Síða 1 af 2

Flugeldar :D

Sent: Sun 26. Des 2010 03:15
af jobbzi
Sælir Vaktarar :D og Gleðileg Jól allir saman :D :santa
hvar ætliði að kaupa flugelda ef þið ætlið að kaupa einhverja?? :-k
Og hvað mæliði með ? t.d. einhver terta eða flugeldur sem stendur uppúr :happy

Kv.Jobbzi

p.s. væri gaman að vita hvaða flugelda menn ætla að frá sér svona maður fái einhverja hugmynd um hvað er best :D fyrir þessi áramót :megasmile

Re: Flugeldar :D

Sent: Sun 26. Des 2010 03:24
af andripepe
Björgunarsveitirnar PUNKTUR

Terturnar sem þeir selja með öllum Vikingunum eru goodshit ;P

Re: Flugeldar :D

Sent: Sun 26. Des 2010 03:26
af Ripparinn
Ég styð björgunasveitina. Ef það er eitthvað sem ég kaupi utan ehnnar er það í Gullborg

Re: Flugeldar :D

Sent: Sun 26. Des 2010 03:28
af Frost
Finnst asnalegt að styðja ekki Björgunarsveitina [-(

Ég hef og mun alltaf kaupa hjá þeim!

Re: Flugeldar :D

Sent: Sun 26. Des 2010 03:36
af Eiiki
Þú átt að kaupa hjá Björgunarsveitunum, það er óskrifuð regla.
Mér finnst að allir sem selja flugelda ættu að leggja niður sölurnar og láta þær alfarið í hendurnar á bjargvættum okkar Íslendinga.

Re: Flugeldar :D

Sent: Sun 26. Des 2010 03:38
af Lexxinn
Björgunarsveitin eða ekkert.

Þetta er sönn saga.
Ætlaði að reyna að fara 2008 eithvert annað var kominn með 45% afslátt í þarna "Alvöru Flugeldar" eða hvað sem hann vildi kalla fyrirtækið. Þegar ég labba inn fæ ég bara svona eins og lítinn sting í hjartað og hugsaði bara "Hvað er ég að gera hérna?", spurði pabba hvort við ættum ekki bara að fara að kaupa hjá Björgunarsveitunum og hann samþykkti það með öllu góðu. Þó ég hefði fengið meira þarna gat ég ekki hugsað mér að sjá hann á nýja Mercedes Benzinum sem stóð fyrir utan á nýju númerinum þegar þau voru ný komin, koma upp á jökul að bjarga mér ef ég lendi fastur einhversstaðar eða í vandræðum.

Áður en þetta gerðist hafði ég alltaf verslað hjá Björgunarsveitunum og mun alltaf þetta ætti að vera einkasala Björgunarsveitanna þar sem að þetta er þeirra helsta tekjulind.

Hvet ykkur hina ef þið ætlið að kaupa í Gullborg, Alvöru Flugeldum eða einhverju svoleiðis sem er ekki einusinni öryggis vottað... (Ég meina nú af hverju eru þeir að selja eithvað merkt alveg eins kínverskt og þú finnur það meðan björgunarsveitirnar eru komnar með allt sitt stúss og hafa alltaf verið með sömu vörur?)
En hugsið út í það hvort JónJónsson eða Karl Karlsson komi uppá Vatnajökul eða út á land ef þið lendið í hremmingum og bjargi ykkur þar...

Re: Flugeldar :D

Sent: Sun 26. Des 2010 03:39
af beggi90
Kaupi ekki flugelda, finnst þeir of dýrir.

Re: Flugeldar :D

Sent: Sun 26. Des 2010 03:41
af jobbzi
Ég auðvitað kaupi frá Björgunarsveitunum :D ég er bara svona að pæla hvað eru bestu terturnar hjá þeim eða rakettunum:P
annars kaupi ég bara víti í Gullborg hehe....

Re: Flugeldar :D

Sent: Sun 26. Des 2010 03:45
af halldorjonz
já ég læt pabba alltaf bara kaupa hjá Björgunarsveitinni svona aðaldæmið, síðan fer ég upp í
Gullborg og kaupi mér svona 3-4 vítistertur til að dunda mér :-({|=

Re: Flugeldar :D

Sent: Sun 26. Des 2010 03:45
af oskar9
fer alltaf með afa á 30 des og kaupum vel valdar tertur og auðvitað hjá björgunarsveitinni hér á AK kemur ekkert annað til greina

Njálsbrenna er sturlað gos, selst oft upp þannig að mættu snemma, svo eru miðlungsterturnar alltaf góðar, grettir sterki, djúpúðga og þær tertur

Re: Flugeldar :D

Sent: Sun 26. Des 2010 03:46
af Glazier
halldorjonz skrifaði:síðan fer ég upp í Gullborg og kaupi mér svona 3-4 vítistertur til að dunda mér :-({|=

Ég var einmitt að enda við að rífa eina í sundur áðan :roll:

Re: Flugeldar :D

Sent: Sun 26. Des 2010 03:51
af BjarniTS
Allt of dýrt.

Afhverju ekki að hafa þetta tvöfalt ódýrara ?

Re: Flugeldar :D

Sent: Sun 26. Des 2010 03:54
af Danni V8
Þegar ég kaupi flugelda kaupi ég þá af Björgunarsveitinni. En þetta árið á ég enga peninga til þess að kaupa flugelda.

Hvað varðar verð þá finnst mér þeir jú dýrir, en finnst það alveg allt í lagi þar sem maður er að styrkja björgunarsveitina!

Re: Flugeldar :D

Sent: Sun 26. Des 2010 03:56
af Eiiki
BjarniTS skrifaði:Allt of dýrt.

Afhverju ekki að hafa þetta tvöfalt ódýrara ?

Þetta er selt í þeim tilgangi að styrkja Björgunarsveitirnar.
Lýttu á þetta eins og þú sért að tips-a til styrktar góðra málefna, rookie mistake að kunna ekki að tips-a.

Re: Flugeldar :D

Sent: Sun 26. Des 2010 04:05
af mercury
x2

Re: Flugeldar :D

Sent: Sun 26. Des 2010 04:05
af mercury
andripepe skrifaði:Björgunarsveitirnar PUNKTUR

x2

Re: Flugeldar :D

Sent: Sun 26. Des 2010 04:29
af g0tlife
Held að flestir hérna inni kaupi ekki flugelda sjálfir þar sem flestir hérna eru 15 ára pollar. Nema e-h pínu, en aftur á móti þegar ég sjálfur er að versla þá er það björgunarsveitin.

Re: Flugeldar :D

Sent: Sun 26. Des 2010 05:31
af Glazier
Byrjar ekki flugeldasalan 28. Des ?

Re: Flugeldar :D

Sent: Sun 26. Des 2010 06:00
af Kobbmeister
Allir koma í flugeldasöluna í kórnum og verzla hjá mér :sleezyjoe (ss þeir sem vilja styrkja hjálparsveitina í kópavogi ;))

Re: Flugeldar :D

Sent: Sun 26. Des 2010 06:32
af urban
fyrir mér er þetta í rauninn sára einfalt
(gerið mér nú greið að ignora staðsetninguna sem að er merkt á annan þeirra)
hvorn jeppann viljiði borga fyrir, OG hvor kemur ef að ykkur vantar aðstoð

Mynd
eða
Mynd

og ja´.. fyrir ykkur sem að segist ekki fara upp á fjöll og álíka.
þá er það björgunarsveitin sem að bjargar þakinu hjá þér þegar að það fer að fjúka.
það er björgunarsveitin sem að leitaf af ömmu þinni þegar að hún viltist út af (insert nafn á elliheimili)
það er björgunarsveitin sem að heldur fólki í skefjun þegar að það er að kvikna í heima hjá þér
og já...
það er björgunarsveitin sem að bjargar frænda þínum/bróðir þínum/pabba þínum eða systir þinnu þegar að báturinn sem að þau eru á rekur upp í fjöru

eins og ég segi, hvort viljiði borga fyrir enn einn "útrásar range roverinn" eða björgunarsveitarbíl.

Re: Flugeldar :D

Sent: Sun 26. Des 2010 08:12
af DJOli
urban skrifaði:fyrir mér er þetta í rauninn sára einfalt
(gerið mér nú greið að ignora staðsetninguna sem að er merkt á annan þeirra)
hvorn jeppann viljiði borga fyrir, OG hvor kemur ef að ykkur vantar aðstoð

Mynd
eða
Mynd

og ja´.. fyrir ykkur sem að segist ekki fara upp á fjöll og álíka.
þá er það björgunarsveitin sem að bjargar þakinu hjá þér þegar að það fer að fjúka.
það er björgunarsveitin sem að leitaf af ömmu þinni þegar að hún viltist út af (insert nafn á elliheimili)
það er björgunarsveitin sem að heldur fólki í skefjun þegar að það er að kvikna í heima hjá þér
og já...
það er björgunarsveitin sem að bjargar frænda þínum/bróðir þínum/pabba þínum eða systir þinnu þegar að báturinn sem að þau eru á rekur upp í fjöru

eins og ég segi, hvort viljiði borga fyrir enn einn "útrásar range roverinn" eða björgunarsveitarbíl.

........Seeeeeeeem kemur ykkur líklega til bjargar ef eitthvað slæmt kemur fyrir.

Annars hef ég stundað kaup á flugeldum frá Björgunarsveitinni síðan ég var 12 ára, og um þessi áramót eru þau ár orðin 8 talsins :)

Must: Hlífðargleraugu & Rokeldspýtur, blanda sem má ekki nýskast á þegar kemur að öryggi.
ég meina...hvern langar að reyna að kveikja í með kveikjara og sóa kveikjaragasinu, eða með rettu/vindil etc, og missa það í snjó þar á landinu sem snjór er?

Re: Flugeldar :D

Sent: Sun 26. Des 2010 10:34
af Black
ég hef alltaf verslað hjá björgunarsveitinni.
en í ár á ég ekki efná að kaupa flugelda þannig ég þarf að spara og kaupa mér :beer

Re: Flugeldar :D

Sent: Sun 26. Des 2010 13:13
af rapport
Björgunarsveitirnar eru nú ekki alveg svona há-heilagar en þegar maður hugsar út í að flugeldar eru með gogleplex álagningu þá vill maður ekki að einkaaðili hafi mann að algjöru fífli.

Ef það væri 75% verðmunur þá mundi ég kaupa á ódýrari staðnum og fá smá samviskubit en á meðan þetta kostar nánast það sama þá versla ég hjá Skátunum.

Re: Flugeldar :D

Sent: Sun 26. Des 2010 13:20
af Eiiki
rapport skrifaði:Björgunarsveitirnar eru nú ekki alveg svona há-heilagar en þegar maður hugsar út í að flugeldar eru með gogleplex álagningu þá vill maður ekki að einkaaðili hafi mann að algjöru fífli.

Ef það væri 75% verðmunur þá mundi ég kaupa á ódýrari staðnum og fá smá samviskubit en á meðan þetta kostar nánast það sama þá versla ég hjá Skátunum.

Skátunum? Really?
Veist að skátarnir eru bara félagsmiðstöð fyrir félagshefta aðilla.

Re: Flugeldar :D

Sent: Sun 26. Des 2010 13:38
af Frussi
Eiiki skrifaði:
rapport skrifaði:Björgunarsveitirnar eru nú ekki alveg svona há-heilagar en þegar maður hugsar út í að flugeldar eru með gogleplex álagningu þá vill maður ekki að einkaaðili hafi mann að algjöru fífli.

Ef það væri 75% verðmunur þá mundi ég kaupa á ódýrari staðnum og fá smá samviskubit en á meðan þetta kostar nánast það sama þá versla ég hjá Skátunum.

Skátunum? Really?
Veist að skátarnir eru bara félagsmiðstöð fyrir félagshefta aðilla.


Really? *andvarp*