Síða 1 af 1
Að panta tölvuíhluti af ebay
Sent: Lau 22. Maí 2010 21:56
af GullMoli
Sælir.
Nú er ég búinn að vera að pæla í skjákortskaupum af ebay en ég er ekki viss um hver kostnaðurinn verður.
Er það ekki þannig að það er enginn tollur af tölvum og tölvuhlutum? Ætti það þá ekki bara að vera (Hluturin + sendingakostnaður) * 24.5% VSK ?
Svo langar mig að vita hvort það séu einhverjir með reynslu af kaupum af ebay og hvort það sé eitthvað sérstakt sem maður ætti að forðast?
Re: Að panta tölvuíhluti af ebay
Sent: Lau 22. Maí 2010 22:00
af Hj0llz
Það er enginn tollur af tölvuvörum, hef ekki pantað sjálfur en ég sé ekkert sem ætti að stoppa mann ef maður finnur eitthvað sem manni langar í
Re: Að panta tölvuíhluti af ebay
Sent: Lau 22. Maí 2010 22:03
af Hj0llz
og vsk er kominn í 25,5%
Re: Að panta tölvuíhluti af ebay
Sent: Lau 22. Maí 2010 22:06
af GullMoli
Hj0llz skrifaði:og vsk er kominn í 25,5%
Þakka svörin!
Re: Að panta tölvuíhluti af ebay
Sent: Lau 22. Maí 2010 22:08
af Hj0llz
ekki málið...eina vandamálið með tölvudót til landsins sem ég veit um eru skjáir með tuner og svo t.d. kortalesarar þar sem þeir eru víst flokkaðir sem aukahlutir fyrir myndavélar
Re: Að panta tölvuíhluti af ebay
Sent: Lau 22. Maí 2010 22:23
af hagur
Ekki gleyma svo 450-550 króna tollmeðferðargjaldi sem leggst á alla innflutta pakka. Kannski lítill peningur þegar dýr hlutur er verslaður, en getur verið pirrandi þegar maður er að kaupa smáhlut sem kannski kostar innan við 500 kall hingað kominn að þessu sé smurt ofan á og verðið tvöfaldað.
Re: Að panta tölvuíhluti af ebay
Sent: Sun 23. Maí 2010 04:08
af vktrgrmr
Hvað með tölvumúsir er verið að borga vsk af þeim ?
Re: Að panta tölvuíhluti af ebay
Sent: Sun 23. Maí 2010 04:59
af roadwarrior
vktrgrmr skrifaði:Hvað með tölvumúsir er verið að borga vsk af þeim ?
ALLAR tölvuvörur bera 25.5%vsk og í einstaka tilfellum einhvern toll samanber ummælin hér að ofan.
ALLAR VÖRUR eru VSK skyldar. Reyndar mismundandi mikið eftir vöruflokkum.
Stundum sleppa menn við að borga gjöld en það eru í algerum undantekningartilfellum td ef þú getur sannað að það sem þú ert að fá sé td afmælisgjöf frá ættingjum en þá þarftu að vera tilbúinn að þurfa að sanna það.
Re: Að panta tölvuíhluti af ebay
Sent: Sun 23. Maí 2010 11:45
af Daz
vktrgrmr skrifaði:Hvað með tölvumúsir er verið að borga vsk af þeim ?
Meinarðu "talvumúsir"?
Re: Að panta tölvuíhluti af ebay
Sent: Sun 23. Maí 2010 11:49
af Tiger
Daz skrifaði:vktrgrmr skrifaði:Hvað með tölvumúsir er verið að borga vsk af þeim ?
Meinarðu "talvumúsir"?
ég vona að hann sé að meina hvorugt.... "hvað með tölvumýs"
Re: Að panta tölvuíhluti af ebay
Sent: Sun 23. Maí 2010 12:15
af Matti21
http://www.tollur.is/upload/files/calc_ ... 820%29.htmAthugaðu að þú setur inn verðið í íslenskum krónum og það verður að vera verðið á vörunni + sendingakostnaður.
Re: Að panta tölvuíhluti af ebay
Sent: Sun 23. Maí 2010 12:36
af Daz
Snuddi skrifaði:Daz skrifaði:vktrgrmr skrifaði:Hvað með tölvumúsir er verið að borga vsk af þeim ?
Meinarðu "talvumúsir"?
ég vona að hann sé að meina hvorugt.... "hvað með tölvumýs"
Heldurðu það?
Re: Að panta tölvuíhluti af ebay
Sent: Sun 23. Maí 2010 13:37
af Tiger
Daz skrifaði:Snuddi skrifaði:Daz skrifaði:vktrgrmr skrifaði:Hvað með tölvumúsir er verið að borga vsk af þeim ?
Meinarðu "talvumúsir"?
ég vona að hann sé að meina hvorugt.... "hvað með tölvumýs"
Heldurðu það?
Held það ekkert, ég veit það.
et ft
mús mýs
mús mýs
mús músum
músar músa
Re: Að panta tölvuíhluti af ebay
Sent: Sun 23. Maí 2010 19:32
af Daz
Snuddi skrifaði:Daz skrifaði:Snuddi skrifaði:Daz skrifaði:vktrgrmr skrifaði:Hvað með tölvumúsir er verið að borga vsk af þeim ?
Meinarðu "talvumúsir"?
ég vona að hann sé að meina hvorugt.... "hvað með tölvumýs"
Heldurðu það?
Held það ekkert, ég veit það.
et ft
mús mýs
mús mýs
mús músum
músar músa
En þú veist, tölvu? Það er ekki alveg rétt er það? Er það ekki örugglega talvumýs?
Re: Að panta tölvuíhluti af ebay
Sent: Sun 23. Maí 2010 23:25
af Tiger
Var svona nokkuð viss um að þetta væri grín fyrst....en núna tókstu af allan vafa
Re: Að panta tölvuíhluti af ebay
Sent: Mán 24. Maí 2010 01:59
af GullMoli
Nýjar spurningar.
Nú langar mig að versla amk skjákort af ebay. Svo var mér að detta í hug að versla líka örgjörva, þeir fara nú varla að feila á manni. Nú fór ég að spá hvort maður ætti ekki bara að versla ALLT af ebay, töluvert ódýrara og oft sem maður fær ágætis díl á ó opnuðum hlutum.
Hver er möguleg hætta með svona kaupum? Hvað ætti ég helst EKKI að kaupa í gegnum ebay? Ég myndi eflaust versla minnin hérna heima þar sem ég hef lent nokkrum sinnum í því að þau faili og þá er gott að geta reddað því bara innanlands.
Re: Að panta tölvuíhluti af ebay
Sent: Mán 24. Maí 2010 02:15
af BjarniTS
Googlaðu notandan sem þú ætlar að versla við í drasl , ef að verðið er yfir 10.000
Það koma oft upp umræður um það , annars þá er það þannig á ebay að ef að það hljómar eins og of gott til að vera satt , þá er það vafasamt.
Myndi senda líka að gamni tollyfirvöldum bréf varðandi eitthvað sem þú ætlar að flytja inn , ef að þú villt fá nákvæmar upplýsingar um tollafgreiðslu , mundu bara að taka fram allt í bréfinu og gerðu þér grein fyrir því að þú ert ekki að tala við neinn tölvusérfræðing.
Skoðaðu vel "meðmæli" sala á ebay, hve mikið hann hefur selt og hve lengi hann hefur verið að störfum.
Kynntu þér einnig reglur pay-pal um ábyrgð á greiðslum o.s.f.
Re: Að panta tölvuíhluti af ebay
Sent: Mán 24. Maí 2010 09:57
af Daz
Reyndu að kaupa mikið af sama aðila (eftir að þú hefur reynt að rannsaka hann eins og síðasti póstur stakk uppá), færði bæði betra "shipping" og losnar við að borga mörg tollmeðferðargjöld. Reiknaðu einmitt heildverðið á sendingunni áður en þú staðfestir kaup : (verð + shipping+tollmeðferðargjöld)*vsk