Síða 1 af 5

Ástæða þess að banna ætti sterka laser geisla

Sent: Mið 10. Nóv 2010 10:33
af GuðjónR
Er fólk algjörlega þroskaheft?
Eins gott að svona gúbbar fái aldrei byssuleyfi.

http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/20 ... _flugmenn/
http://www.dv.is/frettir/2010/11/10/las ... gum-augum/

Re: Ástæða þess að banna ætti sterka laser geisla

Sent: Mið 10. Nóv 2010 10:51
af Godriel
spurning um að gera þetta við þá þegar þeir eru á bullandi ferð á hálku

Re: Ástæða þess að banna ætti sterka laser geisla

Sent: Mið 10. Nóv 2010 11:02
af GuðjónR
Það sem veldur mér mestum áhyggjum er að þessir öflugu laserar eru svo sterkir að augnabliks skot í auga getur blindað varanlega.
Held að flestir, (greinilega ekki allir) gerir sér grein fyrir hversu alvarlegt það er.
Ég myndi t.d. ekki vilja fá hringingu úr skólanum þess efnis að dóttir mín væri orðin blind af því að einhver FÁVITI hefði verið að leika sér með laser.
Hann myndi jú örugglega segja "fyrirgefðu....ætlaði ekki að gera þetta...og ég sé eftir þessu" en það myndi ekki bæta upp sjónina sem hann væri búinn að skemma varanlega.

Þessi tæki ættu að fara undir skotvopnalöggjöfina og það ekki seinna en í gær.

Re: Ástæða þess að banna ætti sterka laser geisla

Sent: Mið 10. Nóv 2010 11:11
af Benzmann
viewtopic.php?f=9&t=32661


ætli þetta sé sami gaurinn ? ahahah

Re: Ástæða þess að banna ætti sterka laser geisla

Sent: Mið 10. Nóv 2010 11:16
af donzo
benzmann skrifaði:http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=9&t=32661


ætli þetta sé sami gaurinn ? ahahah


Var einmitt að spá í því sama :megasmile

Re: Ástæða þess að banna ætti sterka laser geisla

Sent: Mið 10. Nóv 2010 11:16
af Ulli
Ef þú ert að vitna í mig þá ætla ég að valda þér þeim vonbrigðum að seija þér að ég á heima á Akranesi og ég hef ekki farið til Akureyrar í meira en 7 ár.

Re: Ástæða þess að banna ætti sterka laser geisla

Sent: Mið 10. Nóv 2010 11:20
af Minuz1
GuðjónR skrifaði:Það sem veldur mér mestum áhyggjum er að þessir öflugu laserar eru svo sterkir að augnabliks skot í auga getur blindað varanlega.
Held að flestir, (greinilega ekki allir) gerir sér grein fyrir hversu alvarlegt það er.
Ég myndi t.d. ekki vilja fá hringingu úr skólanum þess efnis að dóttir mín væri orðin blind af því að einhver FÁVITI hefði verið að leika sér með laser.
Hann myndi jú örugglega segja "fyrirgefðu....ætlaði ekki að gera þetta...og ég sé eftir þessu" en það myndi ekki bæta upp sjónina sem hann væri búinn að skemma varanlega.

Þessi tæki ættu að fara undir skotvopnalöggjöfina og það ekki seinna en í gær.


Af hverju skotvopnalöggjöf?
Gætir alveg eins sett þetta á ökuskírteinið.

Held að þeir sem eru að selja þetta hafi vit á því að láta börn ekki fá þetta.

Re: Ástæða þess að banna ætti sterka laser geisla

Sent: Mið 10. Nóv 2010 11:21
af dori
Minuz1 skrifaði:Af hverju skotvopnalöggjöf?
Gætir alveg eins sett þetta á ökuskírteinið.

Þetta er nú mun nær því að vera byssa en bíll. Ég er smá sammála Guðjóni en finnst að sterkir leisarar ættu ekki að vera flokkaðir sem skotvopn heldur hættulegir leiserar og þurfa sér próf.

Re: Ástæða þess að banna ætti sterka laser geisla

Sent: Mið 10. Nóv 2010 11:32
af Minuz1
dori skrifaði:
Minuz1 skrifaði:Af hverju skotvopnalöggjöf?
Gætir alveg eins sett þetta á ökuskírteinið.

Þetta er nú mun nær því að vera byssa en bíll. Ég er smá sammála Guðjóni en finnst að sterkir leisarar ættu ekki að vera flokkaðir sem skotvopn heldur hættulegir leiserar og þurfa sér próf.


Byssa er gerð til þess að drepa lifandi verur...bílar ekki, og ekki heldur þessi laser

Re: Ástæða þess að banna ætti sterka laser geisla

Sent: Mið 10. Nóv 2010 11:41
af AndriKarl
Maður verður bara að fara að ganga um með svona gleraugu.
Mynd

Re: Ástæða þess að banna ætti sterka laser geisla

Sent: Mið 10. Nóv 2010 11:59
af GuðjónR
Minuz1 skrifaði:
dori skrifaði:
Minuz1 skrifaði:Af hverju skotvopnalöggjöf?
Gætir alveg eins sett þetta á ökuskírteinið.

Þetta er nú mun nær því að vera byssa en bíll. Ég er smá sammála Guðjóni en finnst að sterkir leisarar ættu ekki að vera flokkaðir sem skotvopn heldur hættulegir leiserar og þurfa sér próf.


Byssa er gerð til þess að drepa lifandi verur...bílar ekki, og ekki heldur þessi laser


En til hvers eru þessir laserar gerðir?

Re: Ástæða þess að banna ætti sterka laser geisla

Sent: Mið 10. Nóv 2010 12:04
af biturk
ég veit ekki með ykkur en ef að einhver myndi blinda barnið mitt með svona leiser þá hverfur sá einstaklingur varanlega og að eilífu!

ég myndi aldrei fyrigefa svona og vil sjá þetta bannað eða undir ströngu eftirliti, fávitar eru allstaðar í samfélaginu og ég vil ekki vita af hverjum sem er með svona leiser í höndunum! :mad

Re: Ástæða þess að banna ætti sterka laser geisla

Sent: Mið 10. Nóv 2010 12:07
af GuðjónR
Ég er skíthræddur við þetta og bara tímaspursmál hvenær einhver slasast.

Re: Ástæða þess að banna ætti sterka laser geisla

Sent: Mið 10. Nóv 2010 12:11
af Gúrú
Minuz1 skrifaði:Byssa er gerð til þess að drepa lifandi verur...bílar ekki, og ekki heldur þessi laser


Þetta er ekki skilgreiningin á byssu - byssa skýtur hlutum, sama hvort það eru ljóseindir, deyfipílur eða kettir.

Re: Ástæða þess að banna ætti sterka laser geisla

Sent: Mið 10. Nóv 2010 12:20
af andribolla
biturk skrifaði:ég veit ekki með ykkur en ef að einhver myndi blinda barnið mitt með svona leiser þá hverfur sá einstaklingur varanlega og að eilífu!

ég myndi aldrei fyrigefa svona og vil sjá þetta bannað eða undir ströngu eftirliti, fávitar eru allstaðar í samfélaginu og ég vil ekki vita af hverjum sem er með svona leiser í höndunum! :mad


Djövull er ég sammála, taka þetta pakk upp í vaðlaheiði og klippa af þeim fingurna !
Ég var á fiskideginum á Dalvík í sumar og þar var eithver óþroskaður einstaklingur með svona grænan leiser, vá hvað mig langaði að fara og dangla aðeins í hann og af "vopna" hann.

Re: Ástæða þess að banna ætti sterka laser geisla

Sent: Mið 10. Nóv 2010 12:25
af gardar
Ætli vopna-próf sé ekki full gróft? Ætti 18 ára aldurstakmark ekki að vera nóg?

Re: Ástæða þess að banna ætti sterka laser geisla

Sent: Mið 10. Nóv 2010 12:27
af dori
gardar skrifaði:Ætli vopna-próf sé ekki full gróft? Ætti 18 ára aldurstakmark ekki að vera nóg?

Ætli þessir gæjar hafi ekki verið 18 ára?

Re: Ástæða þess að banna ætti sterka laser geisla

Sent: Mið 10. Nóv 2010 12:33
af Minuz1
GuðjónR skrifaði:
Minuz1 skrifaði:
dori skrifaði:
Minuz1 skrifaði:Af hverju skotvopnalöggjöf?
Gætir alveg eins sett þetta á ökuskírteinið.

Þetta er nú mun nær því að vera byssa en bíll. Ég er smá sammála Guðjóni en finnst að sterkir leisarar ættu ekki að vera flokkaðir sem skotvopn heldur hættulegir leiserar og þurfa sér próf.


Byssa er gerð til þess að drepa lifandi verur...bílar ekki, og ekki heldur þessi laser


En til hvers eru þessir laserar gerðir?


Leiserar sem valda óþægindum í augum eru td notaðir við að lesa af geisladiskum og vil benda þér á að þetta eru ekki meintir high powered lasers samkvæmt fréttinni á dv.is

Þeir eru heldur ekki gerðir til þess að blinda fólk.
Ég veit að það eru til leiserar sem geta blindað fólk og það eru þeir laserar sem þú munnt líklegast fjalla um í framhaldi af þessu.
En það er langt bil á milli þess að geta blindað fólk og gert til þess að drepa lifandi verur með...finnst þér ekki?

Afleiðing byssueignar = lifandi verur deyja
Afleiðing lasereignar = fólk á að hættu að blindast sé óvarlega farið með hlutina

Ef að ætti að banna allt sem hugsanlega gæti verið álíka hættulegt, þá má banna stóra/beitta hnífa, flugelda, stíflueyði, uppþvottaduft, málingarþynni o.fl o.fl

Re: Ástæða þess að banna ætti sterka laser geisla

Sent: Mið 10. Nóv 2010 12:34
af Minuz1
GuðjónR skrifaði:Ég er skíthræddur við þetta og bara tímaspursmál hvenær einhver slasast.


ohh the sky is falling!!!

Það er líka tímaspursmál hvenær heimurinn fellur saman og það kemur annar "stóri hvellur"

shit happends wear a helmet.

Re: Ástæða þess að banna ætti sterka laser geisla

Sent: Mið 10. Nóv 2010 12:38
af dori
Minuz1 skrifaði:Leiserar sem valda óþægindum í augum eru td notaðir við að lesa af geisladiskum og vil benda þér á að þetta eru ekki meintir high powered lasers samkvæmt fréttinni á dv.is

Þeir eru heldur ekki gerðir til þess að blinda fólk.
Ég veit að það eru til leiserar sem geta blindað fólk og það eru þeir laserar sem þú munnt líklegast fjalla um í framhaldi af þessu.
En það er langt bil á milli þess að geta blindað fólk og gert til þess að drepa lifandi verur með...finnst þér ekki?

Afleiðing byssueignar = lifandi verur deyja
Afleiðing lasereignar = fólk á að hættu að blindast sé óvarlega farið með hlutina

Ef að ætti að banna allt sem hugsanlega gæti verið álíka hættulegt, þá má banna stóra/beitta hnífa, flugelda, stíflueyði, uppþvottaduft, málingarþynni o.fl o.fl

Þetta er samt eitthvað sem þarf svo mikla kunnáttu til að fara með. Fyrir utan að ef þú hefur ekki kunnáttu þá ættirðu ekki að eiga þetta. Ég sé ekki af hverju þú ættir ekki að þurfa einhver vottorð til að flytja svona inn.
Hvað gerir venjulegt fólk við 1kW laser? Ég er ekki að segja að ég væri ekki til í að eiga þannig útá kúlið en ég myndi ekkert nota það og ef ég færi að gera það þá væri það til að leika mér. Og svona dót er eiginlega ekki leikfang.

Re: Ástæða þess að banna ætti sterka laser geisla

Sent: Mið 10. Nóv 2010 12:41
af Godriel
Minuz1 skrifaði:
ohh the sky is falling!!!

Það er líka tímaspursmál hvenær heimurinn fellur saman og það kemur annar "stóri hvellur"

shit happends wear a helmet.



x2

Re: Ástæða þess að banna ætti sterka laser geisla

Sent: Mið 10. Nóv 2010 13:04
af hagur
Godriel skrifaði:
Minuz1 skrifaði:
ohh the sky is falling!!!

Það er líka tímaspursmál hvenær heimurinn fellur saman og það kemur annar "stóri hvellur"

shit happends wear a helmet.



x2



Er þetta í alvöru ykkar sjónarmið varðandi þetta mál?

"Við munum hvort sem er öll deyja einhverntíman, leyfum þetta bara allt saman!"

Jahérna hér.

Bottom line er að þetta eru stórhættuleg apparöt sem eiga ekkert að vera á færi hvers sem er. Svo er líka bara spurning með tilganginn? Hefur þetta einhvern praktískan tilgang? Stíflueyðir hefur t.d tilgang. Hann er heldur ekki látinn í hendurnar á börnum eða óþroskuðum einstaklingum. Sama ætti að gilda um þetta.

Re: Ástæða þess að banna ætti sterka laser geisla

Sent: Mið 10. Nóv 2010 13:10
af Minuz1
dori skrifaði:
Minuz1 skrifaði:Leiserar sem valda óþægindum í augum eru td notaðir við að lesa af geisladiskum og vil benda þér á að þetta eru ekki meintir high powered lasers samkvæmt fréttinni á dv.is

Þeir eru heldur ekki gerðir til þess að blinda fólk.
Ég veit að það eru til leiserar sem geta blindað fólk og það eru þeir laserar sem þú munnt líklegast fjalla um í framhaldi af þessu.
En það er langt bil á milli þess að geta blindað fólk og gert til þess að drepa lifandi verur með...finnst þér ekki?

Afleiðing byssueignar = lifandi verur deyja
Afleiðing lasereignar = fólk á að hættu að blindast sé óvarlega farið með hlutina

Ef að ætti að banna allt sem hugsanlega gæti verið álíka hættulegt, þá má banna stóra/beitta hnífa, flugelda, stíflueyði, uppþvottaduft, málingarþynni o.fl o.fl

Þetta er samt eitthvað sem þarf svo mikla kunnáttu til að fara með. Fyrir utan að ef þú hefur ekki kunnáttu þá ættirðu ekki að eiga þetta. Ég sé ekki af hverju þú ættir ekki að þurfa einhver vottorð til að flytja svona inn.
Hvað gerir venjulegt fólk við 1kW laser? Ég er ekki að segja að ég væri ekki til í að eiga þannig útá kúlið en ég myndi ekkert nota það og ef ég færi að gera það þá væri það til að leika mér. Og svona dót er eiginlega ekki leikfang.


Og ég held miðað við þín skrif þá ertu alveg hæfur til þess að kunna með þetta að fara....þótt það væri bara til þess að leika þér, en ég vil ekki búa í þjóðfélagi þar sem hlutir eru bannaðir útaf því að fólk er fífl....listinn yfir þá hluti yrði þá fáránlega langur og við myndum öll keyra um í tölvustýrðum gúmmíbílum á sporbrautum og myndum aldrei fara hraðar en 15 km/klst.

Re: Ástæða þess að banna ætti sterka laser geisla

Sent: Mið 10. Nóv 2010 13:16
af coldcut
Ég tek undir með Guðjóni, hag og fleirum.

Innflutningur og sala ætti að lúta ströngu eftirliti því ég sé engan tilgang fyrir öflugum leysigeislum heldur en að leika sér með þá og það getur verið hættulegt.
Það er ekki hægt að líkja þessu við byssueign, hnífaeign og annað svipað því það hefur allt tilgang.

Re: Ástæða þess að banna ætti sterka laser geisla

Sent: Mið 10. Nóv 2010 13:17
af Black
Var að skoða svona lasera í kolaportinu, var svona nálægt því í að fjárfesta í einum laser, mikið buinn að skoðann.það var lykill að honum, settir bara lykil í endann á honum og snérir þá "activate-aru hann" sá laser kostar 13þ!! :wtf og er aðeins 200mw, getur ekki kveikt á eldspítu með honum, totally a rip of.. :o held maður ætti bara já og fólk ætti bara halda sig við gömlu góðu rauðlaserana ;)