Síða 1 af 3
Áhyggjulaust líf með Mac :)
Sent: Fim 23. Sep 2010 10:57
af GuðjónR
Vísir, 23. sep. 2010 10:42
Vírus- og ruslpóstsárás í gangi á Facebook
Danskir fjölmiðlar greina frá því að í augnablikinu standi tölvuþrjótar fyrir umfangsmikilli tölvuvírus- og ruslpóstsárás á Facebook. Danskir notendur Facebook eru beðnir um að fara varlega.
Í frétt um málið í Jyllands Posten segir að þúsundir notenda Facebook hafi fengið póst sem virðist vera frá vefsíðunni sjálfri. Reynt er að lokka notendurnar til þess að opna viðhengi sem fylgir póstinum. Sé viðhengið opnað kemur fljótlega fram tilkynning um að tölvan sé sýkt af vírus og að maður eigi að flýta sér að kaupa vírusvarnaforrit til að fjarlægja ógnina. Sé það gert græða tölvuþrjótarnir fé og jafnframt tekst þeim að lauma vírus inn í tölvuna.
Vírusárásin er aftur á móti ormur af þeirri tegund sem rænir lykilorðum og krítarkortaupplýsingum frá viðkomandi tövlueigenda.
Sérfræðingur hjá tölvuöryggisfyrirtækinu CSIS segir að svo virðist sem verið sé að reyna að dreifa vírusnum meðal sem flestra Facebooknotenda.
Það fylgir sögunni að
þeir sem nota Mac-tölvur þurfi ekki að hafa áhyggjur af þessu vandamáli þar sem tölvuþrjótarnir einbeiti sér að Windows forritum.
http://www.visir.is/virus--og-ruslposts ... 0502671910
Re: Áhyggjulaust líf með Mac :)
Sent: Fim 23. Sep 2010 11:04
af chaplin
Áhyggjulaust líf þangatil þú þarft að fara uppfæra eitthvern vélbúnað í Macanum..
Re: Áhyggjulaust líf með Mac :)
Sent: Fim 23. Sep 2010 11:07
af GuðjónR
daanielin skrifaði:Áhyggjulaust líf þangatil þú þarft að fara uppfæra eitthvern vélbúnað í Macanum..
Makkinn er svo góður að maður þarf ekki að uppfæra neitt
Þegar maður uppfærir, þá fær maður sér bara nýjann makka
I love it!
Re: Áhyggjulaust líf með Mac :)
Sent: Fim 23. Sep 2010 11:10
af emmi
GuðjónR skrifaði:daanielin skrifaði:Áhyggjulaust líf þangatil þú þarft að fara uppfæra eitthvern vélbúnað í Macanum..
Makkinn er svo góður að maður þarf ekki að uppfæra neitt
Þegar maður uppfærir, þá fær maður sér bara nýjann makka
I love it!
Nákvæmlega!
Re: Áhyggjulaust líf með Mac :)
Sent: Fim 23. Sep 2010 11:46
af corflame
Djöss rugl, Sinclair ZX Spectrum 48k > *
Re: Áhyggjulaust líf með Mac :)
Sent: Fim 23. Sep 2010 11:49
af FriðrikH
Þú getur fengið best of both worlds með Línux, minni hætta á vírusum og maður getur uppfært eins og manni sýnist.....
Re: Áhyggjulaust líf með Mac :)
Sent: Fim 23. Sep 2010 12:08
af topas
fridrih skrifaði:Þú getur fengið best of both worlds með Línux, minni hætta á vírusum og maður getur uppfært eins og manni sýnist.....
Nákvæmlega
Re: Áhyggjulaust líf með Mac :)
Sent: Fim 23. Sep 2010 12:30
af audiophile
fridrih skrifaði:Þú getur fengið best of both worlds með Línux, minni hætta á vírusum og maður getur uppfært eins og manni sýnist.....
Þegar Photoshop og Lightroom koma út fyrir Linux myndi ég íhuga það. Og ég lem þig ef þú segir "notaðu bara Gimp, það er alveg jafn gott."
Re: Áhyggjulaust líf með Mac :)
Sent: Fim 23. Sep 2010 12:43
af chaplin
GuðjónR skrifaði:daanielin skrifaði:Áhyggjulaust líf þangatil þú þarft að fara uppfæra eitthvern vélbúnað í Macanum..
Makkinn er svo góður að maður þarf ekki að uppfæra neitt
Þegar maður uppfærir, þá fær maður sér bara nýjann makka
I love it!
Þannig hver uppfærsla kostar mann 500.000kr?
Re: Áhyggjulaust líf með Mac :)
Sent: Fim 23. Sep 2010 12:55
af Hargo
Lífið með Windows 7 getur líka verið nokkuð sweet - eins og sýndi sig þegar vefur DV var hakkaður.
Hugsanlegt er að tölvuþrjótarnir hafi reynt að koma eins konar niðurhalsveiru fyrir á vefþjóni DV. Þeim notendum, sem eru með Windows XP, Windows Vista eða Mac OS og hafa ekki sett inn nýjustu öryggisuppfærslur, er ráðlagt að keyra veiruskanna til öryggis. Veiran hefur ekki áhrif á Windows 7," segir í tilkynningu.
http://www.mbl.is/mm/frettir/taekni/2010/09/02/arasin_a_dv_gerd_fra_bandarikjunum/...eflaust margir sem hafa rekið upp stór augu þarna enda í kringum þennan tíma var alltaf verið að auglýsa Mac í útvarpinu sem vírusfríar tölvur.
Re: Áhyggjulaust líf með Mac :)
Sent: Fim 23. Sep 2010 12:58
af chaplin
Re: Áhyggjulaust líf með Mac :)
Sent: Fim 23. Sep 2010 13:09
af GuðjónR
daanielin skrifaði:GuðjónR skrifaði:daanielin skrifaði:Áhyggjulaust líf þangatil þú þarft að fara uppfæra eitthvern vélbúnað í Macanum..
Makkinn er svo góður að maður þarf ekki að uppfæra neitt
Þegar maður uppfærir, þá fær maður sér bara nýjann makka
I love it!
Þannig hver uppfærsla kostar mann 500.000kr?
Ég sagði heldur aldrei að Mac væri "allskonar fyrir aumingja"
Re: Áhyggjulaust líf með Mac :)
Sent: Fim 23. Sep 2010 13:53
af rapport
Ef ég ætti Mac þá væri ég bara aðð deyja úr pirring og vanmáttarkennd.
Mér líður alltaf svo vel þegar ég get hjálpað einhverjum með Windows / PC vandamálin sín og það er bara virkilega oft sem fólk lendir í þeim.
Mér finnst "cool" að vera klárari en margir á þessu sviði, það gefur mér aukið virði bæði persónulega og á vinnustaðnum.
Þó ég hafi ekki beint atvinnu af þessu þá væri ég líklega í minna starfshlutfalli ef Mac réði heiminum og mér finnst það bara suck.
Ég held að Mac notendur séu bara haldnir þessari sömu vanmáttarkennd og ég minnist á hér að ofan, þeir kunna margir ekki á PC og eru þar af leiðandi oft hálf bjargarlausir í heiminum einsog hann er í dag.
Í stað þess að kenna sjálfum sér um að hafa ekki lært á PC, þá kenna þeir PC fyrir að vera flókið fyrirbæri.
Það eru fordómar, finnst mér.
Ef einhver skilur ekki stærðfræði og segist ekki þola stærðfræði, svörin hjá honum væru bara ekkert alltaf rétt. Þá þarf hann bara að læra betur.
Það sama gildir um vírusa og PC, ef fólk hatar PC því það er alltaf að fá vírus, þá ætti það að læra betur á PC. Vírusar eru ekekrt að herja sérstaklega á Windows eða PC, þeir herja aðallega á vankunnáttu fólks í þessum málum.
Auðvitaðkemur það fyrir að maður reiknar vitlaust eða fær vírus, en þá er það líka manni sjálfum að kenna oftast nær.
Re: Áhyggjulaust líf með Mac :)
Sent: Fim 23. Sep 2010 14:59
af BjarniTS
Ég á fullt af pc og fullt af mac , lovin it !
Þetta eru bara verkfæri í verkfærakassanum þessir gripir , misdýrir og henta mis vel í eitt og annað.
Re: Áhyggjulaust líf með Mac :)
Sent: Fim 23. Sep 2010 17:29
af coldcut
@audiophile: notaðu bara Gimp, það er alveg jafn gott.
@rapport: það sem þú lýsir þarna er þín eigin minnimáttarkennd! Upplifir þig sem meiri mann útaf því að þú kannt á Windows.
Mun persónulega aldrei aftur nota Windows!
Linux > BSD > Solaris > OS X > Windows
Re: Áhyggjulaust líf með Mac :)
Sent: Fim 23. Sep 2010 19:47
af sexface
rapport skrifaði:Ef ég ætti Mac þá væri ég bara aðð deyja úr pirring og vanmáttarkennd.
Mér líður alltaf svo vel þegar ég get hjálpað einhverjum með Windows / PC vandamálin sín og það er bara virkilega oft sem fólk lendir í þeim.
Mér finnst "cool" að vera klárari en margir á þessu sviði, það gefur mér aukið virði bæði persónulega og á vinnustaðnum.
Þó ég hafi ekki beint atvinnu af þessu þá væri ég líklega í minna starfshlutfalli ef Mac réði heiminum og mér finnst það bara suck.
Ég held að Mac notendur séu bara haldnir þessari sömu vanmáttarkennd og ég minnist á hér að ofan, þeir kunna margir ekki á PC og eru þar af leiðandi oft hálf bjargarlausir í heiminum einsog hann er í dag.
Í stað þess að kenna sjálfum sér um að hafa ekki lært á PC, þá kenna þeir PC fyrir að vera flókið fyrirbæri.
Það eru fordómar, finnst mér.
Ef einhver skilur ekki stærðfræði og segist ekki þola stærðfræði, svörin hjá honum væru bara ekkert alltaf rétt. Þá þarf hann bara að læra betur.
Það sama gildir um vírusa og PC, ef fólk hatar PC því það er alltaf að fá vírus, þá ætti það að læra betur á PC. Vírusar eru ekekrt að herja sérstaklega á Windows eða PC, þeir herja aðallega á vankunnáttu fólks í þessum málum.
Auðvitaðkemur það fyrir að maður reiknar vitlaust eða fær vírus, en þá er það líka manni sjálfum að kenna oftast nær.
mesta bull sem ég hef lesið
Re: Áhyggjulaust líf með Mac :)
Sent: Fim 23. Sep 2010 19:51
af Gúrú
sexface skrifaði:mesta bull sem ég hef lesið
"Kynjakvótar á Alþingi eiga heima í stjórnarskránni"
Ennþá?
Re: Áhyggjulaust líf með Mac :)
Sent: Fim 23. Sep 2010 20:50
af rapport
Jahá...
@Coldcut -
það sem þú lýsir þarna er þín eigin minnimáttarkennd! Upplifir þig sem meiri mann útaf því að þú kannt á Windows.
Eiginlega já og já, þar sem ég er enginn sérfræðingur... en ég get samt hjálpað helling af fólki (ég er nú ekki á því leveli að ég rukki fyrir það).
Finnst eiginlega gott að geta hjálpað vinum og vandamönnum þó ég auðvitað kysi að þau gætu hjálpað sér sjálf.
Hvort ég sé "meiri maður" líklega nei, en þetta er svona eitt af því fáa sem ég get gert fyrir suma.
Þrátt fyrir að vera ekki að vinna í þjónustunni þar sem ég vinn þá eru rosalega margir sem leita beint til mín bara vegna brossins og þjónustulundarinnar.
@Gúru
Það er allavega umræða í gangi, við hljótum báðir að fagna því að fólk hugsi sig um.Veit að við höfum ekki sömu skoðun á málefninu, við skulum bara vera sammála um að vera ósammála.
Held að það sé enginn ein sýn /stefna sem er 100% rétt í málinu þar sem sjónarhornin eru svo mörg.
Líklega bara best að fólk hafi sem fjölbreittastar skoðanir.
Re: Áhyggjulaust líf með Mac :)
Sent: Fim 23. Sep 2010 21:13
af ManiO
rapport skrifaði:Jahá...

Það að skerða vilja fólksins er ekki rétt, punktur. Kynjakvóti er hluti af þvæluni sem heitir "jákvæð" mismunun, sem er það allra heimskulegasta sem til er.
Einnig, ef kynjakvót er innlimaður, hve langt er þar til að kynhneigðarkvóti kemur? Eða eitthvað álíka mikið rugl.
Re: Áhyggjulaust líf með Mac :)
Sent: Fim 23. Sep 2010 21:15
af Tiger
coldcut skrifaði:@audiophile: notaðu bara Gimp, það er alveg jafn gott.
Að segja að gimp sé jafn gott og photoshop er eins og að segja að Kia sé jafn góður og Benz, jú báðir hafa vél, stýri, 4 dekk og rúður.
En já það er yndislegt að eiga Makka í fyrsta sinn. Verst að tölukunnáttan fór niður á 5ára level á tímabili en það er bara gaman að læra nýja hluti
. Svo er hann jafn fallegur hvort sem það er kveikt eða slökkt á honum.
Ps. nú þarf ég bara að fara að finna leið til að þagga niður í PC tölvunni í hjá guttanum í næsta herbergi því lætin í henni eru að æra mig..þar sem ekki heyrist múkka í minni lengur.
Re: Áhyggjulaust líf með Mac :)
Sent: Fim 23. Sep 2010 21:18
af GuðjónR
Snuddi skrifaði:En já það er yndislegt að eiga Makka í fyrsta sinn. Verst að tölukunnáttan fór niður á 5ára level á tímabili en það er bara gaman að læra nýja hluti
. Svo er hann jafn fallegur hvort sem það er kveikt eða slökkt á honum.
Ps. nú þarf ég bara að fara að finna leið til að þagga niður í PC tölvunni í hjá guttanum í næsta herbergi því lætin í henni eru að æra mig..þar sem ekki heyrist múkka í minni lengur.
Ditto!
P.s. veistu hvað er flottara en iMac? ....2x iMac's hlið við hlið.
Re: Áhyggjulaust líf með Mac :)
Sent: Fim 23. Sep 2010 21:20
af coldcut
Snuddi skrifaði:coldcut skrifaði:@audiophile: notaðu bara Gimp, það er alveg jafn gott.
Að segja að gimp sé jafn gott og photoshop er eins og að segja að Kia sé jafn góður og Benz, jú báðir hafa vél, stýri, 4 dekk og rúður.
gamli...skoðaðu hvað audiophile skrifaði
bara létt glens þarna á ferð
Re: Áhyggjulaust líf með Mac :)
Sent: Fim 23. Sep 2010 21:46
af Zaphod
Vírusar eru notendavandamál fyrst og fremst, það er alveg hægt að nota windows án vírusvarnar og aldrei fá vírus. En auðvitað er algert vírusleysi mikill og góður sölupunktur fyrir Macintosh
Re: Áhyggjulaust líf með Mac :)
Sent: Fim 23. Sep 2010 21:50
af rapport
Var of mikið off topic og tók hellings pláss - fór á þrefþráðinn...
Re: Áhyggjulaust líf með Mac :)
Sent: Fim 23. Sep 2010 22:17
af Gúrú
rapport skrifaði:Ég styð samt kynjakvóta sem tímabundna ráðstöfun, EKKI varanlega.
Það er bara noway að ég nenni að lesa þessi innlegg þín lengur.
Styðurðu það að taka valdið af þjóðinni tímabundið en ekki varanlega?
Myndirðu vilja taka valdið af kviðdómum í Bandaríkjunum til að dæma konu í dauðadómsréttarhöldum saklausa - bara vegna þess að þær fá bara 2% en ekki 40-60% af dauðadómum?
Það er nefnilega nákvæmlega það sem að þú ert að tala um hérna -
konur og karlar eru ekki eins, það er staðreynd.
Ef að konur fremja ekki nógu mikið af glæpum/nást ekki jafn oft/fremja ekki nógu alvarlega glæpi til að fylla ekki upp í 40% kvóta (þú ert bara að tala um framboð, annars sami hlutur)
ætlarðu þá
tímabundið að taka valdið af kviðdómi (þjóðinni) til að dæma í málinu(kjósa)?