Síða 1 af 1
Símastuldur - berjast gegn þeim?
Sent: Sun 18. Apr 2010 19:37
af Gúrú
Nú skilst mér á
IMEI upplýsingum, að í hvert skipti sem þú sendir SMS
og hringir, fari upplýsingar til símafyrirtækisins, og í þeim sé IMEI talan.
Þar sem að ca 99% af öllum símasölum á nýjum símtólum fara fram hjá símafyrirtækjunum, af hverju er ekki hægt að skrá símann(IMEI'ið) á sig?
Þá í næsta skipti þegar einhvað kjánaprik stelur símanum mínum og lætur SIM kortið sitt í hann, get ég fengið upplýsingar frá símafyrirtækinu sem SIM kortið er skráð á,
lagt inn kæru hjá lögreglunni og þeir sótt símann til skráðs eiganda SIM kortsins?
Re: Símastuldur - berjast gegn þeim?
Sent: Sun 18. Apr 2010 20:01
af AntiTrust
Uhm.. Það er gert?
Þegar þú kaupir nýjann síma út í búð, seturu þína kt á nótuna, og á nótuna fer ávallt serial númerið á símanum líka, það er, IMEI númerið.
Það eina sem þarf er að kveikt sé á símanum til þess að rekja hann, en það er víst talsvert erfiðara að fá slíkt í gegn í dag.
Re: Símastuldur - berjast gegn þeim?
Sent: Sun 18. Apr 2010 20:02
af Gúrú
Af hverju er það ekki standard viðbúnaður meðal símafyrirtækja að láta vita þegar stolnir símar eru virktir?
Re: Símastuldur - berjast gegn þeim?
Sent: Sun 18. Apr 2010 20:04
af Gunnar
veit um einn sem keypti sér síma af vini vina síns.
svo hringir löggan í hann 1 mán síðar og segjir honum að þeir vita hvar hann er buinn að vera síðustu vikurnar, svo hann skilaði símanum. það var walkman sími.
Re: Símastuldur - berjast gegn þeim?
Sent: Sun 18. Apr 2010 20:09
af AntiTrust
Gúrú skrifaði:Af hverju er það ekki standard viðbúnaður meðal símafyrirtækja að láta vita þegar stolnir símar eru virktir?
A) Fólk veit almennt ekkert hvað eða til hvers hægt er að nota IMEI númerið
B) Vegna A) eru símar oft skráð á fólkið sem keypti símann í gjöf, sem símar eru oft
C) Efast um að allir sem kæra símstuld (þeir fáu sem það gera) áframsendi IMEI til lögreglunnar
D) Efast um að þau fáu IMEI númer sem lögreglan fær, séu áframsend til símafyrirtækja og monitor-uð í realtime.
Basicly, eins og samfélagið hugsar þetta líklega í dag, allt of mikið vesen þegar skaðinn er oftast í 15-40þúsund. Meðalmanneskja er ekki með mikið dýrari síma. Þessi aðferð hefur hinsvegar verið notað þegar síminn var einn af mörgu sem var stolið úr íbúð t.d. eða þegar bíl er stolið, til að fá staðsetningu.
Re: Símastuldur - berjast gegn þeim?
Sent: Sun 18. Apr 2010 22:04
af axyne
símanum mínum var einu sinni stolið, ég vissi IMEI númerið og fór niðrá lögreglustöð og kærði og lét þá hafa númerið. 3 vikum seinna fékk ég símann aftur
Re: Símastuldur - berjast gegn þeim?
Sent: Sun 18. Apr 2010 23:01
af Páll
axyne skrifaði:símanum mínum var einu sinni stolið, ég vissi IMEI númerið og fór niðrá lögreglustöð og kærði og lét þá hafa númerið. 3 vikum seinna fékk ég símann aftur
Hvar fæ ég þetta IMEI nr ?
Re: Símastuldur - berjast gegn þeim?
Sent: Sun 18. Apr 2010 23:04
af ElbaRado
Er oftast undir batterý-inu. Á að standa IMEI of svoa talna runa
Re: Símastuldur - berjast gegn þeim?
Sent: Sun 18. Apr 2010 23:08
af Páll
ElbaRado skrifaði:Er oftast undir batterý-inu. Á að standa IMEI of svoa talna runa
Takk.
Re: Símastuldur - berjast gegn þeim?
Sent: Sun 18. Apr 2010 23:17
af Gúrú
Það á líka að vera hægt að slá eitthvað inn í símann, #06# rsom.
Re: Símastuldur - berjast gegn þeim?
Sent: Sun 18. Apr 2010 23:30
af Orri
ElbaRado skrifaði:Er oftast undir batterý-inu. Á að standa IMEI of svoa talna runa
En á iPhone ?
Re: Símastuldur - berjast gegn þeim?
Sent: Sun 18. Apr 2010 23:32
af ElbaRado
Ekki hugmynd, var ekki Iphone hja Hátækni þegar ég vann þar.
Re: Símastuldur - berjast gegn þeim?
Sent: Sun 18. Apr 2010 23:37
af AntiTrust
Gúrú : það er *#0000# EDIT:Nei, það er rétt hjá þér, þetta gefur upp firmware version og flr.
Orri :
http://support.apple.com/kb/ht1267
Re: Símastuldur - berjast gegn þeim?
Sent: Mán 19. Apr 2010 00:14
af Hjaltiatla
Gúrú skrifaði:Það á líka að vera hægt að slá eitthvað inn í símann, #06# rsom.
það er *#06# til að fá serial number á Nokia
Re: Símastuldur - berjast gegn þeim?
Sent: Mán 19. Apr 2010 09:33
af Danni V8
En er ekki hægt að hafa samband við símafyrirtækið sem maður keypti símann hjá til að fá þetta númer uppgefið? Þar sem að fæsti eru búnir að skrá niður þetta númer hjá sér áður en símanum er stolið hehe.
Re: Símastuldur - berjast gegn þeim?
Sent: Mán 19. Apr 2010 11:01
af depill
Þetta er eithvað með að krimmar hafa mannréttindi líka, en helst ekki heiðarlegt fólk. Þarft víst að kæra þetta til lögreglu sem þarf að fá leyfi frá dómstólum til þess að brjóta ekki persónuvernd til að þess að símafyrirtækið meigi reyna staðsetja símann eða gefa þér hver er með símann þinn núna.
Símfyrirtækin vita hvaða síma(IMEI sent) er verið að nota um leið og þið kveikið á símtækjunum ykkar, hvernig haldið þið eiginlega að þessar sjálfvirku stillingar virki sem þið fáið sent án þess að biðja um það. Síminn ykkar tékkar alltaf reglulega inn til símfyrirtækins og lætur vita af sér. Þannig þetta er ekkert mál fyrir símfyrirtækin að finna þetta út, bara ólöglegt að leyfa ykkur að vita hver það er án kæru og dómsúrskurðar til þess að brjóta ekki persónuvernd krimma.
Re: Símastuldur - berjast gegn þeim?
Sent: Mán 19. Apr 2010 11:45
af Meso
Ég fæ nú bara SMS ef einhver stelur símanum mínum sem er Samsung Jet,
hægt er að velja 2x símanr og ef það er skipt um sim kort sendir síminn sjálfkrafa sms í tvö nr sem ég valdi.
Maður verður bara að passa að slökkva á þessu ef maður selur símann eða lánar hann.
Re: Símastuldur - berjast gegn þeim?
Sent: Mán 19. Apr 2010 17:38
af Nariur
depill skrifaði:Þetta er eithvað með að krimmar hafa mannréttindi líka, en helst ekki heiðarlegt fólk. Þarft víst að kæra þetta til lögreglu sem þarf að fá leyfi frá dómstólum til þess að brjóta ekki persónuvernd til að þess að símafyrirtækið meigi reyna staðsetja símann eða gefa þér hver er með símann þinn núna.
Símfyrirtækin vita hvaða síma(IMEI sent) er verið að nota um leið og þið kveikið á símtækjunum ykkar, hvernig haldið þið eiginlega að þessar sjálfvirku stillingar virki sem þið fáið sent án þess að biðja um það. Síminn ykkar tékkar alltaf reglulega inn til símfyrirtækins og lætur vita af sér. Þannig þetta er ekkert mál fyrir símfyrirtækin að finna þetta út, bara ólöglegt að leyfa ykkur að vita hver það er án kæru og dómsúrskurðar til þess að brjóta ekki persónuvernd krimma.
Það brýtur ekki gegn neinni persónuvernd að fá að vita hvar síminn manns er
Re: Símastuldur - berjast gegn þeim?
Sent: Mán 19. Apr 2010 17:58
af BjarniTS
Getið líka bara slegið þessu inn í google earth og það gefur þér gps hnit með 9mm skekkjumörkum*