Síða 1 af 1
Buy.is komnir með verðvernd á PC íhluti ?
Sent: Lau 04. Des 2010 02:30
af Glazier
Eitthvað nýtt að buy.is séu komnir með verðvernd á PC íhluti og annan tölvubúnað ? :S
Eða er ég bara svona seinn að taka eftir ?
Segja hérna:
http://buy.is/category.php?id_category=21"Athugið að Buy.is býður verðvernd á tölvuíhlutum - sendið endilega tölvupóst á sala(at)buy.is ef þið sjáið lægra verð auglýst annarsstaðar og við lækkum þá okkar verð."
Þýðir þetta að maður verði að benda á að hluturinn sé ódýrari annarstaðar áður en maður verslar hann ?
Eða getur maður komið ef maður sér hlutinn sem maður keypti hjá buy.is 2.000 kr. ódýrari annarstaðar 1 viku seinna og fengið endurgreitt, hvernig er það?
Re: Buy.is komnir með verðvernd á PC íhluti ?
Sent: Lau 04. Des 2010 02:39
af Frantic
Ég myndi halda að þú yrðir að láta vita áður svo þú getir ekki komið ári seinna og sagt að hlutirinn hafi lækkað í verði og ættir að fá endurgreitt vegna þess.
Það allavega meikar mest sens.
Re: Buy.is komnir með verðvernd á PC íhluti ?
Sent: Lau 04. Des 2010 02:42
af Glazier
Tjaa, er/var ekki verðverndin hjá Elko þannig að maður gat/getur komið innan 30 daga ef maður sá/sér sömu vöru auglýsta annarstaðar á minna verði en maður sjálfur borgaði fyrir hana ?
Bara pæling..
Re: Buy.is komnir með verðvernd á PC íhluti ?
Sent: Lau 04. Des 2010 03:09
af vesley
Það er 14.daga skilaréttur á vörum hjá Buy.is hinsvegar stendur ekkert um ákveðinn tíma á verðvernd eftir kaup á vöru.
Prufaðu bara að senda póst á Friðjón eða sala @buy.is og spyrðu nánar út í þetta,
eina sem ég veit í augnablikinu er í miðjum prófum
.
Re: Buy.is komnir með verðvernd á PC íhluti ?
Sent: Sun 05. Des 2010 18:04
af Glazier
vesley skrifaði:Það er 14.daga skilaréttur á vörum hjá Buy.is
Og er þá endurgreitt eða fær maður nótu ?
Re: Buy.is komnir með verðvernd á PC íhluti ?
Sent: Sun 05. Des 2010 18:07
af Hargo
Glazier skrifaði:Tjaa, er/var ekki verðverndin hjá Elko þannig að maður gat/getur komið innan 30 daga ef maður sá/sér sömu vöru auglýsta annarstaðar á minna verði en maður sjálfur borgaði fyrir hana ?
Bara pæling..
Jú verðverndin er þannig hjá Elko. Ég fékk einmitt 35þús kall endurgreiddan vikuna eftir að ég keypti mér nýtt sjónvarp hjá þeim. Var vel sáttur við það
Þessi verðvernd hjá buy.is hlýtur að vera með svipuðu sniði - væri þó gott að fá það á hreint hversu lengi hún gildir eftir að varan er keypt.
Re: Buy.is komnir með verðvernd á PC íhluti ?
Sent: Sun 05. Des 2010 20:29
af Daz
Verðvernd er ekki fyrirframskilgreint hugtak. Ef einhver réttur kemur ekki skýrt fram í skilmálum (eða er lögverndaður), þá er hann ekki til staðar. Miðað við þessa klásúlu hjá buy.is myndi ég efast um að þeir endurgreiði eftirá.
Re: Buy.is komnir með verðvernd á PC íhluti ?
Sent: Þri 07. Des 2010 19:38
af FBG
Hæ
Verðvernd hjá Buy.is er tiltölulega nýtilkomið hjá okkur.
Ef þú finnur PC vöru sem við seljum á lægra verði hjá öðrum söluaðila á Íslandi, þá bendirðu okkur á það og við lækkum verðið. Við erum því að segja við neytendur að við ætlum okkur alltaf að vera með lægsta verðið. Þetta er hinsvegar ekki afturvirkt hjá okkur.
Við treystum því að okkar kúnnar geri verðsamanburð og láti okkur vita ef við erum með of há verð í einhverjum tilvikum. Þá er því kippt í liðinn snögglega.
Ég veit ekki hvort Vaktarar hafa tekið eftir því en síðan Buy.is hóf starfssemi, hefur vöruverð á íhlutum og raftækjum almennt lækkað hressilega og samkeppnin aukist. Sjálfshælni er ekki dyggð nei, en ofsalega skemmtileg þegar vel á við.
Re: Buy.is komnir með verðvernd á PC íhluti ?
Sent: Þri 07. Des 2010 20:35
af Jimmy
FBG skrifaði:Ég veit ekki hvort Vaktarar hafa tekið eftir því en síðan Buy.is hóf starfssemi, hefur vöruverð á íhlutum og raftækjum almennt lækkað hressilega og samkeppnin aukist. Sjálfshælni er ekki dyggð nei, en ofsalega skemmtileg þegar vel á við.
Hef tekið eftir þessu, búnir að hrista ágætlega í þessum markaði sem var farinn að staðna eilítið, eigið skilið mikið props fyrir það.