Síða 1 af 2
Vantar rómantískan og góðan veitingarstað í Rvk
Sent: Fös 05. Nóv 2010 09:37
af hsm
Eins og titillin segir
Er ekki nógu vanur fínni stöðunum í Rvk og væri alveg til í hugmyndir ef þið hafið einhverjar.
ATH þarf að vera flottur staður
Re: Vantar rómantískan og góðan veitingarstað í Rvk
Sent: Fös 05. Nóv 2010 09:40
af TheVikingmen
Perlan ?
Re: Vantar rómantískan og góðan veitingarstað í Rvk
Sent: Fös 05. Nóv 2010 09:42
af beatmaster
Re: Vantar rómantískan og góðan veitingarstað í Rvk
Sent: Fös 05. Nóv 2010 09:52
af ManiO
Dill er með betri stöðunum í dag. Minnir að það sé nauðsynlegt að panta borð.
Svo er Vox að standa fyrir sínu undanfarið.
Domo er sérstaklega góður miðað við verð.
Sjávarkjallarinn er líka alltaf góður.
Hereford er fínn ef menn vilja steikur.
Þeir eru fleiri en þetta ætti að vera nóg.
Re: Vantar rómantískan og góðan veitingarstað í Rvk
Sent: Fös 05. Nóv 2010 10:11
af Frost
Vera grand og skella sér í einkaherbergi á Argentínu
Re: Vantar rómantískan og góðan veitingarstað í Rvk
Sent: Fös 05. Nóv 2010 10:17
af AntiTrust
VOX er alltaf góður, en ég get ekki sagt að hann sé rómatískur. Lækjarbrekka er líka fín, að vanda. Argentína og Hereford finnst mér hinsvegar aðeins of "opin" til að vera rómantísk.
Svona af þessum fínni stöðum sem ég hef verið að fara á nýlega finnst mér Humarhúsið mest kósí.
Re: Vantar rómantískan og góðan veitingarstað í Rvk
Sent: Fös 05. Nóv 2010 10:18
af GuðjónR
hsm skrifaði:ATH þarf að vera flottur staður
Minn bara grand á því
Re: Vantar rómantískan og góðan veitingarstað í Rvk
Sent: Fös 05. Nóv 2010 10:57
af Daz
Ég fór nýlega-ish á fiskmarkaðinn, fannst hann mjög fínn, kannski helst til of opinn til að kallast rómantískur?
Re: Vantar rómantískan og góðan veitingarstað í Rvk
Sent: Fös 05. Nóv 2010 11:03
af AndriKarl
Metro
Annars á Hereford að vera með góðann mat.
Re: Vantar rómantískan og góðan veitingarstað í Rvk
Sent: Fös 05. Nóv 2010 11:15
af darkppl
Hornið
Re: Vantar rómantískan og góðan veitingarstað í Rvk
Sent: Fös 05. Nóv 2010 11:51
af cocacola123
Breiðholtið
Re: Vantar rómantískan og góðan veitingarstað í Rvk
Sent: Fös 05. Nóv 2010 12:29
af corflame
Austur India félagið
Re: Vantar rómantískan og góðan veitingarstað í Rvk
Sent: Fös 05. Nóv 2010 13:33
af mic
X2
Re: Vantar rómantískan og góðan veitingarstað í Rvk
Sent: Fös 05. Nóv 2010 13:51
af axyne
við konan höfum oft farið á Caruso fínn staður og ekki of dýr.
Re: Vantar rómantískan og góðan veitingarstað í Rvk
Sent: Fös 05. Nóv 2010 14:28
af Páll
Hvað kallar þú rómantískan stað?
Re: Vantar rómantískan og góðan veitingarstað í Rvk
Sent: Fös 05. Nóv 2010 14:44
af hsm
GuðjónR skrifaði:hsm skrifaði:ATH þarf að vera flottur staður
Minn bara grand á því
Þessi er svo fín að maður verður að vera grand
Er búinn að þekkja hana í um 15ár þó svo að ég hafi ekki verið mikið í kringum hana.
Páll skrifaði:Hvað kallar þú rómantískan stað?
Rólegan, lítin og þægilegan og að maður þarf ekki að sitja útá miðju gólfi.
Svo verður maður sjálfur að sjá um rómantíkina að mestu er það ekki.
Annars er ég búinn að panta borð á Lækjarbrekku og svo Hotel Arnarhvoll
Ég þakka fyrir allar ábendingar og á öruglega eftir að kíkja á þennan þráð til að athuga með staði næst þegar ég fer.
Re: Vantar rómantískan og góðan veitingarstað í Rvk
Sent: Fös 05. Nóv 2010 14:51
af Klemmi
Hmmm, aldrei gist á Hótel Arnarhvoll en fékk mér einhverntíman bjór þar á pöbbarölti. Kom mér á óvart að hann var ekki dýrari en 700kall í gleri (Tuborg ef ég man rétt á fínu hóteli) og lobbíið er allavega mjög flott
Re: Vantar rómantískan og góðan veitingarstað í Rvk
Sent: Fös 05. Nóv 2010 15:15
af GuðjónR
hsm skrifaði:Þessi er svo fín að maður verður að vera grand
Er búinn að þekkja hana í um 15ár þó svo að ég hafi ekki verið mikið í kringum hana.
Ég hafði það alltaf á tilfinningunni að þú værir með konu??
Kannski nýbúinn að skila henn?
hsm skrifaði:Annars er ég búinn að panta borð á Lækjarbrekku og svo
Hotel Arnarhvoll
úúúú
Re: Vantar rómantískan og góðan veitingarstað í Rvk
Sent: Fös 05. Nóv 2010 15:24
af hsm
GuðjónR skrifaði:Ég hafði það alltaf á tilfinningunni að þú værir með konu??
Kannski nýbúinn að skila henn?
Það eru 4+ár síðan að ég kom úr löngu sambandi en var með annari sem ég "skilaði" fyrir um ári síðan
Kanski að maður nái að halda í þessa hver veit
en svo hafa þær nú eitthvað um þetta að segja líka... því miður
Re: Vantar rómantískan og góðan veitingarstað í Rvk
Sent: Fös 05. Nóv 2010 15:38
af GuðjónR
hsm skrifaði:GuðjónR skrifaði:Ég hafði það alltaf á tilfinningunni að þú værir með konu??
Kannski nýbúinn að skila henn?
Það eru 4+ár síðan að ég kom úr löngu sambandi en var með annari sem ég "skilaði" fyrir um ári síðan
Kanski að maður nái að halda í þessa hver veit
en svo hafa þær nú eitthvað um þetta að segja líka... því miður
Mundu bara að það er betra að vera ógiftur en íllagiftur
Re: Vantar rómantískan og góðan veitingarstað í Rvk
Sent: Fös 05. Nóv 2010 17:16
af dadik
Bestu veitingastaðirnir í Reykjavík í dag eru Holtið, VOX og Grillið á Hótel Sögu. Ég myndi svo bæta Fiskifélaginu í þennan hóp.
Í þínu tilviki myndi ég annaðhvort taka Grillið eða Fiskifélagið. Grillið er svolítið oldschool en maturinn og þjónustan eru feykilega góð. Fiskifélagið er svo með mjög skemmtilega matargerð. Ef þú ferð þangað skaltu skella þér á tasting-menuið - þið fáið alla 7 eða 8 réttina serveraða á einum diski.
Re: Vantar rómantískan og góðan veitingarstað í Rvk
Sent: Fös 05. Nóv 2010 17:26
af urban
hsm skrifaði:GuðjónR skrifaði:hsm skrifaði:ATH þarf að vera flottur staður
Minn bara grand á því
Þessi er svo fín að maður verður að vera grand
Er búinn að þekkja hana í um 15ár þó svo að ég hafi ekki verið mikið í kringum hana.
Páll skrifaði:Hvað kallar þú rómantískan stað?
Rólegan, lítin og þægilegan og að maður þarf ekki að sitja útá miðju gólfi.
Svo verður maður sjálfur að sjá um rómantíkina að mestu er það ekki.
Annars er ég búinn að panta borð á Lækjarbrekku og svo Hotel Arnarhvoll
Ég þakka fyrir allar ábendingar og á öruglega eftir að kíkja á þennan þráð til að athuga með staði næst þegar ég fer.
ef að þú vilt hafa þetta svolítið flott næst, þá áttu að bjóða konunni í ca klukkutíma bíltúr austur fyrir fjall
fara á hótel Rangá og borða það og gista
Re: Vantar rómantískan og góðan veitingarstað í Rvk
Sent: Fös 05. Nóv 2010 17:32
af CendenZ
Og ef þú vilt koma henni á óvart svona án þess að fara á 20-30 þús króna stað, þá stendur PISA alltaf fyrir sínu. Mjög kosí staður fyrir "date" líka... ég myndi frekar td. fara þangað en td. holtið fyrir rómó dinner, hitt er allt of fancy... vantar allan rómans í holtið
edit: þjónn til 7 ára og unnið á mörgum fyrrnefndum stöðum í þessum þræði
Fyrir rómans:
1. Grillið
2. Dill
3. Pisa
4. Fiskfélagið ef maður er heppinn með borð
5. Perlan ef maður er heppinn með borð
Líka gott að minnast á það við þjóninn að þið séuð ekki að flýta ykkur og þið væruð til í kampavínsglas, þá róast oft keyrslan á matnum
Re: Vantar rómantískan og góðan veitingarstað í Rvk
Sent: Fös 05. Nóv 2010 18:16
af ManiO
Holtið er ekki búið að standa fyrir sínu í þjónustu geiranum seinustu 2 ár. Hef heyrt um 5 tilvik svo ég muni eftir þar sem að þjónustan var fyrir neðan allar hellur.
Re: Vantar rómantískan og góðan veitingarstað í Rvk
Sent: Fös 05. Nóv 2010 18:35
af Gúrú
ManiO skrifaði:Holtið er ekki búið að standa fyrir sínu í þjónustu geiranum seinustu 2 ár. Hef heyrt um 5 tilvik svo ég muni eftir þar sem að þjónustan var fyrir neðan allar hellur.
Get ekki verið sammála þessu.
Þó það sé vissulega pirrandi að einhver gaur komi og segi "Bread" öðru hvoru þegar ég er mest íslenskt útlítandi Íslendingur á Íslandi.