Síða 1 af 1
Stofna fyrirtæki/félag, fá VSK felldan
Sent: Þri 11. Maí 2010 12:41
af Viktor
Sælir.
Hef verið að velta þessu fyrir mér með það að fyrirtæki fái 25,5% vsk felldan af tölvuvörum ef þær verða nýttar til reksturs.
Hvernig gengur þetta fyrir sig?
Get ég stofnað lítið hýsingarfyrirtæki fyrir fólkið á heimilinu og fengið 25,5% fellt af ef ég stofna félag undir það?
Hef líka heyrt að þá sé ábyrgðin eitt ár í stað tveggja.
Takk.
Re: Stofna fyrirtæki/félag, fá VSK felldan
Sent: Þri 11. Maí 2010 12:51
af morsi
Sé það ekki ganga upp, nema þú nennir að standa í vsk skýrslum og þessháttar tilfæringum.
annars eru upplýsingar hérna
http://www.nmi.is/impra/leyfi-og-thjonusta/stofnun-fyrirtaekja/
Re: Stofna fyrirtæki/félag, fá VSK felldan
Sent: Þri 11. Maí 2010 13:08
af Daz
Það er ákveðinn kostnaður við að fá fyrirtækjakennitölu, man þetta ekki nákvæmlega en eins og hefur mikið verið talað um í kringum bankahrunið vorum menn að stofna skúffufyrirtæki sem kostuðu einhverja hundraðþúsundkalla.
Re: Stofna fyrirtæki/félag, fá VSK felldan
Sent: Þri 11. Maí 2010 13:42
af GuðjónR
Og fyrirtækið verður að vera með innkomu a móti gjöldum.
Gengur ekki að stofna *.ehf til þess að fá vsk til baka ef það eru engar tekjur á félagið.
Re: Stofna fyrirtæki/félag, fá VSK felldan
Sent: Þri 11. Maí 2010 14:34
af Pandemic
Þú verður að byrja með ákveðin höfuðstól hann er orðin eitthvað yfir 500þúsund. Svo verðuru að sýna framá veltu.
Það er nýbúið að herða reglurnar um ehf. þar sem þetta var mikið misnotað.
Re: Stofna fyrirtæki/félag, fá VSK felldan
Sent: Þri 11. Maí 2010 15:56
af addi32
Getur allveg stofnað fyrritæki á eigin kennitölu og fengið vsk felldan niður. En annað mál að þú þarft að skila inn bókhaldi og þeir taka þig í gegn ef þetta fyrirtæki er bara fyrir eign hagsmuni. Verður að fá innkomu og borga þér laun sem þú borgar skatt af.
Re: Stofna fyrirtæki/félag, fá VSK felldan
Sent: Þri 11. Maí 2010 16:24
af hsm
addi32 skrifaði:Getur allveg stofnað fyrritæki á eigin kennitölu og fengið vsk felldan niður. En annað mál að þú þarft að skila inn bókhaldi og þeir taka þig í gegn ef þetta fyrirtæki er bara fyrir eign hagsmuni. Verður að fá innkomu og borga þér laun sem þú borgar skatt af.
Þarft ekki að borga þér sérstaklega laun ef þú ert með rekstur á þinni eigin kennitölu, þar sem þú þarf að borga skatt af öllum hagnaði eins og um laun væri að ræða.
S.s fullan tekjuskatt sem er 37,22% eða meira, fer eftir hvað hagnaðurinn er mikill, en ekki 18% eins og gildir um ehf.
Re: Stofna fyrirtæki/félag, fá VSK felldan
Sent: Þri 11. Maí 2010 16:48
af DabbiGj
Þarft að standa í einhverjum rekstri, gefur svo væntanlega út reikninga sem að borgar vask sem að þú þarft svo að skila inn, svo þarftu að leggja inn nótur og vaskskýrslur á móti því til að fá vask endurgreiddann.
Miklu meira vesen en að það taki því að standa í þessu fyrir einhverja þúsundkalla, getur lent í því að fá áætlanir á þig ef að þú gleymir að skila inn skýrslum, þarft svo að greiða tryggingargjald o.s.f. og alveg endalaust vesen ef að þú ert að hugsa um að spara þér einhverja þúsundkalla á tölvukaupum.