Síða 1 af 1
Fall í háskóla
Sent: Þri 14. Sep 2010 00:11
af Prowler
Ef þú fellur í einhverjum áfanga í háskóla kemur það þá fram á bs prófskyrteinið þitt?
Re: Fall í háskóla
Sent: Þri 14. Sep 2010 00:17
af Hargo
Nei, allavega ekki á þeim skírteinum sem ég hef séð.
Getur séð dæmi um BA skírteini úr sálfræði hér. Fann þetta eftir að hafa slegið
BS skírteini í Google myndaleit
Re: Fall í háskóla
Sent: Þri 14. Sep 2010 00:19
af rapport
Prowler skrifaði:Ef þú fellur í einhverjum áfanga í háskóla kemur það þá fram á bs prófskyrteinið þitt?
Nei en þar sem dagss. á prófunum koma fram í fylgiskjölunum þá þarf ekki snilling til að reikna út hvað þú kláraðir margar einingar hina og þessa önnina...
En það er ekki hægt að taka því sem gefnu að þú hafir fallið, sumir dreifa náminu og vinna með o.s.frv.
Re: Fall í háskóla
Sent: Þri 14. Sep 2010 00:56
af intenz
Nei nei en allar stafsetningar- og málfarsvillur sem þú gerir á internetinu, koma fram á BS prófskírteininu þínu.
Re: Fall í háskóla
Sent: Þri 14. Sep 2010 11:18
af dori
Looks shoopd (samt vafalaust alvöru)
btw. þá er sálfræði BS í dag þó svo að þetta sé BA skýrteini.
Re: Fall í háskóla
Sent: Þri 14. Sep 2010 11:19
af JoiMar
Þetta er samt slæmur tími til að vera hugsa um fall =/, þeas að vera byrjaður að pæla í því strax :/. Nógur tími eftir til að læra :]
Re: Fall í háskóla
Sent: Þri 14. Sep 2010 12:13
af Daz
Mig minnir endilega að öll mín föll hafi komið fram á mínu prófskírteini, í það minnsta þurfti hjólbörur undir fylgiskjölin.
Re: Fall í háskóla
Sent: Þri 14. Sep 2010 12:14
af GuðjónR
Daz skrifaði:Mig minnir endilega að öll mín föll hafi komið fram á mínu prófskírteini, í það minnsta þurfti hjólbörur undir fylgiskjölin.
Fylgiskjöl? talar eins og endurskoðandi...í hverju hefurðu próf?
Re: Fall í háskóla
Sent: Þri 14. Sep 2010 12:16
af CendenZ
Daz skrifaði:Mig minnir endilega að öll mín föll hafi komið fram á mínu prófskírteini, í það minnsta þurfti hjólbörur undir fylgiskjölin.
Það kom fram á einkunnablaðinu mínu að ég hefði fengið 4,5 en svo kom hin einkunnin strax á eftir 8.
"Tölfræði II 4,5 8"
Stóð ekkert FÉLL Í TÖLFRÆÐI á neinu skírteini eða einhverju plaggi
Re: Fall í háskóla
Sent: Þri 14. Sep 2010 13:51
af hagur
Ég var í HR, féll einu sinni í einhverjum áfanga sem ég man ekki hver var *hóst* strjál stærðfræði II *hóst*, kom ekkert slíkt fram á mínu prófskírteini.
Re: Fall í háskóla
Sent: Þri 14. Sep 2010 13:55
af Revenant
Það stendur ekkert um fall á prófskírteininu. Bara hvaða kúrsa þú tókst, (síðustu) einkunn og hvenær prófið var (þ.e. Des/Maí/Jún <ár> )