Síða 1 af 2

Mac or Pc ?

Sent: Fös 24. Des 2010 00:32
af Black
ég er eiginlega hættur að spila tölvuleiki að viti og er aðalega í photoshop.. og facebook og netinu og einhvað ;þ langar svona pínu í mac er samt ekki viss hvort ég ætti að svíkjalit :o hvað fynnst ykkur er að tala um að fá mér þá iMAC

ÞETTA ER EKKI FANBOYS RIFRILDAÞRÁÐUR UM AFHVERJU PC ER BETRI EN MAC

Re: Mac or Pc ?

Sent: Fös 24. Des 2010 00:33
af AntiTrust
iMac eða Macbook?

Re: Mac or Pc ?

Sent: Fös 24. Des 2010 00:35
af Black
AntiTrust skrifaði:iMac eða Macbook?


iMac

Re: Mac or Pc ?

Sent: Fös 24. Des 2010 00:36
af BjarniTS
Prufaðu bara hjá einhverjum , ég féll fyrir þessu á fyrsta degi.

Nota bæði , mjög gott hvert fyrir sig.

Mæli með Mac :)

Re: Mac or Pc ?

Sent: Fös 24. Des 2010 00:39
af Black
BjarniTS skrifaði:Prufaðu bara hjá einhverjum , ég féll fyrir þessu á fyrsta degi.

Nota bæði , mjög gott hvert fyrir sig.

Mæli með Mac :)


er í macbook núna.. sem systir mín á, þetta er alveg semi þægilegt en eina sem ég kann er að opna vaktina og facebook ;þ

Re: Mac or Pc ?

Sent: Fös 24. Des 2010 00:50
af bAZik
^ Maður er virkilega fljótur að læra á nýtt stýrikerfi.

Re: Mac or Pc ?

Sent: Fös 24. Des 2010 00:56
af hauksinick
bAZik skrifaði:^ Maður er virkilega fljótur að læra á nýtt stýrikerfi.


Einstaklingsbundið

Re: Mac or Pc ?

Sent: Fös 24. Des 2010 01:02
af Dormaster
ef þú þér langar í MAC ferðu og færð þér MAC, og ef þér langar svo í einhverja leiki sem virka bara á windows þá nærðu bara í parrallels desktop og lætur inn windows 7.

ég er með þetta og þetta virkar vel ;)

Re: Mac or Pc ?

Sent: Fös 24. Des 2010 01:10
af biturk
Black skrifaði:ég er eiginlega hættur að spila tölvuleiki að viti og er aðalega í photoshop.. og facebook og netinu og einhvað ;þ langar svona pínu í mac er samt ekki viss hvort ég ætti að svíkjalit :o hvað fynnst ykkur er að tala um að fá mér þá iMAC

ÞETTA ER EKKI FANBOYS RIFRILDAÞRÁÐUR UM AFHVERJU PC ER BETRI EN MAC

:mad :mad :mad

Re: Mac or Pc ?

Sent: Fös 24. Des 2010 01:33
af JohnnyX
Hvers vegna ekki að fá sér Mac. Meðað við það sem þú listar upp er það bara fínt fyrir þig.

Re: Mac or Pc ?

Sent: Fös 24. Des 2010 01:40
af Glazier
Farinn að ná mér í popp og kók.. :-"

Re: Mac or Pc ?

Sent: Fös 24. Des 2010 01:49
af einarhr
Þetta er eins og Wiskey og Cogna... Bæði gott en sumir hallast að Wiskey og hinir Cognac..

Verða að segja fyrir mína skoðum að ég er mjög vanafastur í PC vegna Tölvuleikja en eftir að leikir fóru að að bjóðast á MAC á Steam þá er ég farinn að hugsa mig um.


Annars Jóla :beer

Re: Mac or Pc ?

Sent: Fös 24. Des 2010 01:54
af Glazier
Mig reyndar dauðlangar í nýju macbook air vélina, en til að hún rétt svo myndi uppfylla mínar lágmarks kröfur þá þyrfti það að vera dýrasta týpan með stækkaðann örgjörva/minni (hægt inná epli.is) og sú vél er bara hellvíti dýr :/

Annars er ég ennþá aðeins í tölvuleikjum og þeir leikir sem ég spila myndi dýrasta macbook air ekki höndla fyrir utan það að ég held það sé ekki gaman að spila leiki á fartölvu..
Væri samt ekki leiðinlegt að eiga bæði, góða borðtölvu fyrir leikina og torrent og svo eina flotta macbook air fyrir photoshop og allt sem tengist ljósmynduninni væri í þeirri vél og tekið reglulegt backup yfir á borðtölvuna.. draumurinn sko :8)



Pæling að maður skelli sér á sjó í einhverja mánuði svo maður geti látið eitthvað af þessum dýru draumum rætast.. :roll:


Edit: En annars til þráðarhöfundar, ef þú spilar enga leiki og átt efni á góðri apple tölvu þá segi ég bara go for it ;)

Re: Mac or Pc ?

Sent: Fös 24. Des 2010 02:44
af Oak
er macbook air eitthvað að höndla photoshop ?
finnst stýrikerfið leiðinlegt en tölvurnar flottar...finnst þetta bara alls ekki þess virði að skipta yfir...

Re: Mac or Pc ?

Sent: Fös 24. Des 2010 02:54
af Glazier
Oak skrifaði:er macbook air eitthvað að höndla photoshop ?
finnst stýrikerfið leiðinlegt en tölvurnar flottar...finnst þetta bara alls ekki þess virði að skipta yfir...

Ef ég fengi mér macbook air til að nota í photoshop þá tæki ég dýrustu vélina með 2,13 GHz örgjörva og 4GB DDR3 1066 MHz minni og 13,3" skjá ;)
Hinar myndu ekki höndla photoshop neitt sérstaklega vel held ég..

Re: Mac or Pc ?

Sent: Fös 24. Des 2010 12:40
af emmi
27" iMac er æðisleg vél, mæli með henni. :)

Re: Mac or Pc ?

Sent: Fös 24. Des 2010 13:01
af biturk
þetta er basically ef ad þú hefur ekkert við peningana að gera þá kaupiru mac....

Re: Mac or Pc ?

Sent: Fös 24. Des 2010 13:38
af Orri
Væri enn á 24" iMac ef ég hefði ekki viljað öflugri tölvu fyrir tölvuleiki :)

Ef þú átt fyrir því þá segi ég bara go for it ;)
Og ef þú ferð að sakna PC tölvunnar eftir ár eða tvö þá rýrnar söluverðið á Mac mun hægar en á PC

Re: Mac or Pc ?

Sent: Fös 24. Des 2010 13:56
af teitan
Alls ekki vitlaust fyrir þig að prófa Mac... og ef þú vilt þá geturðu alltaf sett upp Windows með bootcamp og fengið þar með bæði kerfin.

Ég get allavega sagt fyrir mig að mér finnst snilld að geta haft bæði Win og Mac á sömu vélinni (ég fór reyndar Hackintosh leiðina).

Ef þú átt peninginn fyrir iMac þá bara go for it :happy

Re: Mac or Pc ?

Sent: Lau 25. Des 2010 13:26
af biturk
Orri skrifaði:Væri enn á 24" iMac ef ég hefði ekki viljað öflugri tölvu fyrir tölvuleiki :)

Ef þú átt fyrir því þá segi ég bara go for it ;)
Og ef þú ferð að sakna PC tölvunnar eftir ár eða tvö þá rýrnar söluverðið á Mac mun hægar en á PC


þvílíkt bull, mac verð rýrnar jafn mikið eins og aðrir rafhlutir í endursölu :lol:

Re: Mac or Pc ?

Sent: Lau 25. Des 2010 13:28
af emmi
Nope. Mun betra endursöluverð á notuðum Mac vélum en PC.

Re: Mac or Pc ?

Sent: Lau 25. Des 2010 13:39
af GuðjónR
biturk skrifaði:
Orri skrifaði:Væri enn á 24" iMac ef ég hefði ekki viljað öflugri tölvu fyrir tölvuleiki :)

Ef þú átt fyrir því þá segi ég bara go for it ;)
Og ef þú ferð að sakna PC tölvunnar eftir ár eða tvö þá rýrnar söluverðið á Mac mun hægar en á PC


þvílíkt bull, mac verð rýrnar jafn mikið eins og aðrir rafhlutir í endursölu :lol:


Nei, það er ekki rétt.
Ég keypti öflugasta 24" iMac í mars 2008 á krónur 267þús og seldi hann í des 2009 á 200þús, eins og hálfssárs PC tölva heldur ekki verðgildi sínu svona.
Og ársgamlir i5 iMacar eru að fara á 280k í dag, kosta 340k nýjir.

Ég er búinn að kaupa og selja allskonar dót gegnum tíðna og ég get kvittað undir það að Mac virðist hafa sérstöðu þegar kemur að endursölu verði.

Re: Mac or Pc ?

Sent: Lau 25. Des 2010 13:42
af biturk
emmi skrifaði:Nope. Mun betra endursöluverð á notuðum Mac vélum en PC.


ég geri engan mun, eftir ákveðna tíma þá er visst af, en auðvitað gildir annað á td barnalandi og mac spjöllum því þar er verðlagning oft útúr kú :roll:

Re: Mac or Pc ?

Sent: Lau 25. Des 2010 13:49
af GuðjónR
biturk skrifaði: því þar er verðlagning oft útúr kú :roll:

Verðlagning getur í raun ekki verið út úr kú, því "rétt" verð er það verð sem kúnninn er tilbúinn að borga fyrir vöruna.
"Há" verðlanging er bara huglægt hugtak. Það mætti þá alveg eins segja að verðin væru fáránlega "lág" á barnalandi.

Re: Mac or Pc ?

Sent: Lau 25. Des 2010 16:33
af ingibje
biturk skrifaði:
emmi skrifaði:Nope. Mun betra endursöluverð á notuðum Mac vélum en PC.


ég geri engan mun, eftir ákveðna tíma þá er visst af, en auðvitað gildir annað á td barnalandi og mac spjöllum því þar er verðlagning oft útúr kú :roll:


þá ert þú heldur ekki að fara kaupa mikið af notuðum tölvum frá apple. það er oft með svona hágæða vörur að þær halda betur verði enn aðrar.

það er enginn að fara taka 50% af 6 mánaða gamalli tölvu ef nóg eru að kaupendum sem eru tilbúnir í borga mun hærra.

síðan er ekki mikið framboð af notuðum apple vörum yfir höfuð enn eftirspurnin er hins vegar mikil.