Síða 1 af 1
Ovi Maps Íslandskort loksins komið
Sent: Fös 20. Ágú 2010 13:31
af wicket
Í vor voru umræður um Ovi maps í Nokia síma og Íslandskort hérna á spjallinu.
þetta er loksins komið, sá þetta á twitter siðu Símans.
http://twitter.com/siminn/status/21660654190Þetta svínvirkar í mínum N79.
Re: Ovi Maps Íslandskort loksins komið
Sent: Fös 20. Ágú 2010 13:37
af audiophile
Kúl, ég er líka með N79. Hvernig seturðu þetta inn? Bara í gegnum OVI suite dótið í tölvunni?
Re: Ovi Maps Íslandskort loksins komið
Sent: Fös 20. Ágú 2010 13:57
af Zaphod
Getur sett það inn í gegnum Nokia MapLoader eða nýja Nokia Ovi Suite. Búinn að vera með þetta í Nokia 5230 í um það bil 2 mánuði, bara meiriháttar miðað við að vera fríkeypis. Eina sem vantar eru hæðarlínur/örnefni til gera þetta að gps til nota í gönguferðum.
Þurfum að fá einhvern íslending til að láta taka sig upp, uppá akstursleiðsögnina.
Re: Ovi Maps Íslandskort loksins komið
Sent: Fös 20. Ágú 2010 14:28
af Carragher23
Skil ekki... fæ bara ekki upp Iceland í Ovi forritinu. Samt er ég að ég held með allt update-að og nýjustu færslur á öllu :/
Re: Ovi Maps Íslandskort loksins komið
Sent: Fös 20. Ágú 2010 14:38
af Zaphod
Aldrei þótt Nokia hugbúnaðurinn neitt sérlega góður
varstu búinn að reyna Nokia MapLoader
http://www.mediafire.com/?dxdhzjgxhnz
Re: Ovi Maps Íslandskort loksins komið
Sent: Fös 20. Ágú 2010 15:01
af Carragher23
Ahh... fattaði hvað var að. Átti eftir að staðfesta accountinn inná email-inu.
Re: Ovi Maps Íslandskort loksins komið
Sent: Lau 21. Ágú 2010 18:22
af svanur
Ok, flott að heyra. Er einhver kostnaður sem fylgir Ovi Maps ?
Hvaða Nokia síma með Ovi Maps með Íslandskorti ætti maður þá að skella sér á ?
Því stærri skjár því betra við akstur, með snertiskjá eður ei og á verðbilinu 30-50 þús ?
Hérna eru símar sem styðja Ovi Maps:
http://www.ovimaps.is/maps/simar_med_ovi_mapsLíst ágætlega á Nokia 5230, Nokia 6730 og Nokia E52. En með hverjum mæliði ?
Re: Ovi Maps Íslandskort loksins komið
Sent: Lau 21. Ágú 2010 18:42
af Zaphod
enginn kostnaður nema það sem forritið sækir á netið online sem er lítið nema þú sért að skoða gervitunglamyndir...
ég er með 5230 og er mjög sáttur með hann.En finnst 5800 spennandi vegna þráðlausa netsins...
Re: Ovi Maps Íslandskort loksins komið
Sent: Sun 22. Ágú 2010 21:02
af svanur
Virkar Íslandskortið á Nokia 5230 ? Vær fínt að fá staðfestingu hvaða símar styðja þetta (double check) !!
Re: Ovi Maps Íslandskort loksins komið
Sent: Sun 22. Ágú 2010 23:06
af Zaphod
svanur skrifaði:Virkar Íslandskortið á Nokia 5230 ? Vær fínt að fá staðfestingu hvaða símar styðja þetta (double check) !!
já það virkar.
Re: Ovi Maps Íslandskort loksins komið
Sent: Fim 26. Ágú 2010 15:36
af PepsiMaxIsti
http://www.ovimaps.is/maps/simar_med_ovi_mapsHérna er listi yfir þá síma sem að styðja þetta, hef ekki prufað nýjustu uppfærsluna, en sú sem að ég er með virkar mjög vel og er mjög flott.
Re: Ovi Maps Íslandskort loksins komið
Sent: Fim 26. Ágú 2010 17:44
af ZiRiuS
Fáránlegt að þú getir ekki fengið þetta á Nokia N96, hann kostaði nú sitt!!
Re: Ovi Maps Íslandskort loksins komið
Sent: Fim 26. Ágú 2010 22:38
af TestType
Er nóg að update-a forritið bara í símanum? Fæ ég þá Íslandskortið inn?
Re: Ovi Maps Íslandskort loksins komið
Sent: Fös 27. Ágú 2010 00:12
af Manager1
Nei það er ekki nóg að uppfæra forritið í símanum. Það eru fínar leiðbeiningar á ovimaps.is, þetta gekk eins og í sögu á 5800 símanum mínum.