Síða 1 af 1

Tommi og ? - Ósýnilega músin

Sent: Mið 14. Júl 2010 13:18
af coldcut
Já ég bara varð að deila þessu með ykkur. Veit ekki hvort þið séuð búnir að sjá þetta en þessi Pranav Mistry gaur er aðeins á undan í hugsun og er að mínu mati algjör snillingur.

Project sem hann hefur verið að vinna að undanfarið er að er að gera "ósýnilega" mús sem virkar eins og "physical" mús. Tölvan nemur hreyfingar handarinnar með því að notast við innrauðan laser og innrauða myndavél. Framleiðslukostnaður er um 20 dollara að sögn Pranav's. Að mörgu leyti er þetta tengt síðasta verkefni hans sem komst í fréttirnar en þar talaði hann um sjötta skilningarvitið. Læt linka á vídeóin fylgja.

Ósýnilega músin
Smá grein á wired um þetta.

Sjötta skilningarvitið

Re: Tommi og ? - Ósýnilega músin

Sent: Mið 14. Júl 2010 16:25
af kubbur
Nice

Re: Tommi og ? - Ósýnilega músin

Sent: Mið 14. Júl 2010 16:29
af kristinnjs
haha þetter hevý næs

Re: Tommi og ? - Ósýnilega músin

Sent: Mið 14. Júl 2010 16:40
af Halli25
menn reyndu svona með lyklaborð og það dó út... spurning hvort þetta fari ekki sömu leið, verður gaman að sjá hvernig þetta fer.

Re: Tommi og ? - Ósýnilega músin

Sent: Mið 14. Júl 2010 16:55
af coldcut
faraldur skrifaði:menn reyndu svona með lyklaborð og það dó út... spurning hvort þetta fari ekki sömu leið, verður gaman að sjá hvernig þetta fer.


já...persónulega finnst mér samt þetta svolítið annar hlutur. Að skrifa á lyklaborð sem er varpað á borðið fyrir framan þig virkar bara ekki því mér finnst ég þurfa að finna fyrir því þegar ég færi mig yfir lyklana og finn "hökin" sem eru á t.d. f og j.
Hins vegar sé ég það alveg fyrir mér að nota "ósýnilega mús". Væri forvitnilegt ef þetta yrði látið virka eins trackpad's á nýju Macbook/Macbook Pro og svo virkar Magic Mouse eins. Þá er ég að tala um einhvers konar setup sem maður gæti jafnvel stillt sjálfur með því að láta laserinn og cameruna þekkja þínar hreyfingar (sama hugsun og keyboard shortcuts).

Mitt yrði t.d. einhvernveginn svona:

Kóði: Velja allt

Vinstri klikk - Vísifingur
Hægri klikk - Löngutöng
Scroll - Vísif. og löngut. dregin niður saman
Back/Forward í browser - Þrír puttar dregnir til hliðanna
Zoom - Eins og í Apple vörunum
o.s.frv.


Þannig að basically er þetta bara eins og virknin á nýju multitouch trackpad's í Mac-fartölvunum sem mér finnst geðveikar eftir að hafa prufað þær aðeins.

Re: Tommi og ? - Ósýnilega músin

Sent: Mið 14. Júl 2010 17:52
af Gúrú
Spurning hvort maður þyrfti ekki að hafa óþægilega hátt sensitivity fyrst maður getur ekki lyft músinni og fært aftur yfir á sama stað 8-[

Re: Tommi og ? - Ósýnilega músin

Sent: Mið 14. Júl 2010 18:06
af coldcut
Gúrú skrifaði:Spurning hvort maður þyrfti ekki að hafa óþægilega hátt sensitivity fyrst maður getur ekki lyft músinni og fært aftur yfir á sama stað 8-[


það er náttúrulega pæling sko...en ég mundi persónulega vilja hafa þetta þannig að maður hreyfði músina með því að snerta borðið/undirlagið eða vera mjööööög nálægt því. Svipað bara eins og ef þú lyftir upp laser-mús. Þá þyrftirðu ekkert að vera með ofur sensitivity því þá væri bara ennþá eins og þú værir með ímyndaða mús í höndunum.

Re: Tommi og ? - Ósýnilega músin

Sent: Mið 14. Júl 2010 21:29
af Minuz1
Gúrú skrifaði:Spurning hvort maður þyrfti ekki að hafa óþægilega hátt sensitivity fyrst maður getur ekki lyft músinni og fært aftur yfir á sama stað 8-[


Ferð út úr camera og inn aftur..

Re: Tommi og ? - Ósýnilega músin

Sent: Mið 14. Júl 2010 21:47
af Gúrú
Minuz1 skrifaði:
Gúrú skrifaði:Spurning hvort maður þyrfti ekki að hafa óþægilega hátt sensitivity fyrst maður getur ekki lyft músinni og fært aftur yfir á sama stað 8-[

Ferð út úr camera og inn aftur..


Hljómar sick óhentugt :shock: