Síða 1 af 3

Steluþjófur í Tölvuvirkni ... þekkirðu manninn?

Sent: Mið 26. Maí 2010 16:51
af hagur
Sá þetta á Facebook, datt í hug að pósta þessu hingað inn.

Þekkirðu þennan?

http://www.youtube.com/watch?v=YHeQDbtIwRs

Re: Steluþjófur í Tölvuvirkni ... þekkirðu manninn?

Sent: Mið 26. Maí 2010 16:56
af Páll
Alveg hreint ömurlegt að fólk sé að stela svona.

Re: Steluþjófur í Tölvuvirkni ... þekkirðu manninn?

Sent: Mið 26. Maí 2010 17:06
af coldcut
Djöfull var hann tekinn!

...en því miður veit ég ekki hver þetta er :/

En ef þið komist að því hver þetta er að þá þýðir ekkert að kæra hann til lögreglunnar því að þetta eru svosem ekkert góðar sannanir því hann gæti alveg haldið því fram að hann væri að skoða íhlutina. Eina ráðið er að finna út hvar hann á heima og senda einhverja hrotta á hann sem hræða hann til þess að skila minnunum!

Re: Steluþjófur í Tölvuvirkni ... þekkirðu manninn?

Sent: Mið 26. Maí 2010 17:19
af JohnnyX
að hann skuli ekki átta sig á því að það eru öryggismyndavélar þarna!

Re: Steluþjófur í Tölvuvirkni ... þekkirðu manninn?

Sent: Mið 26. Maí 2010 17:24
af codec
Ömurlegt að gera svona, en hvað er málið með afgreiðsluna? Afhverju kemur engin til að afgreiða, held það væri lágmark að það sé einhver í búðinni til að afgreiða og fylgjast með? Hann er þarna dágóða stund að dunda sér eitthvað og engin kemur fram til að athuga hvað hann vill, það er bara open season fyrir svona gaura.

Verslunin tapar bara viðskiptum ef þjónustan er almennt svona (vonandi er þetta undantekningar tilfelli), fyrir utan að nánast bjóða gaurum eins og þessum upp á að stela.
Svona fyrir mína parta þá væri ég líklega tilbúin að labba út og í aðra búð að versla ef það kemur engin að afgreiða mann.

Re: Steluþjófur í Tölvuvirkni ... þekkirðu manninn?

Sent: Mið 26. Maí 2010 17:24
af Leviathan
coldcut skrifaði:Djöfull var hann tekinn!

...en því miður veit ég ekki hver þetta er :/

En ef þið komist að því hver þetta er að þá þýðir ekkert að kæra hann til lögreglunnar því að þetta eru svosem ekkert góðar sannanir því hann gæti alveg haldið því fram að hann væri að skoða íhlutina. Eina ráðið er að finna út hvar hann á heima og senda einhverja hrotta á hann sem hræða hann til þess að skila minnunum!

Haha, efast um að Tölvulistinn sé að fara að gera það. :D

Annars er þetta afskaplega lélegt.

Re: Steluþjófur í Tölvuvirkni ... þekkirðu manninn?

Sent: Mið 26. Maí 2010 17:25
af BjarkiB
Þetta er í tölvuvirkni.

Re: Steluþjófur í Tölvuvirkni ... þekkirðu manninn?

Sent: Mið 26. Maí 2010 17:46
af noizer
codec skrifaði:Ömurlegt að gera svona, en hvað er málið með afgreiðsluna? Afhverju kemur engin til að afgreiða, held það væri lágmark að það sé einhver í búðinni til að afgreiða og fylgjast með? Hann er þarna dágóða stund að dunda sér eitthvað og engin kemur fram til að athuga hvað hann vill, það er bara open season fyrir svona gaura.

Verslunin tapar bara viðskiptum ef þjónustan er almennt svona (vonandi er þetta undantekningar tilfelli), fyrir utan að nánast bjóða gaurum eins og þessum upp á að stela.
Svona fyrir mína parta þá væri ég líklega tilbúin að labba út og í aðra búð að versla ef það kemur engin að afgreiða mann.

http://www.youtube.com/watch?v=YHeQDbtIwRs#t=1m44s

Re: Steluþjófur í Tölvuvirkni ... þekkirðu manninn?

Sent: Mið 26. Maí 2010 17:53
af Halli25
Veit ekki hvort persónuvernd verði rosalega ánægðir með svona framtak...

Re: Steluþjófur í Tölvuvirkni ... þekkirðu manninn?

Sent: Mið 26. Maí 2010 18:22
af Tiger
JohnnyX skrifaði:að hann skuli ekki átta sig á því að það eru öryggismyndavélar þarna!


Er það ekki bara eðlilegt að hann átti sig ekki á því, meina hann hlýtur að vera heimskur með afbrigðum og illa þroskahefur að stela svona.... þannig að það er bara eðlilegt að svona mannvitsbrekkur átti sig ekki á því að það séu myndavélar.

Re: Steluþjófur í Tölvuvirkni ... þekkirðu manninn?

Sent: Mið 26. Maí 2010 18:28
af Black
Mæli bara með því að reyna deila þessu sem mest á facebook.. endar kannski með því að hann sjálfur verði taggaður í þetta e-ð =D>

En að fólk skuli vera stela svona, [-X

Re: Steluþjófur í Tölvuvirkni ... þekkirðu manninn?

Sent: Mið 26. Maí 2010 18:38
af hagur
faraldur skrifaði:Veit ekki hvort persónuvernd verði rosalega ánægðir með svona framtak...


Æ, er ekki þessi aðili búinn að vinna sér inn smá umfjöllun með því að brjóta lög?

Pirrandi hvað réttindi lögbrjóta geta stundum verið mikil.

Hann stal og á ekkert annað skilið en að þessu myndbandi sé dreift sem víðast.

Re: Steluþjófur í Tölvuvirkni ... þekkirðu manninn?

Sent: Mið 26. Maí 2010 18:43
af Hargo
Var sýningartölvan opin eða tók hann hliðina af henni?

Sé ekkert að því að pósta þessu á youtube, facebook og fleiri stöðum. Ef gaurinn vill fá sína persónufriðhelgi aftur þá skilar hann minninu og biðst afsökunar á gjörðum sínum.

Re: Steluþjófur í Tölvuvirkni ... þekkirðu manninn?

Sent: Mið 26. Maí 2010 19:41
af Páll
Hargo skrifaði:Var sýningartölvan opin eða tók hann hliðina af henni?

Sé ekkert að því að pósta þessu á youtube, facebook og fleiri stöðum. Ef gaurinn vill fá sína persónufriðhelgi aftur þá skilar hann minninu og biðst afsökunar á gjörðum sínum.

=D>

Re: Steluþjófur í Tölvuvirkni ... þekkirðu manninn?

Sent: Mið 26. Maí 2010 19:55
af GuðjónR
faraldur skrifaði:Veit ekki hvort persónuvernd verði rosalega ánægðir með svona framtak...

Þeir styðja líka glæpamannadekur.

Frábært hjá Tölvuvirkni að setja þetta á netið.

Re: Steluþjófur í Tölvuvirkni ... þekkirðu manninn?

Sent: Mið 26. Maí 2010 20:44
af FriðrikH
persónuvernd segir ekki neitt, enda geri ég ráð fyrir að það sé auglýst í versluninni að þar séu öryggismyndavélar (skylda að auglýsa það).

Re: Steluþjófur í Tölvuvirkni ... þekkirðu manninn?

Sent: Mið 26. Maí 2010 20:47
af Jimmy
Vona svo innilega að dólgurinn náist, þó ekki nema til að þrýsta aðeins á hann.
Fínt líka að dreifa þessu vídjói til að aðrir söluaðilar geti haft auga með kauða.

Ekkert hægt að sakast við þjónustuna í versluninni í þessu tilfelli, sumir kúnnar kjósa einfaldlega að browsa án þess að hafa sölumann oní hálsmálinu og lítið hægt að gera í því..

Re: Steluþjófur í Tölvuvirkni ... þekkirðu manninn?

Sent: Mið 26. Maí 2010 22:03
af AngryMachine
fridrih skrifaði:persónuvernd segir ekki neitt, enda geri ég ráð fyrir að það sé auglýst í versluninni að þar séu öryggismyndavélar (skylda að auglýsa það).


Persónuvernd hefur svo margoft tekið það fram að svona myndbirtingar eru óheimilar.

Smá sýnishorn:
Samkvæmt b-lið 8. tölul. 2. gr. laga nr. 77/2000 eru upplýsingar um hvort maður hafi verið grunaður, kærður, ákærður eða dæmdur fyrir refsiverðan verknað viðkvæmar persónuupplýsingar [Þar af leiðir að] það efni, sem til verður við vöktunina, verði ekki afhent öðrum eða unnið frekar nema með samþykki þess sem upptaka er af eða samkvæmt ákvörðun Persónuverndar; heimilt sé þó að afhenda lögreglu efni með upplýsingum um slys eða refsiverðan verknað, en þá skuli þess gætt að eyða öllum öðrum eintökum af efninu


Ég er ekki að dæma um það hvort þetta fyrirkomulag sé gott eða slæmt, það er hinsvegar búið að hamra það oft á þessu að ég er frekar hissa á því að sjá þetta myndband. Ég vona að Tölvuvirknismenn fái vinnsluminnin sín til baka, ég efast hinsvegar um að þessi æfing verði þeim til framdráttar.

Re: Steluþjófur í Tölvuvirkni ... þekkirðu manninn?

Sent: Mið 26. Maí 2010 22:05
af OverClocker
Þetta er mjög gott hjá Tölvuvirkni.
Nú er bara að vona að þessi gaur fái kaldar kveðjur í næstu tölvuverslun.

Re: Steluþjófur í Tölvuvirkni ... þekkirðu manninn?

Sent: Mið 26. Maí 2010 22:15
af intenz
Dugðu ekki launin í unglingavinnunni fyrir nýju minni í tölvuna hans??? [-X

Re: Steluþjófur í Tölvuvirkni ... þekkirðu manninn?

Sent: Mið 26. Maí 2010 22:17
af AntiTrust
Mér finnst þjónusta þar sem hún er ekki veitt nema umbeðin frábær, og er nokkuð viss um að mörgum tölvunjörðunum finnst það líka.

Mér er afar vel við starfsmennina þarna og búðina sjálfa, góðar vörur og hörkuverð.

En þetta þykir mér því miður fyrir neðan tja .. - segi ekki allar hellur, en þetta finnst mér low. Þangað til það er búið að nafngreina manninn, kæra og dæma, á svona lagað ekkert að gera á netið. Ekki fara á niður á sama level og hann og gerast lögbrjótur.

Með réttu gæti hann kært, og unnið talsvert meiri skaðabætur en hann þyrfti að endurgreiða fyrir þessi minni.

Re: Steluþjófur í Tölvuvirkni ... þekkirðu manninn?

Sent: Fim 27. Maí 2010 01:30
af urban
Jimmy skrifaði:Vona svo innilega að dólgurinn náist, þó ekki nema til að þrýsta aðeins á hann.
Fínt líka að dreifa þessu vídjói til að aðrir söluaðilar geti haft auga með kauða.

Ekkert hægt að sakast við þjónustuna í versluninni í þessu tilfelli, sumir kúnnar kjósa einfaldlega að browsa án þess að hafa sölumann oní hálsmálinu og lítið hægt að gera í því.
.


jájá, ég vill geta skoðað hluti og svoleiðis án þess að vera með mannin ofaní rassgatinu á mér.
en það hefði verið hægt að komast hjá þessu með því að afgreiðslumaður stæði á bakvið borðið

AntiTrust skrifaði:Mér finnst þjónusta þar sem hún er ekki veitt nema umbeðin frábær, og er nokkuð viss um að mörgum tölvunjörðunum finnst það líka.

Mér er afar vel við starfsmennina þarna og búðina sjálfa, góðar vörur og hörkuverð.

En þetta þykir mér því miður fyrir neðan tja .. - segi ekki allar hellur, en þetta finnst mér low. Þangað til það er búið að nafngreina manninn, kæra og dæma, á svona lagað ekkert að gera á netið. Ekki fara á niður á sama level og hann og gerast lögbrjótur.


Með réttu gæti hann kært, og unnið talsvert meiri skaðabætur en hann þyrfti að endurgreiða fyrir þessi minni.


akkurat.
þarna er dómstólur götunar að dæma manninn alveg hiklaust.
ég vill búa í réttarfarsríki, þar sem að menn eru saklausir uns þeir eru dæmdir.

ég persónulega er algerlega á móti því að þetta video skuli hafa skriðið á netið.
allt öðru vísi hefði það farið á netið og bara verið að leita af manneskjunni í því, semsagt ekki tekið fram að hann hefði verið að stela neinu.

held bara að tölvuvirkni gæti lennt í slæmum málum út af þessu.

Re: Steluþjófur í Tölvuvirkni ... þekkirðu manninn?

Sent: Fim 27. Maí 2010 09:17
af codec
AntiTrust skrifaði:Mér finnst þjónusta þar sem hún er ekki veitt nema umbeðin frábær, og er nokkuð viss um að mörgum tölvunjörðunum finnst það líka.

Sammála þessu, en það þarf að vera einhver til staðar til að biðja um þjónstu ef maður vill.

Re: Steluþjófur í Tölvuvirkni ... þekkirðu manninn?

Sent: Fim 27. Maí 2010 10:07
af intenz
codec skrifaði:
AntiTrust skrifaði:Mér finnst þjónusta þar sem hún er ekki veitt nema umbeðin frábær, og er nokkuð viss um að mörgum tölvunjörðunum finnst það líka.

Sammála þessu, en það þarf að vera einhver til staðar til að biðja um þjónstu ef maður vill.

Bjóða fram aðstoð gamli

Re: Steluþjófur í Tölvuvirkni ... þekkirðu manninn?

Sent: Fim 27. Maí 2010 10:21
af codec
intenz skrifaði:
codec skrifaði:
AntiTrust skrifaði:Mér finnst þjónusta þar sem hún er ekki veitt nema umbeðin frábær, og er nokkuð viss um að mörgum tölvunjörðunum finnst það líka.

Sammála þessu, en það þarf að vera einhver til staðar til að biðja um þjónstu ef maður vill.

Bjóða fram aðstoð gamli

úff, ég er farin að fá mér meira kaffi. Mynd