Síða 1 af 1
Búa til 3d myndir?
Sent: Þri 29. Jún 2010 11:34
af BjarkiB
Sælir/ar vaktarar,
Fór á Toy Story 3 um daginn í 3d og maður mátti eiga gleraugun. Veit eitthver hvernig hægt er búa til 3d myndir eða video? þetta er ekki blá og rauð gleraugu heldur bara svört.
Hef samt eitthverjar hugmyndir að þetta sé ekki hægt eða mjög flókið.
kv.Tiesto
Re: Búa til 3d myndir?
Sent: Þri 29. Jún 2010 11:44
af Zpand3x
Þú þarft skjá sem er 3D rdy 120 hz skjá (veit ekki hvort CRT virkar) eða meira því (panasonic sjónvörpin eru 600Hz) þetta eru basicly 2 hliðstæðar myndir sem blikka/flassa á skjánum.. og önnur sést bara með hægra glerinu og er sýnir bara láréttar bylgjur og vinstra sýnir bara lóðrétt (gæti verið að swappa). þannig saman ertu að sjá 60 hz -a 3d mynd
Reyndar eru REAL3D cyrcular polarixed..
http://www.youtube.com/watch?v=PDzkRmOmwfA
Re: Búa til 3d myndir?
Sent: Þri 29. Jún 2010 11:44
af AntiTrust
Ertu að tala um að converta núverandi myndum í 3D? Eða að taka upp í 3D?
Skiptir svosem engu hvort þú ert að tala um, bæði krefst tækja, tóla, og sérfræðiþekkingar sem kostar stærri tölu en flestir græða yfir ævina.
Re: Búa til 3d myndir?
Sent: Þri 29. Jún 2010 11:48
af BjarkiB
Var að tala um að gera bara mynd (jpg. png.) en já datt í hug að það þurfti helling af tækjum og tólum.
Re: Búa til 3d myndir?
Sent: Þri 29. Jún 2010 11:56
af Zpand3x
Gæti svosem verið hægt að gera gif hreyfimynd sem skiptir um mynd 120 sinnum á sekúntu og skipst á að hafa lárétt polarized og lóðrétt polarixed (þ.e. ef þú værir með lineal polarized gleraugu og 120 hz skjá)
kann samt ekki að gera þetta og hvað þá circular polarizeation
Re: Búa til 3d myndir?
Sent: Þri 29. Jún 2010 12:00
af ManiO
Zpand3x skrifaði:Gæti svosem verið hægt að gera gif hreyfimynd sem skiptir um mynd 120 sinnum á sekúntu og skipst á að hafa lárétt polarized og lóðrétt polarixed (þ.e. ef þú værir með lineal polarized gleraugu og 120 hz skjá)
kann samt ekki að gera þetta og hvað þá circular polarizeation
Getur ekki stillt polaríseringu á ljósi með gif mynd.