Síða 1 af 2

Síminn rukkar fyrir auka gagnamagn.

Sent: Mán 27. Des 2010 23:48
af Nördaklessa
hvernig líst ykkur á að Síminn er byrjaður að rukka heilar 1600KR fyrir það eitt að fara yfir Gagnamagn. ég er kominn með 158% yfir eða 91GB á þessu heimili og ég get ALLS ekki farið á Erlendar síður, ég get ekki einu sinni farið í Windows update...helvítis focking fokk!

Re: Auðvitað...

Sent: Þri 28. Des 2010 00:19
af intenz
Nú, ég hélt þeir væru búnir að breyta því þannig að ef maður færi yfir bættu þeir bara 10 GB við sem maður yrði síðan rukkaður fyrir.

Re: Auðvitað...

Sent: Þri 28. Des 2010 00:21
af Nördaklessa
ég var að stækka pakkan frá 12mb og 60GB til 16mb í 120, ég komst ekki á neinar erlendar síður :S, mér finnst þetta mjög lélegt

Re: Auðvitað...

Sent: Þri 28. Des 2010 00:24
af einarhr

Re: Auðvitað...

Sent: Þri 28. Des 2010 00:28
af einarhr
Nördaklessa skrifaði:ég var að stækka pakkan frá 12mb og 60GB til 16mb í 120, ég komst ekki á neinar erlendar síður :S, mér finnst þetta mjög lélegt

Hvenær sóttir þú um stærri tengingu? Ég veit ekki alveg hvernig þetta virkar hjá Símanum en ég myndi halda að þetta myndi breytast við mánaðarmót nema þú hafir beðið um annað og borgað eitthvað á milli fyrir fyrsta mánuðinn.

Re: Síminn rukkar fyrir auka gagnamagn.

Sent: Þri 28. Des 2010 01:07
af Plushy
Tengingin ætti ekki breytist ekki fyrr en eftir mánaðarmót nema annað sé tekið fram.

Skil samt ekki hvernig maður fer að því að bruna svona áfram í gagnamagni, hverju þarf fólk svona mikið að niðurhala?

er með 60 gb gagnamagn og er rétt í 30-40 gb eftir mánuðinn

Re: Síminn rukkar fyrir auka gagnamagn.

Sent: Þri 28. Des 2010 01:15
af wicket
Ég skil ekki þennan þráð.

Þetta hefur verið svona lengi og maður fær tilkynningu í tíma um að að stefni í þetta og svo aftur tilkynningu þegar að þetta gerist.

Hvað er vandamálið ?

Re: Síminn rukkar fyrir auka gagnamagn.

Sent: Þri 28. Des 2010 01:22
af Glazier
Plushy skrifaði:Skil samt ekki hvernig maður fer að því að bruna svona áfram í gagnamagni, hverju þarf fólk svona mikið að niðurhala?

Sumir sækja Full HD bíómyndir..
1 bluray mynd í fullri stærð er um 40-60gb svo það þarf nú bara að sækja 3 svoleiðis til að fara yfir 120gb :)

Re: Síminn rukkar fyrir auka gagnamagn.

Sent: Þri 28. Des 2010 01:26
af AntiTrust
Plushy skrifaði:Tengingin ætti ekki breytist ekki fyrr en eftir mánaðarmót nema annað sé tekið fram.

Skil samt ekki hvernig maður fer að því að bruna svona áfram í gagnamagni, hverju þarf fólk svona mikið að niðurhala?

er með 60 gb gagnamagn og er rétt í 30-40 gb eftir mánuðinn

Misjafnar þarfir manna bara? 120GB er bara kidstuff fyrir suma. Gott .mkv rip er t.d. 12-20GB, slefar easy í 30GB ef það er 1080p + DTS HD.

Re: Síminn rukkar fyrir auka gagnamagn.

Sent: Þri 28. Des 2010 01:37
af Plushy
AntiTrust skrifaði:

Ég horfi eiginlega ekkert á bíómyndir, mest þætti og þá frekar streamað af netinu heldur en niðurhal.

Re: Síminn rukkar fyrir auka gagnamagn.

Sent: Þri 28. Des 2010 01:38
af Nördaklessa
minnsta mál að fara yfir 60GB þar sem það eru 3 tölvur eru á þessu heimili og allir á facebook og youtube osfv

Re: Síminn rukkar fyrir auka gagnamagn.

Sent: Þri 28. Des 2010 01:40
af BjarkiB
Þú átt nú að gera fylgst með þessu á þjónunstuvef Símans.

Re: Síminn rukkar fyrir auka gagnamagn.

Sent: Þri 28. Des 2010 01:41
af AntiTrust
Plushy skrifaði:Ég horfi eiginlega ekkert á bíómyndir, mest þætti og þá frekar streamað af netinu heldur en niðurhal.

Þá útskýrir það heilmikið, og undirstrikar það sem ég sagði. Misjafnar þarfir manna ;)

Re: Síminn rukkar fyrir auka gagnamagn.

Sent: Þri 28. Des 2010 01:47
af urban
Plushy skrifaði:
AntiTrust skrifaði:
Plushy skrifaði:Tengingin ætti ekki breytist ekki fyrr en eftir mánaðarmót nema annað sé tekið fram.

Skil samt ekki hvernig maður fer að því að bruna svona áfram í gagnamagni, hverju þarf fólk svona mikið að niðurhala?

er með 60 gb gagnamagn og er rétt í 30-40 gb eftir mánuðinn

Misjafnar þarfir manna bara? 120GB er bara kidstuff fyrir suma. Gott .mkv rip er t.d. 12-20GB, slefar easy í 30GB ef það er 1080p + DTS HD.

Ég horfi eiginlega ekkert á bíómyndir, mest þætti og þá frekar streamað af netinu heldur en niðurhal.

eitt sem að rosalega margir virðast ekki átta sig á.
en þegar að þú streamar einhverju af netinu þá ertu að niðurhala því.

Re: Síminn rukkar fyrir auka gagnamagn.

Sent: Þri 28. Des 2010 02:02
af Plushy
urban skrifaði:

Ég geri mér grein fyrir því... enda er ég að taka ~40 GB á mánuði í það í bland við online leiki eins og Call of Duty.

Re: Síminn rukkar fyrir auka gagnamagn.

Sent: Þri 28. Des 2010 12:41
af frikki1974
Nördaklessa

Ég hef lent í þessum hryllingi en ég var með Leið 2 en ég skipti beint yfir í stærsta pakkann (Leið 3 Hraði allt að 16 Mb/s
Gagnamagn 120 GB) hann er ekki nema 1400kr dýrari á mánuði.

Re: Síminn rukkar fyrir auka gagnamagn.

Sent: Þri 28. Des 2010 12:47
af bulldog
ég fór í 136 % af því sem ég er með fyrir mánuðinn ( 16 mb / 120 gb ) Netið fór niður í að það var ekki hægt að fara inn á neitt erlent, hringdi bara í 800-7000 og fékk 10 gb auka sem kostar 1512 krónur og passa mig það sem er eftir mánaðarins :)

Re: Síminn rukkar fyrir auka gagnamagn.

Sent: Þri 28. Des 2010 12:53
af frikki1974
bulldog skrifaði:ég fór í 136 % af því sem ég er með fyrir mánuðinn ( 16 mb / 120 gb ) Netið fór niður í að það var ekki hægt að fara inn á neitt erlent, hringdi bara í 800-7000 og fékk 10 gb auka sem kostar 1512 krónur og passa mig það sem er eftir mánaðarins :)

Ég var kominn í 128Gíg fyrir viku síðan en ég hringdi í simann og keypti 50Gíg til viðbótar en það kostaði 5000kr.
Það er rosalegt að geta ekki komist á erlendar síður.

Re: Síminn rukkar fyrir auka gagnamagn.

Sent: Þri 28. Des 2010 13:20
af Danni V8
Ég er með 60gb limit og er kominn í 31gb í desember. Nota aðallega innlendar torrent síður þegar ég dowloada, sem er mjög sjaldan því ég er svo oft í Black Ops.

Re: Síminn rukkar fyrir auka gagnamagn.

Sent: Þri 28. Des 2010 14:09
af GuðjónR
Mér finnst núverandi kerfi hjá Símanum perfect.
Þú kaupir ákveðið gagnamagn, t.d. 120GB og ef þú ferð yfir þá borgaðu meira.

Fyrir ári, eða tveimur man ekki, þá var kerfið þannig að það horfði 7 daga afturábak og svo varð kerfið ennþá heimskulegra og horfði 30 daga afturábak þannig að þú gast farið með CAP á þér inn í nýjan mánuð án þess þó að vera búinn að nota nema part af því magni sem þú keyptir mánuðinn áður.
Maður fékk aldrei vöruna sem maður borgaði fyrir.

Ég lenti meira að segja í því yfir jólin í fyrra/hitteðfyrra...að fá þetta skíta-capp yfir mig, gat ekki browsað erlendar síður eða gert nokkuð, ég hringdi og bað um að fá að kaupa auka gagnamagn (þó ég væri bara búinn með brot af mínu) en það var ekki hægt, þá bað ég um að fá að kaupa annan mánuð....eða bara eitthvað til að losna...
Nei ekki hægt...þú verður bara að bíða í viku með að browsa erlendar síður var svarið.

Í dag er kerfið að virka hinsvegar.

Re: Síminn rukkar fyrir auka gagnamagn.

Sent: Þri 28. Des 2010 16:28
af fallen
Þetta verður náttúrulega aldrei perfect fyrr en þeir fara að bjóða upp á ótakmarkað erlent gagnamagn..

Það vantar svo alvarlega eitthvað fyrirtæki á markaðinn sem býður upp á þetta til þess að neyða Símann/Vodafone til þess að gera hið sama, því ekki gera þeir það að fyrra bragði. Það sýndi sig og sannaði með Hive.. ISP'arnir buðu upp á ótakmarkað þegar Hive gerði það og um leið og Hive hætti þá fóru þeir að limita aftur. Samráð a la olíufyrirtækin?

Síminn bar það fyrir sig að notendur, sem væru að dla meira en gagnamagnið þeirra bauð upp á, væru að hafa áhrif á tengingar hjá öllum hinum sem væru með internetið hjá Símanum.. sem er náttúrulega þvæla.

Núna selja þeir bara auka gagnamagn, því það er að sjálfsögðu meiri gróði í því en að limita notendur.
Ógeðslegt fyrirtæki. Það er akkúrat _ekkert_ gert með hagsmuni viðskiptavina að leiðarljósi.

Re: Síminn rukkar fyrir auka gagnamagn.

Sent: Þri 28. Des 2010 16:31
af emmi
Meiri gróði? Heldur þú að það kosti ekkert að stækka erlendu gáttirnar vegna aukins álags sem verður af meira niðurhali?

Re: Síminn rukkar fyrir auka gagnamagn.

Sent: Þri 28. Des 2010 16:41
af fallen
Alveg örugglega kostar það eitthvað. Það kostaði líka örugglega eitthvað þegar þeir voru síðast með ótakmarkað erlent gagnamagn. Það stöðvaði þá ekki í samkeppninni við OgVoda/Hive.. Þetta er bara textbook dæmi um að gera eins lítið og þeir geta því þeir komast upp með það.

Re: Síminn rukkar fyrir auka gagnamagn.

Sent: Þri 28. Des 2010 16:47
af emmi
Fyrirtækin eru í þessu til að skila hagnaði, það er alveg á hreinu. Veit ekki um neitt fyrirtæki sem hefur það að leiðarljósi að hagnast ekki neitt. Svo má ekki gleyma því að það er hægt að kaupa auka niðurhal hjá Símanum fyrir þá sem þurfa meira en 120GB. :)

10 GB í viðbót á 1.600 kr.
50 GB í viðbót á 5.040 kr.

Re: Síminn rukkar fyrir auka gagnamagn.

Sent: Þri 28. Des 2010 17:05
af wicket
Ó nei, fyrirtæki sem gerir allt sem það getur til að skila hagnaði !!!

Þannig virkar bissness.

Síðast þegar ég vissi eru útlandagáttirnar greiddar í erlendum gjaldmiðli, Evru. Það er ekki beint ódýrt í dag að vera að versla mikið með hana og þess vegna skilur maður upp að vissu marki að fjarskiptafyrirtækin geri þetta.

Vissulega væri gaman að hafa ótakmarkað, já en það breytir því ekki að þessi 120GB sem eru seld í dag í smásölu til notanda ásamt stækkun hefur dugað mér í öllum tilvikum. Örsjaldan hef ég þurft á þessari stækkun að halda og þá bara verið sáttur að hún sé fyrir hendi.

Við búum á skeri í Atlantshafi með ónýtann gjaldmiðli, það að hafa ekki ótakmarkað niðurhal er ekki það stærsta vandamál sem við stöndum frammi fyrir.