Síða 1 af 2

Ykkar mesta fail

Sent: Lau 08. Jan 2011 23:57
af zdndz
ég var svo klár að gleyma taka backup af driverunum mínum þegar ég var að strauja tölvuna, setti upp windows 7 og hélt að stýrikerfið myndi sjá um að ná í alla driverana handa mér, en nei hljóðið virkaði ekki, ég finn rétta driverinn en samt sem áður virkaði hljóðið ekki, ég prófaði fullt af öðrum driverum en samt virkaði ekki hljóðið hjá mér, ég prófaði að ná í nokkur forrit sem leita að driverum fyrir manni en samt virkaði ekki hljóðið! Ég er núna búinn að eyða einnri og hálfri klukkustund þegar ég sá að headphone-in voru ekki tengd! :mad

Ákvað að starta þráð hérna, hvað er mesta fail sem þið hafið gert í sambandi við tölvur :lol:

Re: Ykkar mesta fail

Sent: Sun 09. Jan 2011 00:00
af bulldog
það var nú einu sinni þegar ég grillaði öryggið í tölvu með að fikta í 110 / 230 takka .... :mad :mad :mad :mad

Re: Ykkar mesta fail

Sent: Sun 09. Jan 2011 00:17
af Plushy
bulldog skrifaði:það var nú einu sinni þegar ég grillaði öryggið í tölvu með að fikta í 110 / 230 takka .... :mad :mad :mad :mad

Sama hér

Re: Ykkar mesta fail

Sent: Sun 09. Jan 2011 00:43
af GuðjónR
Þegar ég ætlaði að vera rosalega klár og setja upp jóla-styles á spjallið...það gekk ekki betur en svo að allt fór til fjandans....beond repair.
Þurfti full server backup frá 1984.is.....frekar pínlegt :oops:

Re: Ykkar mesta fail

Sent: Sun 09. Jan 2011 01:01
af rapport
Var að hjálpa félaga mínum með Mac book AIR og var með DVD IDE drifið mitt tengt í gegnum USB thingy...

Það neitaði að virka og eftir að hafa hábölvað Aplle (of course) þá sá ég að ég hafði troðið útjöskuðu molex-inu úr spennubreytinum öfugu í drifið og steikt það...

Annað sem var voða fyndið fail um daginn...

Pantaði fjölskyldutilboð á Búllunni og fór að sækja...

Beið og beið og horfið á alla drekka öl á staðnum og var orðinn þyrstur, hundfúll á biðinni.

Strákurinn kemur með borgarana og spyr mig hvað ég vilji drekka með og ég hund fúll sagði bara GOS (meinti kók) og gaurinn sá SVO á mér hvað ég var að hugsa að hann sprakk úr hlátri...

Re: Ykkar mesta fail

Sent: Sun 09. Jan 2011 01:35
af Hvati
rapport skrifaði:Það neitaði að virka og eftir að hafa hábölvað Aplle (of course) þá sá ég að ég hafði troðið útjöskuðu molex-inu úr spennubreytinum öfugu í drifið og steikt það...

Whut? :popeyed

Re: Ykkar mesta fail

Sent: Sun 09. Jan 2011 01:36
af Plushy
Hvati skrifaði:
rapport skrifaði:Það neitaði að virka og eftir að hafa hábölvað Aplle (of course) þá sá ég að ég hafði troðið útjöskuðu molex-inu úr spennubreytinum öfugu í drifið og steikt það...

Whut? :popeyed

He speaks the klingon

Re: Ykkar mesta fail

Sent: Sun 09. Jan 2011 01:45
af ManiO
Hvernig feilar maður? :-k

Re: Ykkar mesta fail

Sent: Sun 09. Jan 2011 02:01
af kubbur
fór inná facebook hjá einhverjum sem glemdi að skrá sig út og fór að velta því fyrir mér af hverju allt þetta fólk sem ég kannaðist ekkert við og fór að eyða því út, fattaði það eftir svona 10 mín að ég var ekki á mínu facebooki

Re: Ykkar mesta fail

Sent: Sun 09. Jan 2011 02:36
af BjarkiB
Fyrir nokkrum árum, var í fríi með fjölskyldunni í Hollandi. Vorum búin að taka slatta af myndum en svo gerðist eitthvað við myndavélina að hún fókussaði ekki vel. Fór ég eitthvað að fikta í henni og reyna að laga þetta og ákvað að ýta á eitthvað sem ég vissi ekkert hvað væri, "format".

Re: Ykkar mesta fail

Sent: Sun 09. Jan 2011 02:54
af SIKk
kubbur skrifaði:fór inná facebook hjá einhverjum sem glemdi að skrá sig út og fór að velta því fyrir mér af hverju allt þetta fólk sem ég kannaðist ekkert við og fór að eyða því út, fattaði það eftir svona 10 mín að ég var ekki á mínu facebooki

ég hló :lol:

Re: Ykkar mesta fail

Sent: Sun 09. Jan 2011 03:22
af rapport
Plushy skrifaði:
Hvati skrifaði:
rapport skrifaði:Það neitaði að virka og eftir að hafa hábölvað Aplle (of course) þá sá ég að ég hafði troðið útjöskuðu molex-inu úr spennubreytinum öfugu í drifið og steikt það...

Whut? :popeyed

He speaks the klingon

Macbook air = ekkert cd/DVD drif...

Þannig að ég reif DVD drifið úr minni tölvu og tengdi með USB millistykki í Apple vélina. Til að gefa DVD drifinu rafmagn þá notaði ég straumbreyti með Molex, ég snéri molexinu vitlaust = rúnuðu hornin voru "niður" en ekki "upp"...

= steikti DVD drifið ...

Mynd

Re: Ykkar mesta fail

Sent: Sun 09. Jan 2011 03:30
af Bengal
Man ekki eftir neinu sérstöku en hinsvegar man ég eftir gaurnum sem kvartaði undan buy.is yfir að hafa ekki fengið nýtt móðurborð og herlegheit fyrir móðurborðið sem hann slysaðist til að moka kælikremi ofaní örgjörvaraufarnar.

Hann má endilega koma hingað og rifja upp þá skemmtilegu sögu. =D>

Re: Ykkar mesta fail

Sent: Sun 09. Jan 2011 04:39
af SIKk
bjarturv skrifaði:Man ekki eftir neinu sérstöku en hinsvegar man ég eftir gaurnum sem kvartaði undan buy.is yfir að hafa ekki fengið nýtt móðurborð og herlegheit fyrir móðurborðið sem hann slysaðist til að moka kælikremi ofaní örgjörvaraufarnar.

Hann má endilega koma hingað og rifja upp þá skemmtilegu sögu. =D>

HAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAA :sleezyjoe :sleezyjoe :sleezyjoe :sleezyjoe

Re: Ykkar mesta fail

Sent: Sun 09. Jan 2011 04:47
af Glazier
Tiesto skrifaði:Fyrir nokkrum árum, var í fríi með fjölskyldunni í Hollandi. Vorum búin að taka slatta af myndum en svo gerðist eitthvað við myndavélina að hún fókussaði ekki vel. Fór ég eitthvað að fikta í henni og reyna að laga þetta og ákvað að ýta á eitthvað sem ég vissi ekkert hvað væri, "format".

Heh, lenti í svipuðu 2 mán eftir að ég fékk mína DSLR myndavél..
Var ennþá að læra á hana en kunni nú samt eitthvað sko
Var búinn að vera úti í ~10°C frosti að taka myndir í um 2 tíma kom svo inn og fór í menu og ef maður klikkar á format þá getur maður séð hvað er mikið pláss eftir og ég ætlaði að tékka á því en ýtti svo óvart á "OK" líka xD
Horfði svo bara á þetta rúlla út hjá mér 8GB af myndum -.-

Re: Ykkar mesta fail

Sent: Sun 09. Jan 2011 09:04
af Haxdal
Í gamla daga þegar DVD spilarar í tölvum voru tiltölulega nýir þá keypti ég mér einn creative dvd spilara og decoder kort (í þá daga þá voru bara highend skjákortin með DVD decoding fídus). long story short, þá fékk ég draslið aldrei til að virka og eftir 2 ferðir með tölvuna í viðgerð (ég átti heima útá landi þá svo það var vesen að koma henni í viðgerð) þá sögðu þeir í bæði skiptin að það væri ekkert að DVD spilaranum eða decoding spjaldinu en samt virkaði aldrei að spila neitt þegar ég prófaði það. Þetta leystist ekki nema fyrir tilviljun þegar ég var að taka til og fann pínkulítinn VGA kapal í tölvudraslinu mínu. Yup, ég hafði gleymt að tengja skjákorts outputtið við decoding spjaldið með loopback kaplinum :oops: .

Re: Ykkar mesta fail

Sent: Sun 09. Jan 2011 11:35
af C2H5OH
Plushy skrifaði:
bulldog skrifaði:það var nú einu sinni þegar ég grillaði öryggið í tölvu með að fikta í 110 / 230 takka .... :mad :mad :mad :mad

Sama hér

Jább lenti einusinni í þessu... frekar pínlegt

Re: Ykkar mesta fail

Sent: Sun 09. Jan 2011 12:09
af biturk
:oops:
C2H5OH skrifaði:
Plushy skrifaði:
bulldog skrifaði:það var nú einu sinni þegar ég grillaði öryggið í tölvu með að fikta í 110 / 230 takka .... :mad :mad :mad :mad

Sama hér

Jább lenti einusinni í þessu... frekar pínlegt

Re: Ykkar mesta fail

Sent: Sun 09. Jan 2011 16:50
af rapport
Fail dagsins...

Eldri dóttirin tilkynnti á föstudag að hún færi í afmæli hjá bekkjarsystur á sunnudeginum og kom heim með miða og alles...

Það var farið og verslað lítil gjöf og svo skutlaði ég henni núna 16:30.

Ég mæti með barnið og ýti henni inn (hún var smá feimin, skildi það ekki þar sem það var nóg af krökkum).

Mamman á heimilinu kemur og ég spyr "hvenær á ég svo að sækja hana?" og mamman segir að afmælið sé til fimm.

Ég svona smá fúll (ætlaði að versla) segi "Ó - á miðanum stóð til 18:30" mamman svara, " já, á miðanum stóð líka 10.jan, núna er fjölskylduafmæli til fimm" :oops:

Mamman er þekkt andlit, ég var búinn að vera frekur við hana og búin að koma minni úr fötunum og inn...

Ég fann andlitið á mér roðna til hevítis, baðst innilega afsökunar.

Mamman, þessi yndælis kona gat sem betur fer hlegið með mér að þessu og ég sæki mína í afmælið eftir korter...

Þetta er s.s. fail dagsins hjá mér...

Nú þarf ég að hætta og fara og horfast aftur í augu við fólkið þegar ég sæki stelpuna mína... :oops: :oops:

Re: Ykkar mesta fail

Sent: Sun 09. Jan 2011 16:54
af BjarkiB
rapport skrifaði:Fail dagsins...

Hahahaha :lol:

Re: Ykkar mesta fail

Sent: Sun 09. Jan 2011 16:54
af coldcut
rapport skrifaði:blablabla major fail blablabla

HAHAHAHAHAHAHAHAHA déskotans snilld! =D> =D> =D>

Re: Ykkar mesta fail

Sent: Sun 09. Jan 2011 17:02
af biturk
rapport skrifaði:Fail dagsins...

Eldri dóttirin tilkynnti á föstudag að hún færi í afmæli hjá bekkjarsystur á sunnudeginum og kom heim með miða og alles...

Það var farið og verslað lítil gjöf og svo skutlaði ég henni núna 16:30.

Ég mæti með barnið og ýti henni inn (hún var smá feimin, skildi það ekki þar sem það var nóg af krökkum).

Mamman á heimilinu kemur og ég spyr "hvenær á ég svo að sækja hana?" og mamman segir að afmælið sé til fimm.

Ég svona smá fúll (ætlaði að versla) segi "Ó - á miðanum stóð til 18:30" mamman svara, " já, á miðanum stóð líka 10.jan, núna er fjölskylduafmæli til fimm" :oops:

Mamman er þekkt andlit, ég var búinn að vera frekur við hana og búin að koma minni úr fötunum og inn...

Ég fann andlitið á mér roðna til hevítis, baðst innilega afsökunar.

Mamman, þessi yndælis kona gat sem betur fer hlegið með mér að þessu og ég sæki mína í afmælið eftir korter...

Þetta er s.s. fail dagsins hjá mér...

Nú þarf ég að hætta og fara og horfast aftur í augu við fólkið þegar ég sæki stelpuna mína... :oops: :oops:

:lol: :lol: :lol: :lol:

hvernig er kvíðahnúturinn í dag :beer

Re: Ykkar mesta fail

Sent: Sun 09. Jan 2011 17:56
af beggi90
Var að formatta tölvuna mína fyrir svona þrem árum.
Harði diskurinn var splittaður í þrjú partition svo ég fór bara að formatta og formattaði óvart 2 HDD með bíómyndum í leiðinni, gleymdi að aftengja þá.
Átti backup af mestöllu á diskunum svo að ég nennti ekki að fara í neitt data recovery vesen, samt nett bögg.

Re: Ykkar mesta fail

Sent: Sun 09. Jan 2011 18:05
af rapport
hvernig er kvíðahnúturinn í dag :beer

Þetta gekk vel :oops:

Mamman þakkaði kærlega fyrir disney vekjaraklukkuna sem við gáfum dóttur hennar minnti mig svo á að lokum að muna eftir að koma aftur á morgun í bekkjarafmælið :oops:

Úff...

Re: Ykkar mesta fail

Sent: Sun 09. Jan 2011 19:12
af zdndz
rapport skrifaði:
hvernig er kvíðahnúturinn í dag :beer

Þetta gekk vel :oops:

Mamman þakkaði kærlega fyrir disney vekjaraklukkuna sem við gáfum dóttur hennar minnti mig svo á að lokum að muna eftir að koma aftur á morgun í bekkjarafmælið :oops:

Úff...

svo þér hlakkar greinilega til að mæta þarna aftur á morgun :lol: