Síða 1 af 2
Kenning um Vodafone
Sent: Fös 14. Jan 2011 15:57
af Jim
Ég veit voða lítið um þetta en ég hef heyrt að vodafone auglýsir 12 mb tengingu en gefa í rauninni aðeins 6mb, svo hækka þeir hraðann hjá þeim sem að hringja.Við hringdum áðan í vodafone (eigum að vera með 12mb tengingu) og sögðum að netið væri of hægt og þá kom í ljós að við vorum í rauninni aðeins með 6mb tengingu og þjónustufulltrúinn hækkaði upp í 12.
Ef að þú ert hjá Vodafone og ert ekki nógu ánægður með tenginguna hringdu þá í þjónustuverið og kvartaðu undan hraða.
P.S. Endilega segið mér ef að þessi umræða hefur sprottið upp hér áður.
Re: Sannleikurinn um Vodafone
Sent: Fös 14. Jan 2011 16:07
af Plushy
Það er "Allt að" 12 mb hraði. Þeir geta ekki alltaf ábyrgst fullan hraða.
Kannski var þetta einstakt tilfelli þar sem þú varst að borga fyrir allt að 12 mb teningu, en varst í rauninni bara með að 6 mb.
Re: Sannleikurinn um Vodafone
Sent: Fös 14. Jan 2011 16:10
af Jim
Plushy skrifaði:Það er "Allt að" 12 mb hraði. Þeir geta ekki alltaf ábyrgst fullan hraða.
Kannski var þetta einstakt tilfelli þar sem þú varst að borga fyrir allt að 12 mb teningu, en varst í rauninni bara með að 6 mb.
Ég hef heyrt af öðrum sem að hafa lent í þessu sama.
Re: Sannleikurinn um Vodafone
Sent: Fös 14. Jan 2011 16:15
af sakaxxx
ég lennti í þessu þeir sögðu að ég væri með 8mb tengingu fékk það hækkað í 12
Re: Sannleikurinn um Vodafone
Sent: Fös 14. Jan 2011 16:17
af Meso
Ég er búinn að vera með tenginguna mína hjá Vodafone síðan ég flutti í íbúðina mína 2008 og hef alltaf verið ansi nálægt 12mbit sem þeir auglýsa,
allavega hef ég aldrei séð ástæðu til að kvarta undan hraða nema ef ég fór yfir leifileg mörg sem voru 70GB en var að uppfæra í 140GB.
Re: Sannleikurinn um Vodafone
Sent: Fös 14. Jan 2011 16:24
af chaplin
Félagi minn reyndar lenti í svipuðu nema hann var með 2-3mb en var að borga fyrir 12mb, eftir óteljandi afsakanir og bull sagði hann upp áskriftinni. Annars er ég mjög ánægður með Vodafone og er mín reynsla bara góð með þá, er þó ekki með net hjá þeim, eingöngu GSM.
Re: Sannleikurinn um Vodafone
Sent: Fös 14. Jan 2011 16:37
af Jim
daanielin skrifaði:Félagi minn reyndar lenti í svipuðu nema hann var með 2-3mb en var að borga fyrir 12mb, eftir óteljandi afsakanir og bull sagði hann upp áskriftinni. Annars er ég mjög ánægður með Vodafone og er mín reynsla bara góð með þá, er þó ekki með net hjá þeim, eingöngu GSM.
Annar þeirra sem ég var að tala um var aðeins með 1mb
Re: Sannleikurinn um Vodafone
Sent: Fös 14. Jan 2011 16:44
af Zpand3x
Tal gerir það sama .. helvítis merðir .. það þarf alltaf að vera að hringja reglulega.. þeir þykjast ekkert vita.. og svo biðja þeir mann að restarta routernum (þó maður sé nýbúinn að gera það) .. og þá alltíeinu lagast þetta. déskotans magic!!!
Svo var það einusinni þannig að alltaf kl 23 á kvöldin og fram á morgun þá datt hraðinn niður í 1 mb/s.. og það vildi svo skemmtilega til að þjónustuborðið hjá Tal lokaði einmitt þá ... Tilviljun?
Er svo ánægður að vera farinn yfir í Símann
og svo kemur ljósnet í jan/feb
Re: Sannleikurinn um Vodafone
Sent: Fös 14. Jan 2011 16:47
af Hargo
Ég skipti frá Símanum yfir í Vodafone árið 2006 og hef haldið mig þar síðan. Er mjög ánægður með þjónustuna hjá þeim, nethraðann og bara overall viðmótið sem ég fæ þegar ég hef samband. Alltaf liðlegir og tilbúnir að hjálpa. Langaði bara að koma með smá jákvæðni inn í umræðuna
Re: Sannleikurinn um Vodafone
Sent: Fös 14. Jan 2011 16:48
af mind
Já...
Eftir því sem ég best veit þá takmarkast þetta nú ekki beint við Vodafone, eða einusinni fjarskiptafyrirtæki ef út í það er farið.
Fín leið til að búa til peninga samt.
Re: Sannleikurinn um Vodafone
Sent: Fös 14. Jan 2011 17:44
af Gúrú
Af hverju ættu þeir viljandi að gera þetta?
Skil það ef að þú ert bara að tala um erlent en þú ert að tala um alla tenginguna ekki satt? Erlent hugsanlega ennþá í 50kB/sek?
Umferð um RIX er ekkert dýr held ég.
Re: Sannleikurinn um Vodafone
Sent: Fös 14. Jan 2011 17:50
af Jim
Gúrú skrifaði:Af hverju ættu þeir viljandi að gera þetta?
Skil það ef að þú ert bara að tala um erlent en þú ert að tala um alla tenginguna ekki satt? Erlent hugsanlega ennþá í 50kB/sek?
Umferð um RIX er ekkert dýr held ég.
Heyrði einhversstaðar að línurnar séu gamlar og lélegar í sumum hverfum og að þeir höndli bara ekki að 50k notendur séu með 12mb tengingu
Re: Sannleikurinn um Vodafone
Sent: Fös 14. Jan 2011 18:10
af CendenZ
meh... mamma var hjá símanum í fjölda mörg ár.. hætti svo 2007 og er hjá vodafone
Þegar ég hlutti að heiman 2006 þá var ég hjá símanum fyrst... svo 2009 þá skipti ég og sé ekki eftir því.
Re: Sannleikurinn um Vodafone
Sent: Lau 15. Jan 2011 15:17
af johnnyb
auðvitað er þetta ekkert svona þeir eru ekkert að reyna að lækka hraðan hjá random viðskiptavinum viljandi þvílíkt rugl að halda þessu fram
allt hjá vodafone er keyrt á tölvum og í þessum tölvum eru mörg forrit sem að gera mismunandi hluti t.d. eitt fyrir reikninga keyrslu annað fyrir frelsi númer og annað fyrir netið o.s.f.v.
Og þessi forrit "tala" misvel saman og þurfa alltaf handvirka stjórnun að mestu eða ekki öllu leiti.
Síðan er það annað að ef þú fekkst þér net fyrir nokkrum árum síðan og fekkst þá 6Mb/s og síðan kemur auglýsing frá Vodafone (þetta á við um alla internetþjónustuaðila á landinu) um að núna eru allar internetáskriftir 12Mb/s.
Það þýðir ekki að þín 6Mb/s tenging fari sjálfkrafa uppí 12Mb/s heldur þarftu að hringja og biðja um að skipta um áskriftarleið þó að hún sé ódýrari og hraðari.
Því að þjónustuaðilinn þinn má ekki breyta þinni þjónustuleið án þíns leyfis og þeir vilja ekki vera að hringja í þig það er bara þannig.
Einnig er þetta þannig að það eru allir mannlegir að vinna þarna og þegar tenginginn var tengd þá var kannksi ranglega skráð 6Mb/s hjá þér eða það var gert af öðrum ástæðum. Allavegna þá sér það enginn og enginn fer yfir það sérstaklega hvað þinn hraði er.
og ég nenni ekki að hafa þetta lengra eða flóknara en nokkurnvegin svona er þetta
ég er ekki að vinna hjá vodafone en kanski var ég að vinna þar fyrir mörgum árum
Re: Sannleikurinn um Vodafone
Sent: Lau 15. Jan 2011 15:49
af Jim
johnnyb skrifaði:auðvitað er þetta ekkert svona þeir eru ekkert að reyna að lækka hraðan hjá random viðskiptavinum viljandi þvílíkt rugl að halda þessu fram

Ég hélt því ekki fram að þeir lækkuðu hraðann hjá random viðskiptavinum, ég kom með þá kenningu að þeir láta alla sem að borga fyrir 12mb/s aðeins fá 6mb/s og svo hækka þeir hraðann hjá þeim sem að hringja. Við vorum búin að uppfæra tenginguna yfir í 12mb/s fyrir mörgum mánuðum og við erum handviss um að hafa skipt þá.
Re: Sannleikurinn um Vodafone
Sent: Lau 15. Jan 2011 17:49
af Hargo
johnnyb skrifaði:ég er ekki að vinna hjá vodafone en kanski var ég að vinna þar fyrir mörgum árum
Kannski varstu að vinna þar fyrir mörgum árum? Ertu ekki alveg viss...eða?
Re: Kenning um Vodafone
Sent: Lau 15. Jan 2011 17:51
af Benzmann
hef lent í þessu hjá þeim líka, ég hringdi og kvartaði, og eftir það hefur þetta ekki klikkað
Re: Sannleikurinn um Vodafone
Sent: Lau 15. Jan 2011 18:18
af mind
johnnyb skrifaði:auðvitað er þetta ekkert svona þeir eru ekkert að reyna að lækka hraðan hjá random viðskiptavinum viljandi þvílíkt rugl að halda þessu fram
allt hjá vodafone er keyrt á tölvum og í þessum tölvum eru mörg forrit sem að gera mismunandi hluti t.d. eitt fyrir reikninga keyrslu annað fyrir frelsi númer og annað fyrir netið o.s.f.v.
Og þessi forrit "tala" misvel saman og þurfa alltaf handvirka stjórnun að mestu eða ekki öllu leiti.
Síðan er það annað að ef þú fekkst þér net fyrir nokkrum árum síðan og fekkst þá 6Mb/s og síðan kemur auglýsing frá Vodafone (þetta á við um alla internetþjónustuaðila á landinu) um að núna eru allar internetáskriftir 12Mb/s.
Það þýðir ekki að þín 6Mb/s tenging fari sjálfkrafa uppí 12Mb/s heldur þarftu að hringja og biðja um að skipta um áskriftarleið þó að hún sé ódýrari og hraðari.
Því að þjónustuaðilinn þinn má ekki breyta þinni þjónustuleið án þíns leyfis og þeir vilja ekki vera að hringja í þig það er bara þannig.
Einnig er þetta þannig að það eru allir mannlegir að vinna þarna og þegar tenginginn var tengd þá var kannksi ranglega skráð 6Mb/s hjá þér eða það var gert af öðrum ástæðum. Allavegna þá sér það enginn og enginn fer yfir það sérstaklega hvað þinn hraði er.
og ég nenni ekki að hafa þetta lengra eða flóknara en nokkurnvegin svona er þetta
ég er ekki að vinna hjá vodafone en kanski var ég að vinna þar fyrir mörgum árum
Stundum skil ég ekki og það átti við um póstinn þinn, svo las ég undirskriftina og allt gékk upp.
Re: Sannleikurinn um Vodafone
Sent: Lau 15. Jan 2011 21:40
af johnnyb
Jim skrifaði:
Ég hélt því ekki fram að þeir lækkuðu hraðann hjá random viðskiptavinum, ég kom með þá kenningu að þeir láta alla sem að borga fyrir 12mb/s aðeins fá 6mb/s og svo hækka þeir hraðann hjá þeim sem að hringja. Við vorum búin að uppfæra tenginguna yfir í 12mb/s fyrir mörgum mánuðum og við erum handviss um að hafa skipt þá.
já það getur gerst að þeir rukki fólki fyrir 12Mb/s en þú færð bara 6Mb/s og það getur gerst að stórum hluta útaf að reikningar kerfið getur ekki tengst kerfinu sem ákvarðar nethraða
yfirleitt mannleg mistök ekkert sem þeir reyna að gera enda kostar alveg jafn mikið fyrir þá að þú sért með 6 eða 12Mb/s
Enda líka gott að mæla hraðan á netinu eins og þeir og fleiri bjóða uppá
Re: Sannleikurinn um Vodafone
Sent: Lau 15. Jan 2011 21:45
af Jim
johnnyb skrifaði:Jim skrifaði:
Ég hélt því ekki fram að þeir lækkuðu hraðann hjá random viðskiptavinum, ég kom með þá kenningu að þeir láta alla sem að borga fyrir 12mb/s aðeins fá 6mb/s og svo hækka þeir hraðann hjá þeim sem að hringja. Við vorum búin að uppfæra tenginguna yfir í 12mb/s fyrir mörgum mánuðum og við erum handviss um að hafa skipt þá.
já það getur gerst að þeir rukki fólki fyrir 12Mb/s en þú færð bara 6Mb/s og það getur gerst að stórum hluta útaf að reikningar kerfið getur ekki tengst kerfinu sem ákvarðar nethraða
yfirleitt mannleg mistök ekkert sem þeir reyna að gera enda kostar alveg jafn mikið fyrir þá að þú sért með 6 eða 12Mb/s
Enda líka gott að mæla hraðan á netinu eins og þeir og fleiri bjóða uppá
Er þá ekkert vit í því að línurnar þoli ekki að allir séu á 12mb/s?
Re: Kenning um Vodafone
Sent: Mán 24. Jan 2011 11:10
af kusi
Ég hef verið hjá Vodafone núna í 2 ár. Ég get ekki valið Símann þar sem fyrirtækin skipta ljósleiðaramarkaðinum á milli sín, þ.e. Míla á ljósleiðara í sumum hverfum og Orkuveitan í öðrum.
Ég hef vanið mig á það að lesa alltaf yfir reikningana frá Vodafone þar sem að það birtast reglulega liðir þar inn á sem eiga ekki að vera þar. Til dæmis mánaðargjöld af fleiri en einum heimasíma þrátt fyrir að vera bara með einn. Flestir sem ég þekki eru með þessa reikninga í einhverskonar sjálfvirkum greiðslum og hugsa þar af leiðandi ekki út í þetta.
Ég get vel trúað því að þessi fyrirtæki beiti svona aðferðum viljandi til að græða meiri pening. Hin mögulega skýringin væri sú að einhver alvarlegur misbrestur væri í starfsmannamálum, þ.e. vanhæfni á háu stigi. Ég hef heyrt þetta með að tölvukerfin þeirra tali illa saman en hvernig væri þá kannski að laga þau? Það er þá enn eitt dæmið um að einhver sé ekki að sinna vinnunni sinni.
Re: Kenning um Vodafone
Sent: Mán 24. Jan 2011 11:28
af RazerLycoz
afsakið veit eitthver hvað skeði hjá vodafone maður er buin að hringja i þjónustuverið mörgum sinnum útaf gagnamagnið er að klárast, og þeir eru aldrei að svara
veit ekki hvort þetta er rétta þráðin fyrir þessa spurningu:)
Re: Kenning um Vodafone
Sent: Mán 24. Jan 2011 11:43
af andribolla
RazerLycoz skrifaði:afsakið veit eitthver hvað skeði hjá vodafone maður er buin að hringja i þjónustuverið mörgum sinnum útaf gagnamagnið er að klárast, og þeir eru aldrei að svara
veit ekki hvort þetta er rétta þráðin fyrir þessa spurningu:)
það tekur aldrei minni tíma en 45-60 mín að komast í samband við þjónustuverið hjá vodafone... svo ekki örvænta og
Bíddu bara
Re: Kenning um Vodafone
Sent: Mán 24. Jan 2011 11:56
af braudrist
RazerLycoz skrifaði:afsakið veit eitthver hvað skeði hjá vodafone maður er buin að hringja i þjónustuverið mörgum sinnum útaf gagnamagnið er að klárast, og þeir eru aldrei að svara
veit ekki hvort þetta er rétta þráðin fyrir þessa spurningu:)
Ég beið einu sinni svo lengi að það var næstum því búið að kvikna í eyranu á mér vegna þess að rafhlaðan í GSM símanum mínum var orðin svo heit.
Re: Kenning um Vodafone
Sent: Mán 24. Jan 2011 11:58
af Daz
braudrist skrifaði:RazerLycoz skrifaði:afsakið veit eitthver hvað skeði hjá vodafone maður er buin að hringja i þjónustuverið mörgum sinnum útaf gagnamagnið er að klárast, og þeir eru aldrei að svara
veit ekki hvort þetta er rétta þráðin fyrir þessa spurningu:)
Ég beið einu sinni svo lengi að það var næstum því búið að kvikna í eyranu á mér vegna þess að rafhlaðan í GSM símanum mínum var orðin svo heit.
Borðsímar með speaker eru sérstaklega framleiddir til að fara á bið í þjónustuverum. (Og speakerinn í farsímum reyndar líka, en það kostar venjulega meira og eyðir batteríinu hratt
)