Síða 1 af 1
Umboðsaðilar merkja á Íslandi
Sent: Mið 15. Des 2010 08:00
af Hargo
Er einhversstaðar listi yfir þá sem eru opinberir umboðsaðilar eða þjónustuaðilar ákveðinna merkja hér á landi?
Opin kerfi - HP
Nördinn - Toshiba/Fujitsu Siemens
Epli.is - Apple
EJS - Dell
Nýherji - Lenovo
Acer?
Asus?
Samsung?
Packard Bell?
MSI?
Sony?
Hverijr sjá um ábyrgðarviðgerðir á þessum vélum?
Re: Umboðsaðilar merkja á Íslandi
Sent: Mið 15. Des 2010 12:11
af chaplin
Svar var hélt ég með Acer, Tölvutek með Packard Bell, ætla þó ekki að hengja mig á því.
Gæti svo trúað að IOD væri svo með umboð fyrir e-h merki, stendur amk. á síðunni þeirra.
IOD er umboðsaðili fyrir fjölda hágæða vörumerkja svo sem Toshiba, Acer, MSI, Asus, ZyXEL, Western Digital og fleiri.
Re: Umboðsaðilar merkja á Íslandi
Sent: Mið 15. Des 2010 12:29
af stebbi23
Acer? - Svar eru held ég hættir með Acer
Asus? - Veit ekki
Samsung? - Tölvur, sjónvörp, myndavélar og fl. er Ormsson/BT
Packard Bell? - Tölvutek
MSI? - Veit ekki
Sony? - Nýherji eða Sense líklega.
Playstation - Sena
Nintendo - Ormsson/BT
Panasonic - Sjónvarpsmiðstöðin/Heimilstæki held ég
Philips - Sjónvarpsmiðstöðin/Heimilstæki held ég
Xbox - hátækni
Re: Umboðsaðilar merkja á Íslandi
Sent: Mið 15. Des 2010 12:36
af ManiO
stebbi23 skrifaði:Xbox - hátækni
Eru þeir með eiginlegt umboð? Eru þeir ekki bara viðurkenndir þjónustuaðili?
Re: Umboðsaðilar merkja á Íslandi
Sent: Mið 15. Des 2010 12:46
af AntiTrust
Asus = Boðeind síðast þegar ég vissi.
Acer = Svar, þeir eru hugsanlega hættir að selja vélarnar en hljóta þó að þurfa að sinna þeim ábyrgðarviðgerðum sem eiga rétt á sér næstu 2-3 árin.
MSI = IOD
Svo er þetta líka mjög oft þannig hjá tölvubúðum að þau eru að kaupa vélarnar frá birgjum erlendis en ekki beint frá framleiðanda og borga fyrir viðgerðir og varahluti úr eigin vasa, frekar en að nýta sér framleiðsluábyrgð. Mjög algengt með vélar sem eru pantaðar frá birgjum í USA t.d. að þeim fylgi ekki hefðbundin framleiðsluábyrgð, en fáist ódýrari fyrir vikið.
Re: Umboðsaðilar merkja á Íslandi
Sent: Mið 15. Des 2010 16:17
af Mencius
Er alveg nokkuð viss á því að tölvuvirkni sé með ábyrgðarviðgerðir á acer vélum núna.
Re: Umboðsaðilar merkja á Íslandi
Sent: Mið 15. Des 2010 16:25
af benson
AntiTrust skrifaði:Asus = Boðeind síðast þegar ég vissi.
Rétt. Ég tékkaði á þessu um daginn og þeir þjónusta reyndar bara vélar sem eru seldar á Íslandi og þeir eiga varahluti í.