Síða 1 af 2
Anonymous leitarvél
Sent: Fös 14. Jan 2011 15:37
af appel
http://startpage.com/Loggar ekki, trackar ekki. Google fylgist með ÖLLU sem þú gerir og er með profile um þig, viltu það? Ef ekki, notaðu startpage.com
Re: Anonymous leitarvél
Sent: Fös 14. Jan 2011 15:48
af Leviathan
Sniðugt, takk fyrir þetta. Verst bara hvað Google er ótrúlega góð leitarvél.
Re: Anonymous leitarvél
Sent: Fös 14. Jan 2011 15:49
af Hvati
Re: Anonymous leitarvél
Sent: Fös 14. Jan 2011 15:57
af appel
Hvati skrifaði:https://duckduckgo.com/ gerir það sama
Neat.
Re: Anonymous leitarvél
Sent: Fös 14. Jan 2011 17:56
af GuðjónR
appel skrifaði:http://startpage.com/
Loggar ekki, trackar ekki. Google fylgist með ÖLLU sem þú gerir og er með profile um þig, viltu það? Ef ekki, notaðu startpage.com
Ekki ef hún finnur ekki þetta:
Re: Anonymous leitarvél
Sent: Fös 14. Jan 2011 17:57
af Gunnar
GuðjónR skrifaði:appel skrifaði:http://startpage.com/
Loggar ekki, trackar ekki. Google fylgist með ÖLLU sem þú gerir og er með profile um þig, viltu það? Ef ekki, notaðu startpage.com
Ekki ef hún finnur ekki þetta:
haha hversu useless leitarvél!!!
Re: Anonymous leitarvél
Sent: Fös 14. Jan 2011 18:40
af intenz
Google er með privacy policy sem þeir verða að hlýta.
Re: Anonymous leitarvél
Sent: Fös 14. Jan 2011 18:53
af appel
intenz skrifaði:Google er með privacy policy sem þeir verða að hlýta.
Bandarísk lög overrida privacy policy hjá Google.
Re: Anonymous leitarvél
Sent: Fös 14. Jan 2011 18:54
af KermitTheFrog
Og hvað?
Google er frábær leitarvél. Afhverju ætti mér ekki að vera skítsama um að þeir loggi allt klámið sem ég leita að? Hverju tapa ég?
Re: Anonymous leitarvél
Sent: Fös 14. Jan 2011 19:06
af Gúrú
appel skrifaði:intenz skrifaði:Google er með privacy policy sem þeir verða að hlýta.
Bandarísk lög overrida privacy policy hjá Google.
Læt það þá vera að vera frá Bandaríkjunum þegar að ég nota Google/Facebook/Twitter/Bing/Hotmail/Gmail/Internetið ef það fer í gegnum BNA ISPa/Símakerfið til Bandaríkjanna
Það sem að þú ættir að vera að segja: Ekki nota Google frá tölvum sem að einkenna þig ef að þú hefur eitthvað að fela (sama hvort að það er gott eða slæmt fyrir umheiminn?)
Re: Anonymous leitarvél
Sent: Fös 14. Jan 2011 19:08
af appel
Gúrú skrifaði:appel skrifaði:intenz skrifaði:Google er með privacy policy sem þeir verða að hlýta.
Bandarísk lög overrida privacy policy hjá Google.
Læt það þá vera að vera frá Bandaríkjunum þegar að ég nota Google/Facebook/Twitter/Bing/Hotmail/Gmail/Internetið ef það fer í gegnum BNA ISPa/Símakerfið til Bandaríkjanna
Það sem að þú ættir að vera að segja: Ekki nota Google frá tölvum sem að einkenna þig ef að þú hefur eitthvað að fela (sama hvort að það er gott eða slæmt fyrir umheiminn?)
IP tölur auðkenna þig.
Re: Anonymous leitarvél
Sent: Fös 14. Jan 2011 19:08
af intenz
appel skrifaði:intenz skrifaði:Google er með privacy policy sem þeir verða að hlýta.
Bandarísk lög overrida privacy policy hjá Google.
Your point is?
Re: Anonymous leitarvél
Sent: Fös 14. Jan 2011 19:46
af appel
intenz skrifaði:appel skrifaði:intenz skrifaði:Google er með privacy policy sem þeir verða að hlýta.
Bandarísk lög overrida privacy policy hjá Google.
Your point is?
Reyndu ekki að vera sniðugur.
Bandarísk yfirvöld eru að beita hryðjuverkalöggjöf til þess að fá allar upplýsingar um þessa einstaklinga sem þessi netfyrirtæki búa yfir. Privacy policy skiptir engu máli hvað það varðar.
Re: Anonymous leitarvél
Sent: Fös 14. Jan 2011 20:02
af urban
appel skrifaði:http://startpage.com/
Loggar ekki, trackar ekki. Google fylgist með ÖLLU sem þú gerir og er með profile um þig, viltu það? Ef ekki, notaðu startpage.com
ef að þú ert að gera eitthvað sem að aðrir mega ekki vita um þá geturu t.d. notað TOR
alveg hægt að fela slóð sína á netinu
en ég hef bara ekkert að fela, þannig að mér er í raun slétt sama.
Re: Anonymous leitarvél
Sent: Fös 14. Jan 2011 20:05
af Nariur
Það er ekki eins og það séu beint viðkvæmar upplýsingar sem leynast í google profile-num manns... ég veit að þetta er prinsips mál, en af hverju er ykkur ekki drullu sama þó að einhver kani viti search history hjá ykkur?
Re: Anonymous leitarvél
Sent: Fös 14. Jan 2011 20:24
af GuðjónR
Nariur skrifaði:Það er ekki eins og það séu beint viðkvæmar upplýsingar sem leynast í google profile-num manns... ég veit að þetta er prinsips mál, en af hverju er ykkur ekki drullu sama þó að einhver kani viti search history hjá ykkur?
Spurðu Birgittu.
Re: Anonymous leitarvél
Sent: Fös 14. Jan 2011 20:30
af urban
GuðjónR skrifaði:Nariur skrifaði:Það er ekki eins og það séu beint viðkvæmar upplýsingar sem leynast í google profile-num manns... ég veit að þetta er prinsips mál, en af hverju er ykkur ekki drullu sama þó að einhver kani viti search history hjá ykkur?
Spurðu Birgittu.
þegar að þú ert að vinna svipaða vinnu og hún, þá getur hún haft eitthvað að fela.
hvort sem að það er á vegum þingsins eða á vegum wikileaks.
og á að sjálfsögðu að hafa vit á því að vinna vinnu í kringum það "á bak við tjöldin".
Re: Anonymous leitarvél
Sent: Fös 14. Jan 2011 20:33
af appel
Nariur skrifaði:Það er ekki eins og það séu beint viðkvæmar upplýsingar sem leynast í google profile-num manns... ég veit að þetta er prinsips mál, en af hverju er ykkur ekki drullu sama þó að einhver kani viti search history hjá ykkur?
Þú hefur ekki hugmynd um hvað leitarfyrirspurnir segja mikið um líf ykkar.
Frægt dæmi er til um að þegar Yahoo (held ég) gaf út lista yfir leitarfyrirspurnir (sem voru nafnlausar, en þá allar tengdar sama aðilanum). Þeir héldu að ekki væri hægt að rekja þetta til neins. En fréttateymi ákvað að fara yfir leitarfyrirspurnir eins aðila, og gátu út frá því fundið út að þetta væri miðaldra kona búsett í Bronx (minnir mig), og gátu meira að segja fundið hvar hún ætti heima og fóru og heimsóttu hana og spurðu út í leitarfyrirspurnir hennar. Henni brá.
Það er ekki það að maður sé að gera eitthvað ólöglegt, heldur er staðreyndin sú að öll rafræn notkun ykkar skuli vera skráð niður og geymd. Hægt er að setja saman nákvæman profile um ykkur, lifnaðarhætti ykkar, likes og dislikes, o.s.frv. Í raun væri hægt að profila alla hugsanlega andófsmenn stjórnvalda og fylgjast með þeim. Haldið þið að bandarísk stjórnvöld muni ekki nota þetta til að verja sína hagsmuni?
En svo veit maður aldrei hvort það sem maður gerir í dag verði ólöglegt í framtíðinni, og hugsanlega hægt að nota gegn ykkur þá. T.d. þetta með Wikileaks, varla hefði Birgitta haldið þá að þetta gæti verið ólöglegt, og því notaðist hún óhrædd við þessar bandarísku vefþjónustur. En núna í dag er hægt að nota þess gögn, ekki bara gegn henni, heldur gegn Assange og Bradley Manning.
Re: Anonymous leitarvél
Sent: Fös 14. Jan 2011 20:37
af GuðjónR
urban skrifaði:GuðjónR skrifaði:Nariur skrifaði:Það er ekki eins og það séu beint viðkvæmar upplýsingar sem leynast í google profile-num manns... ég veit að þetta er prinsips mál, en af hverju er ykkur ekki drullu sama þó að einhver kani viti search history hjá ykkur?
Spurðu Birgittu.
þegar að þú ert að vinna svipaða vinnu og hún, þá getur hún haft eitthvað að fela.
hvort sem að það er á vegum þingsins eða á vegum wikileaks.
og á að sjálfsögðu að hafa vit á því að vinna vinnu í kringum það "á bak við tjöldin".
Reyndar....
En nú er ég t.d. búinn að nota gmail lengi, þýðir það þá að ég get ekki orðið ALHEIMSLEIÐTOGI einn daginn?
Re: Anonymous leitarvél
Sent: Fös 14. Jan 2011 20:38
af intenz
appel skrifaði:intenz skrifaði:appel skrifaði:intenz skrifaði:Google er með privacy policy sem þeir verða að hlýta.
Bandarísk lög overrida privacy policy hjá Google.
Your point is?
Reyndu ekki að vera sniðugur.
Bandarísk yfirvöld eru að beita hryðjuverkalöggjöf til þess að fá allar upplýsingar um þessa einstaklinga sem þessi netfyrirtæki búa yfir. Privacy policy skiptir engu máli hvað það varðar.
Afsakaðu, það var ekki ætlunin, ég bara sé ekki hvað er svona hræðilegt við þetta. Ef þeir væru að selja þessar upplýsingar eða misnota þær á annan hátt, þá væri mér fyrst órótt. Beita hryðjuverkalöggjöf? Er það ekki misbeiting á valdi? Það hlýtur að vera einhver klausa í stjórnarskránni þeirra sem snýr að friðhelgi einkalífs. Eða geta stjórnvöld bara beitt hryðjuverkalögum hvenær sem er, t.d. á Facebook og komist að því hvað Jón Jónsson var að gera (út frá statusum) þriðjudaginn 6. júlí 2010?
Re: Anonymous leitarvél
Sent: Fös 14. Jan 2011 20:42
af Gúrú
Bandarísk stjórnvöld eru löngu hætt að fylgja stjórnarskránni.
Lööööööööööööööööööööööööööööööööööööööööööööööööööngu.
Við erum að tala um hvað hundrað ár núna.
Re: Anonymous leitarvél
Sent: Fös 14. Jan 2011 20:43
af GuðjónR
Ég held bara að við íslendingar verðum að fara að passa okkur aðeins hvað við látum frá okkur á netinu svona yfir höfuð.
Ekki endilega að óttast google, bara svona almennt. Hvað hefur maður ekki oft séð statusa eins og "Verð ekki heima í viku, er farinn í bústað" > frábærar upplýsingar fyrir þjófa.
Re: Anonymous leitarvél
Sent: Fös 14. Jan 2011 20:46
af intenz
GuðjónR skrifaði:Ég held bara að við íslendingar verðum að fara að passa okkur aðeins hvað við látum frá okkur á netinu svona yfir höfuð.
Ekki endilega að óttast google, bara svona almennt. Hvað hefur maður ekki oft séð statusa eins og "Verð ekki heima í viku, er farinn í bústað" > frábærar upplýsingar fyrir þjófa.
En þeir vita ekki að Doberman hundurinn minn tekur vel á móti þeim
Re: Anonymous leitarvél
Sent: Fös 14. Jan 2011 20:51
af GuðjónR
intenz skrifaði:GuðjónR skrifaði:Ég held bara að við íslendingar verðum að fara að passa okkur aðeins hvað við látum frá okkur á netinu svona yfir höfuð.
Ekki endilega að óttast google, bara svona almennt. Hvað hefur maður ekki oft séð statusa eins og "Verð ekki heima í viku, er farinn í bústað" > frábærar upplýsingar fyrir þjófa.
En þeir vita ekki að Doberman hundurinn minn tekur vel á móti þeim
Skilurðu hann eftir einan heima í viku?
Re: Anonymous leitarvél
Sent: Fös 14. Jan 2011 20:54
af appel
GuðjónR skrifaði:intenz skrifaði:GuðjónR skrifaði:Ég held bara að við íslendingar verðum að fara að passa okkur aðeins hvað við látum frá okkur á netinu svona yfir höfuð.
Ekki endilega að óttast google, bara svona almennt. Hvað hefur maður ekki oft séð statusa eins og "Verð ekki heima í viku, er farinn í bústað" > frábærar upplýsingar fyrir þjófa.
En þeir vita ekki að Doberman hundurinn minn tekur vel á móti þeim
Skilurðu hann eftir einan heima í viku?
Þú misskilur, hann er að láta þjófana vita svo þeir brjótist inn og Doberman hundurinn fái eitthvað að borða