Síða 1 af 2

Ég á við tölvufíkn að stríða (Poll)

Sent: Mið 05. Maí 2010 18:56
af BjarniTS
Mér finnst ég eyða allt of miklum tíma fyrir framan tölvuskjá.
Hvað með ykkur ?

Re: Ég á við tölvufíkn að stríða (Poll)

Sent: Mið 05. Maí 2010 19:11
af Vectro
Mér finnst þú líka eyða of miklum tíma fyrir framan tölvuskjá já.

Re: Ég á við tölvufíkn að stríða (Poll)

Sent: Mið 05. Maí 2010 19:41
af Klemmi
Vinn við þetta rugl svo það er líklega ekkert sem heitir of mikill tími :/

Re: Ég á við tölvufíkn að stríða (Poll)

Sent: Mið 05. Maí 2010 19:43
af bixer
ég er langt leiddur í fíknini, langar að fá hjálp en get ekki hugsað mér að eyða minni tíma fyrir framan tölvuskjáinn

Re: Ég á við tölvufíkn að stríða (Poll)

Sent: Mið 05. Maí 2010 20:16
af himminn
Þetta er lífstíll :D

Re: Ég á við tölvufíkn að stríða (Poll)

Sent: Mið 05. Maí 2010 20:19
af BjarkiB
Er tölvunni allan daginn, ét allan daginn en á móti er fótboltinn sem heldur mér í formi. Fínn lífsstíll hér á ferð :lol:

Re: Ég á við tölvufíkn að stríða (Poll)

Sent: Mið 05. Maí 2010 20:23
af Klemmi
Tiesto skrifaði:Er tölvunni allan daginn, ét allan daginn en á móti er fótboltinn sem heldur mér í formi. Fínn lífsstíll hér á ferð :lol:


Ertu í meistaraflokki, ef svo er, að spila með einhverju liði? :)

Re: Ég á við tölvufíkn að stríða (Poll)

Sent: Mið 05. Maí 2010 20:24
af BjarkiB
Er nú bara í 4.flokki KA. :roll:

Re: Ég á við tölvufíkn að stríða (Poll)

Sent: Mið 05. Maí 2010 20:36
af Klemmi
Hvaða hvaða! Jæja, gangi þér samt sem áður vel í sumar ;)

Re: Ég á við tölvufíkn að stríða (Poll)

Sent: Mið 05. Maí 2010 20:36
af BjarkiB
Takk fyrir það.

Re: Ég á við tölvufíkn að stríða (Poll)

Sent: Mið 05. Maí 2010 20:45
af Jimmy
Var langt leiddur þegar ég asnaðist útí MMO pakkann.. Allt allt allt allt annað líf þegar ég drullaði mér uppúr því, finn ekki fyrir því að sleppa tölvuglápi heilu dagana í senn í seinni tíð.

Re: Ég á við tölvufíkn að stríða (Poll)

Sent: Mið 05. Maí 2010 21:22
af Victordp
Ég á ekki erfitt með tölvuna og ég hef fulla stjórn á minni tölvunotkun.
NEMA ÉG SÉ AÐ SCRIMMA ÞÁ ER ÞAÐ FUU OFF! :twisted: :twisted:

Re: Ég á við tölvufíkn að stríða (Poll)

Sent: Mið 05. Maí 2010 23:13
af Gúrú
Ég varð frekar hræddur þegar ég sá að hlutfallið á milli fíkla og heilbrigðra var 7:1 þarna í byrjun. :shock:

Re: Ég á við tölvufíkn að stríða (Poll)

Sent: Mið 05. Maí 2010 23:35
af AntiTrust
Tjah, veit nú ekki hvort það var fíkn sem slík, en jú það lá við því á tímabili, fyrir nokkrum árum, en það kom aldrei niður á félagslífi, námi eða íþróttaiðkun. Kom nánast bara niður á svefn. Var og hef hinsvegar aldrei verið tölvuleikjamanneskja, og alveg sérstaklega ekki online gaming. En þetta minnkaði talsvert eftir að maður fór að vinna við þetta.

Ég er hinsvegar með fróðleiksfíkn, og finnst hálferfitt að fara að sofa án þess að hafa lesið yfir helstu tech-wise fréttirnar í Google Readernum.

Re: Ég á við tölvufíkn að stríða (Poll)

Sent: Mið 05. Maí 2010 23:44
af himminn
AntiTrust skrifaði:Tjah, veit nú ekki hvort það var fíkn sem slík, en jú það lá við því á tímabili, fyrir nokkrum árum, en það kom aldrei niður á félagslífi, námi eða íþróttaiðkun. Kom nánast bara niður á svefn. Var og hef hinsvegar aldrei verið tölvuleikjamanneskja, og alveg sérstaklega ekki online gaming. En þetta minnkaði talsvert eftir að maður fór að vinna við þetta.

Ég er hinsvegar með fróðleiksfíkn, og finnst hálferfitt að fara að sofa án þess að hafa lesið yfir helstu tech-wise fréttirnar í Google Readernum.

Svefn, pfft, hver þarf þannig?

Re: Ég á við tölvufíkn að stríða (Poll)

Sent: Mið 05. Maí 2010 23:47
af AntiTrust
himminn skrifaði:
AntiTrust skrifaði:Tjah, veit nú ekki hvort það var fíkn sem slík, en jú það lá við því á tímabili, fyrir nokkrum árum, en það kom aldrei niður á félagslífi, námi eða íþróttaiðkun. Kom nánast bara niður á svefn. Var og hef hinsvegar aldrei verið tölvuleikjamanneskja, og alveg sérstaklega ekki online gaming. En þetta minnkaði talsvert eftir að maður fór að vinna við þetta.

Ég er hinsvegar með fróðleiksfíkn, og finnst hálferfitt að fara að sofa án þess að hafa lesið yfir helstu tech-wise fréttirnar í Google Readernum.

Svefn, pfft, hver þarf þannig?


Það var akkúrat mottó-ið mitt þegar ég var yngri. Ég var vanur að fara að sofa um 3-4leytið, svo var æfing frá 5-7, skóli, aftur æfing 18-21, tölva, svefn kl 3. Var helvítí gott að sofa 60% af grunnskóla og close to dúxa.

Re: Ég á við tölvufíkn að stríða (Poll)

Sent: Mið 05. Maí 2010 23:49
af bixer
þegar ég hugsa mig aðeins um þá er þetta bara áhugamál, ég hugsa um margt annað en tölvuna en finnst erfitt að vera án hennar.
ég er t.d.
í ágætis formi(4,3 í fituprósentu en samt ekki ofur mjór)
stunda ræktina mikið
er oft með vinum mínum
er alltaf með dúlluni minni

en samt er tölvan mjög stór hluti af lífinu mínu

Re: Ég á við tölvufíkn að stríða (Poll)

Sent: Mið 05. Maí 2010 23:51
af AntiTrust
bixer skrifaði:þegar ég hugsa mig aðeins um þá er þetta bara áhugamál, ég hugsa um margt annað en tölvuna en finnst erfitt að vera án hennar.
ég er t.d.
í ágætis formi(4,3 í fituprósentu en samt ekki ofur mjór)
stunda ræktina mikið
er oft með vinum mínum
er alltaf með dúlluni minni

en samt er tölvan mjög stór hluti af lífinu mínu


4.3% fituprósentu? Ertu alveg viss?

Alveg hættulega lítið, líffræðilega er 4.3% hættulegt til lengri tíma litið.

Re: Ég á við tölvufíkn að stríða (Poll)

Sent: Fim 06. Maí 2010 00:22
af Gúrú
Þú ert ekki í 4.3% fitu, 14.3% væri fínt form, meinarðu það?

Re: Ég á við tölvufíkn að stríða (Poll)

Sent: Fim 06. Maí 2010 01:41
af Danni V8
Þessi tölvufíkn er orðið vandamál hjá mér. Ég á að vera sofandi núna, 12 tíma vakt eftir kl 6 í fyrramálið :lol:

Re: Ég á við tölvufíkn að stríða (Poll)

Sent: Fim 06. Maí 2010 11:00
af Viktor
Stundum er basl að hætta á kvöldin :the_jerk_won Fer núna t.d. aldrei að sofa nema vera búinn að horfa á 1-2 þætti, sem getur tafið svefninn mikið :myballssuck

Re: Ég á við tölvufíkn að stríða (Poll)

Sent: Fim 06. Maí 2010 11:19
af mattiisak
hugsa að þetta sé komið í smá fíkn hjá mér. Fer aðeins tölvuna áður enn ég fer í skólann . svo 40 mín í hádeginu svo skóli svotölva til 7 svo vinir svo tölvan frá 9-10-11 til 3-4 svo mynd eða þáttur og svo smá svefn.

Re: Ég á við tölvufíkn að stríða (Poll)

Sent: Fim 06. Maí 2010 12:42
af chaplin
Sallarólegur skrifaði:Stundum er basl að hætta á kvöldin :the_jerk_won Fer núna t.d. aldrei að sofa nema vera búinn að horfa á 1-2 þætti, sem getur tafið svefninn mikið :myballssuck

Nákvæmlega sama hjá mér..

Dúndra tveimur þáttum á, shutdown -s -t 2600 er goodshit combo..

Re: Ég á við tölvufíkn að stríða (Poll)

Sent: Fim 06. Maí 2010 12:46
af Viktor
daanielin skrifaði:shutdown -s -t 2600 er goodshit combo..


Góð hugmynd... nota þetta næst.

Re: Ég á við tölvufíkn að stríða (Poll)

Sent: Fim 06. Maí 2010 13:59
af chaplin
Já þæginlegt að láta tölvuna slökkva á sér um leið og þættirnir eru búnir, þarf þá ekki að stökkva úr rúmminu og gera það sjálfur, óþolandi að vera kominn í "the perfect position" og þurfa svo að brasla í tölvunni. ;)