Síða 1 af 1
Standsetning á prenturum
Sent: Þri 28. Des 2010 19:06
af rapport
Ef ég er með marga various prentara sem ég vil að séu standsettir sem nýjir (þ.m.t. eytt úr minninu á þeim), fyrir fyrirtæki sem vill selja þá án þess að leka business info...
Eru einhver fyrirtæki sem taka að sér að standsetja og jafnvel selja svona notað dót?
Þetta væru allt frá HP 1020 yfir í ljósritunarvéla unit.
Re: Standsetning á prenturum
Sent: Mið 29. Des 2010 09:45
af rapport
Nobody?
Re: Standsetning á prenturum
Sent: Mið 29. Des 2010 12:41
af Revenant
Yfirleitt eru smærri unit ekki með non-volatile storage, hinsvegar þá væri spurning ef þú ert mjög paranoid að taka minniskubbana úr tækjunum (eða skipta um þá) og factory reseta svo tækin.
Hinsvegar þá eru mjög miklar líkur á því að það sé harður diskur í ljóritunarvélum.
DBAN á diskinn ætti að feykinóg til að tortíma öllum gögnum af disknum.
Re: Standsetning á prenturum
Sent: Mið 29. Des 2010 13:37
af rapport
Er ekkert fyrirtæki sem tekur svona hreinlega að sér?
Enginn hérna að vinna í banka?
Hvað gera bankarnir við gamlan búnað, er hann seldur með öllum upplýsingunum í minni tækisins eða er honum bara eytt?
Re: Standsetning á prenturum
Sent: Mið 29. Des 2010 13:42
af AntiTrust
Re: Standsetning á prenturum
Sent: Mið 29. Des 2010 15:21
af rapport
AntiTrust skrifaði:http://www.gagnaeyding.is
Er það bara málið?
30 tæki sem líklega væri hægt að fá c.a. 900þ. fyrir bara í ruslið vegna þess að enginn getur græjað þetta...
isss...
Re: Standsetning á prenturum
Sent: Mið 29. Des 2010 15:26
af B.Ingimarsson
hmmm.....
veit svo mikið sem ekkert um prentara en það gæti verið að einhverstaðar á þeim sé lítið gat fyrir títuprjón til að reseta prentarann.
Re: Standsetning á prenturum
Sent: Mið 29. Des 2010 15:42
af rapport
Það sem ég fann á 10 sek. um málið á Youtube.
http://www.youtube.com/watch?v=Fzqe21g4q7Ihttp://www.youtube.com/watch?v=iC38D5am7goÞað er hreinlega stupid að selja prentara/ljósritunarvél án þess að vera búinn að hreinsa minnið eða a.m.k. vera búinn að gera þriðja aðila ábyrgann fyrir því að það sé gert fyrir sölu.
p.s. ég veit að jafnvel litlir netprentarar eru með minni sem auðveldlega er hægt að hirða gögn af.
Það væri líklega sniðugt að stofna fyrirtæki sem gæti tekið svona að sér...
Re: Standsetning á prenturum
Sent: Mið 29. Des 2010 16:44
af SteiniP
Hefði haldið að það væri bara ram í flestum prenturum, sem að eyðist þá á nokkrum mínútum þegar þú tekur strauminn af honum.
Ef það væri flash minni eða eitthvað slíkt, myndi þá ekki ný print job bara skrifast yfir gömlu jobin sem búið er að eyða?
Bara vangaveltur, hef aldrei pælt í þessu.
Re: Standsetning á prenturum
Sent: Mið 29. Des 2010 16:56
af rapport
SteiniP skrifaði:Hefði haldið að það væri bara ram í flestum prenturum, sem að eyðist þá á nokkrum mínútum þegar þú tekur strauminn af honum.
Ef það væri flash minni eða eitthvað slíkt, myndi þá ekki ný print job bara skrifast yfir gömlu jobin sem búið er að eyða?
Bara vangaveltur, hef aldrei pælt í þessu.
Ef prentarar væru bara með volatile minni, hvernig gætu þeir þá geymt info um t.d. "page count", netstillingar o.þ.h.
Raunin er að prentarar geyma allt of mikið af gögnum og eru raunveruleg ógn við öryggi upplýsinga.
Edið:
http://www.schneier.com/blog/archives/2 ... curit.html
Re: Standsetning á prenturum
Sent: Mið 29. Des 2010 17:25
af B.Ingimarsson
ég held samt að það séu ekki margir sem vita af þessu
Re: Standsetning á prenturum
Sent: Mið 29. Des 2010 17:53
af rapport
B.Ingimarsson skrifaði:ég held samt að það séu ekki margir sem vita af þessu
= security by obscurity
Það lofar ekki góðu og er skelfilega óábyrgt af fyrirtækjum/stofnunum í viðkvæmum rekstri.