Síða 1 af 1

Nýjasta Tækni og vísindi

Sent: Mán 20. Sep 2010 08:59
af Benzmann
hver man ekki eftir gömlu góðu þáttunum Nýjasta Tækni og Vísindi sem voru á RÚV fyrir c.a 12 árum+

var að pæla, hvar getur maður nálgast þá, væri gaman að horfa á þetta aftur :P

veit einhver hvar maður getur fengið þá ?

Re: Nýjasta Tækni og vísindi

Sent: Mán 20. Sep 2010 09:23
af appel
benzmann skrifaði:hver man ekki eftir gömlu góðu þáttunum Nýjasta Tækni og Vísindi sem voru á RÚV fyrir c.a 12 árum+

var að pæla, hvar getur maður nálgast þá, væri gaman að horfa á þetta aftur :P

veit einhver hvar maður getur fengið þá ?

RÚV situr á honum, einsog dreki á gulli.

Hann lauk göngu sinni 2004, þannig að það eru aðeins 6 ár síðan, ekki 12+ ár, ungi maður :)

Re: Nýjasta Tækni og vísindi

Sent: Mán 20. Sep 2010 09:44
af Benzmann
ég man að ég var alltaf að horfa á þetta með pabba mínum þegar ég var c.a 6-8 ára. fannst þetta voða skemmtilegt, en ég er 22 ára í dag, svo það er c.a 12 ár síðan ég sá þetta síðast :P

en væri gaman ef þessu væri streamað á netinu.

Re: Nýjasta Tækni og vísindi

Sent: Mán 20. Sep 2010 12:15
af Zaphod
frábærir þættir en spurning hversu "up to date" þeir eru í dag :)

en annars fyrst maður er byrjaður að sjá gömul skaup á besta tíma á fötudagskvöldum er kannski bara tímaspursmál hvenær þeir byrja endursýna þetta líka..

Re: Nýjasta Tækni og vísindi

Sent: Mán 20. Sep 2010 15:37
af g0tlife
væri dáldið stupid að endursýna þá þegar það eru nýjir svona þættir á discovery á hverjum degi. Frekar halda áfram að gera fleiri

Re: Nýjasta Tækni og vísindi

Sent: Mán 20. Sep 2010 15:56
af KermitTheFrog
Ohh, Siggi H.Richter gamli. Djö man maður eftir þessu. Man ég missti ekki af þætti.

"Og þá er ekki fleira í þættinum að þessu sinni, veriði sæl" ahaha

Re: Nýjasta Tækni og vísindi

Sent: Mán 20. Sep 2010 16:08
af SIKk
KermitTheFrog skrifaði:Ohh, Siggi H.Richter gamli. Djö man maður eftir þessu. Man ég missti ekki af þætti.

"Og þá er ekki fleira í þættinum að þessu sinni, veriði sæl" ahaha

haha legendary :sleezyjoe

Re: Nýjasta Tækni og vísindi

Sent: Mán 20. Sep 2010 17:03
af benson
gotlife skrifaði:væri dáldið stupid að endursýna þá þegar það eru nýjir svona þættir á discovery á hverjum degi. Frekar halda áfram að gera fleiri

Já einmitt þú ert þá væntanlega að tala um livsfarlig fangst, mökkajobber og mann mot natur. Þetta hefur helvíti mikið með tækni og vísindi að gera.

Helvítis 365 að geta ekki boðið upp á Discovery Science í staðinn fyrir eitthvað af þessa endalausa pseudo reality TV kjaftæði!

Re: Nýjasta Tækni og vísindi

Sent: Mán 20. Sep 2010 17:11
af gardar
Getur eflaust fengið að komast í þá í gagnasafni rúv... Ég hef amk skoðað það að versla efni úr gagnasafninu hjá þeim.

En það er dýrt, 5þ kall fyrir klukkutímann minnir mig.

Re: Nýjasta Tækni og vísindi

Sent: Mán 20. Sep 2010 19:11
af einarhr

Re: Nýjasta Tækni og vísindi

Sent: Mán 20. Sep 2010 23:09
af JohnnyX
Bestu þættirnir! :megasmile

Re: Nýjasta Tækni og vísindi

Sent: Mán 20. Sep 2010 23:23
af Viktor
Finnst óþolandi að RÚV hætti útsendingu kl. ca. 1 á nótunni og byrja svo ekki að sýna fyrr en kl 16. Þeir eru búnir að framleiða mörg þúsund klukkustundir af efni, afhverju drullast þeir ekki til þess að endursýna gamalt dót þarna á þessum tíma, í staðin fyrir að láta mann horfa á stillingarmynd og hlusta á RÁS2?

Re: Nýjasta Tækni og vísindi

Sent: Þri 21. Sep 2010 00:47
af g0tlife
benson skrifaði:
gotlife skrifaði:væri dáldið stupid að endursýna þá þegar það eru nýjir svona þættir á discovery á hverjum degi. Frekar halda áfram að gera fleiri

Já einmitt þú ert þá væntanlega að tala um livsfarlig fangst, mökkajobber og mann mot natur. Þetta hefur helvíti mikið með tækni og vísindi að gera.

Helvítis 365 að geta ekki boðið upp á Discovery Science í staðinn fyrir eitthvað af þessa endalausa pseudo reality TV kjaftæði!

Allt á dönsku hjá þér ? Ég er nú með þetta allt á ensku svo ég hef ekki hugmynd um hvað þú ert að tala um. Svo er ég reyndar útá sjó og við erum með gervihnött eftir að vera horfa á það þá er þetta sem stöð2 er með bara drasl

Re: Nýjasta Tækni og vísindi

Sent: Þri 21. Sep 2010 14:03
af benson
gotlife skrifaði:

Þetta er norsk Discovery en þættirnir eru á ensku. Pointið var samt að þetta eru allt þættir sem tengjast ekki vísindum.

Það væri alveg kúl að Rúv myndi gera einhvern íslenskan vísindaþátt sem gæti verið með efni úr erlendum þáttum í bland við íslenskt. Svipað og nýjasta tækni og vísindi var. Svo mætti líka sýna fleiri BBC Horizon þætti.

Re: Nýjasta Tækni og vísindi

Sent: Þri 21. Sep 2010 14:33
af codec
benson skrifaði:Þetta er norsk Discovery en þættirnir eru á ensku. Pointið var samt að þetta eru allt þættir sem tengjast ekki vísindum.

Ég er svo sammála, mér finnst allt of mikið af einhverju reality drasli á discovery. Var að vona eftir almennilegu fræðsluefni en svo fær maður bara Cash Cab, American Choper, sem varð mjög þreitt strax eftir fyrsta þátt rétt eins og þátturinn um "töffarana" sem pimpa bíla í californíu, dísess maður. Stöku sinnum hittir maður á Mythbusters sem eru oft frábærir en flest annað sem þeir eru með er rusl.
Þeir Hafa alveg látið teyma sig í eitthvað reality vinsældar bull.

Re: Nýjasta Tækni og vísindi

Sent: Þri 21. Sep 2010 15:02
af dori
codec skrifaði:Stöku sinnum hittir maður á Mythbusters sem eru oft frábærir en flest annað sem þeir eru með er rusl.

Mér finnst Mythbusters einum of kjánalegir. Prototype this eru þættir sem ég elska, hef samt horft á allt of lítið af þeim því að ég er ekki lengur með þetta drasl.

Re: Nýjasta Tækni og vísindi

Sent: Þri 21. Sep 2010 15:06
af Gúrú
dori skrifaði:
codec skrifaði:Stöku sinnum hittir maður á Mythbusters sem eru oft frábærir en flest annað sem þeir eru með er rusl.

Mér finnst Mythbusters einum of kjánalegir.

+1, er oftast með kjánahroll allan þáttinn, SÉRSTAKLEGA hjá "liðinu" með stelpunni að tala saman um verkefnið.

Re: Nýjasta Tækni og vísindi

Sent: Mið 22. Sep 2010 08:25
af corflame
Væri ágætis kreppuráð fyrir RÚV, ekki erfitt að taka nokkur svona "kynningarmyndbönd" og tengja saman í þátt, nákvæmlega eins og NToV var.

Getur varla verið dýrt að gera svoleiðis efni.

Re: Nýjasta Tækni og vísindi

Sent: Mið 22. Sep 2010 09:27
af ManiO
Gúrú skrifaði:
dori skrifaði:
codec skrifaði:Stöku sinnum hittir maður á Mythbusters sem eru oft frábærir en flest annað sem þeir eru með er rusl.

Mér finnst Mythbusters einum of kjánalegir.

+1, er oftast með kjánahroll allan þáttinn, SÉRSTAKLEGA hjá "liðinu" með stelpunni að tala saman um verkefnið.

Enda eru þau með handrit sem þau fylgja og hafa enga leikhæfileika.

Re: Nýjasta Tækni og vísindi

Sent: Mið 22. Sep 2010 09:30
af gardar
Gúrú skrifaði:
dori skrifaði:
codec skrifaði:Stöku sinnum hittir maður á Mythbusters sem eru oft frábærir en flest annað sem þeir eru með er rusl.

Mér finnst Mythbusters einum of kjánalegir.

+1, er oftast með kjánahroll allan þáttinn, SÉRSTAKLEGA hjá "liðinu" með stelpunni að tala saman um verkefnið.

Það er náttúrulega ekkert sem toppar Brainiac Science Abuse & History Abuse þættina!

Mynd

Re: Nýjasta Tækni og vísindi

Sent: Mið 22. Sep 2010 13:59
af BjarkiB
gardar skrifaði:
Gúrú skrifaði:
dori skrifaði:
codec skrifaði:Stöku sinnum hittir maður á Mythbusters sem eru oft frábærir en flest annað sem þeir eru með er rusl.

Mér finnst Mythbusters einum of kjánalegir.

+1, er oftast með kjánahroll allan þáttinn, SÉRSTAKLEGA hjá "liðinu" með stelpunni að tala saman um verkefnið.

Það er náttúrulega ekkert sem toppar Brainiac Science Abuse & History Abuse þættina!

Mynd

Segji það með þér, bæði mikið um vísindi og einnig frábær skemmtun. Séstaklega þegar þeir stinga furðulegustu hlutum inní örbylgjuofn.