Síða 1 af 1
Drög að frumvarpi um landslénið .is
Sent: Lau 06. Nóv 2010 22:16
af Revenant
Jæja, nú á að gera .is lén að "gæðamerki" og setja lög um það.
Sjá vef
samgönguráðuneytisins og
lögin sjálf
Re: Drög að frumvarpi um landslénið .is
Sent: Lau 06. Nóv 2010 22:20
af GuðjónR
Ekkert skrítið að allt sé í rugli á klakanum ef stjórnvöld hafa ekkert betra við tíman að gera en að semja svona langlokur um .is
Ég nennti ekki að lesa þetta, efast um að ég hefði skilið það hvort sem er enda þurr og leiðinleg lesning.
Getur einhver sem þekkir til, útskýrt á "stuttu" mannamáli hvað er verið að tala um þarna?
Re: Drög að frumvarpi um landslénið .is
Sent: Lau 06. Nóv 2010 22:31
af CendenZ
sýnist þetta basicly vera að dirtbags og spammarar geti ekki keypt og misnota .is lén.
Re: Drög að frumvarpi um landslénið .is
Sent: Lau 06. Nóv 2010 22:37
af intenz
Ég held þetta snúist aðallega um að koma lénum úr umsjá einkarekins aðila (isnic) og yfir í umsjá ríkisins. Ég held að þetta sé bara svo ríkið hafi meiri ítök varðandi ritskoðun o.s.frv.
Re: Drög að frumvarpi um landslénið .is
Sent: Lau 06. Nóv 2010 22:42
af GuðjónR
Þá má búast við að þeir sjái auka tekjulind þarna og hækki verðið.
Re: Drög að frumvarpi um landslénið .is
Sent: Lau 06. Nóv 2010 22:44
af intenz
GuðjónR skrifaði:Þá má búast við að þeir sjái auka tekjulind þarna og hækki verðið.
Já, en þeir halda öðru fram:
Með hliðsjón af mikilvægi starfseminnar í þjóðfélagslegu tilliti er litið svo á að starfsemi á borð við þessa skuli lúta eftirliti opinberra aðila.
Auðveldur og hagkvæmur aðgangur á lénum ætti jafnframt að auka fjölda skráninga og stuðla að framþróun internetsins.
Re: Drög að frumvarpi um landslénið .is
Sent: Lau 06. Nóv 2010 22:46
af GuðjónR
intenz skrifaði:GuðjónR skrifaði:Þá má búast við að þeir sjái auka tekjulind þarna og hækki verðið.
Já, en þeir halda öðru fram:
Með hliðsjón af mikilvægi starfseminnar í þjóðfélagslegu tilliti er litið svo á að starfsemi á borð við þessa skuli lúta eftirliti opinberra aðila.
Auðveldur og hagkvæmur aðgangur á lénum ætti jafnframt að auka fjölda skráninga og stuðla að framþróun internetsins.
Það er alveg bókað að þeir lækka ekki verðin. Það gerist aldrei.
Re: Drög að frumvarpi um landslénið .is
Sent: Lau 06. Nóv 2010 22:47
af Revenant
GuðjónR skrifaði:Þá má búast við að þeir sjái auka tekjulind þarna og hækki verðið.
í rauninni er það besta leiðin til að fá ekki spammara, miklu ódýrara að kaupa .com lén á ~ $10 í staðin fyrir ~ $45 fyrir .is lén
Re: Drög að frumvarpi um landslénið .is
Sent: Lau 06. Nóv 2010 22:48
af intenz
GuðjónR skrifaði:intenz skrifaði:GuðjónR skrifaði:Þá má búast við að þeir sjái auka tekjulind þarna og hækki verðið.
Já, en þeir halda öðru fram:
Með hliðsjón af mikilvægi starfseminnar í þjóðfélagslegu tilliti er litið svo á að starfsemi á borð við þessa skuli lúta eftirliti opinberra aðila.
Auðveldur og hagkvæmur aðgangur á lénum ætti jafnframt að auka fjölda skráninga og stuðla að framþróun internetsins.
Það er alveg bókað að þeir lækka ekki verðin. Það gerist aldrei.
Allavega ekki núverandi ríkisstjórn.
Re: Drög að frumvarpi um landslénið .is
Sent: Lau 06. Nóv 2010 23:08
af natti
Fer þetta ekki bara í sama gamla horfið, að bara fyrirtæki og félagassamtök sem eru skráð á íslandi munu fá að kaupa .is lén?
Það eru nú ekki það mörg ár síðan að einstaklingar gátu ekki keypt .is
Re: Drög að frumvarpi um landslénið .is
Sent: Lau 06. Nóv 2010 23:12
af appel
1. Hefur .is eitthvað verið illa stjórnað af einkaaðilanum Isnic?
2. Mun ríkið standa sig betur?
Bæði svörin eru nei, í mínum huga.
Mér finnst núverandi fyrirkomulag til fyrirmyndar. Internetið á ekki að vera undir forsjá stjórnvalda, það leiðir til þess að vanvitar fari að hrófla við fínu kerfi, og það er nóg af vanvitum í íslenskri stjórnsýslu.
Gera .is að "gæðamerki"? Hvað þýðir það eiginlega. Loka öllum lénum sem falla ekki undir skilgreiningu sitjandi stjórnvalda á því hvað "gæði" eru? Hvað með vaktin.is? Hér eru ungir strákar sem rugla bara, um að gera að loka á svona gróðrastíu ranghugmynda, for the kids you know!
Þetta er fín leið til ritskoðunar, bara skilgreina hvað eru æskileg .is lén og loka óæskilegum.
Ef eitthvað gerist þá hækkar verðið á lénum umtalsvert. Stjórnvöld þurfa jú að fá eitthvað fyrir sinn snúð. "Skráningargjaldi" verður komið á, svo "umsýslugjald", "eftirlitsgjald", allt svo hægt sé að borga afætunum laun fyrir froðuvinnu.
Re: Drög að frumvarpi um landslénið .is
Sent: Lau 06. Nóv 2010 23:15
af urban
Djöfullinn
ég verð að fara að loka síðunni minni
þar sem að ekki eru há gæði þar
Re: Drög að frumvarpi um landslénið .is
Sent: Lau 06. Nóv 2010 23:21
af GuðjónR
hahahahaha svo sammála síðustu ræðumönnum
Þegar ég keypti
http://www.solpallar.is fyrir 10 árum síðan þá var það meiriháttar mál, ég þurfti að skila inn staðfestingu frá firmaskrá þess efnis að ég ætti Sólpallar ehf og ég veit ekki hvað og hvað.
Nokkrum árum síðar var öllu breytt, t.d. einn snillingurinn keypti solpallur.is sem er sama lén bara í eintölu. Ég hefði getað kært og sett in greinargerð og blalblabla...
Núna getur hver sem er keypt hvað sem er, ég er til dæmis hissa á því að enginn sé búinn að kaupa samsungsetrid.is þar sem búiðin er ekki búin að tryggja sér lénið...
Spurning um að kaupa það og selja þeim það síðan á 100k ?
Re: Drög að frumvarpi um landslénið .is
Sent: Sun 07. Nóv 2010 03:33
af Klemmi
Hmmm, ég veit ekki alveg hvort það myndi ganga upp að kaupa SamsungSetrid.is... Hann Garðar hér á Vaktinni keypti á sínum tíma yahoo.is, það endaði með því að hann þurfti að láta það af hendi til Yahoo
Re: Drög að frumvarpi um landslénið .is
Sent: Sun 07. Nóv 2010 05:29
af urban
Klemmi skrifaði:Hmmm, ég veit ekki alveg hvort það myndi ganga upp að kaupa SamsungSetrid.is... Hann Garðar hér á Vaktinni keypti á sínum tíma yahoo.is, það endaði með því að hann þurfti að láta það af hendi til Yahoo
ef að ég man rétt þá var það vegna aulaskaps í honum, minnir að hann hafi sagt mér það einhvern tíman, semsagt var kominn með tilboð sem að hann svaraði ekki nógu fljótt
Re: Drög að frumvarpi um landslénið .is
Sent: Sun 07. Nóv 2010 15:45
af gardar
urban skrifaði:Klemmi skrifaði:Hmmm, ég veit ekki alveg hvort það myndi ganga upp að kaupa SamsungSetrid.is... Hann Garðar hér á Vaktinni keypti á sínum tíma yahoo.is, það endaði með því að hann þurfti að láta það af hendi til Yahoo
ef að ég man rétt þá var það vegna aulaskaps í honum, minnir að hann hafi sagt mér það einhvern tíman, semsagt var kominn með tilboð sem að hann svaraði ekki nógu fljótt
Ég fékk tilboð sem ég var að ganga að, sama dag fékk ég inn um lúguna bréf frá lögfræðingum sem voru að starfa fyrir yahoo inc.
ef ég hefði fengið tilboðið degi fyrr þá hefði ég verið búinn að ganga frá málunum, en guð má vita hvort það hefði eitthvað komið sér betur eða hvort ég hefði lent í meiri skít með það.
Re: Drög að frumvarpi um landslénið .is
Sent: Sun 07. Nóv 2010 17:06
af natti
gardar skrifaði:urban skrifaði:Klemmi skrifaði:Hmmm, ég veit ekki alveg hvort það myndi ganga upp að kaupa SamsungSetrid.is... Hann Garðar hér á Vaktinni keypti á sínum tíma yahoo.is, það endaði með því að hann þurfti að láta það af hendi til Yahoo
ef að ég man rétt þá var það vegna aulaskaps í honum, minnir að hann hafi sagt mér það einhvern tíman, semsagt var kominn með tilboð sem að hann svaraði ekki nógu fljótt
Ég fékk tilboð sem ég var að ganga að, sama dag fékk ég inn um lúguna bréf frá lögfræðingum sem voru að starfa fyrir yahoo inc.
ef ég hefði fengið tilboðið degi fyrr þá hefði ég verið búinn að ganga frá málunum, en guð má vita hvort það hefði eitthvað komið sér betur eða hvort ég hefði lent í meiri skít með það.
Svosem ekki einsdæmi. Einstaklingar hafa áður keypt lén sem samsvara nöfnum erlendra fyrirtækja, og þurft að láta þau af hendi.
Varðandi íslensk fyrirtæki, ef að fyrirtækið er búið að láta skrá nafnið á fyrirtækinu sem skrásett orðumerki (einkaleyfisstofa), þá á það möguleika á að heimta lénið af þér.
ISNIC skrifaði:11.6. Úrskurðarnefnd úrskurðar aðeins í kærum á grundvelli eftirfarandi efnisreglna auk skráningarreglna ISNIC:
i) lén er eins og skrásett vörumerki sem orðmerki hjá Einkaleyfastofu og vörumerki hafi verið skráð áður en lén var skráð og
ii) að sá sem lénið skráði hafi ekki lögmæta hagsmuni af notkun lénsins og
iii) að sá sem lénið skráði hafi ekki verið í góðri trú um rétt sinn til lénsins þegar sótt var um skráningu þess.
Sem dæmi má taka eftirtalin atriði sem talin eru benda til að ekki hafi verið sótt um lén í góðri trú um rétt til lénsins:
i) að lén hafi verið skráð í þeim tilgangi að selja, leigja eða veita öðrum aðila aðgang að léninu fyrir verð sem er sannanlega hærra en sem nemur kostnaði við skráningu og endurnýjun léns eða
ii) lén hafi verið skráð í þeim eina tilgangi að hindra samkeppnisaðila í að skrá sama lén.
Re: Drög að frumvarpi um landslénið .is
Sent: Sun 07. Nóv 2010 18:36
af Gúrú
Bara til að koma með eitt dæmi um þessa umræði þá átti FBG (buy.is náunginn) einhvað hestamenn.is eða eitthvað
sem var nafnið á búð og hýsti einhver miskímin skilaboð það og þurfti á endanum að láta þá fá það, er það ekki?