Síða 1 af 2
út að borða og eitthvað á eftir! Hjálp!
Sent: Fös 18. Jún 2010 14:50
af bixer
hæhæ
vandamálið mitt er að ég ætla út að borða í kvöld með kærustunni í kvöld og gera eitthvað eftir það. ég er 15 ára og er ekki úr borgini, hvað ætti ég að gera?
er að hugsa um að fara ágætlega fínt út að borða, langar í steik, hamborgara eða eitthvað. má ekki kosta meira en 20 fyrir okkur 2. svo vantar mig eitthvað að gera eftir það, eru einhverjar góðar myndir í bíó fyrir okkur eða eitthvað
með von um fljót svör
Bixer
Re: út að borða og eitthvað á eftir! Hjálp!
Sent: Fös 18. Jún 2010 14:55
af ellixx
það er hægt að fá nautasteik á vínhúsinu í hafnarfyrði gamla A Hansen á 1500kr
þokkalega fínn staður en er svoldið út úr leið ef þú ert að einblína á miðbæ RVK.
kveðja
Erling
Re: út að borða og eitthvað á eftir! Hjálp!
Sent: Fös 18. Jún 2010 14:58
af bixer
vil vera í miðbænum eða allavgeg ekki hafnarfirði eða eitthvað
Re: út að borða og eitthvað á eftir! Hjálp!
Sent: Fös 18. Jún 2010 15:04
af JohnnyX
nautasteikinn á Ask er ekkert smá góð! (að mínu mati). Askur er á suðurlandsbraut rétt fyrir ofan Laugardalinn ef þú veist ekki hvar hann er ;}
EDIT: Hvað varðar bíómynd þá kom Toy Story 3 skemmtilega á óvart (must see þótt maður sé orðinn eldri
) og Get him to the Greek er líka alveg fínasta mynd
Re: út að borða og eitthvað á eftir! Hjálp!
Sent: Fös 18. Jún 2010 15:13
af bixer
er eitthvað hægt að gera nálægt ask?
Re: út að borða og eitthvað á eftir! Hjálp!
Sent: Fös 18. Jún 2010 15:16
af JohnnyX
bixer skrifaði:er eitthvað hægt að gera nálægt ask?
Billjardbarinn er í Skeifunni ekki það langt frá og Kringlubíó svo sem í göngufæri, meira man ég ekki í augnablikinu.
Re: út að borða og eitthvað á eftir! Hjálp!
Sent: Fös 18. Jún 2010 15:52
af FriðrikH
Hereford steikhús er gott ef þú ert mikill steikarmaður. Annars er Caruso líka alhliða fínn staður og Hornið er frábær pizzastaður (fínni pizzastaður hægt að fá talsvert fleira en pizzur þar).
Re: út að borða og eitthvað á eftir! Hjálp!
Sent: Fös 18. Jún 2010 16:08
af bixer
hereford er of dýrt fyrir okkur 2.. ef ég ætlaði einn þá færi ég pottþétt á hereford. caruso hef ég alldrei heyrt um og virðist vera dýrt
Re: út að borða og eitthvað á eftir! Hjálp!
Sent: Fös 18. Jún 2010 16:18
af g0tlife
fara bara í smárann, borða þar og skella sér svo í bíó.
Re: út að borða og eitthvað á eftir! Hjálp!
Sent: Fös 18. Jún 2010 16:19
af coldcut
Grillið á Hótel Sögu!
Eitthvað sem heitir "Réttir hússins" (ekki með nafnið á hreinu en það er eitthvað í þessa áttina) færð 4 awesome rétti á 8þús kall manninn þannig að það yrðu 16þús fyrir ykkur hjónaleysin. Og svo megið þið ekki drekka vín (nema hún sé yfir 20 og þá ætti hún að vera kærð) þannig að það fer kannski þúsund í drykki.
Svo bara 3þúsund í bíó
Það verður ekki meiri klassi á því!
Re: út að borða og eitthvað á eftir! Hjálp!
Sent: Fös 18. Jún 2010 16:26
af ellixx
ég held að kringlan eða smárinn sé málið fyrir ykkur .
í smáranum mæli ég með
tgi fridays BBQ rif og bío
http://www.fridays.is/http://midi.is/kvikmyndasyningar/#smarabioverði ykkur að góðu
kveðja
Erling
Re: út að borða og eitthvað á eftir! Hjálp!
Sent: Fös 18. Jún 2010 16:31
af bixer
grillið er lokað, smárinn er ekki nógu fínn...hrikalega er þetta mikið vesen
Re: út að borða og eitthvað á eftir! Hjálp!
Sent: Fös 18. Jún 2010 16:32
af hauksinick
coldcut skrifaði:Grillið á Hótel Sögu!
Eitthvað sem heitir "Réttir hússins" (ekki með nafnið á hreinu en það er eitthvað í þessa áttina) færð 4 awesome rétti á 8þús kall manninn þannig að það yrðu 16þús fyrir ykkur hjónaleysin. Og svo megið þið ekki drekka vín (nema hún sé yfir 20 og þá ætti hún að vera kærð) þannig að það fer kannski þúsund í drykki.
Svo bara 3þúsund í bíó
Það verður ekki meiri klassi á því!
x2
Re: út að borða og eitthvað á eftir! Hjálp!
Sent: Fös 18. Jún 2010 16:37
af g0tlife
nema þú getur látið e-h skutla ykkur í bíó eftir matinn. Annars held ég að þú þarft bara að taka smárann á þetta. Væri mun léttara væriru með prófið
Re: út að borða og eitthvað á eftir! Hjálp!
Sent: Fös 18. Jún 2010 17:45
af CendenZ
Perlan, Hereford, Fiskfélagið og Grillið.
Perlan, fisk og grillið eru með fastan matseðil, sérð þá á síðunni þeirra
Re: út að borða og eitthvað á eftir! Hjálp!
Sent: Fös 18. Jún 2010 18:52
af Black
Sko ég veit ekki en, myndi já einnig passa uppá hvað þú kaupir að borða, ekki fá þér kjúklingaleggi, ekki fá þér BBQ rif, mæli með að fá sér eitthvað sem maður verður ekki með hálfann matinn í andlitinu og á höndunum ^^
Taktu hana bara á einhvern kínverskan stað, það er oftast hagstætt og gott, Mynd, well Toy Story,The A Team
GL&HF
Re: út að borða og eitthvað á eftir! Hjálp!
Sent: Fös 18. Jún 2010 18:55
af bixer
jæja, erum hætt við að fara út í kvöld. förum samt örugglega út annað kvöld þannig ef þið hafið einhverjar fleiri hugmyndir þá megið þið endilega deila þeim.
en já takk kærlega fyrir svörin, það verður örruglega askur og kringlubíó annaðkvöld eða er einhver betri staður rétt hjá kringluni?
Re: út að borða og eitthvað á eftir! Hjálp!
Sent: Fös 18. Jún 2010 19:15
af Pandemic
Kringlukráin er mjög flottur staður og góður matur, einnig eru borðin temmilega prívat.
Re: út að borða og eitthvað á eftir! Hjálp!
Sent: Fös 18. Jún 2010 19:20
af rapport
bixer skrifaði:hæhæ
vandamálið mitt er að ég ætla út að borða í kvöld með kærustunni í kvöld og gera eitthvað eftir það. ég er 15 ára og er ekki úr borgini, hvað ætti ég að gera?
er að hugsa um að fara ágætlega fínt út að borða, langar í steik, hamborgara eða eitthvað. má ekki kosta meira en 20 fyrir okkur 2. svo vantar mig eitthvað að gera eftir það, eru einhverjar góðar myndir í bíó fyrir okkur eða eitthvað
með von um fljót svör
Bixer
Fór fyrir skemmstu (2-3 vikum) á
Tapas Barinní miðbænum...
Æðsilegur matur, ég tek alltaf Nauta-Banans og kærastan alltaf "Óvissuferð"... (ef við förum eitthvað þá er það þangað ef við fáum pössun, förum annars með börnin með okkur á Hressó (virk kvöld) þar er líka gott eldhús og fínn matseðill)
Tókum þrjá kokteila (einn miðnes + tvo Mojito) og einn bjór+gos með matnum = 16.500kr.... í það heila.
Sátum frá 20:30 til 23:00 c.a. svo var smá tölt um miðbæinn og svo bara dans dans dans til 5:30 (það dróg svo upphæðina aðeins uppfyrir 20þ, en bara "aðeins" hóst hóst..)
Re: út að borða og eitthvað á eftir! Hjálp!
Sent: Fös 18. Jún 2010 19:25
af gardar
I am 12 and what is this?
Re: út að borða og eitthvað á eftir! Hjálp!
Sent: Fös 18. Jún 2010 19:42
af rapport
gardar skrifaði:I am 12 and what is this?
M.v. undirskriftina þína... þá er það bara vinnueftirlitið og barnaverndarnefnd....
Re: út að borða og eitthvað á eftir! Hjálp!
Sent: Fös 18. Jún 2010 20:16
af zedro
gardar skrifaði:I am 12 and what is this?
Fullorðnafólkið er að miðla visku farðu bara aftur í pleimó.
Reglurnar skrifaði:4. gr.
Ekki senda inn óþarfa bréf
Ekki senda inn bréf nema þú hafir eitthvað að segja eða spyrja um. Ekki senda inn
2 bréf í röð á sama þráðinn, þú getur notað breyta takkan til að bæta við eldri bréf.
Re: út að borða og eitthvað á eftir! Hjálp!
Sent: Fös 18. Jún 2010 21:26
af SolidFeather
Vitabar, besti ostborgarinn í bænum á 800 kall og nautasteik með bjór á 2200.
Re: út að borða og eitthvað á eftir! Hjálp!
Sent: Fös 18. Jún 2010 22:33
af Daz
Mig minnir að Argentína sé enþá með tilboð/leik þar sem þú færð 2 fyrir 1 ef þú ert að fara í leikhús.
Tilboð. Stutt labb á hlemm og þaðan í bíó?
Re: út að borða og eitthvað á eftir! Hjálp!
Sent: Fös 18. Jún 2010 23:04
af gardar
Zedro skrifaði:gardar skrifaði:I am 12 and what is this?
Fullorðnafólkið er að miðla visku farðu bara aftur í pleimó.
Reglurnar skrifaði:4. gr.
Ekki senda inn óþarfa bréf
Ekki senda inn bréf nema þú hafir eitthvað að segja eða spyrja um. Ekki senda inn
2 bréf í röð á sama þráðinn, þú getur notað breyta takkan til að bæta við eldri bréf.
Greinilega enginn sem náði gríninu