Síða 1 af 2

Your computer history?

Sent: Lau 23. Okt 2010 14:41
af rapport
Datt í hug út frá annarri umræðu að starta þessari.

Hvaða tölvur hefur þú átt í gegnum tíðina sem "mörkuðu" einhver tímamót?

Fyrir mitt leiti:

1) Macintiosh Plus, 40Mb Cutting Edge diskur = Fyrsta heimilistölvan. (myndin er nkl. eins og okkar var)

Mynd

2) Macintosh Colour Classic, 80Mb diskur = Fyrsta tölvan mín.

Mynd

3) Tulip vision line ds/5 = Fyrsta heimilistölvan sem fór á netið, 56K módem.

4) Gateway (eina sem ég man er, diskettudrif, cd drif sem opnaðist fram og mið sem stóð á "Made for windows 2000"

5) Mitac MiNote 8089 (minnir mig) = Fyrsta fartölvan mín.

Mynd

6) Asus p5K-deluxe, q6600 G0, Thermaltake Kandalf kassi (tölvan mín í dag) = fyrsta fjölkjarna tölvan í mín.

Það er hálf kjánalegt að hugsa til þess að fyrir rétt rúmum 20 árum þá var maður hangandi með bróður sínum spilandi Arkanoid hálfu næturnar á Mac Plus.

Krakkarnir í dag gera þetta öðruvísi... 8-[

Re: Your computer history?

Sent: Lau 23. Okt 2010 15:15
af Benzmann
ég átti eina svona Tulip Vision line og á hana enn !

það er 5.25 tommu harður diskur í henni, 4 gb á stærð og var úr áli :D og 32mb RAM svo í henni. hah !

kveikti á henni nýlega, var með windows 95 á henni :P


svo átti ég eina á undan henni sem var með Windows 3 á henni

Re: Your computer history?

Sent: Lau 23. Okt 2010 18:29
af Daz
4GB!!! Mín fyrsta var víst með 240 mb disk :(

(Ambra Hurdla (IBM) 486DX 33MHZ með 2 MB af minni. Fann enga mynd :( )

Re: Your computer history?

Sent: Lau 23. Okt 2010 18:33
af Danni V8
Shii ég legg ekki svona hluti á minnið. Eina sem ég man frá fyrstu tölvunni var að það var EKKERT hægt að gera í henni nema skrifa og síðan bilaði H takkinn svo það kom bara H þegar maður ætlaði að skrifa. Man líka hvað öll fjölskyldan stóð uppúr sófanum inní stofu og inn í tölvuherbergi þegar pabbi fékk hljóð til að virka í tölvunni í fyrsta skiptið, það var epic!

Re: Your computer history?

Sent: Lau 23. Okt 2010 18:47
af andribolla
Stóri Bróðir minn átti eina svona Amstrad 464
og það var svo gaman að hlaða leikjunum inn með kasetum !!

Mynd

http://en.wikipedia.org/wiki/Amstrad_CPC#CPC464_.281984.29

Re: Your computer history?

Sent: Lau 23. Okt 2010 18:58
af Sydney
Djöfull er ég ungur, fyrsta tölvan mín var Pentium II :/

Re: Your computer history?

Sent: Lau 23. Okt 2010 19:07
af valdij
Fyrsta tölvan sem ég eignaðist var gamla heimilistölvan en fjölskyldan var ansi fljót að kaupa sér tölvu. Fyrsta vélin okkar var með Windows 95, seinna meir fékk tölvuna gefins og kom þá út Windows 98 út á henni.

Ég uppfærði vélina og fékk mér þá Pentium III 800mhz örgjörva, 256ram og 16mb Vodoo Banshee skjákort (eina sem ég á enn úr tölvunni)

Eftir það komu svo þónokkrar uppfærslur en tölvan sem ég hélt lang mest uppá og entist lengst var síðasta vélin mín Shuttle XPC (AMD) tölva. AMD 3500+ Radeon X800XT PE, 1gb OCZ Ram og WD raptor 84gb diskur. Entist mér í tæp 4 ár, þurfti ekki að formatta einu sinni sló virkilega ekki fail-púst meðan ég átti hana og algjör snilld að fara úr stóru Dragon kössunum yfir þessa litlu kassa sem fór ekkert fyrir. Spilaði lika alla þessa leiki sem ég spilaði þá meira en 100% cs 1.6, bf:1942, TF:2 og annað slíkt.

Uppfærði svo núna á þessu ári nýja, tiltölulega high-end vél þar sem mig langaði að geta spilað eitthvað af þessum nýjustu leikjum í bestu mögulegu gæðum.

Re: Your computer history?

Sent: Lau 23. Okt 2010 20:18
af Klemmi
Mín fyrsta vél var Mitac en man ekki týpunúmerið. Hún var 66MHz 486 með 64MB minni og réði þokkalega við Windows 95. Hana keypti ég notaða en fékk helminginn lánaðan hjá pabba á þeim tíma, borgaði sjálfur heilar 16þús. krónur út og pabbi aðrar 16þús og fylgdi allt með, skjár (14" Mitac), lyklaborð og mús :)

Þetta var gert svo pabbi fengi að hafa sína tölvu í friði, en það hefur alltaf verið til tölva á heimilinu síðan ég man eftir mér og jafn fram netið alveg frá því að Margmiðlun var stofnuð á sínum tíma :) Var ekki lengi þá að fylla tölvuna af leikjum sem hægt var að sækja af netinu, þurfti að biðja ósköp fallega um að fá að sækja 2MB leik einhvern sunnudagsmorguninn, þegar það var guðs gjöf ef maður náði 2-3kB stöðugum hraða í downloadinu :japsmile

Annars þá er enn fyrsti harði diskurinn sem þetta heimili eignaðist til hér og virkar, 20MB diskur úr gamallri Macintosh vél sem síðar var settur í flakkarabox :P

Re: Your computer history?

Sent: Lau 23. Okt 2010 20:35
af andribolla
Fysta tölvan hans pabba
með 9mb hörðum disk ;)
fékk hana á kaupleigu 1976

Mynd
http://www-03.ibm.com/ibm/history/exhibits/rochester/rochester_4017.html

Re: Your computer history?

Sent: Lau 23. Okt 2010 21:43
af hagur
Látum okkur nú sjá ...

Fyrsta tölvan, fékk hana í fermingargjöf. Atari 1024 ST, lítið sem ekkert minni, enginn harður diskur :-) Var þó með innbyggð MIDI tengi og því mikið notuð af þeim sem tengdu hljóðfæri við tölvurnar. Það var einmitt það sem ég gerði og notaði hana mest í.

Svo eignaðist ég Trust Pentium 100, með 8MB minni og hörðum diski sem var heilt gígabæti. Svo var hún með 5x geisladrifi sem var bylting á þeim tíma þegar nánast allar aðrar tölvur voru bara með 4x \:D/ Win 95 ...
Þessa vél overclockaði ég svo upp í 120MHz og svo uppfærði ég hana margoft, 32MB minni, 6.4GB diskur, svo fór ég upp í AMD 233MHz, smellti svo í hana Celeron 300A klassíkinni og overclockaði í 450MHz.

Svo hélt upgreidið áfram ... AMD Athlon 1800+ o.fl. o.fl. man hreinlega ekki hvernig það allt endaði.

Svo fékk ég mína fyrstu fartölvu, Mitac eitthvað, með 700MHz celeron og 14" skjá.

Svo kom annar laptop, HP nx7000 sem er enn í fullu fjöri, að verða 7 ára gamall.

Núverandi tölvurnar mínar má sjá í undirskriftinni minni, þær eru c.a 2 ára held ég.

Re: Your computer history?

Sent: Lau 23. Okt 2010 21:56
af sxf
Hmmm, fyrsta tölvan... :-k

AMD 4200+
320gbhdd
2gb vinnsluminni
geforce 7600 skjákort

úff, maður er orðinn svo gamall. ;)

Re: Your computer history?

Sent: Lau 23. Okt 2010 22:02
af Glazier
Fyrsta tölvan mín var nú með 9600 GT 2,5 GHz amd örgjörva, 4 gíg í vinnsluminni og 500 GB hdd :roll:

Re: Your computer history?

Sent: Lau 23. Okt 2010 22:16
af sakaxxx
mín fyrsta sem ég borgaði fyrir sjálfur árið 2000 var intel p4 1300mhz 128mb ram 20gb hdd 16 mb skjákort, 17 tommu crt keypt í bt á 69000 átti hana í 3 ár

Re: Your computer history?

Sent: Lau 23. Okt 2010 22:31
af biturk
þetta var fyrsta tölvan á heimilinu mínu, fengum hana notaða frá frænda okkar
Mynd

var með vga skjá og læti, man hvað það var stundum gaman að fínstilla litina þegar þeir duttu út :feisty

síðann var það pentium 1 tölva með litlu dóti sem ég endurlífgaði fyrir nokktum mánuðum

svo hafa þær verið nokkrar í gegnum tíðinua eftir það


en það besta sem ég hef átt í gegnum tíðina var gamla utanáliggjandi 28,8 kb módemið.....ef þú hreifðir þig í 2m radíus í kringum það eða andaðir of þungt hliðiná því þá datt netið út :lol:

þarf að taka mynd af því við tækifæri, þetta er svo gamalt að netið finnur ekki mynd af því......en það var geðveikt töff!

náði samt að downloada heilum geisladisk á því..........tók reindar hátt í mánuð með nokkrum hléum........en það tókst :lol:

Re: Your computer history?

Sent: Lau 23. Okt 2010 22:44
af Hjaltiatla
Fyrsta tölvan á heimilinu þegar maður var krakki var
386 PC Computer System DOS 6.2 Windows 3.1
Dual 5.25" & 3.5" Floppy Drive 174mb Hard Drive 8mb RAM
svona kvikindi:
http://cgi.ebay.com/complete-386-PC-Computer-System-DOS-6-2-Windows-3-1-/150498075730?pt=LH_DefaultDomain_0&hash=item230a626452

Re: Your computer history?

Sent: Lau 23. Okt 2010 23:38
af appel
Sinclair Spectrum var eiginlega sú fyrsta, og spilaði aðallega leiki á henni:
Mynd

Næsta var IBM XT, sem ég notaði þó nokkuð í allskyns leiki og í bara allskonar fikt, teikniforrit var í henni og sennilega vakti það áhuga minn á tölvugrafík.
Mynd

Svo var það eiginlega tölvan sem skipti sköpun, Trust 486 tölva. Hún var svosem ekkert spes, 8MB minni, 14" skjár. En hún var með Internetið, eða Alnetið einsog það kallaðist í þá daga. 14.4 kbps módem, og 20metra löng símasnúra upp 2 hæðir tryggði að maður datt út á 10 mínútna fresti nánast. En þetta opnaði augun mín, og lærði ég allt sem ég gat lært á þessa tölvu þá. Endalaust fikt á þessari fjölskyldutölvu, sem enginn í fjölskyldunni fékk að nota nema ég, því hún var alltaf í rugli útaf fiktinu :) En maður lærði myndvinnslu og forritun á þessum tíma. Það er það sem ég gerði í þá daga, og geri enn í dag!

Svo komu margar tölvur sem ég man ógreinilegra eftir. En þessar þrjár hér að ofan lifa í minningunni.

Allar tölvur sem ég hef keypt hafa verið frábærar, í raun hef ég ekki enn lent á vél sem hefur gert mér lífið leitt.

Re: Your computer history?

Sent: Sun 24. Okt 2010 01:41
af Minuz1
http://www.retrothing.com/2006/06/commodores_inva.html

Mynd

Introduced: June 1980
Released: January 1981
Price: US $299
CPU: MOS 6502, 1MHz
RAM: 5K (3.5K for the user)
Display: 22 X 23 text
176 X 184, 16 colors max
Ports: composite video
joystick, cartridge, user port
serial peripheral port
Peripherals: cassette recorder
printer, modem
external floppy drive
OS: ROM BASIC

C64
C Amiga 512
Fékk einhvera drasl Apple tölvu sem v
486 SX 25
Pentium
PS3

Re: Your computer history?

Sent: Sun 24. Okt 2010 13:31
af rapport
Hjaltiatla skrifaði:Fyrsta tölvan á heimilinu þegar maður var krakki var
386 PC Computer System DOS 6.2 Windows 3.1
Dual 5.25" & 3.5" Floppy Drive 174mb Hard Drive 8mb RAM
svona kvikindi:
http://cgi.ebay.com/complete-386-PC-Computer-System-DOS-6-2-Windows-3-1-/150498075730?pt=LH_DefaultDomain_0&hash=item230a626452


Félagi minn átti svona, shit hvað það mér fannst cool þessi on/off takki...

Minnir að við höfum spilað UFU: Enemy unknown á hana (fjórir vinir saman, tveir karlar í flauginni pr. mann)...

Og svo "Epic pinball" geðveikur leikur...

En vá hvað smá aldursmunur breytir miklu, ég var í 7.bekk þegar ég fór og fjárfesti í Colour Classic vélinni, fór og tók skuldabréf í 18 mánuði fyrir 55.þ kr. eftir að hafa lagt allan 45þ. kr. sparnaðinn minn í vélina.

Hún var 16Mhz en ég lét seinna upgrade-a hana þannig að hún gat sýnt 16.000 líti en ekki bara 256 liti (á öllum 10" skjánnum :roll: )

Það er bara spes að hugsa til þess að nýjasta kynslóðin getur líklega skoðað meiri upplýsingar og fiktað meira á einum degi í dag en maður gat á mánuði 1990...

Man ég keypti þennan á 8þ. kr. og hann var á 8 eða 12 HD diskettum...

Mynd

Re: Your computer history?

Sent: Sun 24. Okt 2010 14:02
af Klaufi
Rfja upp tölvurnar síðar, er á hraðferð, en...

Þegar ég sá þennan þráð, þá mundi ég eftir að allavega 2-3 fyrstu tölvurnar mínar voru með "Turbo" takka \:D/
Ef ég man rétt þá var slökkt á turboinu til að niðurklukka örgjörvan...

Re: Your computer history?

Sent: Sun 24. Okt 2010 14:10
af Black
úff this takes me back, :-k

Man að fyrsta tölvan sem kom inná heimilið var í minni eign og það var fyrir 3árum

Amd dual core 4200+ 2.2ghz 2gb ddr2 minni,9600gt skjákort,320gb stækkaði síðan um mig í vikunni og fékk mér

Intel(R) Core(TM)2 Quad CPU Q6600 @ 2.40GHz - msi P6N Diamond- 2x 1GB Corsair XMS Dominator 1066MHz - GeForce 8800 GTS - 700w forton - 22" acer WS - 19" samsung syncmaster WS - G15 carbon fiber - Sentinel advanced - steelseries- 2x 150gb raptor - 1x 320gb - WD 2x 500gb - WD x1 700gb WD :ninjasmiley

Re: Your computer history?

Sent: Sun 24. Okt 2010 14:31
af appel
Black skrifaði:úff this takes me back, :-k

Man að fyrsta tölvan sem kom inná heimilið var í minni eign og það var fyrir 3árum

Amd dual core 4200+ 2.2ghz 2gb ddr2 minni,9600gt skjákort,320gb stækkaði síðan um mig í vikunni og fékk mér

Intel(R) Core(TM)2 Quad CPU Q6600 @ 2.40GHz - msi P6N Diamond- 2x 1GB Corsair XMS Dominator 1066MHz - GeForce 8800 GTS - 700w forton - 22" acer WS - 19" samsung syncmaster WS - G15 carbon fiber - Sentinel advanced - steelseries- 2x 150gb raptor - 1x 320gb - WD 2x 500gb - WD x1 700gb WD :ninjasmiley


Já, sennilega hægt að finna þessa á tölvuþjóðminjasafninu í dag. ](*,)

Re: Your computer history?

Sent: Sun 24. Okt 2010 19:02
af Sydney
Fyrsta tölvan sem ég átti sjálfur:

Pentium III 600MHz
256MB RAM.
GeForce 2 MX400

Keyrði BF1942 fínt ;)

Síðan fékk ég í fermingargjöf:
AMD Athlon 64 3000+
512MB RAM (seinna 1.5GB)
ATi Radeon X300

Eftir fyrsta sumarið mitt í alvöru vinnu fékk ég mér þessa elsku:

Gigabyte P35-DS3
Core 2 Duo E6600
2GB RAM
8800GTX

Er ennþá að nota síðustu vélina, en búinn að uppfæra hana talsvert, einasta sem er ennþá það sama og upprunalega vélin er kassinn (P182 FTW) og aflgjafinn.

Re: Your computer history?

Sent: Sun 24. Okt 2010 23:55
af rapport
Amstrad...

Voru það ekki diskettur sem þurfti að snúa við?

p.s. Amstrad var einusinni "eina vitið að kaupa" þetta var framtíðin...

http://www.youtube.com/watch?v=uJxKBeEvtew&feature=related

Re: Your computer history?

Sent: Mán 25. Okt 2010 00:21
af Benzmann
var núna rétt í þessu að taka upp mína fyrstu fartölvu sem ég eignaðist en það er

Panasonic Toughbook CF-45
Mynd

Örri: Intel Pentium MMX 233mhz
RAM: 96mb
HDD 3.61Ghz
Stýrikerfi: Windows 98

held að þessi vél gæti verið eitthvað um 4-5 kílo
13tommu skjár og öll úr blikki, og gefur mér rafstuð þegar ég held á henni

en virkar eins og ný enþá :D

Re: Your computer history?

Sent: Mán 25. Okt 2010 00:33
af Benzmann
benzmann skrifaði:var núna rétt í þessu að taka upp mína fyrstu fartölvu sem ég eignaðist en það er

Panasonic Toughbook CF-45
Mynd

Örri: Intel Pentium MMX 233mhz
RAM: 96mb
HDD 3.61Ghz
Stýrikerfi: Windows 98

held að þessi vél gæti verið eitthvað um 4-5 kílo
13tommu skjár og öll úr blikki, og gefur mér rafstuð þegar ég held á henni

en virkar eins og ný enþá :D


virkar ekki eins fullkomlega eins og ég hélt, hún var að Bluescreena rétt í þessu haha


Kóði: Velja allt

"Windows"
A Fatal Exception of OE has occurred at 0028:FF0F4A60. The Current Application will be terminated.

* Press any key to terminate the current application
* Press CTRK+ALT+Del again to restart your computer. You will loose any unsaved information in all applications
                                                           Press Any Key To Continue_


þetta kom við það að opna Windows Media player haha