Síða 1 af 1

iPad - athyglisvert

Sent: Þri 06. Júl 2010 22:39
af intenz
Mynd

Re: iPad - athyglisvert

Sent: Þri 06. Júl 2010 22:46
af rapport
Mér fannst ótrúlegast að heyra að þeir hefðu lokað á möguleikann fyrir iPad að tengjast iPhone´s WLAN, bara tilað geta selt iPad með 3G kortum til apple notanda...

Re: iPad - athyglisvert

Sent: Þri 06. Júl 2010 22:48
af biturk
kemur frá apple (steve jobs)

við hverju býstu, þessir menn lifa á svikum og svindla á viðskiptavinum

Re: iPad - athyglisvert

Sent: Þri 06. Júl 2010 22:53
af beatmaster
Ég býð spenntur eftir MakkaFanboy-inum sem að kemur og útskýrir af hverju þessi "fítus" er svona og afhverju hann ásamt Steve Jobs sé svona æðislegur

Re: iPad - athyglisvert

Sent: Þri 06. Júl 2010 23:18
af Leviathan
Finnst eins og manneskjurnar tvær í bakgrunni séu ekki eins í screenshottinu og myndinni frá Apple... Er þetta alveg pottþétt ALVEG sami rammi?

Annars er ekkert nýtt að svona kynningarmyndir séu photoshoppaðar í tætlur.

Re: iPad - athyglisvert

Sent: Þri 06. Júl 2010 23:20
af KrissiK
beatmaster skrifaði:Ég býð spenntur eftir MakkaFanboy-inum sem að kemur og útskýrir af hverju þessi "fítus" er svona og afhverju hann ásamt Steve Jobs sé svona æðislegur

x2!

Re: iPad - athyglisvert

Sent: Þri 06. Júl 2010 23:30
af Orri
Finnst alltaf jafn gaman að lesa kommentin frá Anti Apple Fanboy-unum þar sem þeir eru ekkert skárri sjálfir.

Myndi líka aldrei horfa á mynd með svona zoom drasli, en þá finnst mér alltaf eins og ég sé að missa af einhverju..

PS: Er ekki að réttlæta þetta né eitthvað annað "svindl" frá Apple.

Re: iPad - athyglisvert

Sent: Þri 06. Júl 2010 23:46
af KrissiK
Orri skrifaði:Finnst alltaf jafn gaman að lesa kommentin frá Anti Apple Fanboy-unum þar sem þeir eru ekkert skárri sjálfir.


you.... -_- :D :evil:

Re: iPad - athyglisvert

Sent: Mið 07. Júl 2010 01:32
af BjarniTS
Þetta er lítill skjár , hvaða væntingar eru þið að gera ykkur yfir höfuð ?

Apple er bara að fullnægja þeim sem meika að horfa á video í svona litlum skjám :)

Þeir gera það fullkomlega , rétt eins og flest sem að apple gerir :)

Re: iPad - athyglisvert

Sent: Mið 07. Júl 2010 05:18
af Gúrú
BjarniTS skrifaði:Þeir gera það fullkomlega , rétt eins og flest sem að apple gerir :)



Jáá þeir kunna þetta þarna í False advertisements deildinni hjá Apple :P

Re: iPad - athyglisvert

Sent: Mið 07. Júl 2010 10:09
af intenz
BjarniTS skrifaði:Þetta er lítill skjár , hvaða væntingar eru þið að gera ykkur yfir höfuð?

Að þeir blekki ekki fólk???

Þessi Apple ást þín hefur gjörsamlega blindað þig

Re: iPad - athyglisvert

Sent: Mið 07. Júl 2010 10:54
af Vectro
Þið viljið kannski næst gera athugasemd við það að klám myndir séu photoshoppaðar.

Klárlega vörusvik.

Re: iPad - athyglisvert

Sent: Mið 07. Júl 2010 11:09
af Glazier
Vectro skrifaði:Þið viljið kannski næst gera athugasemd við það að klám myndir séu photoshoppaðar.

Klárlega vörusvik.

Lol'd

Klám er e-ð sem þú færð frítt allstaðar á netinu, þetta er eitthvað sem maður borgar haugaf pening fyrir, afhverju ætti manni þá ekki að vera sama hvort klám myndir séu photoshoppaðar eða ekki ?

Re: iPad - athyglisvert

Sent: Mið 07. Júl 2010 11:18
af Vectro
Glazier skrifaði:
Vectro skrifaði:Þið viljið kannski næst gera athugasemd við það að klám myndir séu photoshoppaðar.

Klárlega vörusvik.

Lol'd

Klám er e-ð sem þú færð frítt allstaðar á netinu, þetta er eitthvað sem maður borgar haugaf pening fyrir, afhverju ætti manni þá ekki að vera sama hvort klám myndir séu photoshoppaðar eða ekki ?


Með þessum sömu rökum mætti spyrja, af hverju að vera að velta sér upp úr þessu, ef þú ætlar aldrei að kaupa þér iPad hvort eð er, og fyrst notendurnar sem hafa keypt sér hann gera ekki athugasemdir?

Re: iPad - athyglisvert

Sent: Mið 07. Júl 2010 11:45
af Orri
intenz skrifaði:
BjarniTS skrifaði:Þetta er lítill skjár , hvaða væntingar eru þið að gera ykkur yfir höfuð?

Að þeir blekki ekki fólk???

Þessi Apple ást þín hefur gjörsamlega blindað þig

Orri skrifaði:Finnst alltaf jafn gaman að lesa kommentin frá Anti Apple Fanboy-unum þar sem þeir eru ekkert skárri sjálfir.


Þú gerir ekki annað en að eyða tíma þínum í að hrauna yfir Apple og þeirra vörur..

Ótrúlegt hvað fólk er viljugt til að eyða tíma í að finna út eitthvað eins og þetta Photoshop svindl.
Þori að veðja að náunginn sem fann þetta hefur engann áhuga á að kaupa sér iPad.

PS: Aftur, er ekki að réttlæta þetta "svindl".

Re: iPad - athyglisvert

Sent: Mið 07. Júl 2010 12:28
af gardar
BjarniTS skrifaði:Þetta er lítill skjár , hvaða væntingar eru þið að gera ykkur yfir höfuð ?

Apple er bara að fullnægja þeim sem meika að horfa á video í svona litlum skjám :)

Þeir gera það fullkomlega , rétt eins og flest sem að apple gerir :)



#-o

Ég á archos 605 spilara sem er með 4.3" skjá... Á honum get ég valið 16:9, 4:3, autozoom, orginal size.
Að sjálfsögðu vel ég orginal size þar sem ég vil sjá alla myndina...


iPad er með 9.7" skjá og þú ert að segja að ég geti ekki gert sömu/meiri væntingar til videogláps á ipad?

Re: iPad - athyglisvert

Sent: Fös 09. Júl 2010 22:19
af Dári
Auglysing sem lygur? Say it ain't so! boohoo

Mynd

Re: iPad - athyglisvert

Sent: Fös 09. Júl 2010 22:37
af rapport
Þetta er svo einfalt...

Apple er eins og vinstristjórn sem "veit allt best" og stýrir með boðum og bönnum öllu sem fólk gerir.

Microsoft er eins og hægristjórn, það er svona mest allt leyft nema það sé bannað, það er spilling og öðru hverju verður kerfishrun.

Linux skilst mér að sé svona anarchy, stjórnleysi... fólk gerir bara það sem það vill og einhvernveginn þá myndast stöðugleiki um þá sem eru kláriri að pota sér á framfæri.


Apple = kommúnismi...

Án djóks, þetta er alveg satt...

Re: iPad - athyglisvert

Sent: Lau 10. Júl 2010 00:17
af benson
Það er væntanlega hægt að spila 16:9 video í letterbox formatti á iPad?