Síða 1 af 1
Bandbreiddarvandamál hjá Símanum
Sent: Fim 09. Des 2010 22:18
af Ýmir
Halló Vaktarar
Þannig er málum hagað að tvær tölvur eru á heimili mínu og ef ég er á netinu þá kemst hin tölvan ekkert á netið. Ég er með þráðlaust en hin tölvan með netsnúru.
Er hjá Símanum. Veit einhver um ráð við þessu?
Re: Bandbreiddarvandamál hjá Símanum
Sent: Fim 09. Des 2010 22:22
af AntiTrust
Mirri skrifaði:Halló Vaktarar
Þannig er málum hagað að tvær tölvur eru á heimili mínu og ef ég er á netinu þá kemst hin tölvan ekkert á netið. Ég er með þráðlaust en hin tölvan með netsnúru.
Er hjá Símanum. Veit einhver um ráð við þessu?
Getur verið að það sé IP conflict í gangi?
Annars ætti þráðlaust net ekki að hafa nein bein áhrif á línutengingu. Það er ekki nema þú sért að keyra e-ð á lappanum sem er gjörsamlega að maxa tenginguna.
Re: Bandbreiddarvandamál hjá Símanum
Sent: Fim 09. Des 2010 22:30
af Ýmir
Hvernig virkar IP conflict?
Ég er oftast bara að keyra Skype, Msn og Chrome
Re: Bandbreiddarvandamál hjá Símanum
Sent: Fim 09. Des 2010 22:37
af AntiTrust
Mirri skrifaði:Hvernig virkar IP conflict?
Ég er oftast bara að keyra Skype, Msn og Chrome
IP conflict gerist þegar báðar tölvur tengjast á sömu IP tölu. Mjög hæpið nema þú sért með manual stillingu á IP og það sé sama tala á báðum vélum - aftur mjög hæpið.
Ég verð að segja að mér dettur ósköp fátt í hug. Er þetta vandamál undantekningarlaust þegar báðar tölvur eru tengdar? Hefuru prufað að tengja aðra vél þráðlaust inn á routerinn og ath. hvaða áhrif það hefur?
Re: Bandbreiddarvandamál hjá Símanum
Sent: Fös 10. Des 2010 14:35
af Ýmir
Heyrðu jú báðar tölvur eru með sömu IP tölu held ég tjekkaði allavega bara á netinu hvað IP talan væri í báðum tölvum og það kom út sama talan.
Er þetta að valda þessu?
Re: Bandbreiddarvandamál hjá Símanum
Sent: Fös 10. Des 2010 14:39
af AntiTrust
Mirri skrifaði:Heyrðu jú báðar tölvur eru með sömu IP tölu held ég tjekkaði allavega bara á netinu hvað IP talan væri í báðum tölvum og það kom út sama talan.
Er þetta að valda þessu?
Þú skoðaðir vitlausa IP tölu
Það eru til tvö mengi af IP tölum, ytri og innri IP tölur. Ytri IP tala er sú tala sem routerinn fær úthlutað, og tala allar tölvur á heimilinu tengdar við sama routerinn út á netið á sömu ytri (WAN) IP tölu.
Þú vilt bera saman innri IP tölur, sem þú getur séð með því að keyra Run -> cmd -> "ipconfig" og bera saman Local Area Connection og/eða Wireless Network connection. Þarna í listanum eru IP tölur sem byrja líklega á 192.168.1.x og hægt er að bera saman.
Einnig geturu séð IP tölurnar í Network Connections - Hægri klikka á viðeigandi tengingu og velja Status.
Re: Bandbreiddarvandamál hjá Símanum
Sent: Fös 10. Des 2010 14:50
af Ýmir
IPv4 adress er ekki eins en Default Gateway er eins. Á það að vera þannig?
Re: Bandbreiddarvandamál hjá Símanum
Sent: Fös 10. Des 2010 15:09
af Gúrú
Mirri skrifaði:IPv4 adress er ekki eins en Default Gateway er eins. Á það að vera þannig?
IPv4 með öðruvísi fjórðu tölu er það sem á að gerast þegar þú ert tengdur í router.
Default Gateway = Tengingin til að fara inn á routerinn (t.d. þegar þú ætlar að breyta stillingunum) sem tölvan notar til að tengjast routernum
IPv4 = IP talan sem að routerinn er að úthluta þér í innra kerfinu (router -> tölvur,
ekki internet -> router -> tölvur)
Re: Bandbreiddarvandamál hjá Símanum
Sent: Fös 10. Des 2010 15:52
af Viktor
Dundaði mér
- heimanet vs internet.jpg (48.4 KiB) Skoðað 722 sinnum
Re: Bandbreiddarvandamál hjá Símanum
Sent: Fös 10. Des 2010 16:17
af Ýmir
Sallarólegur skrifaði:Dundaði mér
heimanet vs internet.jpg
Vel gert
Nú skil ég þetta mun betur, ég er semsagt ekki með IP conflict. Hefur einhver annar einhverja hugmynd afhverju þetta er?
AntiTrust skrifaði:Mirri skrifaði:Hvernig virkar IP conflict?
Ég er oftast bara að keyra Skype, Msn og Chrome
IP conflict gerist þegar báðar tölvur tengjast á sömu IP tölu. Mjög hæpið nema þú sért með manual stillingu á IP og það sé sama tala á báðum vélum - aftur mjög hæpið.
Ég verð að segja að mér dettur ósköp fátt í hug. Er þetta vandamál undantekningarlaust þegar báðar tölvur eru tengdar? Hefuru prufað að tengja aðra vél þráðlaust inn á routerinn og ath. hvaða áhrif það hefur?
Já þetta er undantekningarlaust. Hef ekki prófað að tengja aðra tölvu þráðlaust,hvað sé ég með því?
Re: Bandbreiddarvandamál hjá Símanum
Sent: Fös 10. Des 2010 16:35
af dori
8007000? Þeir geta hjálpað þér mun hraðar en við held ég.
Re: Bandbreiddarvandamál hjá Símanum
Sent: Fös 10. Des 2010 19:17
af Ýmir
dori skrifaði:8007000? Þeir geta hjálpað þér mun hraðar en við held ég.
Já ég er nú bara 14 ára og sé ekkert um þetta sjálfur, en við höfum reyndar alveg hringt og þeir segjast ekkert geta gert. Ætlaði bara að gá hvort að þið vissuð eitthvað um þetta
Takk fyrir öll svör.