Síða 1 af 3
Hvað er best við þynnku ?
Sent: Lau 22. Maí 2010 23:22
af mattiisak
Hvað er best til að losna við þynnku?
Re: Hvað er best við þynnku ?
Sent: Lau 22. Maí 2010 23:24
af Gúrú
Að drekka saltvatn áður en þú þynnkar þig í gang?
Hvað þú gerir eftir það er held ég 98% gagnslaust.
Re: Hvað er best við þynnku ?
Sent: Lau 22. Maí 2010 23:46
af AntiTrust
1. Ekki drekka. Dýrt og pointless.
2. Drekka MIKIÐ af vatni á meðan þú ert að drekka áfengi og eftir að þú hættir að drekka. Þynnka er að vissu leyti vegna þornunar, og áfengi veldur uppþornun.
3. Borðaðu flókin kolvetni. Brauð, morgunkorn, kex til að draga í sig áfengið, bæta blóðsykurinn og róa magann.
4. Borðaðu e-ð sem inniheldur mikið af frúktósa, ávexti, ávaxtasafa.
5. Borða beikonsamloku. Þetta tvennt saman hjálpar til við þynnku.
Re: Hvað er best við þynnku ?
Sent: Sun 23. Maí 2010 00:01
af kubbur
byrjaðu á gegnheilu súkkulaði, fáðu þér síðan feitan hamborgara með eggi og bacon og farðu síðan að hreyfa þig
Re: Hvað er best við þynnku ?
Sent: Sun 23. Maí 2010 00:08
af ColdIce
Þynnkan er mest megnis út af lágum blóðsykri, sem er ástæðan fyrir því að ég drekk ekkert undir 40%. Hef gert tilraunir með marga eftir fyllerí, og hafa rannsóknir mínar leitt í ljós að best sé að drekka Mountain Dew þegar þú vaknar. Það er svo mikið sykurleðja að þú verður góður fljótt.
Einungis staðreyndir rannsókna piltar :p
Re: Hvað er best við þynnku ?
Sent: Sun 23. Maí 2010 00:09
af mattiisak
ColdIce skrifaði:Þynnkan er mest megnis út af lágum blóðsykri, sem er ástæðan fyrir því að ég drekk ekkert undir 40%. Hef gert tilraunir með marga eftir fyllerí, og hafa rannsóknir mínar leitt í ljós að best sé að drekka Mountain Dew þegar þú vaknar. Það er svo mikið sykurleðja að þú verður góður fljótt.
Einungis staðreyndir rannsókna piltar :p
hahh
Re: Hvað er best við þynnku ?
Sent: Sun 23. Maí 2010 00:09
af ZoRzEr
Kl 06
Hlölli, Nonni, Subway. Taka með heim, horfa á eitthvað í góðum fíling, drekka vatn með. Reyna að klára allavega 2 hálfs líter glös af vatni með matnum og eftir. Pissa. Fara sofa. (Planið eftir svona 7 tíma)
Geri þetta næstum alltaf og hefur bjargað mér oft.
Að vakna svangur, þyrstur með þurran kjaft og hausverk er hægt að koma í veg fyrir með því að fara ekki beint að sofa eftir að þú kemur heim. Ef þú gefur þér smá tíma að jafna þig og borða er hægt að koma í veg fyrir flest.
Reynst mér best.
Re: Hvað er best við þynnku ?
Sent: Sun 23. Maí 2010 00:15
af SteiniP
Einn sveittur KFC borgari og líter af appelsínusafa.
Re: Hvað er best við þynnku ?
Sent: Sun 23. Maí 2010 00:16
af hsm
Það er eitt sem klikkar aldrei við þynnku og það er BJÓR
Re: Hvað er best við þynnku ?
Sent: Sun 23. Maí 2010 01:00
af Bjosep
Svo er líka eitt atriði, og það er að rugla ekki líkamsklukkunni voðalega mikið.
Verður væntanlega töluvert meira þynnri ef þú ert að klára djammið 5-6 um morguninn en ef að þú ert að detta heim svona 1-2. Því þynnkan getur eiginlega verið svo mikil blanda af öllu saman sem líkaminn þarf að jafna sig á. Tala nú ekki um ef að þú ert að klára vinnuvikuna á föstudegi og tekur gott skrall á eftir.
Annars virkar líka merkilega vel að drekka vatn jafnt og þétt yfir djammið frekar en bara skella í sig mörgum lítrum þegar þú kemur heim. Líkaminn vinnur líklegast betur úr því að fá lítið af vatni í einu oft en mikið í einum skammti.
Re: Hvað er best við þynnku ?
Sent: Sun 23. Maí 2010 01:02
af Bassi6
hsm skrifaði:Það er eitt sem klikkar aldrei við þynnku og það er BJÓR
Sammála þessu
Re: Hvað er best við þynnku ?
Sent: Sun 23. Maí 2010 01:04
af biturk
Bassi6 skrifaði:hsm skrifaði:Það er eitt sem klikkar aldrei við þynnku og það er BJÓR
Sammála þessu
sammála
annars erþað bara vatn og það mikið af því og hafa það ready við rúmstokkinn
fara á fætur, fá sér smá mat og kaffi, og síðann beint út í frískt loft og fara að brasa eitthvað, eina sem virkar að ráði, síðann eftir svona 1 eða 2 tíma að fá sér eitthvað ógurlega feitt
Re: Hvað er best við þynnku ?
Sent: Sun 23. Maí 2010 04:01
af Daz
AntiTrust skrifaði:1. Ekki drekka. Dýrt og pointless.
Allt annað er bara plástur á opið beinbrot.
Re: Hvað er best við þynnku ?
Sent: Sun 23. Maí 2010 12:05
af Hnykill
fá sér smá gras þegar maður vaknar bara.. það lagar allt
Re: Hvað er best við þynnku ?
Sent: Sun 23. Maí 2010 13:42
af ManiO
Þynnka er bara leið áfengisins að segja að þú hafir ekki drukkið nóg. Drekkur meira, vaknar fullur og getur því gert eitthvað við þynkunni áður en hún kemur.
En ef menn vilja vera í hófsemi þá mæli ég með að drekka bara sterkt áfengi, vodka, romm, gin o.s.frv. Halda sig frá bjór, brenndu víni, léttvíni og ÖLLU sem hefur verið geymt í eik.
Re: Hvað er best við þynnku ?
Sent: Sun 23. Maí 2010 14:14
af intenz
Ég drakk mikinn bjór í gær, samt er ég ekkert þunnur núna.
Ef mér tekst að halda mér BARA í bjór, verð ég lítið/sjaldan þunnur.
Ef skot eða sterkir drykkir læðast inn með bjórnum, verð ég bókað mál þunnur.
Svo fer þetta rosalega mikið eftir því hvort þú borðir áður en drykkja hefst og hvað þú borðar.
Ég hef heyrt að það sé sniðugt að drekka 1-2 glös af Nýmjólk svolitlu áður en drykkja hefst (fóðrar magann). Einnig 1-2 glös eftir fyllerí.
Svo er skothellt að fá sér 1 íbúfen töflu þar sem hún bindur vatnið sem er til staðar í líkamanum, þannig það verður engin ofþornun næsta dag.
Re: Hvað er best við þynnku ?
Sent: Sun 23. Maí 2010 14:17
af Hargo
Re: Hvað er best við þynnku ?
Sent: Sun 23. Maí 2010 17:31
af littli-Jake
Nr.1 Ekki fara svangur og þreittur að drekka
Nr.2 Ekki blanda saman tegundum.
Nr.3 Éta mikið þegar þú kemur heim. Líka æskilegt að fá sér mjólkurglas eða appelsýnusafa
Nr.4 Ekki fara beint að sofa eftir fillerí. Halda sér vakandi í svona klukkutíma lámark. Best að labba líka heim.
Re: Hvað er best við þynnku ?
Sent: Sun 23. Maí 2010 17:34
af Gúrú
littli-Jake skrifaði:NNr.2 Ekki blanda saman tegundum. .
Gömul mýta, algjört bull.
Re: Hvað er best við þynnku ?
Sent: Sun 23. Maí 2010 18:00
af mind
Gúrú skrifaði:littli-Jake skrifaði:NNr.2 Ekki blanda saman tegundum. .
Gömul mýta, algjört bull.
Það er þá væntanlega líka bull að megi ekki blanda saman lyfjum
Re: Hvað er best við þynnku ?
Sent: Sun 23. Maí 2010 18:04
af vesley
mind skrifaði:Gúrú skrifaði:littli-Jake skrifaði:NNr.2 Ekki blanda saman tegundum. .
Gömul mýta, algjört bull.
Það er þá væntanlega líka bull að megi ekki blanda saman lyfjum
Hlýtur nú að átta þig á því hveru ólíkt áfengi og lyf eru?
Re: Hvað er best við þynnku ?
Sent: Sun 23. Maí 2010 18:06
af Gúrú
mind skrifaði:Það er þá væntanlega líka bull að megi ekki blanda saman lyfjum
Nei, það er ekki rökrétt ályktun frá gefnum upplýsingum
Re: Hvað er best við þynnku ?
Sent: Sun 23. Maí 2010 21:09
af mind
Gúrú skrifaði:mind skrifaði:Það er þá væntanlega líka bull að megi ekki blanda saman lyfjum
Nei, það er ekki rökrétt ályktun frá gefnum upplýsingum
Það er alveg rétt, en ég get ekki séð að það sé rökrétt ályktun að það sé algjört bull að ekki sé æskilegt að blanda saman tegundum af áfengi.
Sérstaklega þar sem þú hefur ekki drukkið og því geturðu ekki hafa staðfest þetta sjálfur.
En áfengi er misjafnlega hreint og sumt áfengi veldur meiri þynnkuáhrifum heldur en annað einfaldlega vegna mismunandi efna í því. Þetta hef ég sjálfur staðfest með margra ára prufunum
Re: Hvað er best við þynnku ?
Sent: Sun 23. Maí 2010 21:36
af Gúrú
mind skrifaði:Gúrú skrifaði:mind skrifaði:Það er þá væntanlega líka bull að megi ekki blanda saman lyfjum
Nei, það er ekki rökrétt ályktun frá gefnum upplýsingum
Það er alveg rétt, en ég get ekki séð að það sé rökrétt ályktun að það sé algjört bull að ekki sé æskilegt að blanda saman tegundum af áfengi.
Sérstaklega þar sem þú hefur ekki drukkið og því geturðu ekki hafa staðfest þetta sjálfur.
En áfengi er misjafnlega hreint og sumt áfengi veldur meiri þynnkuáhrifum heldur en annað einfaldlega vegna mismunandi efna í því. Þetta hef ég sjálfur staðfest með margra ára prufunum
Mm ef þú sæir einungis villu þíns vegar.
Re: Hvað er best við þynnku ?
Sent: Sun 23. Maí 2010 21:38
af urban
Gúrú skrifaði:mind skrifaði:Það er þá væntanlega líka bull að megi ekki blanda saman lyfjum
Nei, það er ekki rökrétt ályktun frá gefnum upplýsingum
ég tek rökrétta ályktun út frá reynslu.
og það að blanda saman mikið af áfengum drykkjum (bjór, skot, 1 - 3 tegundir af sterku og jafnvel svona áfeng gos (breezer sull) það veldur alveg hiklaust meiri þynnku en að halda sig við 1 - 2 tegundir.
þú mátt alveg reyna að halda hinu gagnstæða fram, en þar sem að þú hefur alveg greinilega ekki reynsluna, þá get ég alveg sagt þér að ég tek frekar mark á minni reynslu en þínum "gefnu upplýsingum"
EDIT**
Gúrú skrifaði:Ég er fæddur 1995 og hef áhuga á því að njóta óspilltra efnaskipta út ævinnar svo ég drekk ekki enn sem komið er.
þetta er eitthvað sem að rosalega margir hafa sagt á aldrinum 13 - 16 ára
detta síðan í það.
ég tek mark á því að manneskja segist ekki ætla að drekka þegar að hún er enþá edrú um ca 17 - 18 ára aldur.
það byrja langflestir sumarið eftir 10 bekkinn eða 1 ári í framhaldsskóla.