Síða 1 af 4

Stef vill rukka alla netnotendur

Sent: Fös 08. Okt 2010 08:20
af OverClocker
http://eyjan.is/2010/10/08/stef-vill-ru ... tonlistar/

Þarf ekki að fara að stoppa þetta lið????

Re: Stef vill rukka alla netnotendur

Sent: Fös 08. Okt 2010 08:30
af GuðjónR
LOL þú varst aðeins á undan mér að henda þessu inn, ég var að lesa þetta í Fréttablaðinu.
Þeir heimta þetta af því að þeir komust upp með allt hitt, þetta er eins og öll önnur græðgi, á sér engin takmörk.

Re: Stef vill rukka alla netnotendur

Sent: Fös 08. Okt 2010 08:42
af Hjaltiatla
Manni finnst þetta vera MJÖG ferkantaður hugsunarháttur hjá Stef mönnum.
](*,)

Re: Stef vill rukka alla netnotendur

Sent: Fös 08. Okt 2010 08:53
af GuðjónR
Hjaltiatla skrifaði:Manni finnst þetta vera MJÖG ferkantaður hugsunarháttur hjá Stef mönnum.
](*,)


"Vilja leggja gjald á til að sporna við ólöglegu niðurhali tónlistar"...
Og hvernig á gjaldið að koma í veg fyrir það?
Þarna er bara verið að þvinga alla til að KAUPA tónlist, hvort sem þeim líkar betur eða verr.
For crying out loud! ég get bara talað fyrir sjálfan mig en downloda ALDREI tónlist.
Og ég veit um fullt af fólki sem gerir það ekki.

Re: Stef vill rukka alla netnotendur

Sent: Fös 08. Okt 2010 09:20
af Cascade
Það sem mig langar að sjá, er hversu miklar tekjur (velta) STEF er með í dag og útlistun á hvernig þeir verja því


Að mínu mati eru þetta lögfræðimenntaðir glæpamenn (Heyrði einu sinni að starfsmenn STEF væru nánast bara allt lögmenn)

Þegar maður hugsar til hversu gegnumsýrt þetta er, þá er ekki annað hægt en að verða reiður, t.d. ef ég myndi syngja mín eigin lög á opinberum vettvang, þá þyrfti ég að borga STEF pening?


En já, mig myndi lang mest langa sjá einhvern fróðan mann sem er góður penni til að skrifa góða grein um STEF í fjölmiðja og lýsa þeim

Re: Stef vill rukka alla netnotendur

Sent: Fös 08. Okt 2010 09:38
af appel
þar sem meðal annars kom fram að lögreglueftirlit með ólöglegu niðurhali tónlistar væri bæði kostnaðarsamt og tímafrekt.


Semsagt, það eru einu tvær ástæðurnar fyrir því að ekki er farið í lögreglueftirlit með nettraffík að mati STEFS. Annars væri það sennilega í lagi fyrir þeim. Nevermind að slíkt væri meiriháttar skref í átt að lögregluríki.

Ég meina, hví setja þeir ekki bara STEF gjöld á rafmagn? Ég meina, þú þarft rafmagn til að spila allt sem þú niðurhalar.

Re: Stef vill rukka alla netnotendur

Sent: Fös 08. Okt 2010 09:52
af AntiTrust
ARGH! Ég veit að ég ætti að vera reiður en ég get ekki hætt að hlægja!

Lögfræðingar? Með hvað, trúðaskap sem áherslu?

Re: Stef vill rukka alla netnotendur

Sent: Fös 08. Okt 2010 10:14
af Frost
Æji ég ætlaði líka að senda þetta inn. Annars finnst mér þetta svo mikið bull. Hvernig ætla þeir að stoppa ólöglegt niðurhal með því að hækka kostnaðinn á nettengingum?

Re: Stef vill rukka alla netnotendur

Sent: Fös 08. Okt 2010 10:15
af AntiTrust
Frost skrifaði:Æji ég ætlaði líka að senda þetta inn. Annars finnst mér þetta svo mikið bull. Hvernig ætla þeir að stoppa ólöglegt niðurhal með því að hækka kostnaðinn á nettengingum?


Einfalt. Þeir gera það ekki. Þetta er hræðsluáróður af misheppnuðust gerð, sem hefur yfirleitt verið þeirra eina vonlausa vopn.

Re: Stef vill rukka alla netnotendur

Sent: Fös 08. Okt 2010 10:15
af emmi
Ég sæki aldrei tónlist ólöglega, nota bara Spotify. :)

Re: Stef vill rukka alla netnotendur

Sent: Fös 08. Okt 2010 10:30
af dori
Sjitt... Ég sæki aldrei tónlist ólöglega á netinu, hlusta bara á löglegar streymiþjónustur og youtubes. Ég brenni ALDREI tónlist á geisladiska. Ég nota þá nær eingöngu til að brenna opinn hugbúnað og persónuleg gögn svosem fjölskyldu myndir/myndbönd.

Hvað ætli maður sé búinn að borga þessum aulum mikinn pening fyrir ímyndaða glæpsamlega hegðun mína, eða hvað sem þeir vilja kalla þetta?

Re: Stef vill rukka alla netnotendur

Sent: Fös 08. Okt 2010 10:31
af Frost
AntiTrust skrifaði:
Frost skrifaði:Æji ég ætlaði líka að senda þetta inn. Annars finnst mér þetta svo mikið bull. Hvernig ætla þeir að stoppa ólöglegt niðurhal með því að hækka kostnaðinn á nettengingum?


Einfalt. Þeir gera það ekki. Þetta er hræðsluáróður af misheppnuðust gerð, sem hefur yfirleitt verið þeirra eina vonlausa vopn.


Já, af hverju sleppa þeir ekki bara þessu væli. Seinast þegar ég vissi þá hefur ekkert svona gengið hjá þeim. Mér finnst að þeir ættu bara hætta að eyða pening í þetta.

dori skrifaði:Sjitt... Ég sæki aldrei tónlist ólöglega á netinu, hlusta bara á löglegar streymiþjónustur og youtubes. Ég brenni ALDREI tónlist á geisladiska. Ég nota þá nær eingöngu til að brenna opinn hugbúnað og persónuleg gögn svosem fjölskyldu myndir/myndbönd.

Hvað ætli maður sé búinn að borga þessum aulum mikinn pening fyrir ímyndaða glæpsamlega hegðun mína, eða hvað sem þeir vilja kalla þetta?


Ég sæki reyndar eitt og eitt lag af youtube með Video2Mp3. Það hefur aldrei verið í neinu miklu magni sem ég sæki tónlist.

Ég brenni heldur aldrei geisladiska, nema kannski af og til memtest og þannig.

Re: Stef vill rukka alla netnotendur

Sent: Fös 08. Okt 2010 10:40
af start
Ég hef verið að borga ca 30þús á ári til STEF vegna tónlistarflutnings í verslun minni.

Eftir að hafa lesið þessa frétt tilkynnti ég þeim formlega að engin tónlist yrði spiluð hér 2011. Lenti reyndar á ágætismanni sem reyndi nú að verja þetta nýja gjald á þeirri forsendu að internetveitendur væru að græða svo mikið á auknu downloadi!?

Re: Stef vill rukka alla netnotendur

Sent: Fös 08. Okt 2010 10:43
af GuðjónR
start skrifaði:Ég hef verið að borga ca 30þús á ári til STEF vegna tónlistarflutnings í verslun minni.

Eftir að hafa lesið þessa frétt tilkynnti ég þeim formlega að engin tónlist yrði spiluð hér 2011. Lenti reyndar á ágætismanni sem reyndi nú að verja þetta nýja gjald á þeirri forsendu að internetveitendur væru að græða svo mikið á auknu downloadi!?


Já sæll!!!

Re: Stef vill rukka alla netnotendur

Sent: Fös 08. Okt 2010 10:48
af biturk
start skrifaði:Ég hef verið að borga ca 30þús á ári til STEF vegna tónlistarflutnings í verslun minni.

Eftir að hafa lesið þessa frétt tilkynnti ég þeim formlega að engin tónlist yrði spiluð hér 2011. Lenti reyndar á ágætismanni sem reyndi nú að verja þetta nýja gjald á þeirri forsendu að internetveitendur væru að græða svo mikið á auknu downloadi!?



KUDOS fyrir þetta skref, ég mæli með að allir aðilar sem geta geri það sama og start gerði.


komið höggi á þessi helvíti, það er löngu tímabært að handtaka þessa glæpamenn!

Re: Stef vill rukka alla netnotendur

Sent: Fös 08. Okt 2010 10:50
af GullMoli
Mynd

Re: Stef vill rukka alla netnotendur

Sent: Fös 08. Okt 2010 10:56
af AntiTrust
Þetta er bara svo mikið bull. Það er í þeirra höndum (STEF, MPAA, öll höfundarréttafyrirtæki) að búa til tækni sem gerir ólöglega afritun ómögulega.

En nei, þessi fyrirtæki eyða frekar milljörðum í að eltast við eina og eina einstæða mömmu og krakkana þeirra sem eru að sækja ólöglega, margir hverjir hafa ekki einu sinni siðferðislegan þroska til þess að hversu alvarlegt brotið er, og rukka þá 250.000USD eða fangelsi. Mig minnir að MPAA hafi gefið út statement á síðasta ári og sagt hreinlega að þeir séu hættir að berjast við stóru fiskana, það taki hreinlega of mikinn tíma og peninga og skili litlum niðurstöðum. Enda þarf ekki meira en að benda á fjölda torrent síðna, DC hubba, usenet hópa og fleira í þeim dúr til að sýna fram á árangursleysið.

Þetta væri svipað og Microsoft myndi hreinlega gefast upp á öllum genuine/activation leiðum hjá sér, og nota frekar peningana í að lögsækja þá sem nota ólöglegan hugbúnað frá þeim. En þeir sjá gróða í því að halda uppi þessum vörnum - og eru að skila yfir $6Bn í hreinum tekjum hvern ársfjórðung fyrir vikið.

Siðferðisblinda eða ekki, mannfólkið er svo langt frá því að vera með það eðli í sér að taka ekki það sem býðst fríhendis. Fyrir flesta sem sækja ólöglega er þetta engu meira brot en að labba á ská yfir götu.

Og hagnaður fyrir ISPana? Já, þess vegna hættu þeir með ótakmarkað niðurhal, þeir voru að hagnast alltof mikið á því. Jahérna hér.

Re: Stef vill rukka alla netnotendur

Sent: Fös 08. Okt 2010 11:03
af gardar
Verður þá löglegt að hala niður músík? Eða ætla þeir að rukka fyrir þetta og halda því svo ennþá fram að það sé ólöglegt að hala henni niður?


Annars er merkilegt að það eigi að refsa öllum internetnotendum fyrir glæp sem sumir þeirra fremja. Svona rétt eins og ef öllum bíleigendum yrði send stöðumælasekt mánaðarlega, því sumir leggja ólöglega.

Re: Stef vill rukka alla netnotendur

Sent: Fös 08. Okt 2010 11:40
af GuðjónR
Stefgjöld á kúbein!
Kúbein er hægt að nota til að brjótast inn í tónlistarverslanir og stela þaðan diskum með tónlist.

Re: Stef vill rukka alla netnotendur

Sent: Fös 08. Okt 2010 11:42
af AntiTrust
GuðjónR skrifaði:Stefgjöld á kúbein!
Kúbein er hægt að nota til að brjótast inn í tónlistarverslanir og stela þaðan diskum með tónlist.


Stefgjöld á bíla. Það er hægt að keyra í burtu úr tónlistarversluninni.

Re: Stef vill rukka alla netnotendur

Sent: Fös 08. Okt 2010 11:50
af Benzmann
þetta eru vinstri grænir

Re: Stef vill rukka alla netnotendur

Sent: Fös 08. Okt 2010 12:02
af ManiO
AntiTrust skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Stefgjöld á kúbein!
Kúbein er hægt að nota til að brjótast inn í tónlistarverslanir og stela þaðan diskum með tónlist.


Stefgjöld á bíla. Það er hægt að keyra í burtu úr tónlistarversluninni.



Stefgjöld á föt þar sem að þau gera manni kleyft að hylja sig á meðan maður stelur tónlistinni. Stefgjöld á mat þar sem að hann veitir manni orku sem að gerir manni kleyft að stela tónlist.

Re: Stef vill rukka alla netnotendur

Sent: Fös 08. Okt 2010 12:04
af AntiTrust
ManiO skrifaði:Stefgjöld á föt þar sem að þau gera manni kleyft að hylja sig á meðan maður stelur tónlistinni. Stefgjöld á mat þar sem að hann veitir manni orku sem að gerir manni kleyft að stela tónlist.


Nei nú ertu kominn í ruglið? Föt? Mat?! Allir self-respecting þjófar stela naktir á fastandi maga.

Nutter.

Re: Stef vill rukka alla netnotendur

Sent: Fös 08. Okt 2010 12:14
af Frost
En hvernig mun þessi vitleysa enda?

Re: Stef vill rukka alla netnotendur

Sent: Fös 08. Okt 2010 12:16
af Zaphod
Þetta er kallað "Íslenska leiðin" bara hafa allt hérna nógu fjandi dýrt. Ég myndi bara byrja að stela tónlist af netinu ef þetta verður sett á. Fyrst maður myndi borga stefgjöld af tengingunni þá hlýtur það er vera löglegt.