Síða 1 af 4

Játning mín til Hildar

Sent: Þri 17. Ágú 2010 17:16
af GuðjónR
Grein í DV í dag:
http://www.dv.is/frettir/2010/8/17/grun ... t-youtube/

Umrædd ástarjátning:
http://www.youtube.com/watch?v=08i3s8--V7c
annað
http://www.youtube.com/watch?v=79a5Ifz3 ... re=related

Síðan hans
http://www.youtube.com/user/gunnar572

Ætli hann sé á vaktinni ? Hvað finnst ykkur um svona fréttaflutning?

Re: Játning mín til Hildar

Sent: Þri 17. Ágú 2010 17:20
af BjarniTS
Spjalla reglulega við hann um játninguna þegar ég sé hann í miðbænum.
Þetta er auðvitað fáránleg frétt og þessi strákur er ósköp saklaus.

Re: Játning mín til Hildar

Sent: Þri 17. Ágú 2010 17:21
af GuðjónR
Meira þessu tengt,
http://www.visir.is/fordaemir-forkastan ... 0163675447

Svakalegt af DV að gera þetta, sérstaklega ef hann er saklaus, sem reyndar allt bendir til.

Re: Játning mín til Hildar

Sent: Þri 17. Ágú 2010 17:26
af BjarniTS
Búið að sleppa honum úr haldi skv. Dv.is, en já alveg ótrúleg fréttamennska

Re: Játning mín til Hildar

Sent: Þri 17. Ágú 2010 17:33
af littli-Jake
þó að það sé kanski ekki hægt að dæma manngerðina á svona myndböndum en ég get ekki séð að þessi gaur sé einhver morðingi.

Hinsvegar geta allir snappað. Ástin getur látið menn gera ótrúlegustu hluti.

En vist að löggan er búin að sleppa honum lítur út fyrir að DV sé að búa til fréttir eins og vanalega

Re: Játning mín til Hildar

Sent: Þri 17. Ágú 2010 17:37
af Glazier
Ekki það að ég myndi nokkrutíman taka upp svona myndband og hvað þá setja það á netið..

En þetta finnst mér sorglegt, ef það myndi birtast mynd af mér á netinu og fyrir neðan stæði að ég væri grunaður og bla bla shit.. ég myndi bara snappa.

Re: Játning mín til Hildar

Sent: Þri 17. Ágú 2010 17:41
af zdndz
asnalegt af DV að gera þetta,
og alveg ótrúlega leiðinlegt að vera þessi gaur ef hann er saklaus

Re: Játning mín til Hildar

Sent: Þri 17. Ágú 2010 17:42
af BjarniTS
http://www.dv.is/frettir/2010/8/17/gunn ... -ur-haldi/

Finnst þetta fáránlegt

http://www.dv.is/frettir/2010/8/17/hinn ... vefnleysi/

Er með hann á fb og hann er skal ég ykkur að segja ekki með morðingjalega profile mynd.

Ást getur látið mann gera margt , en hún getur varla látið mann drepa fólk , því að þá er það ekki lengur ást , heldur bara einhver geðveiki.

Re: Játning mín til Hildar

Sent: Þri 17. Ágú 2010 18:07
af Leviathan

Re: Játning mín til Hildar

Sent: Þri 17. Ágú 2010 18:11
af Gúrú
littli-Jake skrifaði:Hinsvegar geta allir snappað. Ástin getur látið menn gera ótrúlegustu hluti.

Ég hefði akkúrat trúað þessu ef að hann hefði verið ásakaður um morðið, en að hann sé aðildarmaður að einhverju morði er svo fáránleg hugmynd imo.

Hugsaði akkúrat "DV er í deep shit" þegar að þeir birtu nafn og mynd af einhverjum sem var ásakaður um eitthvað og sögðu að aðstandendunum væri brugðið og vildu þessvegna ekki tjá sig um málið?
Deyið í eldi DV.
EDIT: Þetta var kærasti Hildar sem var myrtur - bail á það að hann sé saklaus.

Re: Játning mín til Hildar

Sent: Þri 17. Ágú 2010 18:58
af Skari
Skammarlegt hjá DV

Re: Játning mín til Hildar

Sent: Þri 17. Ágú 2010 19:02
af vesley
Þessi fréttaflutningur er nú alveg fáránlegur , en ég ætla ekki að segja neitt um hann gæti alveg trúað því að hann hafi drepið manninn en gæti líka trúað því að hann er saklaus.

Re: Játning mín til Hildar

Sent: Þri 17. Ágú 2010 19:45
af razrosk
Freakin' DV segi ég bara...

Re: Játning mín til Hildar

Sent: Þri 17. Ágú 2010 20:19
af intenz
Hver er þriðji stærsti miðill þessa lands sem nafgreindi og myndbirti hinn grunaða?

DV, Pressan, og...?

Sama hver það er, þá er álit mitt á þessum tveimur miðlum þarna ekki hátt, og satt að segja varla neitt.

Re: Játning mín til Hildar

Sent: Þri 17. Ágú 2010 21:11
af GuðjónR
intenz skrifaði:Hver er þriðji stærsti miðill þessa lands sem nafgreindi og myndbirti hinn grunaða?

DV, Pressan, og...?

Sama hver það er, þá er álit mitt á þessum tveimur miðlum þarna ekki hátt, og satt að segja varla neitt.

Ja.is getur varla talist til miðils, þannig að DV er í þriðja sæti...

Re: Játning mín til Hildar

Sent: Þri 17. Ágú 2010 22:03
af Ulli
Þetta er bara Dv way.
Drullusokkar.
Saklaus uns sekt er sönnuð.

Re: Játning mín til Hildar

Sent: Þri 17. Ágú 2010 23:05
af Gúrú
Til að vera rödd skynseminnar eruð þið samt enn og aftur byrjaðir að hópbasha.

Það stóð ekki að hann hafi gert neitt - það stóð ekki að hann sé sekur - það stóð ekki að hann hefði neina stöðu sem hann hafði ekki.

Hann var í gæsluvarðhaldi og yfirheyrslu vegna gruns um aðildar á morði Hannesar - það er það sem að þeir sögðu.
Þeir brutu ekki saklaus uns sekt er sönnuð á neinn hátt.

Það að þeir hafi birt nafn og mynd er það sem er til umræðu hérna, ekki það að hann hafi verið grunaður af lögreglu WTF vaktarar?

Re: Játning mín til Hildar

Sent: Þri 17. Ágú 2010 23:18
af Skari
Gúrú skrifaði:Til að vera rödd skynseminnar eruð þið samt enn og aftur byrjaðir að hópbasha.

Það stóð ekki að hann hafi gert neitt - það stóð ekki að hann sé sekur - það stóð ekki að hann hefði neina stöðu sem hann hafði ekki.

Hann var í gæsluvarðhaldi og yfirheyrslu vegna gruns um aðildar á morði Hannesar - það er það sem að þeir sögðu.
Þeir brutu ekki saklaus uns sekt er sönnuð á neinn hátt.

Það að þeir hafi birt nafn og mynd er það sem er til umræðu hérna, ekki það að hann hafi verið grunaður af lögreglu WTF vaktarar?

Skiptir engu máli þótt DV sögðu ekki stöðuna, hvort hann var sekur eða álíka.. Þeir eru að brjóta þetta saklaus uns sekt er sönnuð með því að birta nafn hans, mynd (meira segja tekið fram að það hafi verið talað við fjölskyldu hans.. cmon)

Ef þú kíkir hinsvegar t.d. á mbl þá er ekkert minnst á nafn hans eða mynd, eitthvað minnst á sem "æskuvin" en það er það eina.

En já DV er rusl og hefur alltaf verið.

Re: Játning mín til Hildar

Sent: Þri 17. Ágú 2010 23:29
af Gúrú
Skari skrifaði:[Skiptir engu máli þótt DV sögðu ekki stöðuna, hvort hann var sekur eða álíka.. Þeir eru að brjóta þetta saklaus uns sekt er sönnuð með því að birta nafn hans, mynd (meira segja tekið fram að það hafi verið talað við fjölskyldu hans.. cmon)
Ef þú kíkir hinsvegar t.d. á mbl þá er ekkert minnst á nafn hans eða mynd, eitthvað minnst á sem "æskuvin" en það er það eina.

Veistu hvað saklaus uns sekt er sönnuð þýðir?
Að ríkisvald má ekki beita neinn refsingu án þess að sanna sekt hans fyrir hlutlausum aðila (dómarnir).

Veistu hvað saklaus uns sekt er sönnuð þýðir ekki?
Að fjölmiðlar megi ekki birta upplýsingar um neinn fyrr en að hann hafi verið dæmdur sekur í einhverju máli.

Þeir sögðu það sem að var rétt, að hann hafi stöðuna grunaður um aðild í máli Hannesar.
Ég er hinsvegar sammála þér að þetta fjölskylducomment kemur málinu ekkert við og er alger óþarfi - hver vill vita hvort að fjölskyldan vill kommenta á þetta - hver vill tala við Dv um nokkurn skapaðan hlut?

Re: Játning mín til Hildar

Sent: Þri 17. Ágú 2010 23:35
af Skari
Gúrú skrifaði:

Veit vel hvað þetta þýðir, finnst bara fáranlegt að það skuli vera birta mynd og nafn hans þegar lögreglan hefur ekkert á hann, finnst fréttamenn mega láta hann njóta vafans þangað til að minnsta kosti eitthvað meira kemur fram..

En hey það er bara ég, fólk má eiga mismunandi skoðanir á þessu

Re: Játning mín til Hildar

Sent: Þri 17. Ágú 2010 23:47
af Hargo
Gúrú skrifaði:Hann var í gæsluvarðhaldi og yfirheyrslu vegna gruns um aðildar á morði Hannesar - það er það sem að þeir sögðu.
Þeir brutu ekki saklaus uns sekt er sönnuð á neinn hátt.

Held reyndar að þetta kallist ekki gæsluvarðhald. Þeir mega held ég halda honum í einhvern sólarhring hjá sér í yfirheyrslum og verða svo að ákvarða hvort það sé grundvöllur fyrir gæsluvarðhaldi. Þá er hann fluttur á Hraunið í einangrun meðan rannsókn stendur yfir. Það var ekki gert í þessu tilfelli.

Bara svo það sé enginn misskilningur :wink:

Re: Játning mín til Hildar

Sent: Mið 18. Ágú 2010 00:31
af Gúrú
Hargo skrifaði:

95% viss um að það hafi staðið gæsluvarðhald í DV.is, ef það var ekki búið að dæma hann í gæsluvarðhald má DV.is fara að snúa sér að einhverju sem enginn skilur hvortsemer... t.d. af hverju fólk horfir á krikket.

Re: Játning mín til Hildar

Sent: Mið 18. Ágú 2010 09:14

Reyndar stóð ekkert um að hann hafi verið settur í gæsluvarðhald. Heldur bara að hann hafi verið handtekinn og í haldi lögreglu, lögreglan má halda fólki í 24 klst. án þess að gefa út ákæru, Gunnar var í haldi í 23 klst. áður en honum var sleppt.

Og annað sem sýnir að DV sé ömurlegt slúðurblað er að fleiri hafa verið handteknir en ekki var sýnt mynd af þeim eða þeir nafnbirtir [-X
ég er alveg viss að DV ef þeir vildu gætu séð hverjir þetta voru sem voru handteknir.

Re: Játning mín til Hildar

Sent: Mið 18. Ágú 2010 12:48
af coldcut
Come on...hættiði þessu væli og verið fegnir að búa ekki í Bretlandi þar sem það eru fjöldi svona blaða eins og DV. DV segir drenginn aldrei sekan og er bara að greina frá þessu og reyna að vera fyrstir með fréttirnar.
Það er gott að vera með blað eins og DV á Íslandi því að þar á bæ skiptir engu hver þú ert eða hverja þú þekkir, fréttir verða skrifaðar um þig ef tilefni er til!
Sjáið bara eins og bréfið um kynferðislega áreitni fyrrv. biskups. Náði DV ekki að grafa það upp og svo einhvern veginn komast yfir bréfið sem var skrifað um þetta mál? Eitt dæmi af mörgum.
Það er must að hafa eitt "rannsóknar"blað á meðan Fréttablaðið er bara þetta normal blað með nokkrar síður af lögreglufréttum og Morgunblaðið er ekkert annað en handbendi Sjálfstæðismanna! Það eina sem vantar núna er Kompás aftur á skjáinn til þess að það sé hægt að fletta ofan af fleiri hneykslum, því að nóg er af þeim og ekki getur DV uppljóstrað þeim öllum!

Re: Játning mín til Hildar

Sent: Mið 18. Ágú 2010 13:13
af Glazier
Svolítið til í þessu hjá þér, en hugsaðu þér að þetta hefði verið þú en ekki Gunnar sem hefði verið grunaður..
Ef nafnið þitt hefði birst í DV með mynd og öllu tilheyrandi, samt væriru allveg saklaus og hefðir ekki komið nálægt þessu.

Hefðiru þá hugsað svona eins og þú gerir núna ?
Þú hefðir þurft að byrja á því að sannfæra alla ættina þína um það að þú tengist þessu ekki á neinn hátt OG síðan að reyna að sannfæra alla aðra (sem eru að tuða í þér inná youtube og annarstaðar að þú sért morðingi)