Síða 1 af 2

Hvar ertu með GSM áskrift?

Sent: Þri 05. Okt 2010 20:56
af GuðjónR
Smá forvitni í gangi.

Re: Hvar ertu með GSM áskrift?

Sent: Þri 05. Okt 2010 20:58
af vesley
Nova.

Einfaldlega vegna þess að meirihluti fólks sem ég hringi í er hjá Nova, þjónustan er ágæt og inneignin hjá mér endist í ágætis tíma.

Var hja símanum og mér fannst inneignin þar fara á nánast sömu sekúndunni og ég hafði fyllt á hann.

Leiðinlega dýrt að hringja í fólk sem er hjá Nova þegar maður er í öðru símafyrirtæki.

Re: Hvar ertu með GSM áskrift?

Sent: Þri 05. Okt 2010 21:03
af BjarkiB
vesley skrifaði:Nova.

Einfaldlega vegna þess að meirihluti fólks sem ég hringi í er hjá Nova, þjónustan er ágæt og inneignin hjá mér endist í ágætis tíma.

Var hja símanum og mér fannst inneignin þar fara á nánast sömu sekúndunni og ég hafði fyllt á hann.

Leiðinlega dýrt að hringja í fólk sem er hjá Nova þegar maður er í öðru símafyrirtæki.


Sama hér. Flestir í Nova, svo ég fór í Nova.

Re: Hvar ertu með GSM áskrift?

Sent: Þri 05. Okt 2010 21:04
af Benzmann
nova

Re: Hvar ertu með GSM áskrift?

Sent: Þri 05. Okt 2010 21:05
af urban
vinnusíminn er hjá símanum og borgar fyrirtækið það
minn er hjá vodafone, einfaldlega af sömu ástæðu og vesley sagði
flestir sem að ég þekki eru þar, og þess vegna er ég þar

þekki sárafáa sem að eru með nova númer og ég held að flestir ef ekki allir þeirra eru með 2 síma, annan hjá nova og annan hjá einhverju öðru fyrirtæki

Re: Hvar ertu með GSM áskrift?

Sent: Þri 05. Okt 2010 21:13
af sakaxxx
byrjaði hjá tal árið 2000 búinn að vera hjá sama fyrirtæki síðan þess, heitir vodafone núna

Re: Hvar ertu með GSM áskrift?

Sent: Þri 05. Okt 2010 21:20
af hagur
Vodafone.

Fyrirtækið sem ég vinn hjá borgar símann fyrir mig og það er með allt sitt hjá Voda.

Hef ekki yfir neinu að kvarta.

Re: Hvar ertu með GSM áskrift?

Sent: Þri 05. Okt 2010 22:03
af valdij
NOVA,

Einfaldlega útaf allir vinirnir ásamt kærustu eru hjá NOVA. Einu skiptin sem ég nota inneign er til að hringja í foreldra / taxa / panta pizzu eða álika.

Búinn að vera hjá NOVA í 23 mánuði, og ég hef samtals sett inn á mig 12.500 krónur í inneign sem gerir ca. 543kr á mánuði sem ég tel vera nánast eins lágt og þú kemst með símreikningin þinn.

Þjónustan þar ekkert verið tip-top en hef yfir engu að kvarta þar sem ég hef í raun engan símreikning til að tala um. Ef það væri frítt að hringja í nova-nova og frítt að hringja heim til þín þá væri þetta fullkomið.

Re: Hvar ertu með GSM áskrift?

Sent: Þri 05. Okt 2010 22:17
af rapport
NOVA...

Á sínum tíma fór öll fjölskyldan í SKO en svo þegar það breyttist í TAL og reynt var að skrúfa alla í *** með því að breyta skrefunum úr 20sek í 60sek án þess að tilkynna á lögformlegan hátt, þá kærði ég og fór í NOVA með alla stórfjölskylduna, ma, bros, konur okkar bræðra og helstu vini.

Af prinsippástæðum afþakka ég vinnusíma.

Re: Hvar ertu með GSM áskrift?

Sent: Þri 05. Okt 2010 22:27
af urban
valdij skrifaði:NOVA,

Einfaldlega útaf allir vinirnir ásamt kærustu eru hjá NOVA. Einu skiptin sem ég nota inneign er til að hringja í foreldra / taxa / panta pizzu eða álika.

Búinn að vera hjá NOVA í 23 mánuði, og ég hef samtals sett inn á mig 12.500 krónur í inneign sem gerir ca. 543kr á mánuði sem ég tel vera nánast eins lágt og þú kemst með símreikningin þinn.

Þjónustan þar ekkert verið tip-top en hef yfir engu að kvarta þar sem ég hef í raun engan símreikning til að tala um. Ef það væri frítt að hringja í nova-nova og frítt að hringja heim til þín þá væri þetta fullkomið.



já það er rosalega gott að hafa eytt rosalega litlu í inneign
en það algengasta sem að ég heyri frá nova notendum er
"má ég hringja hjá þér í XXXXX vegna þess að hann er ekki hjá nova"

eða fæ sms hæ, hringdu

semsagt eyða ekki sínum inneignum í að hringja í annað en nova.

Re: Hvar ertu með GSM áskrift?

Sent: Þri 05. Okt 2010 22:45
af rapport
Ég hringi frítt Nova í Nova...

Ég hringi nokkuð mikið og var reikning hjá Símanum 20þ+ 2005, skipti yfir Vodafone og fór niður í 12þ.

Fór í SKO þegar það byrjaði og svo í Nova þegar það byrjaði, báðir staðir = reikningur upp á c.a. 5þ. og eingögu rukkað fyrir c.a. 1/3 af símtölunum.

Ég játa að ég tala mun meira ef ég veit að símtalið er ókeypis þannig að þessi 1/3 af símtölunum eru líklega 1/5 af allri notkuninni.


En mér finnst æðislega gaman að geta sett mismunandi "hringitóna" fyrir fólk sem hringir inn.

Blákalt nota ég þetta til að koma skoðunum mínum á framfæri sbr. "Ímyndaður vinur" eða "Rétt númer" t.d. á fólk/fyrirtæki sem pirra mig.

Re: Hvar ertu með GSM áskrift?

Sent: Þri 05. Okt 2010 23:33
af gissur1
urban skrifaði:
valdij skrifaði:NOVA,

Einfaldlega útaf allir vinirnir ásamt kærustu eru hjá NOVA. Einu skiptin sem ég nota inneign er til að hringja í foreldra / taxa / panta pizzu eða álika.

Búinn að vera hjá NOVA í 23 mánuði, og ég hef samtals sett inn á mig 12.500 krónur í inneign sem gerir ca. 543kr á mánuði sem ég tel vera nánast eins lágt og þú kemst með símreikningin þinn.

Þjónustan þar ekkert verið tip-top en hef yfir engu að kvarta þar sem ég hef í raun engan símreikning til að tala um. Ef það væri frítt að hringja í nova-nova og frítt að hringja heim til þín þá væri þetta fullkomið.



já það er rosalega gott að hafa eytt rosalega litlu í inneign
en það algengasta sem að ég heyri frá nova notendum er
"má ég hringja hjá þér í XXXXX vegna þess að hann er ekki hjá nova"

eða fæ sms hæ, hringdu

semsagt eyða ekki sínum inneignum í að hringja í annað en nova.


Já vá þetta gerir mig brjálaðann, 99% af öllum sem ég þekki sem eru hjá nova eiga aldrei inneign og senda manni sms af já.is um hringja í sig en tekur ekki fram hver það er!

Annars er ég með áskrift og BIS hjá Símanum.

Re: Hvar ertu með GSM áskrift?

Sent: Þri 05. Okt 2010 23:59
af JohnnyX
Nova, nánast allir sem ég hringi í sem eru þar

Re: Hvar ertu með GSM áskrift?

Sent: Mið 06. Okt 2010 08:28
af raRaRa
Vodafone (Valdi & Freyr) - Þar sem ég fæ 1.000 kr inneign frítt á hverjum mánuði. Ég hef ekki þurft að kaupa inneign í hálft ár þó svo ég hringi mikið og á milli kerfa. Ég þurfti að kaupa inneign oftar hjá Nova og þar af leiðandi færði ég mig yfir frá Nova -> Valdi og Freyr.

Re: Hvar ertu með GSM áskrift?

Sent: Mið 06. Okt 2010 08:51
af jericho
Vodafone

er með allan pakkann þar og 5 vinir óháð kerfis gera mér kleift að hringja yfir 90% símtala minna frítt

Re: Hvar ertu með GSM áskrift?

Sent: Mið 06. Okt 2010 09:44
af Viktor
Nova.
Vil benda fólki á það að ef það er ekki með inneign getur fólk farið frítt á netið (náið í Opera í símann) og sent frítt SMS í öll kerfi í gegnum Ja.is SMS kerfið :)
T.d. "Hæ, hringdu! Kv. Malli 5812345".

Re: Hvar ertu með GSM áskrift?

Sent: Mið 06. Okt 2010 10:15
af sxf
Sallarólegur skrifaði:Nova.
Vil benda fólki á það að ef það er ekki með inneign getur fólk farið frítt á netið (náið í Opera í símann) og sent frítt SMS í öll kerfi í gegnum Ja.is SMS kerfið :)
T.d. "Hæ, hringdu! Kv. Malli 5812345".


Eða bara senda "Hringdu 5812345" í 1900. :)

Re: Hvar ertu með GSM áskrift?

Sent: Mið 06. Okt 2010 10:17
af GuðjónR
Skiptingin virðist vera nokkuð jöfn á milli Símans, VodaFone og NOVA.
Ástæðan fyrir því að ég er að spá í þetta er sú að við erum með tvo gsm síma hérna (erum hjá Símanum) og reikningurinn er alltaf 3039 kr þó það sé ekkert hringt.
Það er náttlega bara foráttu heimska að borga 36.468.- kr á ári fyrir ekkert.

Annar síminn er skráður í flokk með "3 vinir innan kerfis" 790kr og hinn er "6 vinir óháð kerfi" 1999 kr. seðilgjald 250kr. total 3039 mán. x 12= 36.468.- á ári þó símarnir séu ekkert notaðir. Reikningurinn er samt yfirleitt í kringum 4.000 á mán ~ 50.000 á ári.

Þess vegna er ég að spá í að skrá þá bara í frelsi hjá NOVA, 95% af símtölunum eru hvort sem er á milli símana tveggja.

Svo er maður með heimasíma sem kostar kringum 2500 á mán = 30.000.- á ári
Og svo er ADSL 7853 á mán x 12 = 94.236 á ári
Og síðast en ekki síst ADSL-TV = 5200 á mánuði = 62400.

Ég borga Símanum sem sagt 236.646 krónur á ári. Mér finnst það bara svakalegt.

Re: Hvar ertu með GSM áskrift?

Sent: Mið 06. Okt 2010 11:08
af urban
Sallarólegur skrifaði:Nova.
Vil benda fólki á það að ef það er ekki með inneign getur fólk farið frítt á netið (náið í Opera í símann) og sent frítt SMS í öll kerfi í gegnum Ja.is SMS kerfið :)
T.d. "Hæ, hringdu! Kv. Malli 5812345".


eða það getur bara drullast til að vera með inneign
ekki tala um að það eyði aldrei inneigninni sinni vegna þes að það lætur hringja í sig

það er einsog að fyllibytta mundi segjast ekki eyða krónu í bjór
vegna þess að hann lætur splæsa honum á sig alltaf

Re: Hvar ertu með GSM áskrift?

Sent: Mið 06. Okt 2010 11:15
af yobaby
NOVA

all the way!

Re: Hvar ertu með GSM áskrift?

Sent: Mið 06. Okt 2010 11:16
af dori
Ég er hjá Nova og fór þangað þegar rétt fyrir páska 2008 (ég man það því að ég fékk delicious páskaegg með e51 símanum mínum). Ástæðan var sú að þá voru allir sem ég hringdi í komnir þangað.
Ég valdi áskrift og meðan ég var með 12 mánaða dílinn fór ég bara uppfyrir 2000 kall á mánuði þegar ég fór til útlanda. Eftir að ég var búinn í 12 mánaða pakkanum þá droppaði reikningurinn niður í 1300-1800 kall en hefur verið að hækka svolítið og fer stundum í 3000 kall. Ég nota símann samt nokkuð mikið. Skoðaði loggana hjá mér um daginn og það er 50-60 klst sem ég hef hringt í aðra á ca. ári (geri allavega ráð fyrir því þar sem hann fór í viðgerð þar sem kerfið var sett upp aftur, uppsetningin dó bara... hann fraus alltaf eftir stuttan tíma, eftir ca. ár).

Ég HATA fólk sem sendir sms til að biðja mig um að hringja, plís ekki stinga uppá því. Það er ótrúlega aumkunarvert.

Re: Hvar ertu með GSM áskrift?

Sent: Mið 06. Okt 2010 12:54
af zedro
urban skrifaði:
Sallarólegur skrifaði:Nova.
Vil benda fólki á það að ef það er ekki með inneign getur fólk farið frítt á netið (náið í Opera í símann) og sent frítt SMS í öll kerfi í gegnum Ja.is SMS kerfið :)
T.d. "Hæ, hringdu! Kv. Malli 5812345".


eða það getur bara drullast til að vera með inneign
ekki tala um að það eyði aldrei inneigninni sinni vegna þes að það lætur hringja í sig

það er einsog að fyllibytta mundi segjast ekki eyða krónu í bjór
vegna þess að hann lætur splæsa honum á sig alltaf

Haha agjörlega sammála, einn félagi minn var alltaf að hringja kollekt í mig þangað til að
ég fékk nóg og einfaldlega hætti að svara símtölum frá honum sem voru kollekt. :twisted:

Re: Hvar ertu með GSM áskrift?

Sent: Mið 06. Okt 2010 12:56
af wicket
@GuðjónR

Sýnist þú vera í eldri áskriftum. Ég myndi tala við Símann og láta þau fara yfir þessi mál. Ég fór í Kringluna í vor og stelpan þar henti númerinu mínu inn í eitthvað kerfi og sagði að miðað við notkun mína síðustu mánuði ætti ég að vera í ákveðinni áskrift, það er held ég rétt hjá henni því ég borga minna núna en ég gerði áður.

Áskriftarleiðar símafélaganna eru mesti frumskógur í heimi.

Annars gildin reglan alltaf að maður á að vera hjá því fyrirtæki sem að flestir þeir sem maður hringir í eru hjá.

Re: Hvar ertu með GSM áskrift?

Sent: Mið 06. Okt 2010 13:00
af rapport
GuðjónR skrifaði:Skiptingin virðist vera nokkuð jöfn á milli Símans, VodaFone og NOVA.
Ástæðan fyrir því að ég er að spá í þetta er sú að við erum með tvo gsm síma hérna (erum hjá Símanum) og reikningurinn er alltaf 3039 kr þó það sé ekkert hringt.
Það er náttlega bara foráttu heimska að borga 36.468.- kr á ári fyrir ekkert.

Annar síminn er skráður í flokk með "3 vinir innan kerfis" 790kr og hinn er "6 vinir óháð kerfi" 1999 kr. seðilgjald 250kr. total 3039 mán. x 12= 36.468.- á ári þó símarnir séu ekkert notaðir. Reikningurinn er samt yfirleitt í kringum 4.000 á mán ~ 50.000 á ári.

Þess vegna er ég að spá í að skrá þá bara í frelsi hjá NOVA, 95% af símtölunum eru hvort sem er á milli símana tveggja.

Svo er maður með heimasíma sem kostar kringum 2500 á mán = 30.000.- á ári
Og svo er ADSL 7853 á mán x 12 = 94.236 á ári
Og síðast en ekki síst ADSL-TV = 5200 á mánuði = 62400.

Ég borga Símanum sem sagt 236.646 krónur á ári. Mér finnst það bara svakalegt.


Nákvæmlega pælingin sem varð til þess að ég fór frá Símanum. Er samt með net og heimasíma frá þeim = 8þ. fyrir ADSL, 850Kr. fyrir Myndlykil, 2Þ. fyrir borðsíma og segjum 150 kr. í notkun á honum...

=11þ.*12 =132þ á ári... = ég ætla ekki að gefa þeim GSM inn líka, gleymi ekki hvað hann var skelfilega hár þegar ég var hjá þeim á sínum tíma...

Re: Hvar ertu með GSM áskrift?

Sent: Mið 06. Okt 2010 15:43
af depill
GuðjónR skrifaði:Skiptingin virðist vera nokkuð jöfn á milli Símans, VodaFone og NOVA.
Ástæðan fyrir því að ég er að spá í þetta er sú að við erum með tvo gsm síma hérna (erum hjá Símanum) og reikningurinn er alltaf 3039 kr þó það sé ekkert hringt.
Það er náttlega bara foráttu heimska að borga 36.468.- kr á ári fyrir ekkert.

Annar síminn er skráður í flokk með "3 vinir innan kerfis" 790kr og hinn er "6 vinir óháð kerfi" 1999 kr. seðilgjald 250kr. total 3039 mán. x 12= 36.468.- á ári þó símarnir séu ekkert notaðir. Reikningurinn er samt yfirleitt í kringum 4.000 á mán ~ 50.000 á ári.

Þess vegna er ég að spá í að skrá þá bara í frelsi hjá NOVA, 95% af símtölunum eru hvort sem er á milli símana tveggja.

Svo er maður með heimasíma sem kostar kringum 2500 á mán = 30.000.- á ári
Og svo er ADSL 7853 á mán x 12 = 94.236 á ári
Og síðast en ekki síst ADSL-TV = 5200 á mánuði = 62400.

Ég borga Símanum sem sagt 236.646 krónur á ári. Mér finnst það bara svakalegt.


Ég er hjá NOVA þar sem ég hringi mikið í fólk hjá NOVA. Djöfull þoli ég samt ekki að NOVA sé að hækka gjöldin yfir til annara símafyrirtækja í 18.90 kr p. mínútu og þeir hækkuðu nottulega tímamælinguna sem þeir voru svo stoltir af í Mars síðastliðin úr 30/30 í 60/60 sem ég þoli ekki heldur. Örugglega vegna þess að PTA er að neyða þá til að lækka samtengigjöldin. Ennfremur fer soldið í taugarnar á mér að þeir geti ekki boðið allt. Og ég lendi í miklu meira veseni hjá NOVA heldur en ég lenti í hjá Símanum og/eða Vodafone. "Network busy", slit og brenglun í rödd, silence inní símtölum og fleirra. Til dæmis hef ég bara aldrei komist yfir alla hellisheiðina hjá NOVA án þess að það slitni.

Það mun þýða að símtal fyrir utan NOVA mun kosta að minnsta 23.9 kr, reyndar eru þeir byrjaðir með "bestu" leiðina fyrir þá sem hringja frekar jafn á milli kerfa 9,90 kr í öll kerfi.

---
Spurning hvort að það sé hreinlega sniðugra fyrir þig að vera í fyrirtækjapakka ( þar sem þú ert með fyrirtæki ), ég veit ekki.

Þá yrði það 15,5 í öll kerfi
499 kr fyrir grunn + 690 kr fyrir Hóp áskrift eða 490 kr fyrir 3 vini innan Símans - http://siminn.is/fyrirtaeki/farsimi/gsm-samband/ ( eða jafnvel Ring )
Kosturinn við Hóp áskriftina væri nottulega að hringja líka frítt heim.
2.500 kr fyrir Talsíma 3 - frítt í alla heimasíma og í gsmana ykkar. Má skoða aðra pakka
Svo spurning hreinlega hvað þú þarft mikið gagnamagn ?

En gætir líka farið í NOVA, en þá verður líka dýrara að hringja úr talsíma yfir í gsmann :)