Síða 1 af 1

Verð á Tölvuleikjum á íslandi ?

Sent: Fim 02. Des 2010 11:55
af mic
Mig langar að vita af hverju það er svona mikill munur á verði á leikjum hér á íslandi, þá meina ég ps3 11.000-14.000, X-box 360 11.000 - 14.000 og PC 6.500 - 10.000 kr. þegar allir leikir kosta það sama í usa í hvaða formi sem er ? :catgotmyballs

Re: Verð á Tölvuleikjum á íslandi ?

Sent: Fim 02. Des 2010 12:22
af Haxdal
Ekki að ég hafi 100% vitneskju um þetta en ég tel að þetta sé þríþætt. Verðið á leiknum, Tollgjöld og svo leggur verslunin einhverja álagningu á leikinn til að græða.

Kaupa bara leiki í gegnum Steam, miklu ódýrara en að kaupa þetta útí búð hér heima + þú styrkir leikjaframleiðendurnar betur ef þú kaupir leiki í gegnum steam því þeir fá mun meira til sín í gegnum steam en í gegnum retail :japsmile

Re: Verð á Tölvuleikjum á íslandi ?

Sent: Fim 02. Des 2010 12:23
af Benzmann
því að það er verið að ræna okkur...


íslenskar verslanir þurfa að vera með svona hátt verð til að halda rekstri.

langt síðan að ég hef farið út í búð og keypt mér tölvuleik hér á landi,

tilhvers að kaupa tölvuleik á 12.000 kr hér út í búð, þegar þú getur keypt hann á Steam fyrir 35-60 dollara ?

Re: Verð á Tölvuleikjum á íslandi ?

Sent: Fim 02. Des 2010 12:28
af Jimmy
Er ekki meira og minna sama fyrirtækið sem flytur þetta allt inn?

Heyrði það einhversstaðar að Sena sæji um þetta allt, og grunar það sterklega að feitur bróðurpartur af álagningunni fari fram þar.

Re: Verð á Tölvuleikjum á íslandi ?

Sent: Fim 02. Des 2010 12:31
af mic
Já, en af hverju kosta bara ekki alllir nýjir leikir td. 8000 kr ps3,x-box og pc.

Re: Verð á Tölvuleikjum á íslandi ?

Sent: Fim 02. Des 2010 12:39
af fannar82
Er þetta ekki líklegast bara hugsað þannig hjá þeim að


Fifa2011 - rótgróinn markhópur sem er að fara kaupa sér þennan leik sama hvað. skiptir ekki hvort að við verðleggjum hann á 12.500kr eða 10.000 kr þeir eiga hvort eð er eftir að kaupa hann


NinjaFubarÜberWeissStyle - nýr frekar óþekktur leikur sem fær miðlungs dóma, . hmm,.. þeir myndu líklegast ekki kaupa hann á 12.500 kr en kanski tilbúnir að prófa hann fyrir 7.500kr .. þannig að við seljum extra 30x svoleiðis leiki


vs. hafa bæði Fifa2011 og NinjaFubarÜberWeissStyle á 9-10þúsund og selja jafnmikið af Fifa en langt um færri NinjaFubarÜberWeissStyle því að menn tíma bara ekki þessum auka þúsundköllum í áhættuna

Re: Verð á Tölvuleikjum á íslandi ?

Sent: Fim 02. Des 2010 12:41
af mic
En í usa kosta allir nyjir leikir 56 $ hvort sem hann er á pc, x-box eða ps3.

Re: Verð á Tölvuleikjum á íslandi ?

Sent: Fim 02. Des 2010 12:46
af fannar82
mic skrifaði:En í usa kosta allir nyjir leikir 56 $.



Geta þeir ekki bara leyft sér það v\ stærðar á markhópnum - það eru svo mikið fleiri sem búa í usa, en íslandi að er hægt að bera þetta saman ?

einhverstaðar þurfa þessar fagga verslanir á íslandi að ná inn dollars$$

Re: Verð á Tölvuleikjum á íslandi ?

Sent: Fim 02. Des 2010 13:30
af Halli25
Ekki gleyma að það er venja að gefa upp verð m/vsk. hérlendis en ekki í bandaríkjunum... 25.5% voila getið athugað hvort það minnki ekki aðeins verðmunin ;)
Það kosta líka slatta að vera á lítilli eyju útá ballarhafi í sendingarkostnað ](*,)

Re: Verð á Tölvuleikjum á íslandi ?

Sent: Fim 02. Des 2010 14:23
af Haxdal
Var að heyra að margar stærri verslanir flytja ekki inn leiki sjálfar, heldur kaupa frá birgja á íslandi sem er hvað, Sena?

Svo það er verið að smyrja helling ofaná verðið.

Upprunalega verðið á leiknum + Tollur + Álagning birgja + Álagning verslunar + vsk

Verðin á Steam eru verð með erlenda vaskinum, ég hef amk aldrei borgað neitt meira en uppsett verð fyrir leiki á Steam.

Re: Verð á Tölvuleikjum á íslandi ?

Sent: Fim 02. Des 2010 15:02
af ZoRzEr
PAL leikir eru bara seldir innan Evrópu, Xbox 360 leikir frá USA virka ekki hérna heima, en PS3 er region unlocked á leikina, ekki DVD / Blu-ray.

Þannig verðið hækkar strax við það. En svo er auðvitað hægt að panta í gegnum vefverslun PSX / Xbox 360.is og fá það sent heim frítt (yfir 25 pundum) gegnum Amazon.co.uk. Hef nýtt mér það grimmt og sparað marga þúsundkarla á því. Svo dregst breski virðisaukaskatturinn frá verði leiksins (17.5%).

Re: Verð á Tölvuleikjum á íslandi ?

Sent: Fim 02. Des 2010 15:11
af AntiTrust
faraldur skrifaði:Ekki gleyma að það er venja að gefa upp verð m/vsk. hérlendis en ekki í bandaríkjunum... 25.5% voila getið athugað hvort það minnki ekki aðeins verðmunin ;)
Það kosta líka slatta að vera á lítilli eyju útá ballarhafi í sendingarkostnað ](*,)


Hvað varðar online verslanir eru það yfirleitt allt verð með VAT. Hinsvegar er það alveg rétt að flestir leikir úti eru að selja á svipuðum verðum burtséð frá platformi, þótt að Wii leikir eigi það reyndar til að vera talsvert ódýrari.

Annars snýst þetta eins og venjulega um það að hér á landi vantar samkeppni. Hinsvegar hef ég verið að reka á mig á að sem dæmi hefur Hagkaup verið að taka inn vinsælustu leikina og oftast 1-3 þús ódýrari en BT og Elko. Svo hefur Buy.is líka verið að taka inn e-rja PS3 leiki og bjóða auðvitað upp á að panta þá fyrir þá sem nenna að bíða, og þeir geta verið allt að 50-60% ódýrari en samkeppnisaðilar.

Um að gera að versla þessa hluti bara hjá Buy.is - Sýna þessum stærri aðilum hvað okkur finnst um þessa álagningu.

Re: Verð á Tölvuleikjum á íslandi ?

Sent: Fim 02. Des 2010 15:19
af Frantic
Ég keypti mér síðast tölvuleik þegar nýjir tölvuleikir kostuðu um 5000kr.
Algjör bilun verðið á þessu í dag. Ég held að Steam sé málið.