re: Nýr skjár

Sent: Fim 27. Jan 2011 15:17
af coldcut
ein spurning til ykkar strákar...nenni ekki að stofna nýjan þráð um þetta.

Ef ég mundi kaupa eins skjá og OP er/var að kaupa...mundi þá ekki virka að nota eftirfylgjandi snúru úr GPU-DVI tengi í skjás-HDMI tengi?
Það skiptir engu máli í hvora áttina þessi snúra er, eða hvað?

Mynd

Re: Nýr skjár

Sent: Fim 27. Jan 2011 15:19
af emmi
Ég er með mína skjái tengda með svona kapli, og það virkar fínt, s.s. skjár (hdmi) > tölva (dvi).

Re: Nýr skjár

Sent: Fim 27. Jan 2011 15:33
af DabbiGj
hdmi og dvi bera sambærileg myndmerki sem að eru stafræn og enginn munur á gæðum, eini munurinn í grundvallaratriðum er að hdmi ber líka hljóðmerki, hefur hdcp og einhverja samskipta möguleika.