Síða 1 af 1

Er e-r að leika sér með fjarstýrðar þyrlur?

Sent: Fim 12. Ágú 2010 21:31
af natti
Og þá er ég ekki að spá í pínulitlu þyrlunum sem fást í Toys'R'US.

Eg átti mini-dragonfly 2005, sem að brotlenti all-harkalega, og keypti mér í kjölfarið ESKY Honey Bee King,(v1) sem var að vísu aðeins of stórt stökk fyrir novice at the time.
Anyway, allt þyrludótið fór ofan í kassa í byrjun árs 2006, og ég var að taka upp aftur núna.
Nema að ég er pínu lost í hvernig er best fyrir mig að stilla servo-in, tengja allt rétt oþh.
Google gefur að vísu billjón og tvær niðurstöður af mis-góðum uppls. Því var ég að spá í hvort það væri einhver þyrlu-gaur(eða dama) hérna sem gæti beint mér á rétta braut.
Eða bent mér á "gott" spjallborð þar sem hægt er að leita eftir aðstoð.

Re: Er e-r að leika sér með fjarstýrðar þyrlur?

Sent: Fim 12. Ágú 2010 21:51
af hagur
Ég á eina svona:

http://www.e-fliterc.com/Products/Defau ... D=EFLH1250

Hrikalega skemmtileg.

Er samt eiginlega í sama pakka og þú, keypti hana árið 2007 og flaug henni helling. Svo brotlenti ég henni og hún skemmdist aðeins, og þá fór hún bara að safna ryki uppá hillu. Ég pantaði nýlega varahlutinn í hana og setti hann í, en hún er ekki alveg eins og hún á að sér að vera greyið - væntanlega eitthvað stillingaratriði, nema ég sé bara orðinn svona lélegur flugmaður eftir þessa pásu :lol:

Re: Er e-r að leika sér með fjarstýrðar þyrlur?

Sent: Fim 12. Ágú 2010 21:55
af GuðjónR
Strákar, fara alla leið og fá sér þyrlu með bensínmótor !!!
En djöfull hlýtur þetta að vera skemmtilegt sport.
Mixa litla videocameru á vélina og fljúga út um allt og taka upp.

Re: Er e-r að leika sér með fjarstýrðar þyrlur?

Sent: Fim 12. Ágú 2010 22:05
af hagur
GuðjónR skrifaði:Strákar, fara alla leið og fá sér þyrlu með bensínmótor !!!
En djöfull hlýtur þetta að vera skemmtilegt sport.
Mixa litla videocameru á vélina og fljúga út um allt og taka upp.

Ja, ég hef ekki lagt í þær ennþá .... þær hafa svo marga ókosti.

- Endalaus hávaði
- Verður að nota þær utandyra
- Þær eru flestar ef ekki allar 3D capable = mikið erfiðara að fljúga þeim
- Ef þær krassa, þá er það oftar en ekki vont crash og mjög dýrt að gera við

Etc.

En ég prófaði að strappa Sony Ericson K750i símann minn við þyrluna í þeirri von að geta flogið með hann og látið hann taka upp vídeó, en þyrluhelvítið réði ekki við að lyfta honum [-X

Re: Er e-r að leika sér með fjarstýrðar þyrlur?

Sent: Fim 12. Ágú 2010 23:11
af GuðjónR
hagur skrifaði:

Bensín mótor !

Re: Er e-r að leika sér með fjarstýrðar þyrlur?

Sent: Fim 12. Ágú 2010 23:12
af gardar
Mig langar í svona awesome hexacopter http://www.wimp.com/thehexacopter/

Re: Er e-r að leika sér með fjarstýrðar þyrlur?

Sent: Fim 12. Ágú 2010 23:13
af FuriousJoe
Ég veit að bensínbílar eru hrikalega skemmtilegir, bensínþyrlur.... vá mér langar að prófa !!!

Þarf að tékka á þessu sporti, fljúga þessu yfir veturinn þá er alltaf mjúk lending :D

Re: Er e-r að leika sér með fjarstýrðar þyrlur?

Sent: Fös 13. Ágú 2010 15:51
af natti
GuðjónR skrifaði:
Bensín mótor !

Þegar ég get púslað þessari saman og flogið, þá má skoða bensín eða nitro mótor dæmi.
Málið er að þetta kostar nokkra þúsundkalla, hitt byrjar í 100þ...

Læra á ódýra stuffið, hitt kemur seinna.

Re: Er e-r að leika sér með fjarstýrðar þyrlur?

Sent: Fös 13. Ágú 2010 20:30
af GuðjónR
natti skrifaði:
GuðjónR skrifaði:
Bensín mótor !

Þegar ég get púslað þessari saman og flogið, þá má skoða bensín eða nitro mótor dæmi.
Málið er að þetta kostar nokkra þúsundkalla, hitt byrjar í 100þ...

Læra á ódýra stuffið, hitt kemur seinna.

Byrjar í 100k? já sæll...

Re: Er e-r að leika sér með fjarstýrðar þyrlur?

Sent: Fös 13. Ágú 2010 20:50
af Hj0llz
Allt of mikið af svona delludóti sem manni langar í, væri alveg til í að skoða þetta...og jafnvel fjarstýrðar flugvélar

Re: Er e-r að leika sér með fjarstýrðar þyrlur?

Sent: Fös 13. Ágú 2010 22:40
af rapport
gardar skrifaði:Mig langar í svona awesome hexacopter http://www.wimp.com/thehexacopter/

Djöfull er þetta cool, þetta ræður líka við videovél yfir ylströndina fyrir "áhugamennina" hér að ofan... (eins og maður viti ekki hvað þeir eru að hugsa)

Re: Er e-r að leika sér með fjarstýrðar þyrlur?

Sent: Fös 13. Ágú 2010 22:57
af GuðjónR
rapport skrifaði:
gardar skrifaði:Mig langar í svona awesome hexacopter http://www.wimp.com/thehexacopter/

Djöfull er þetta cool, þetta ræður líka við videovél yfir ylströndina fyrir "áhugamennina" hér að ofan... (eins og maður viti ekki hvað þeir eru að hugsa)

hahahahahhaha :oops: :oops: :oops:
var þetta svona auglsjóst ...

þetta er geðveikt cool græja gps stýring og alles.

Re: Er e-r að leika sér með fjarstýrðar þyrlur?

Sent: Fös 13. Ágú 2010 23:16
af Frost
Ég á eina fjarstýrða rafmagns er alltaf að krassa henni. Myndi ekki leggja í bensín þar sem ég á bensínbíl og að gera við hann er mjög dýrt.

Re: Er e-r að leika sér með fjarstýrðar þyrlur?

Sent: Mið 18. Ágú 2010 11:09
af natti
Svona ef einhver annar hefur áhuga...
http://www.frettavefur.net er íslenskt spjallborð um módelflug... og smá þyrluhorn þar líka þó það fari lítið fyrir því.
http://helifreak.com/ - virðist vera þokkalega aktíft spjallborð um rc-þyrlur.

Þyrlan sem ég er að pússla saman... en er að bíða eftir annarri (og simulator) til að æfa mig á.
Mynd

Re: Er e-r að leika sér með fjarstýrðar þyrlur?

Sent: Mið 18. Ágú 2010 14:00
af emmi
Þetta er klárlega málið: http://www.youtube.com/watch?v=SDiyHDUbfUc

:)

Re: Er e-r að leika sér með fjarstýrðar þyrlur?

Sent: Mið 18. Ágú 2010 16:30
af Lallistori
emmi skrifaði:Þetta er klárlega málið: http://www.youtube.com/watch?v=SDiyHDUbfUc

:)

Shiiiit hvað það væri gaman að eiga svona græju , (þangað til að maður crassar þessu) :lol: