Síða 1 af 1

Heyrnatól fyrir ipod.

Sent: Þri 26. Okt 2010 15:37
af BjarkiB
Sælir/ar vaktarar,

Er að spá í að fá mér ný heyrnatól fyrir tónlist, aðallega notað í ipod. Á Sennheiser HD515 en mér finnst þau aðeins of stór og nota þau bara við tölvuna, svo á ég Sennheiser PX100 lítil og nett en heyrist alltof mikið frá þeim.
Heyrnatólin verða þá helst að vera frekar lítil, hljóðeinagra vel, og helst góður bassi. Hef verið að spá í skullcandy, en hvað segið þið?
Skiptir ekki miklu máli með budget en helst ekki fara mikið yfir 15 þúsund.

Fyrir fram þakkir, Tiesto.

Re: Heyrnatól fyrir ipod.

Sent: Þri 26. Okt 2010 15:56
af TheVikingmen
Ég myndi reyna að finna mér einhverneigin svona heyrnatól, það heyrist varla út úr þeim og eru mjög góð :)

Mynd

Re: Heyrnatól fyrir ipod.

Sent: Þri 26. Okt 2010 16:00
af BjarkiB
TheVikingmen skrifaði:Ég myndi reyna að finna mér einhverneigin svona heyrnatól, það heyrist varla út úr þeim og eru mjög góð :)

Mynd


Vill helst ekki tappa, hef ekki góða reynslu af þeim plús hljóðeinagra ekki vel.

Re: Heyrnatól fyrir ipod.

Sent: Þri 26. Okt 2010 16:24
af Hvati
Tiesto skrifaði:Vill helst ekki tappa, hef ekki góða reynslu af þeim plús hljóðeinagra ekki vel.

Rangt, tappa heyrnatól eða "in-ear" heyrnatól fylla flest út eyrnaopið og eru semi-loftþétt og hleypa þá mun minna af utanaðkomandi hljóði í eyrað heldur en venjuleg heyrnatól sem fylgja oftast með mp3 spilurum. Það tekur smá tíma til að venjast þeim samt, ég kaupi mér bara in-ear heyrnatól til að nota með mp3 spilurum.
Ég á Svona og ég elska þau.

Re: Heyrnatól fyrir ipod.

Sent: Þri 26. Okt 2010 16:47
af Halli25
ég prófaði svona um daginn, http://ht.is/index.php?sida=vara&vara=SHE4500
þau gáfu geðveikan hljóm og heyrðist ekkert frá þeim.

Re: Heyrnatól fyrir ipod.

Sent: Þri 26. Okt 2010 17:05
af TheVikingmen
Hvati skrifaði:
Tiesto skrifaði:Vill helst ekki tappa, hef ekki góða reynslu af þeim plús hljóðeinagra ekki vel.

Rangt, tappa heyrnatól eða "in-ear" heyrnatól fylla flest út eyrnaopið og eru semi-loftþétt og hleypa þá mun minna af utanaðkomandi hljóði í eyrað heldur en venjuleg heyrnatól sem fylgja oftast með mp3 spilurum. Það tekur smá tíma til að venjast þeim samt, ég kaupi mér bara in-ear heyrnatól til að nota með mp3 spilurum.
Ég á Svona og ég elska þau.


ég átti svona fyrir stuttu en hef ekki haft pening til að kaupa mér hin eftir að hundurinn eyðilagði heyrnatólin, en þetta eru bestu "MP3" heyrnatól sem völ er á ;)

Re: Heyrnatól fyrir ipod.

Sent: Þri 26. Okt 2010 17:48
af BjarkiB
Semsagt þið mælið frekar með töppum?

Re: Heyrnatól fyrir ipod.

Sent: Þri 26. Okt 2010 17:49
af hauksinick
Tiesto skrifaði:Semsagt þið mælið frekar með töppum?


Tvímælalaust..

Re: Heyrnatól fyrir ipod.

Sent: Þri 26. Okt 2010 17:50
af TheVikingmen
Tiesto skrifaði:Semsagt þið mælið frekar með töppum?


Ekki spurning ;)

Re: Heyrnatól fyrir ipod.

Sent: Þri 26. Okt 2010 17:53
af BjarkiB
En tld. er almennilegur bassi í töppunum?
Eins og er í flestum skullcandy.

Re: Heyrnatól fyrir ipod.

Sent: Þri 26. Okt 2010 17:57
af Revenant
Ég hef verið að nota þessi. Hljóma svakalega vel og eru þægileg í eyrunum í lengri tíma.

Re: Heyrnatól fyrir ipod.

Sent: Þri 26. Okt 2010 19:23
af oskar9
Sennheiser CX300II klárlega, myndi sleppa þessu scullcandy dóti nema þú sért 14 ára scene/emo krakki hehe

http://www.tolvutek.is/product_info.php ... s_id=20215

Re: Heyrnatól fyrir ipod.

Sent: Þri 26. Okt 2010 19:26
af BjarkiB
oskar9 skrifaði:Sennheiser CX300II klárlega, myndi sleppa þessu scullcandy dóti nema þú sért 14 ára scene/emo krakki hehe

http://www.tolvutek.is/product_info.php ... s_id=20215


Er reyndar 14 ára en efast með þetta seinna.

Re: Heyrnatól fyrir ipod.

Sent: Þri 26. Okt 2010 19:28
af oskar9
Revenant skrifaði:Ég hef verið að nota þessi. Hljóma svakalega vel og eru þægileg í eyrunum í lengri tíma.



Er virkilega einhver að versla headphona hjá Pfaff, oft nokkrum þúsundum dýrari en hjá tölvubúðum.

HD595 kostar 38 þús hjá pfaff en 35 þús hjá tolvutek og tölvulistanum.

Why ??? :roll: :roll:

Re: Heyrnatól fyrir ipod.

Sent: Þri 26. Okt 2010 19:29
af oskar9
Tiesto skrifaði:
oskar9 skrifaði:Sennheiser CX300II klárlega, myndi sleppa þessu scullcandy dóti nema þú sért 14 ára scene/emo krakki hehe

http://www.tolvutek.is/product_info.php ... s_id=20215


Er reyndar 14 ára en efast með þetta seinna.


ef þú efast um þetta seinna sem ég nefndi þá kaupirðu ekki skullcandy hehe heldur færðu þér klárlega sennheiser

Re: Heyrnatól fyrir ipod.

Sent: Þri 26. Okt 2010 19:31
af BjarkiB
oskar9 skrifaði:
Tiesto skrifaði:
oskar9 skrifaði:Sennheiser CX300II klárlega, myndi sleppa þessu scullcandy dóti nema þú sért 14 ára scene/emo krakki hehe

http://www.tolvutek.is/product_info.php ... s_id=20215


Er reyndar 14 ára en efast með þetta seinna.


ef þú efast um þetta seinna sem ég nefndi þá kaupirðu ekki skullcandy hehe heldur færðu þér klárlega sennheiser


Já, hef góða reynslu af Seinnheiser enda á ég tvö þannig stykki.

Re: Heyrnatól fyrir ipod.

Sent: Þri 26. Okt 2010 20:12
af atlih
hægt að kaupa bleik loðin skull candy, sem gerir það að flottustu headphoneum sem er völ á. Skull candy hljómar líka margfalt betur en ég hafi átt von á. Ég mæli nánanst með öllum töppum, fann það bara leið og ég prufaði þannig að bassinn hljómaði betur en ég hafði nokkurntíiman heyrt í svona smáhátalara headphonum + að það einangraði líka utanaðkomandi hjóð að enhverju leiti sem mér fannst alveg vanta í þessi headphone sem fylgja með rafvörum. á sjálfur pioneer sem eru skítsæmileg. Vinur minn á svona sennheiser, skástu smáhátalara headphone sem ég hef prufað hingað til. sennheiser eru eiginlega ownage ef maður pælir í verð saman við gæði.

Re: Heyrnatól fyrir ipod.

Sent: Þri 26. Okt 2010 22:16
af GuðjónR

Re: Heyrnatól fyrir ipod.

Sent: Mið 27. Okt 2010 09:11
af IL2
Bassin fer eftir töppunum sem fylgja þeim og hversu vel þeir ná að fylla út í eyrun. Þú þarft að prófa þig áfram með þá, jafnvel nota sitthvora stærðina og sumir geta aldrei vanist þvi að vera með þessa gerð af heyrnartólum til lengdar.

http://www.earphonesolutions.com/cocatiforum2.html

Þetta eru líklega bestu tapparnir sem þú færð og þægilegustu.

Sé að þú átt Px 100. Hvað með PX 200? Sömu driverar nema að þau eru lokuð og ætti því ekki að heyrast eins mikið út frá þeim.