Síða 1 af 1
Hvar á ég að versla internettenginguna?
Sent: Þri 06. Júl 2010 00:40
af rapport
Hvað er ansk. málið...?
Svo er þjónustuvefurinn hjá símanum orðinn svo slow að það liggur við að ég væri sneggri að bíða eftir anskotans reikningnum...
Hér er helvítis lýsingin á þessu rusli sem ég er að borga fyrir...
Um áskriftarleið
Hraði allt að 16 Mb/s
Gagnamagn 120 GB
Hentar stórnotendum eða fjölskyldum með margar tölvur og mikla notkun, t.d. vafra um netið, Youtube, streymi, spilun leikja og niðurhal.
Mánaðarverð: 7.250 kr.
Leið 3: Lesa meira
Re: Hvar á ég að versla internettenginguna?
Sent: Þri 06. Júl 2010 00:47
af AntiTrust
Ég er akkúrat tiltölulega nýkominn yfir til símans, sama leið og þú ert með og er svoleiðis hoppandi ánægður yfir hraðanum sem ég er að ná.
Re: Hvar á ég að versla internettenginguna?
Sent: Þri 06. Júl 2010 01:21
af rapport
AntiTrust skrifaði:Ég er akkúrat tiltölulega nýkominn yfir til símans, sama leið og þú ert með og er svoleiðis hoppandi ánægður yfir hraðanum sem ég er að ná.
Þú ert s.s. að ná betri hraða en ég...?
Nema það sé einfaldlega svona auðvelt að gleðja þig..
p.s. viðbót...
Hraðinn stórbatnar ef ég færi mig frá París yfir til Abredeen...
Næst þegar síminn klúðara einhverju shitti í París, þá skulu þeir sko fá að heyra það frá mér...
p.p.s. viðbót.
Paris eftir að hafa restartað routernum og fengið nýja IP-tölu...
Sáttur við London... nú fer ég glaður að sofa.... (þetta er samt drasl)...
Re: Hvar á ég að versla internettenginguna?
Sent: Þri 06. Júl 2010 01:35
af wicket
Prófaðirðu þetta í gegnum þráðlaust eða með snúru ?
Með torrent eða annað bandwith intensive í gangi ?
Með Sjónvarp Símans og kveikt á afruglaranum ?
Það er hrikalega margt sem að hefur áhrif á þetta próf ?
Ég myndi byrja á að tala við 8007000 og láta þau mæla línuna og gera hraðatestið þeirra.
Það getur verið léleg línan í húsinu þínu, það er innanhússlagnir. Þá mun netið þitt alltaf vera lélegt.
Svo ef þú ert með Speedtouch 585 (blátt box) myndi ég fara niðrí Símann og henda því í þá og fá Speedtouch TG585n sem virðist synca miklu hærra miðað við mína reynslu og fleiri hér inni.
Re: Hvar á ég að versla internettenginguna?
Sent: Þri 06. Júl 2010 01:38
af rapport
wicket skrifaði:Prófaðirðu þetta í gegnum þráðlaust eða með snúru ?
Með torrent eða annað bandwith intensive í gangi ?
Með Sjónvarp Símans og kveikt á afruglaranum ?
Það er hrikalega margt sem að hefur áhrif á þetta próf ?
Ég myndi byrja á að tala við 8007000 og láta þau mæla línuna og gera hraðatestið þeirra.
Það getur verið léleg línan í húsinu þínu, það er innanhússlagnir. Þá mun netið þitt alltaf vera lélegt.
Svo ef þú ert með Speedtouch 585 (blátt box) myndi ég fara niðrí Símann og henda því í þá og fá Speedtouch TG585n sem virðist synca miklu hærra miðað við mína reynslu og fleiri hér inni.
hmmm...
Ég er með 585 v6 eftir að hafa hent v5 í hausinn á þeim á sínum tíma...
En allavega þá var þetta leti í mér að nenna ekki að tékka á þjónum í UK, bara á meginlandinu...
Re: Hvar á ég að versla internettenginguna?
Sent: Þri 06. Júl 2010 20:30
af intenz
Ég er nær oftast sáttur með hraðann minn hjá Símanum.
Ég er alveg á því að Síminn sé með besta DSL kerfið á Íslandi.
En ef ég væri ljóstengdur myndi ég velja Vodafone. Ef ég væri ljósnetstengdur myndi ég velja Símann.
Re: Hvar á ég að versla internettenginguna?
Sent: Mið 07. Júl 2010 10:21
af kubbur
ljós og ljósnet ?
Re: Hvar á ég að versla internettenginguna?
Sent: Mið 07. Júl 2010 11:23
af wicket
kubbur skrifaði:ljós og ljósnet ?
Bah, ekki þessi umræða aftur.
Gagnaveitan er með svokallað FTTH (Fiber to the home) og FTTB (Fiber to the basement/building) á meðan að Síminn er með Ljósnet sem er blönduð tækni og er FTTH (Fiber to the home) ,FTTC (Fiber to the Curb) og FTTB ( Fiber to the basement/building) og þar sem að ljósið endar tekur svo önnur tækni við.
Ég skil ekki afhverju fólk er að hamra svona á þessu. Báðar leiðir eru með 50mbit en Ljósnetið er bara með 25mbit upload en er ódýrara en tenging Gagnaveitunnar.
Fólk bara velur sér þá tengingu sem það vill, menn þurfa ekki að vera í typpakeppni um þær í sífellu
Re: Hvar á ég að versla internettenginguna?
Sent: Mið 07. Júl 2010 15:10
af gardar
Síminn er með lang besta route-ið úr landi, svo að þú ættir ekki að fá betri hraða frá einum öðrum.
Re: Hvar á ég að versla internettenginguna?
Sent: Mið 07. Júl 2010 16:16
af Andriante
Síminn er lang bestur.
Re: Hvar á ég að versla internettenginguna?
Sent: Mið 07. Júl 2010 17:48
af Jon1
uff það eina sem ég hef fengið frá símanum er bull rugl og vitleysa ... og ég var að vinna fyrir þá. En eins og staðan er í dag þá fynnst mér öll þessi fyrirtæki vera að missa niður um sig