Síða 1 af 1

Frétt um Pirate bay

Sent: Fös 26. Nóv 2010 15:04
af mic

Re: Frétt um Pirate bay

Sent: Fös 26. Nóv 2010 15:20
af AntiTrust
Bull. Ótrúlegt. Hvað næst, fangelsa alla vopnaframleiðendur fyrir fjöldamorð og glæpi gegn mannkyninu?

Bull.

Re: Frétt um Pirate bay

Sent: Fös 26. Nóv 2010 17:56
af Moldvarpan
Þetta er löngu löngu töpuð barátta. Það kemur maður í manns stað, og ný síða eftir annari.

Sama með vopnasala og dópsala, þótt þú tekur einn þá tekur bara annar við. Það sjá allir glöggir menn að Prohibition hefur ALDREI virkað. Fólk gerir það sem það vill gera, sumt staðar hefur Prohibition virkað að einhverju marki ef landið er vel einangrað frá nágrannalöndum. Með netið að gera þá er það ómögulegt að reyna stunda Prohibition.

Re: Frétt um Pirate bay

Sent: Fös 26. Nóv 2010 18:32
af Danni V8
Þeir hefðu kannski átt að stela veski eða bíl eða sjónvarpi eða einhverju sem er tekið fram í þessum Anti-Piracy myndböndum í byrjun á öllum DVD..

Væru allavega ekki með svona háar fjársektir á sínu nafni í dag :p

Re: Frétt um Pirate bay

Sent: Fös 26. Nóv 2010 19:39
af B.Ingimarsson
Á semsagt að loka síðunni ?

Re: Frétt um Pirate bay

Sent: Fös 26. Nóv 2010 19:40
af Gúrú
B.Ingimarsson skrifaði:Á semsagt að loka síðunni ?


Held þeir eigi síðuna ei lengur.

Re: Frétt um Pirate bay

Sent: Fös 26. Nóv 2010 19:48
af AntiTrust
Gúrú skrifaði:
B.Ingimarsson skrifaði:Á semsagt að loka síðunni ?


Held þeir eigi síðuna ei lengur.


Svo best sem ég veit til, er það mjög óljóst mál hver "á" TPB, og það er alveg örugglega engin tilviljun. Hinsvegar eiga tveir af þrem stofnendum TPB, PQR, hýsingarþjónustuna sem hýsir meðal annars TPB.