Síða 1 af 1

Reglur um netnotkun

Sent: Mið 22. Des 2010 15:07
af JohnnyX
Var að lesa þessa frétt á mbl og langar að fá álit ykkar á henni.

Persónulega finnst mér fáránlegt að setja einhverjar reglur um það hvernig netið skal vera notað

Re: Reglur um netnotkun

Sent: Mið 22. Des 2010 15:16
af icup
United States of China wannabe.

Re: Reglur um netnotkun

Sent: Mið 22. Des 2010 15:20
af AntiTrust
Tjah, sko - áður en menn missa sig. Það er ekki búið að gefa út nákvæmlega hvað mun innifalast í þessum reglum, en meðal annars er verið að tryggja að ISP-ar geti ekki bannað/lokað á aðgang að löglegu efni. Svo er hinsvegar líka verið að setja reglur um að fyrirtæki geti keypt sér forgangs/hraðari þjónustu.

Það sem verst er að það er engin samheldni í þessu. Nú munu gilda önnur lög um línutengingar og þráðlaus (3G/4G) net úti.

Re: Reglur um netnotkun

Sent: Mið 22. Des 2010 20:00
af CendenZ
AntiTrust skrifaði:Tjah, sko - áður en menn missa sig. Það er ekki búið að gefa út nákvæmlega hvað mun innifalast í þessum reglum, en meðal annars er verið að tryggja að ISP-ar geti ekki bannað/lokað á aðgang að löglegu efni. Svo er hinsvegar líka verið að setja reglur um að fyrirtæki geti keypt sér forgangs/hraðari þjónustu.

Það sem verst er að það er engin samheldni í þessu. Nú munu gilda önnur lög um línutengingar og þráðlaus (3G/4G) net úti.


Þeir þurfa þá fyrst að fara skrifa routera sem kunna landafræði... Eins og ég las þetta, þá er þetta eiginlega algjörlega bara góð hugmynd á pappír, en mjög erfið í framkvæmd.