Síða 1 af 1
Röng túlkun laga... [niðurhal af netinu]
Sent: Mán 10. Maí 2010 20:11
af rapport
http://www.pressan.is/Frettir/LesaFrett ... r-tha-sekuEr það ekki rétt hjá mér að það sé með fullu löglegt að downloada höfunavörðu efni af netinu?
Það er aftur á móti ólöglegt að deila höfundavörðu efni með öðrum.
Re: Röng túlkun laga... [niðurhal af netinu]
Sent: Mán 10. Maí 2010 20:13
af vesley
Jú ef ég man rétt þá er ekki hægt að sekta þig fyrir að sækja efnið en hinsvegar er það hægt ef þú deilir því.
Re: Röng túlkun laga... [niðurhal af netinu]
Sent: Mán 10. Maí 2010 21:01
af AntiTrust
Ætla að copya bara kommentið sem ég setti á facebook um þetta :
Aular. Í fyrsta lagi, nei, það er ekki ólöglegt að niðurhala efni, það er ólöglegt að upphlaða því, lesið lögin og skrifið svo grein, ekki öfugt. Í öðru lagi, NEI, það má ekki bera það saman við að 2000 manns hafi stolið DVD disknum þar sem líklega stór ef ekki mestpartur af þeim sem sóttu myndina gerðu það fyrir forvitnissakir, en voru þó ekki líklegir til þess að kaupa hana hefði það verið eina úrræðið.
Kjartan þór, hafðu hlutina á hreinu áður en þú opnar þá þér kjaftinn, þetta er bara vandræðalegt.
En það verður auðvitað að athuga það að fólk sem er með default stillingar á torrent sem dæmi, er að deila skránni á sama tíma og það er að sækja hana.
Og svo ég bæti við, þá hefur IFPI gert margar rannsóknir og kannanir um áhrif niðurhals á sölu á varning, og niðurstöðurnar eru ekki beint SMÁÍS og öðrum í hag, ekki mikils allavega. Það hafa engar slíkar rannsóknir hérlendis verið gerðar að mér vitandi, og því engan vegin hægt að færa sönnur fyrir því að um beint tekjutap sé að ræða.
Re: Röng túlkun laga... [niðurhal af netinu]
Sent: Mán 10. Maí 2010 22:55
af kazgalor
Salan hefur minnkað gríðarlega. Þetta er sambærilegt við það að 2000 manns fari út í búð og steli DVD-diskum með myndinni.
Þetta fannst mér frábær setning. Hverning í ósköpunum fá þeir þetta út? Það er svona röksemdarfærsla sem gerir það að verkum að Smáís er aðhlátursefni fjölmiðlageirans.
Af hverju? vegna þess að ef málið væri svona einfalt þá væri búið að ákæra alla þá sem náðu í myndina, ekki satt?
Re: Röng túlkun laga... [niðurhal af netinu]
Sent: Mán 10. Maí 2010 23:01
af Daz
Vaktar DVD diskarnir seldust í fáránlegu magni. Líklega hefðu þeir selst 3x meira ef enginn hefði downloadað þeim, augljóslega.
Re: Röng túlkun laga... [niðurhal af netinu]
Sent: Mán 10. Maí 2010 23:03
af atlih
já og má reikna með að 20 þúsund mans hafi náð í hana á netinu og stolið þar með 5,5 milljónum af saga film
þetta er rosalegt
Re: Röng túlkun laga... [niðurhal af netinu]
Sent: Mán 10. Maí 2010 23:08
af vesley
atlih skrifaði:já og má reikna með að 20 þúsund mans hafi náð í hana á netinu og stolið þar með 5,5 milljónum af saga film
þetta er rosalegt
Það er svo RANGT að segja að það hafi verið stolið af Saga film. í hvert skipti sem myndinni var niðurhalað þá hvarf ekki 3þús kall af reikningum...
þeir bara fengu ekki þennan pening.
og ágætis hluti af þessu fólki hefði líklegast ekki keypt myndina hvort eð er.
og ég veit um marga sem sækja myndir og kaupa þær líka.
Re: Röng túlkun laga... [niðurhal af netinu]
Sent: Mán 10. Maí 2010 23:09
af Viktor
Þetta er svo fáránlegt. Ef einhver gefur mér iPod í jólagjöf, þýðir það að það voru 100% líkur á því að ég hefði keypt iPod ef mér hefði ekki verið gefið hann? Skrýtinn málflutningur.
Re: Röng túlkun laga... [niðurhal af netinu]
Sent: Mán 10. Maí 2010 23:11
af hauksinick
Já, Kjartan hefði svo sem mátt rökstyðja betur þessa kenningu sína um 20.000 manns sem eiga að hafa niðurhalað myndefninu, þetta er þó bara ágiskun hjá honum ekki fullyrðing.
Re: Röng túlkun laga... [niðurhal af netinu]
Sent: Mán 10. Maí 2010 23:17
af AntiTrust
Daz skrifaði:Vaktar DVD diskarnir seldust í fáránlegu magni. Líklega hefðu þeir selst 3x meira ef enginn hefði downloadað þeim, augljóslega.
Rétt og rangt. Vissulega hefðu fleiri keypt sér diskinn, en það er engin leið að segja hversu margir fleiri, hvað þá að segja að líklega hefðu 3x fleiri selst.
Re: Röng túlkun laga... [niðurhal af netinu]
Sent: Mán 10. Maí 2010 23:21
af urban
AntiTrust skrifaði:Daz skrifaði:Vaktar DVD diskarnir seldust í fáránlegu magni. Líklega hefðu þeir selst 3x meira ef enginn hefði downloadað þeim, augljóslega.
Rétt og rangt. Vissulega hefðu fleiri keypt sér diskinn, en það er engin leið að segja hversu margir fleiri, hvað þá að segja að líklega hefðu 3x fleiri selst.
en með okkur sem að kaupum efnið vegna þess að því var downloadað ?
ætli ég hafi ekkilað samtals 11 eða 12 eintök af nætur/dag/fanga vaktinni
á öll 3 eintökin og gaf síðan slatta í jólagjafir.
hefði aldrei gert það hefði ég ekki downloadað þessu
Re: Röng túlkun laga... [niðurhal af netinu]
Sent: Mán 10. Maí 2010 23:22
af Daz
AntiTrust skrifaði:Daz skrifaði:Vaktar DVD diskarnir seldust í fáránlegu magni. Líklega hefðu þeir selst 3x meira ef enginn hefði downloadað þeim, augljóslega.
Rétt og rangt. Vissulega hefðu fleiri keypt sér diskinn, en það er engin leið að segja hversu margir fleiri, hvað þá að segja að líklega hefðu 3x fleiri selst.
Augljóslega
Re: Röng túlkun laga... [niðurhal af netinu]
Sent: Mán 10. Maí 2010 23:24
af atlih
ég var einmitt að gera grín af þessari tölu "20.000" það er eins og hann hafi notað þá formúlu að ef 2000 eru bunir að dl á einum stað hlýtur að vera búið að dl því allavega 10 meira en það
þó það meiki nú ekkert sens er allt í lagi að segja það í viðtali. talan kemur jú líklega frá nokkurm tölvuheftum einstaklingum sem hafa rætt þetta á kaffistofu og komist að þeirri niðurstöðu að þetta sé líklega rétt tala.
Re: Röng túlkun laga... [niðurhal af netinu]
Sent: Þri 11. Maí 2010 00:14
af rapport
HOLY CHRIST...
Ef þeir töpuðu 5,5 milljónum á 2.000 diskum, þá er 2.750 kr. álagning pr. disk...
Ef salan er að minnka hjá þeim, þá er ÞAÐ líklega ástæðan...
Re: Röng túlkun laga... [niðurhal af netinu]
Sent: Þri 11. Maí 2010 00:24
af Jimmy
Tss, samsteypa sem er búin að selja sama efnið á vínil, kassettu og CD getur ekki grenjað yfir að fólk finni sér aðrar leiðir til að redda sér efni.
Re: Röng túlkun laga... [niðurhal af netinu]
Sent: Þri 11. Maí 2010 01:08
af Sphinx
ég meina var þetta ekki svona líka með næturvaktina,dagvaktina,fangavatkina... þeir sögðu að þeir ætluðu að kæra hvern einasta mann sem sóttu þetta á netinu.. veit ekki alveg hvernig þetta fór en eg veit nu ekki betur en þeir gátu bara ekki gert neitt i þessu
Re: Röng túlkun laga... [niðurhal af netinu]
Sent: Þri 11. Maí 2010 01:21
af biturk
persónulega
þá fynnst mér heineken og síld á ritz kex alveg dásamleg blanda
Re: Röng túlkun laga... [niðurhal af netinu]
Sent: Þri 11. Maí 2010 01:40
af Hvati
biturk skrifaði:persónulega
þá fynnst mér heineken og síld á ritz kex alveg dásamleg blanda
Ertu viss um að þú hafir postað þessu á réttan þráð?