Síða 1 af 1

Apple - mannréttindabrjótur?

Sent: Fim 26. Ágú 2010 10:28
af rapport
Þessi frétt er tilefnið

Ég á ekki orð yfir þessu, Apple tekur sér heimildir sem jafnvel ríkisstjórnir margra ef ekki flestra landa mundu ekki hugsa sér gera án samráðs við dómstóla sbr. heimildir til að hlera GSM eða heimili fólks.

Það sem er verst af öllu er þó að fólk getur með engu móti vitað hvort það hafa verið teknar myndir af því eða ekki.

Re: Apple - mannréttindabrjótur?

Sent: Fim 26. Ágú 2010 10:37
af hagur
Úff, svo er fólk að tala um að Microsoft sé handbendi djöfulsins.

Apple = Evil Empire.

Re: Apple - mannréttindabrjótur?

Sent: Fim 26. Ágú 2010 11:07
af AntiTrust
Skynet complexar much?

Re: Apple - mannréttindabrjótur?

Sent: Fim 26. Ágú 2010 11:29
af Amything
Þessi frétt er bara steypa.

Apple eru að reyna fá patent fyrir hugbúnaði sem getur gert þetta. Þeir geta ekki gert þetta núna, þeir ætla kannski að gera það í framtíðinni, hver veit. Allavega PR slys að sækjast eftir þessu patent, stórefast um að þeir láti verða af þessu.

Sjá:
http://www.engadget.com/2010/08/21/appl ... uthorized/
https://www.eff.org/deeplinks/2010/08/s ... g-patent-0

Re: Apple - mannréttindabrjótur?

Sent: Fim 26. Ágú 2010 11:32
af Vectro
Gaman að sjá hvað íslenskir fjölmiðlar eru alltaf duglegir að koma með bull fréttir.

Og hvað aðrir eru fljótir að trúa öllu sem þeir lesa.

Re: Apple - mannréttindabrjótur?

Sent: Fim 26. Ágú 2010 11:37
af BjarniTS
Þú ræður hvort þú færð þér svona síma eða ekki.

Þetta væri hugsanlega mannréttindabrot ef að það væri skylda að eiga svona tæki.

Re: Apple - mannréttindabrjótur?

Sent: Fim 26. Ágú 2010 12:51
af halldorjonz
Ef þetta er rétt, þá er þetta algjörlega út í hött :shock:

Re: Apple - mannréttindabrjótur?

Sent: Fim 26. Ágú 2010 13:23
af coldcut
Enn og aftur brillera "tækni" blaðamenn íslensku vefmiðlana við þýðingu og túlkun frétta! Þetta er hætt að vera fyndið!

Re: Apple - mannréttindabrjótur?

Sent: Fim 26. Ágú 2010 13:37
af rapport
BjarniTS skrifaði:Þú ræður hvort þú færð þér svona síma eða ekki.

Þetta væri hugsanlega mannréttindabrot ef að það væri skylda að eiga svona tæki.


Já, kannski svolítið sterkt til orða tekið...

Meira "invasion of privacy"...

En hér er smá tilgáta:

Ástæðan fyrir því að Apple apple sækir um einkaleyfi á hugmyndinni er svo að enginn annar geti nýtt sér þennan "öryggisgalla" í hönnun símans án þess þurfa díla við Apple.

Ef Microsoft hefði notað sömu aðferðafræði við t.d. öryggisgalla í Windows þá hefði fólk sagt "stopp" við viljum ekki að þetta sé yfir höfuð hægt.

En fysrt þetta er hægt með símunum frá Apple þá verður maður að áætla að einhver hafi þegar gert þetta.

Re: Apple - mannréttindabrjótur?

Sent: Fim 26. Ágú 2010 13:42
af coldcut
rapport skrifaði:En fysrt þetta er hægt með símunum frá Apple þá verður maður að áætla að einhver hafi þegar gert þetta.


Ég er 99,9% viss um að ef einhver er búinn að exploita þetta að þá væri það komið í fréttirnar því að fólki finnst ekkert skemmtilegra en að koma höggi á Apple og Microsoft...skiljanlega reyndar.

Re: Apple - mannréttindabrjótur?

Sent: Fim 26. Ágú 2010 14:14
af hauksinick
pressan skrifaði:skoði klám í þeim, en með aflæsingunni er það mögulegt. Klámþyrstir iPhone eigendur mega því vara sig því ekki er víst að síminn lifi það af.

:8) :8)

Re: Apple - mannréttindabrjótur?

Sent: Fim 26. Ágú 2010 14:20
af rapport
Líklega rétt, ef einhver hefði þegar gert þetta þá væri það komið á netið.

En bara við að Gúgla hvort það væri eitthað, þá fékk maður sjokk yfir hvað iPhone er greinilega gallaður m.t.t. gagnaöryggis.

Hvernig er iPad sem maður hefur heyrt að læknar séu að nota?

Ég er ekki hrifinn af þessu, undarlegt að Apple leggi ekki meiri áherslu á öryggi.

Re: Apple - mannréttindabrjótur?

Sent: Fim 26. Ágú 2010 15:10
af KrissiK
hauksinick skrifaði:
pressan skrifaði:skoði klám í þeim, en með aflæsingunni er það mögulegt. Klámþyrstir iPhone eigendur mega því vara sig því ekki er víst að síminn lifi það af.

:8) :8)

Pressan @ Fail :)

Re: Apple - mannréttindabrjótur?

Sent: Fim 26. Ágú 2010 15:50
af hauksinick
KrissiK skrifaði:
hauksinick skrifaði:
pressan skrifaði:skoði klám í þeim, en með aflæsingunni er það mögulegt. Klámþyrstir iPhone eigendur mega því vara sig því ekki er víst að síminn lifi það af.

:8) :8)

Pressan @ Fail :)



Haha já =D>

Re: Apple - mannréttindabrjótur?

Sent: Fim 26. Ágú 2010 16:40
af intenz
Pressan er í sama flokki hjá mér og Séð&Heyrt og DV.

Þeir hafa orðið uppvísir af því að skálda fréttir.

Algjör lágmenning og rusl.

Re: Apple - mannréttindabrjótur?

Sent: Fim 26. Ágú 2010 17:43
af biturk
apple eru bara skíthælar.

skil ekki fólk sem dásamar þeta fyrirtæki og kaupir þetta RUSL sem þeir framleiða.


bara að láta sér detta svona persónunjósnir í hug er svo fádæma fáránlegt að það hálfa væri hellingur!

Re: Apple - mannréttindabrjótur?

Sent: Fim 26. Ágú 2010 18:47
af GuðjónR
Blehh...slökum á stóru orðunum....

Re: Apple - mannréttindabrjótur?

Sent: Fim 26. Ágú 2010 23:31
af vesley
Finnst þessi frétt vera frekar asnalega skrifuð og er Pressan eina síðan sem ég hef séð þessa frétt á .

Svo ég trúi þessu ekki eins og er en ef einhvað meira kemur um þetta þá er þetta alveg fáránlegt hjá Apple.