Síða 1 af 1
Barnaland : Þúsundþjalasmiður að selja upptökulyklakippu
Sent: Fös 24. Des 2010 05:24
af BjarniTS
http://barnaland.is/messageboard/messag ... tiseType=0Þarna segir viðkomandi að hann sé búinn að selja meira en 100 stk , ef svo er þá er þessi maður að mala gull að selja þetta.
Er einhver með reynslu af þessum gripum hér og er þetta virkilega 7900 kr virði ?
Er það samt bara ég , eða er þessi auglýsing á barnalandi alveg grátlega dramantísk og minnir meira á leiðarljós heldur en nokkuð annað ?
Re: Barnaland : Þúsundþjalasmiður að selja upptökulyklakippu
Sent: Fös 24. Des 2010 05:43
af urban
auglýsingin skrifaði:Þessi lyklakippa, tekur upp háskýrt (HD)vídeó með rödd og hlóði, (1280 x 1024 dílar) og ljósmyndir í góðri upplausn og gæðum, (720 x 480 há upplausn).
ok...
í fyrsta lagi þá tekur þessi aðili fram að þetta sé HD og tekur síðan fram 1280x1024 sem að er náttúrulega engan vegin HD
í öðru lagi þá hef ég aldrei heyrt um myndavél sem að tekur hreyfimyndir í hærri upplausn en kyrrmyndir
Re: Barnaland : Þúsundþjalasmiður að selja upptökulyklakippu
Sent: Fös 24. Des 2010 06:12
af Glazier
Var einhver að selja svona hérna um daginn, sýndi video úr þessu og það voru furðu góð gæði miðað við stærð myndavélarinnar..
En eftir nokkur comment kom í ljós að varan sem hann var að selja á minnir mig 7.500 kr. var hægt að panta á ebay hingað komið á innan við 1.500 kr.
Ætli þetta sé ekki sami gæji..
Stutt síðan þetta var og þá sagðist hann held ég vera búinn að selja 3-4 svona stykki og á þessum tíma 100 stk finnst mér freka hæpið.
Re: Barnaland : Þúsundþjalasmiður að selja upptökulyklakippu
Sent: Fös 24. Des 2010 06:22
af BjarniTS
Glazier skrifaði:Var einhver að selja svona hérna um daginn, sýndi video úr þessu og það voru furðu góð gæði miðað við stærð myndavélarinnar..
En eftir nokkur comment kom í ljós að varan sem hann var að selja á minnir mig 7.500 kr. var hægt að panta á ebay hingað komið á innan við 1.500 kr.
Ætli þetta sé ekki sami gæji..
Stutt síðan þetta var og þá sagðist hann held ég vera búinn að selja 3-4 svona stykki og á þessum tíma 100 stk finnst mér freka hæpið.
Já ég meina gefum okkur að það hafi verið 1.500
Kaupverð á 100 hlutum
1.500 x 100 = 150.000
Söluverðið m.v að hver hlutur sé seldur á 7.900 þegar kaupverð hefur verið dregið frá
6.400 x 100 = 640.000
Ef að þetta er rétt þá fær hann "high five" fyrir frábæra hugmynd.
Re: Barnaland : Þúsundþjalasmiður að selja upptökulyklakippu
Sent: Fös 24. Des 2010 06:26
af Krisseh
Fékk mitt stykki frá ebay um daginn, kostaði mig rétt um 1500Kr
* og já.. ekki 7900Kr virði, vel hægt að bíða 15-25 daga fyrir smádrasl frá kína.
Re: Barnaland : Þúsundþjalasmiður að selja upptökulyklakippu
Sent: Fös 24. Des 2010 11:14
af hagur
urban skrifaði:auglýsingin skrifaði:Þessi lyklakippa, tekur upp háskýrt (HD)vídeó með rödd og hlóði, (1280 x 1024 dílar) og ljósmyndir í góðri upplausn og gæðum, (720 x 480 há upplausn).
ok...
í fyrsta lagi þá tekur þessi aðili fram að þetta sé HD og tekur síðan fram 1280x1024 sem að er
náttúrulega engan vegin HDí öðru lagi þá hef ég aldrei heyrt um myndavél sem að tekur hreyfimyndir í hærri upplausn en kyrrmyndir
Nei, það er meira en HD
1280x1024 > 1280x720
HD þarf ekki endilega að vera Full HD (1920x1080)
Re: Barnaland : Þúsundþjalasmiður að selja upptökulyklakippu
Sent: Fös 24. Des 2010 11:37
af GuðjónR
Krisseh skrifaði:Fékk mitt stykki frá ebay um daginn, kostaði mig rétt um 1500Kr
* og já.. ekki 7900Kr virði, vel hægt að bíða 15-25 daga fyrir smádrasl frá kína.
Ertu ánægður með myndgæðin?
Og það þarf væntanlega að kaupa minniskort í þetta er það ekki?
Re: Barnaland : Þúsundþjalasmiður að selja upptökulyklakippu
Sent: Fös 24. Des 2010 11:59
af Jim
Hversu oft hefur þig langað til að vita hvað "barnið" þitt er að gera meðan þú skreppur" í næsta herbiki?
Af hverju er orðið "barnið" innan gæsalappa? Þessi náungi er líka með stafsetninguna á hreinu.
Hversu oft þarftu á því að halda að eiga eitthvað sem gæti skipt sköpum í framtíðinni?
Lyklakippa/myndavél á pottþétt eftir að breyta lífi mínu og skipta sköpum í framtíðinni.
Re: Barnaland : Þúsundþjalasmiður að selja upptökulyklakippu
Sent: Fös 24. Des 2010 12:25
af topas
Mala gull...
5.000 kall út úr hverju stikki kalla ég nú ekki að mala gull. Ég mundi nú varla nenna að standa í að flitja eitthvað inn, auglýsa, svara endalausum símtölum og tölvupóstum, hitta fólk til að skoða/selja, hlusta á kvartanir... og allt sem þessu tilheyrir fyrir minna en 5.000 kr. stk.
Fyrir utan það, ef þetta er löglegt sem við verðum að gera ráð fyrir, þá þarf að borga VSK og skatt af hagnaði og er þá hagnaður pr. stk. komið í ca 3.000 kall. Þvílik gullnáma.
Re: Barnaland : Þúsundþjalasmiður að selja upptökulyklakippu
Sent: Fös 24. Des 2010 12:49
af sakaxxx
http://cgi.ebay.com/Mini-Hidden-Camera- ... 2a075cce4aþessi gaur ætti að skammast sín fyrir að leggja svo mikið á þetta drasl
Re: Barnaland : Þúsundþjalasmiður að selja upptökulyklakippu
Sent: Fös 24. Des 2010 16:45
af Gúrú
thusundthjali skrifaði:einhver skrifaði:Þetta kostar 1300kr á eBay
En það þíðir ekki þótt þú sért með nafn þitt ónýtt í bönkum og getir ekki verslað af netinu, verið gramur og horft á tölu á Ebay,
það er aðeins meir en það, því miður, og eins og ég sagði þér áður, þá eru farnar yfir 100 stykki, hverjum og einum bíðst að skila þeim ef þau eru ósátt, en ég hef ekki fengið eina til baka.
Barnalegur sölumaður.
Kaupi það samt auðveldlega að hann
eigi 100 svona, ef maður kaupir eitt er sendingarkostnaður o.fl. 1300% af verði vörunnar en ef þú kaupir 100 ertu víst bara að fimmfalda upphaflegan kostnað við að kaupa eitt.
Re: Barnaland : Þúsundþjalasmiður að selja upptökulyklakippu
Sent: Fös 24. Des 2010 16:57
af Hargo
Hversu oft hefur þig langað til að vita hvað "barnið" þitt er að gera meðan þú skreppur" í næsta herbiki?
My eyes are burning...aaahh!!
Re: Barnaland : Þúsundþjalasmiður að selja upptökulyklakippu
Sent: Fös 24. Des 2010 16:58
af hauksinick
Hargo skrifaði:Hversu oft hefur þig langað til að vita hvað "barnið" þitt er að gera meðan þú skreppur" í næsta herbiki?
My eyes are burning...aaahh!!
I don't...even....
EDIT:Þetta var 700-asta innlegg mitt
Re: Barnaland : Þúsundþjalasmiður að selja upptökulyklakippu
Sent: Fös 24. Des 2010 17:52
af ViktorS
Ef að foreldrar mínir væru að njósna um mig með lyklakippu þá myndi ég hengja þau.
Nei segi svona
Re: Barnaland : Þúsundþjalasmiður að selja upptökulyklakippu
Sent: Fös 24. Des 2010 18:10
af einarhr
Eða hvernig hagaði starfsfólkið sér meðan þú fórst?
Njósnir á starfsfólki er refsivert skv lögum.
Re: Barnaland : Þúsundþjalasmiður að selja upptökulyklakippu
Sent: Fös 24. Des 2010 23:08
af Danni V8
Hargo skrifaði:Hversu oft hefur þig langað til að vita hvað "barnið" þitt er að gera meðan þú skreppur" í næsta herbiki?
My eyes are burning...aaahh!!
Ég ætlaði einmitt að benda á þetta! Segir líka "klóstið" en ekki "klósettið".
Svona villur í auglýsingu finnast mér fráhrindandi.