Síða 1 af 2

Vinna

Sent: Þri 25. Jan 2011 20:50
af Ripparinn
Sælir,

Nú er málið að rífa sig uppúr tölvustólnum og finna sér vinnu.
Ég er strákur á 17 ári, og hef áhuga á tölvun(deeerp) og Bardagaíþróttum. Veit ekki allveg hvernig þetta á að hjálpa mér að finna vinnu en ég vill auðvitað helst vera að vinna við eitthvað sem mér finnst skemtilegt :)
Ég er í skóla(MK) og væri gaman að fá ykkar hugmyndir hvar væri gott að byrja að sækja um vinnu. Endilega hugsa djúpt og koma með eitthvað sniðugt :)

EDIT: Og já, mæting mín er MJÖG góð :)

Re: Vinna

Sent: Þri 25. Jan 2011 20:54
af coldcut
Setja upp torrentsíðu og selja auglýsingar á hana...

Re: Vinna

Sent: Þri 25. Jan 2011 20:55
af Daníel
bónus? :p

eða eitthvað álíka, verður að vera raunhæfur á þessum aldri

Re: Vinna

Sent: Þri 25. Jan 2011 20:56
af Ripparinn
coldcut skrifaði:Setja upp torrentsíðu og selja auglýsingar á hana...


Fyrirgefðu, en ef þetta átti að vera eitthvað "fyndið" djók, þá var þetta alls ekki fyndið því miður.

Re: Vinna

Sent: Þri 25. Jan 2011 20:58
af Eiiki
coldcut skrifaði:Setja upp torrentsíðu og selja auglýsingar á hana...

Titlaðu sjálfan þig sem "fyndinn"

Re: Vinna

Sent: Þri 25. Jan 2011 21:00
af Daníel
coldcut: :megasmile :megasmile góður

Re: Vinna

Sent: Þri 25. Jan 2011 21:20
af rapport
Daníel skrifaði:coldcut: :megasmile :megasmile góður


Sleikja...

Re: Vinna

Sent: Þri 25. Jan 2011 21:21
af hauksinick
Stofna aðra wikileaks

Re: Vinna

Sent: Þri 25. Jan 2011 21:52
af SIKk
hauksinick skrifaði:Stofna aðra wikileaks

Re: Vinna

Sent: Þri 25. Jan 2011 22:02
af playmaker

Re: Vinna

Sent: Þri 25. Jan 2011 22:13
af Black
Ripparinn skrifaði:
coldcut skrifaði:Setja upp torrentsíðu og selja auglýsingar á hana...


Fyrirgefðu, en ef þetta átti að vera eitthvað "fyndið" djók, þá var þetta alls ekki fyndið því miður.


Eiiki skrifaði:
coldcut skrifaði:Setja upp torrentsíðu og selja auglýsingar á hana...

Titlaðu sjálfan þig sem "fyndinn"



Mynd

Re: Vinna

Sent: Þri 25. Jan 2011 22:48
af beatmaster
Mynd

Re: Vinna

Sent: Þri 25. Jan 2011 23:23
af sxf
playmaker skrifaði:http://tolvutaekni.is/starfsumsokn.php


Ertu 20 ára eða eldri og leitar að framtíðar starfi?

Re: Vinna

Sent: Þri 25. Jan 2011 23:31
af Ripparinn
sxf skrifaði:
playmaker skrifaði:http://tolvutaekni.is/starfsumsokn.php


Ertu 20 ára eða eldri og leitar að framtíðar starfi?



Ég væri buinn að sækja um ef ég væri 20 ára. Þetta eru skemtilegir gaurar sem vinna þarna og fl svo já :)

Re: Vinna

Sent: Mið 26. Jan 2011 01:00
af capteinninn
Farðu út og labbaðu inn á staði sem þér líst ágætlega á og sóttu um vinnu.
Finnst alveg fáránlegt þegar fólk situr heima og sendir email útum allt og kvartar svo yfir að fá ekki vinnu.
Er alls ekki að segja að þú gerir það en maður sér og heyrir oft af svona fólki.

Svo er það leiðinlegt staðreynd en það er mjög líklegt að þú farir að vinna einhverstaðar og það verður leiðinlegt en með tímanum muntu kannski njóta þess.

Ég myndi prófa að kíkja t.d. í Tölvutækni og spyrja þá þar í persónu, margir staðir setja upp einhverjar reglur um hvernig fólk þeir vilja að sækji um en oft eru þeir ekkert strangir á því.

Svo gæti verið sniðugt að spyrja fjölskylduna hvort þeir viti um einhvern vin eða einhvern úr stjórfjölskyldunni sem getur ráðið þig. Það er óréttmætt og leiðinlegt en staðreyndin er sú að það er yfirleitt miklu auðveldara að fá vinnu hjá einhverjum í gegnum klíkuskap heldur en að sækja um.

Re: Vinna

Sent: Mið 26. Jan 2011 01:04
af AntiTrust
1. Gerðu mjög, mjög flotta ferilsskrá.
2. Spammaðu alla "störf í boði" linka sem Google gefur upp.
3. Success!

Re: Vinna

Sent: Mið 26. Jan 2011 01:43
af rapport
Take a pick...

Nr. tvö er líklega enn laust og garanterað að þú eyðir ekki miklum peningum í nesti... :happy

http://www.starfatorg.is/onnur_storf/nr/13857

http://www.starfatorg.is/onnur_storf/nr/13847

http://www.starfatorg.is/onnur_storf/nr/13825

Re: Vinna

Sent: Mið 26. Jan 2011 01:50
af Manager1
rapport skrifaði:Take a pick...

Nr. tvö er líklega enn laust og garanterað að þú eyðir ekki miklum peningum í nesti... :happy

http://www.starfatorg.is/onnur_storf/nr/13857

http://www.starfatorg.is/onnur_storf/nr/13847

http://www.starfatorg.is/onnur_storf/nr/13825

Í starf nr. 1 og 3 þarftu stúdentspróf, ef ripparinn er 17 ára er hann ekki með svoleiðis.

Re: Vinna

Sent: Mið 26. Jan 2011 01:58
af rapport
Manager1 skrifaði:Í starf nr. 1 og 3 þarftu stúdentspróf, ef ripparinn er 17 ára er hann ekki með svoleiðis.


Then he´ll get the message => You can´t be picky if you have no special skills...

Annars mæli ég með 10-11 þeir borga almennt betur en aðrar verslanir, eða gerðu það a.m.k. á sinum tíma enda Hagkaup og Bónus oft með starfsfólkið skráð í Eflingu en ekki í VR eins og 10-11.

Re: Vinna

Sent: Mið 26. Jan 2011 08:51
af biturk
rapport skrifaði:
Manager1 skrifaði:Í starf nr. 1 og 3 þarftu stúdentspróf, ef ripparinn er 17 ára er hann ekki með svoleiðis.


Then he´ll get the message => You can´t be picky if you have no special hæfni...

Annars mæli ég með 10-11 þeir borga almennt betur en aðrar verslanir, eða gerðu það a.m.k. á sinum tíma enda Hagkaup og Bónus oft með starfsfólkið skráð í Eflingu en ekki í VR eins og 10-11.



þú ræður í hvaða stéttarfélag og lífeyrissjóði þú borgar, þarft bara að biðja vinnuveitanda um að breita því fyrir þig ;)

annars er ég í svipuðum vandræðum og þú, ég er búnað sækja um á öllum stöðum á ak og fer mánaralegan rúnt um bæinn til að ítreka umsóknirnar og að ég sé enn að leita að vinnu. ég sæki um alla vinnu sem er auglýst en staðreindin er sú að þegar það er nóg af lærðu fólki atvinnulaust eða fólki sem er til í að vinna á sama kaupi og atvinnuleysisbætur þá er erfiðara fyrir okkur hin að fá vinnu.

Re: Vinna

Sent: Mið 26. Jan 2011 09:26
af hagur
Því ekki bara að skella sér í skóla?

Það er rétti tíminn til þess núna þegar atvinnuástandið er eins og það er.

Re: Vinna

Sent: Mið 26. Jan 2011 10:18
af beatmaster
biturk skrifaði:þú ræður í hvaða stéttarfélag og lífeyrissjóði þú borgar, þarft bara að biðja vinnuveitanda um að breita því fyrir þig ;)
Þetta er rétt en þú breytir ekki eftir hvaða samningi vinnustaðurinn starfar eftir, sama hvaða félagi þú tilheyrir

Re: Vinna

Sent: Mið 26. Jan 2011 11:39
af starionturbo
Reynar svolítið þreytandi við vinnuveitendur hér á höfuðborgarsvæðinu (almennt, þó ekki allir), en þeir segja yfirleitt bara ef maður mætir á staðinn "Sendu mér email" eða "Farðu á heimasíðuna og sæktu um".

En prufaðu ELKO eða álíka staði.

Re: Vinna

Sent: Mið 26. Jan 2011 11:46
af darkppl
þarft að vera orðinn 20 til að sækja um í elko

Re: Vinna

Sent: Mið 26. Jan 2011 11:52
af gissur1
Komdu bara í Bónus í Smáranum, okkur vantar alltaf góða starfsmenn ;)